Tíminn - 30.10.1983, Page 10
io
SUNNUDAGUR 3fl. OKTÓBER 1983
■ Frá pressuballinu 1966, Helle Virkner Krag, Atli Steinarsson og
Sigurður Bjarnason frá Vigur, þáverandi ritstjóri Morgunblaðsins.
■ Á áratugnum 1962-1972 voru haldin hér
á hverju ári svokölluð pressuböil og þóttu
jafnan veglegustu hátíðir ársins hverju sinni
enda gestalistinn ahrifamikill. Meðal gesta á
þessum böllum má nefna ráðherrana Jens
Otto Krag og Per Hækkerup og þáverandi
formann breska íhaldsflokksins Edward
Heath. Margir sakna eflaust þessara hátíða,
þar sem lágmarksklæðnaður var síðir kjólar
og smóking, en litlar líkur virðast á að þetta
verði nokkurn tímann endurtekið.
■ Ása Jónsdóttir, Tómas Karlsson og Grete Hækkerup
■ Tímaborðið á ballinu 1968, Ámi Gunnarsson, Alfreð Þorsteinsson og Kári Jónasson ásamt konum sínum.
Ekki berum við kennsl á manninn fremst til hægri.
Þau sem lengst af skipuðu pressuballa-
nefnd voru þau Agnar heitinn Bogason,
Elín Pálmadóttir og Atli Steinarsson en
við báðum Atla að rifja upp í stórum
dráttum sögu þessara balla.
„Böllin hófust sama ár og Hótel Saga
opnaði. Ég man að fyrsta ballið þar var -
á vegum Stangveiðifélagsins en síðan
vorum við með fyrsta pressuballið kvöld-
ið eftir, á laugardagskvöldi“ sagði Atli.
- A þessum böllum gafst almenningi
kostur á að kaupa miða, aðgangur var
ekki bundinn við félagsmenn B.í. en
fyrsta ballið vakti strax mikla athygli
fyrir veglegheitin og var fyrsti heiðurs-
gesturinn Gunnar Gunnarsson. Hélt
hann hátíðaræðu eins og til var ætlast en
þótti nokkuð langorður.
„Raunar átti að bjóða einhverjum
erlendum gesti á fyrsta ballið en það var
ekki byrjað nógu snemma að huga að
því og fórst það því fyrir og raunarefast
maður um að það hefði gefist vel því
þessi böll voru þá ekki búin að vinna sér
þann sess í samkvæmislífinu sem síðar
varð“ sagði Atli.
Utanríkisráðuneytið
með í ráðum
I máli Atla kemur fram að utanríkis-
ráðuneytið var mjög ánægt á þessum
tíma að boðið skyldi erlendum gestum á
þessi böll og komu oft uppástungur um
menn úr ráðuneytinu þar að lútandi
enda þá um að ræða menn sem ráðuneyt-
ið vildi ræða við. Samt brást það tvisvar
að erlendir boðsgestir kæmu. í fyrra
tilfellinu var William Heinesen, færeyski
rithöfundurinn, boðinn, þáði boðið en
komst svo ekki þar sem flug féll niður. í
síðara tilfellinu var það Bernedette
Devlin norðurírski þingmaðurinn, sem
boðin var hingað, en hún forfallaðist af
einhverjum orsökun og sendi ekki skeyti
þar um fyrr en á hádegi sama dag og
ballið átti að vera og þá orðið of seint að
fá annan.
„Það var alltaf mikið tilstand í kring-
um þessi boll og þegar frá leið vöktu þau
jafnan mikið umtal og málin þróuðust
þannig að þetta var mikið til sama fólkið
sem sótti þau ár frá ári" segir Atli, en
ekki voru allir jafnhrifnir af þeini. Innan
Blaðamannafélagsins sjálfs vóru skoðan-
ir mjög .skiptar um þessi böll, viss hluti
félagsmanna alfarið á móti snobbinu í
kringum þau. Atli segir að skiptingin
hefði yfirleitt verið þannig að 40% voru
með þeim, 40% á móti og 20% voru á
báðum áttum. Ef vel tókst til þá var
þetta alit í lagi, ef illa tókst til átti að
leggja þau niður.
Félagið slapp vel
„Eitt af okkar vandamálum var að
— veglegustu
hátíðir sjöunda
áratugarins
með gesti á borð
við ráðherrana
Jens Otto
Krag, Per
Hækkerup og
Edward Heath
miðaverð til blaðamanna var ódýrara en
til almennings og þegar blaðamenn fjöl-
menntu, eins og þegar Edward Heath
kom, þá voru eitthvað á annað hundrað
á ballinu, kom hátíðin út í mínus en
markmiðið hjá okkur var að böllin stæðu
undir kostnaði og tókst það yfirleitt vel,
þannig að félagið slapp ágætlega frá
þessu. Á sumum böllum var ofurlítill
hagnaður og á sumum ofurlítið tap en á
heildina litið stóðum við á sléttu“
Til að byrja með voru böllin haldin á
Hótel Sögu og Hótel Borg en 1966 var
pressuballið haldið í Lídó og þá var
heiðursgesturinn Jens Otto Krag
forsætisráðherra Danmörkur.
„Blaðamenn gerðu mikið til að gera
þessi böll falleg. í Lídó var safnað saman
málverkum í eigu blaðamanna og þau
hengd upp þar sem veggpláss var auk
þess sem við fengum leiktjaldasmiðina
Gunnar Bjarnason og Steinþór Sigurðs-
son í lið með okkur til að skreyta salinn
og ekki má gleyma Binna í Blóm og
ávextir", segir Atli en fyrsta ballið í
Lídó fór þó nokkuð úr skorðunum’. Sagt
var að lyftan í eldhúsið hefði bilað en
sennilega var málið það að ekki var nóg
starfslið til staðar til að þjóna til borðs
og dróst borðhaldið því úr hömlu, stóð
í eina 3-4 tíma og voru margir af þeim
sökum leiðir og reiðir.Menn gengu í
barinn og afgreiddu sig sjálfir enda
barþjónarnir komnir í borðþjónustuna
á fullu“...
Tignarlegasta ballið
Það gekk oft á ýmsu í kringum komur
hinna erlendu gesta hingað. Þannig setti
veðrið strik í reikninginn, bæði er Per
Hækkerup og Edward Heath komu.
„Þegar Edward Heath kom fórum við
Tómas Karlsson suður til Keflavíkur til
að taka á móti honum en þá var
sendiherrann mættur á staðinn. Mjög