Tíminn - 30.10.1983, Page 11
SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 1983
i£
■ Gylfi Þ. Gíslason, Guðrún Vilmundardóttir, Jens Otto Krag og Helle
Virkner Krag.
Wm ra W&S+ 'T>j
Sjt r J|M
slæmt veður var og héldum við um tíma
að flugvélin myndi ekki lenda á vellin-
um. Hún dembdi sér svo niður og sagði
flugmaðurinn eftir á að ef þeir hefðu
ekki fundið þessa smugu í veðrinu þá
hefðu þeir sennilega haldið áfram flug-
inu til Bandaríkjanna.
Eftir að hafa heilsað Heath á vellinum
ókum við til Reykjavíkur, sendiherrann
og Heath á undan en við Tómas í bíl á
eftir. Ég sá að bílstjórinn á undan okkur
átti í erfiðleikum með að sjá veginn og
ók ég því fram fyrir hann til að leiðbeina
honum í bæinn. í hádegisboði daginn
eftir kom svo sendiherrann til mín og
þakkaði okkur fyrir að hafa bjargað lífi
þeirra því hann taldi víst að ökuferð
þeirra hefði endað út í hrauni ef þcir
hefðu ekki fengið leiðsögnina. Þegar Per
Hækkerup kom var veður svo slæmt og
snjór svo mikill að við þurftum að leita
til björgunarsveitarinnar í Hafnarfirði til
að aka gestum á ballið. Þeir aðstoðuðu
m.a. Asgeir Asgeirsson forseta frá
Bessastöðum. Af þessum sökum hófst
ballið fremur seint, eða um klukkutíma
eftir áætlun enda ófært um allan bæ.
Þegar því lauk var hinsvegar komið hið
besta veður, stjörnubjört nótt og logn og
engin vandræði hjá gestunum að komast
aftur heim.“ Segir Atli.
Eins og fram kom hjá Atia var reynt
að vanda til þessara skemmtana eins og
kostur var en hann telur að fallegasta og
tignarlegasta ballið hafi verið þegar
Edward Heath kom. Þá voru Fóstbræður
fengnir til að syngja fyrir gesti, auk
annarra skemmtiatriða'. Troðfullt hús
var og mikil stemmning og ræða Heath,
sem hann flutti blaðalaust, þótti frábær,
enda maðurinn góður ræðumaður.
Síðasta ballið 1972
Síðasta ballið var haldið 1972. Getur
Atli ekki skýrt á annan hátt en þreytu í
mönnum að hafa fyrir hlutunum að þau
lögðust niður. „Það kom ekki til af
fjárhagslegu tapi vegna þessara balla því
dæmið var alltaf sett upp þannig að við
kæmum slétt út úr þessu og það gekk
yfirleitt upp“..
Á ýmsu gekk við aðfá menn sem
heiðursgesti á þessi böll framan af en
eftir að kominn var gestalisti með þeim
Jcns Otto Krag og Per Hækkerup var
það mál auðveldara viðfangs þannig að
það er ekki skýring á því að böllin
lögðust niður.
Síðan 1972 hafa ekki komið tilmæli
frá stjórn B.I. að endurvekja þessi böll
og ekki er útlit fyrir að slíkt verði gert í
náinni framtíð. Ómar Valdimarsson
núverandi förmaður B.í. sagði í samtali
við Tímann en nú væru komnar allskon-
ar aðrar hátíðir sem skipa þann sess er
pressuböllin höfðu áður og átti hann alls
ekki von á að þessi böll yrðu endurvak-
inn, að minnsta kosti myndi hann ekki
beita sér fyrir því enda hefðu þau á
sínum tíma ávallt vakið deilur innan
félagsins sjálfs og skoðanir manna mjög
skiptar á því hvort félagið ætti að standa
að þessu eða ekki.
- FRI
■ Edward Heath, Tómas Karlsson þáverándi formaður B.Í., Eiríkur Briem
og Ása Jónsdóttir.
■ Dr. Kristinn Guðmundsson og Per Hækkerup á léttri stundu
■ Háborðið á pressuballinu þar sem Per Hækkerup var heiðursgestur.