Tíminn - 30.10.1983, Page 18
UNGUR ÞÁ HANN SAX
AF GAMLA KONUNGI...
■ ——
Fyrsta vísbending gefur 5 stig, önnur 4 stig, þriðja 3 f jórða 2 og f immta 1 stig Fyrsta vísbending Önnur vísbending Þriðja vísbending víslieiding Fimmta vísbending
1. Þýskur stjórnmálamaður, fæddur í Heidelberg 1871. Hann varð formaður í flokki sósíaldemókrata á eftir August Bebel. Forseti Weimar-lýðveldis- ins var hann 1919-1925. Löngum var honum legið á hálsi fyrir að hafa kæft upp- reisn rauðliða 1918-19. Hann dó úr botnlangabólgu árið 1925.
2. Dýr þessi ferðast i flokkum og hlaupa 15-25 kílómetra, á klst. séu þau óttaslegin. Algengt er að þau nái 50 ára aldri, en munu geta orðið talsvert eldri. Danir hafa skepnu þessa i æðstu orðu lands síns. Kipling hefur búið til sögu um það er krókódíllinn beit dýr þetta í nefið. Löngum hefur hún verið veidd vegna tannanna.
3. Ungur þá hann saxið Gamlanaut af Gamla kon- ungi Gunnhildarsyni. Hann fór til íslands vegna vígaferla í Noregi og tók land i Miðfirði. Miklar greinir urðu með þeim Miðfjarðar- Skeggja og honum og vildi Skeggi drepa hann með sverðinu Sköfnungi. Samt varð hann nú sótt- dauður. Hann reisti skála i Flatar- tungu, enda talinn mikill þjóðhagasmiður.
4. Þetta blóm hefur einnig nöfnin hleypisgrasogkæsi- gras. Það er af blöðrujurtaætt og blómgast í júní. Gulgræn og slímug blöð þess sitja fast niðri við jörð. Smyrsl af því þóttu m.a. góð við skalla. Ekki er flugum ráðlegt að koma mjög nærri þvi.
5. Hann fæddist i Króatíu 1892 og var sjöunda barn foreldra sinna. Meðan hann þjónaði í her Austurríkis-Ungverjalands gerðist hann mikill bylting- arsinni. Hann var frægur skæruliða- foringi á árum síðari heims- styrjaldarinnar. Ekki kom þeim Josep Stalín nógu vel saman. Hann var sameiningartákn Júgóslava fram á síðustu ár.
6. Skáldmæringur þessi stofnaði óvenjulegan skóla í Indlandi, sem hann nefndi „Santiniketan." Fæddur var hann 1861 i Calcutta Bretar öðluðu hann 1915, en síðar afsalaði hann sér nefnbótinni. Meðal verka hans má nefna „Gitanjali", og „Garðyrkju- maðurinn". Hann hlaut Nóbelsverö- launin 1913.
7. í París nam hann hjá hinurn fræga lækni Jean-Martin Charcot. í viðtalstimun hrópaði hann á sjúklinga sína, pataði með höndunum og tottaði vindil sinn. 1938 hraktist hann í útlegð til Bandaríkjanna. Ásamt Josef Breuer gaf hann út bókina „Athuganir á sefasyki." Hann er faðir sálkönnunar- innar.
00 ■ Hann samdi tónlist við leik- inn „Glataði sonurinn" eftir Hall Caine 21 árs gamall lauk hann prófi frá Prestaskólanum í Reykjavík. Hann hlaut fyrstur is- lenskra tónskálda heiðurs- laun úr rikissjóði. Mikinn hluta ævi sinnar dvaldi hann í Edinborg. við þjóðsöng íslendinga.
9. Tré þetta er af rósaættinni og vex víða hérlendis. Blöðin eru aflöng, oftast sagtennt og hærð á neðra borði. Hjátrúin sagði að því fylgdu niu náttúrur góðar og niu vondar. Berin þykja ekki bragðgóð, en afbragð eru þau í mauk eigi að síður. Tréð verður allt að 12 metra hátt og er algengt í görðum i borg og bæ.
■ o Skáld þetta fæddist að Skeggjastöðum á Langa- nesströndum 1884. Kennaraprófi lauk hann 1909. Hann þótti eitt hið snjall- asta af íslenskum rímna- skáldum. Löngum hafa Hafnfirðingar talið hann sitt skáld. Hann orti: „Stjáni blái strengdi klóna, stýrði fyrir Keilisnes."
Svör vid spurningaleik á bls. 20