Tíminn - 13.11.1983, Blaðsíða 15

Tíminn - 13.11.1983, Blaðsíða 15
Uimm SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1983 SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1983 Emil Björnsson er fæddur 21. sept árið 1915 að Felli í Breiðdal í Suður-Múlasýslu. Foreldrar hans voru Björn Guðmundsson bóndi þar og kona hans Guðlaug H. Þorgrímsdóttir ljósmóðir. Hann stundaði nám í Menntaskólanum á Akureyri og lauk þar stúdentsprófi 1939. „Á þeim tíma“, segir hann, „var það nánast ævintýramennska að ætla sér að ganga menntaveginn, einkum ef menn áttu engan fjárhagslegan bakhjarl. Þetta voru kreppu- tímar og skólaganga var efnalitlu fólki mjög erfið. En þetta tókst með guðs og góðra'manna hjálp og góðri heilsu. Oft átti maður ekki fyrir frímerki. Að loknu stúdentsprófi kom Emil suður til Reykjavíkur, og settist í viðskiptadeild Háskólans. Hann var þar við nám 1939-1941, og var langt kominn með það þegar fjölskylduaðstæður breyttu áformum hans. „Ég held að það hafi einkum verið tvær ástæður fyrir því að ég fór í viðskiptadeildina,“ segir hann. „Önnur var kannski sú að ég vildi spyrna á móti broddunum. Sigurður Guðmundsson, skóla- meistari minn á Akureyri, hafði sagt að ég yrði prestur, en ég taldi það fjarstæðu, og vildi sýna honum og fleiri það í verki að hugur minn stæði til annars. Hin ástæðan var sú að ég hélt að viðskipta- námið gæti orðið „praktískt“. Maður var nú ekki meira andlega þenkjandi! Éghafðigaman afþessu, en fjölskylduástæður réðu því að ég fór að vinna við skrifstofustörf hjá fyrirtækinu Kol og salt h.f. í Reykjavík. Jafnframt var ég þingskrifari í Alþingi áfram 5. áratuginn og kynntist öllum þingmönnum þessa tíma.“ Langaði að verða sveitaprestur Árið 1944 ferðu í guðfræðideildina. Hvers vegna? „Ég var satt að segja orðinn dauðleiður á skrifstofumennskunni, og saknaði sveitarinnar. Mig var farið að langa til að verða sveitaprestur, og hugsunin um það varð m.a. til þess að ég hóf nám í guðfræði. En það kom svo á daginn, sem vitað er, að enginn ræður sínum næturstað. í sveitina fór ég aldrei.“ Var það ekki trúaráhugi sem beindi þér á brautir guðfræðinnar? „Ég hafði auðvitað alltaf haft trúarlegan áhuga að vissu marki. Það var t.d. mikil trúrækni á mínu æskuheimili. Hins vegar hef ég líka alltaf verið efasemdarmaður. Ég held að það hljóti allir „trúmenn" að vera; annars eru þeir hugsunarlitlir. Hvað sagði ekki maðurinn við Frelsarann: „Já, ég trúi Herra, en hjálpa þú trúleysi mínu.“ Undir þetta vil ég taka. Þótt ég hafi verið trúarlega sinnaður, þá hef ég alltaf barist við efasemdir, öðrum þræði og sú barátta er partur af trúarlífinu.“ Þú laukst námi á aðeins rúmlega 2 árum. En hvernig var andinn í deildinni á þessum árum? „Það má segja að andrúmsloftið hafi verið blandað. Skoðanir nemenda og kennara voru skiptar um trúarleg málefni sem veraldleg. Þarna voru einkum tveir hópar, annars vegar svokallaðir KFUM-menn og hins vegar svokallaðir frjálslyndir guðfræðingar. KFUM-menn kölluðu okkur hina „aldamótaguðfræðinga" og átti það að vera fremur niðrandi heiti. Við kölluðum þá á móti „KFUM- menn“, og það var ekki beint í jákvæðri merkingu. Við töldum þá þröngsýna, en þeir beindu sömu skeytum að okkur. Allt er þetta liðin tíð, og hefur ekki orðið neinum tilefni vinslita. Ungir menn hneigjast til að vera dómharðir, en þegar maður eldist lítur maður þessa hluti eðlilega öðrum augum og vonandi umburðarlyndari. En ég hef ætíð verið fráhverfur ýmsum kirkjukreddum, útskúfa t.d. útskúfunarkenningunni." Óháði söfnuðurinn Emil varð aldrei sveitaprestur. Fáum árum eftir að hann lauk embættisprófi kom upp ágreiningur í Fríkirkjusöfnuðinum í Reykjavík. Sem oft áður í íslensku kirkjulífi var tilefnið prestskosningar, og ágreiningsmenn tóku þá ákvörðun að stofna til nýs safnaðar. Óháði söfnuðurinn var stofnaður árið 1950 og séra Emil Björnsson hefur verið prestur hans allá tíð. „Margir af þeim sem gengu til liðs við Óháða söfnuðinn voru úr Fríkirkjusöfnuðinum, en í hinn nýja söfnuð kom einnig fólk úr ýmsum öðrum áttum, þ.á.m. ýmsir sem verið höfðu í söfnuði séra Haraldar Nielssonar, og síðan í Frjálslynda söfnuð- inum hjá séra Jóni Auðuns, s.s. María Maack. Sumir sögðu að það væru aðallega andatrúarmenn í okkar söfnuði af því að Andrés Andrésson klæðskeri, sá vinsæli og merki maður, og formaður safnaðarstjórnar um árabil, var þjóðkunnur spírit- isti. En það er ekki rétt. Það voru ekki stundaðir neinir miðilsfundir í Óháða söfnuðinum, eða fluttur beinn spíritískur boðskapur. Kannski hafa einhverj- ir orðið fyrir vonbrigðum með það. En það var einnig fátt um „rétttrúnaðarfólk" hjá okkur í gamalli merkingu þess orðs.“ ■ „Ég svara í sumartunglið þegar mér sýnist,“ segir séra Emil Björnsson hlæjandi þegar við setjumst á skrafstóla á skrifstofu hans í f rétta- og f ræðsludeild sjónvarpsins. Ætlunin er að fá séra Emil til að segja lesendum Tímans svolítið af ferli sínum, daglaunavinnu og Drottins þjónustu; tilefnið er sú ákvörðun hans að láta nú um áramótin af störfum sem prestur Óháða safnaðarins í Reykjavík eftir rúmlega þriggja áratuga þjónustu. Séra Emil hefur ekki áhuga á alvörugefnu æviuppgjöri; það er ekki tímabært með því hann gegnir áfram hinu erilsama starfi fréttastjóra sjónvarps, og svo líka af þeirri ástæðu að hann er ekki sérlega hátíðlegur maður. „Sumum finnst ég vera full óhátíðlegur af presti að vera“, segir hann, „en mér finnst að „Ég er afskaplega lítíll bokslafstruarmaður9 ’ Helgar-Tíminn ræðir við séra Emil Björnsson fréttastjóra sjónvarps, sem lætur af prestsstörfum hjá Óháða söfnuðinum um áramótin útsendinga frá innlendum viðburðum utan sjón- varpsins, og loks myndböndin. í nærri 16 ár urðum við að treysta á flugsamgöngur við útlönd til að fá erlendar fréttakvikmyndir. Þær komu oft seint, enda flug stundum stopult að vetrarlagi, og þá oft orðnar úreltar. Gervihnattasambandið frá 1981 hefur gerbreytt erlendu fréttunum okkar. Nú, örbylgjusendana (links) fengum við að gjöf frá Dönum, þökk sé þeim, en þá notum við til að senda beint frá atburðum utan sjónvarpshússins hér suðvestanlands. Áður þurftum við alltaf að fá slíka senda að láni, oftast frá Norðmönnum, þegarslíkar útsendingar stóðu til (s.s. við kosningar, á þjóðhátíð á Þingvöllum 1974, þegar handritin komu heim o.s.frv.) Og þetta stóð okkur verulega fyrir þrifum. Nú, loks hefur sú breyting að myndbönd hafa komið að miklu leyti í stað filmu í fréttamynda- öfluninni innanlands mjög flýtt fyrir daglegum störfum okkar. Nú er hægt að sýna fréttamyndir í sjónvarpi nokkrum mínútum eftir að þær eru teknar, og þarf þá ekki að bíða eftir því að filma sé framkölluð og klippt." Mér finnst gaman að þessu Hefur starf fréttastjóra ekki verið erilsamt? „Alveg ótrúlega erilsamt. Ég get t.d. aldrei „byrgt" síma. Ég verð að vera til viðtals jafnt á nóttu sem degi alla daga ársins. En ég segi eins og ungur þingmaður sagði nýlega í viðtali: Mér finnst gaman að þessu. Það er alltaf spennandi að standa mitt í straumi tímans. Það er eins og að hafa fingurna á lífæð. Það hefur enginn neytt mig til þess að vera' fréttastjóri eða prestur. Ég sé ekki eftir þessu og kvarta ekki yfir mínu hlutskipti. Þvert á móti. Ég er dýrmætri reynslu ríkari. Hinu er síst að leyna að auðvitað hefði ég aldrei getað sinnt öllum þessum störfum ef ég hefði ekki átt mína góðu konu, Álfheiði Guðmundsdóttur. Hún hefur bókstaflega lagt eins mikið á sig, ef ekki meira, og ég fyrir söfnuðinn, og m.a. verið formaður Kvenfélagsins frá upphafi. Kvenfélagið hefur verið virkasta eining í kirkjustarfinu í 33 ár. Og í 10 ár voru öll prestsverk unnin á heimili okkar, og fyrirhöfnin mæddi mest á henni“. Hvað tekur við þegar þú hættir hjá Óháða söfnuðinum? Ætlarðu að reyna að slaka á? „Kannski ég slaki á. Ég hlakka til að fá meiri tíma til að lesa góðar bækur. Kannski ég skrifi eitthvað. Ég hef raunar fengist við ljóðagerð í stopulum tómstundum síðan ég var í skóla og því skásta er ég svo oft búinn að umbreyta að það breytist ekki til batnaðar úr þessu. Þessvegna mætti gefa það út. En hver mundi svo sem vilja það? Ég hefi ekki ennþá sýnt þetta neinum útgefanda, og jafnvel þótt ég gerði það og svo ótrúlega vildi til að einhver vildi gefa það út þá mundi ég hika og kannski hopa. Hver væri nokkru bættari? Það hefir svo margt frábært komið út ljóðakyns að því virðist ofaukið sem er í meðallagi og þar fyrir neðan. Þessvegna er þetta best komið í handraðanum hjá mér. Ég geymi það eins og hverjar aðrar persónulegar minningar og orna mér við sumt. Þetta verður eins og „ferðin, sem aldrei var farin.“ Það var þó nokkurs um vert að búa sig undir hana. heldur séra Emil áfram, „ef hún yrði að treysta á sjálfa sig en ekki ríkið. Þá kæmi í ljós hverjir vilja helst halda uppi kirkju og kristnilífi í landinu. Ég held að ef kirkjan yrði að treysta á sjálfa sig eina og Guð sinn, en ekki ríkisforsjá mundi kirkjulífið verða mun fjölbreyttara og blómlegra en það er núna, þótt margt sé vel gert í þjóðkirkjunni. Þessa ályktun dreg ég m.a. af starfinu í Óháða söfnuðin- um, sem er utan ríkiskirkjunnar. Samhliða aðskilnaði ríkis og kirkju þyrfti auðvit- að að fara fram uppgjör veraldlegra eigna kirkjunn- ar. Það er sjálfsagt að kirkjan fengi til eignar kirkjuhús landsins, prestssetur og prestsjarðir o. fl. “ Er Óháði söfnuðurinn enn virkur og lifandi? „Já, það er hann, og safnaðarfólkið hefur sýnt að unnt er að reka blómlegt kirkjulíf utan ríkiskir- kjunnar. Það hefur verið mikill áhugi á öllu starfi safnaðarins meðal safnaðarfólks. Við höfum aldrei verið fleiri en svona eitt til tvö þúsund manns, en tiltölulega fjölmennur hópur hefur alltaf verið mjög vel virkur. Við byggðum t.d. af eigin rammleik kirkju og félagsheimili á tæpum þremur árum, áttum ekki krónu til að byrja með.“ Alltaf haft þörf fyrir að tala og skrifa Störfin fyrir Óháða söfnuðinn hefur séra Emil unnið samhliða annarri og krefjandi launavinnu. Hann hefur verið fréttamaður og síðan fulltrúi fréttastjóra á útvarpinu og s.l. 18 ár dagskrárstjóri frétta- og fræðsludeildar sjónvarps. Hver voru tildrög þess að hann hóf afskipti af fjölmiðlum? „Ég hef alltaf haft mikla þörf fyrir að tala og skrifa; því miður segir kannski einhver, en menn eru misjafnlega gerðir og svona er ég nú. Mér hefur fundist það fara ákaflega vel saman að vera prestur og starfa við fjölmiðla; hvort tveggja eru heiðarleg störf, hvort tveggja eru störf, þar sem maður þarf að afla sér heimilda og fara rétt með þær, og að koma fram fyrir fólk í einhverri mynd. Ég sótti um starf fréttamanns á útvarpinu eftir auglýsingu. Ég hafði verið ritstjóri skólablaðs í menntaskóla, en á árunum þegar ég starfaði hjá Kol og salti hóf ég ásamt fleirum útgáfu á tímariti um þjóðfélags- og menningarmál, og reynslan af því starfi hefur líklega verið talin duga þegar ég var ráðinn, auk þess sem ég var þá þingskrifari í Alþingi". Hvaða tímarit var þetta? „Það hét Straumhvörf, hvorki meira né minna og við vorum níu sem stóðum að því. Auk mín voru það Sigurbjörn Einarsson biskup, dr. Broddi Jó- hannesson, dr. Lúðvík Kristjánsson sagnfræðingur, Sören Sörensson læknir og þýðandi, Jóhann Jónas- son forstjóri, Egill Bjarnason bóksali, Hermann Jónasson skrifstofustjóri og síðast en ekki síst minn nánasti samstarfsmaður og raunar ritstjóri seinna árið, Klemens Tryggvason hagstofustjóri. Þetta tímarit var gefið út af áhuga einum, en kom aðeins út í tvö ár. Það má segja að sá hópur, sem að tímaritinu stóð, hafi verið eins konar undanfari menn eigi einmitt að vara sig á því að taka sjálfa sig of hátíðlega.“ Bylting í fréttastörfum Þú varst á fréttastofu útvarps í rúma tvo áratugi. Á þessum tíma urðu miklar breytingar á starfi ykkar, ekki satt? „Já, það er rétt. Þegar ég kom til starfa voru t.d. engin upptökutæki til. Allt efni var sent beint út, þ.á.m. fréttaviðtöl. Ég man vel hve mikil bylting stálþráðurinn þótti á sínum tíma, en sú tækninýjung kom til sögu upp úr stríðinu. Ég man t.d. eftir því að þegar Hekla gaus 1947 var ég sendur austur, og las inn á stálþráðinn lýsingu á gosinu og tók viðtal við Steinþór Sigurðsson náttúrufræðing. Hann lést skömmu síðar af slysförum á gosstöðvunum. Frá- sagnir Steinþórs, dr. Sigurðar Þórarinssonar og Steindórs Steindórssonar af gosinu eru enn til í safni útvarpsins. Það var margt flutt af stálþræðinum yfir á segulband. Segulbönd leystu stálþráðinn fljótlega af hólmi, og þessi nýja upptökutækni umbylti fréttastörfum. Nú var t.d. hægt að fara með upptökutæki og ræða við fólk í öðrum landshlutum og senda viðtalið út þegar það hentaði best.Áður þurfti að koma í beina útsendingu í útvarpshúsið í Reykjavík." Fréttamennskan sjálf. Hefur hún líka breyst? „Hún hefur breyst líka. Áður iðkuðu fréttamenn það sem kalla má neikvætt hlutleysi eða neikvæða óhlutdrægni. Þeir voru ragir við að taka á heitum málum, líkt og manninum í dæmisögunni sem þótti öruggast að grafa pund sitt í jörð. Nú eru breyttir tímar, og jákvæð óhlutdrægni, sem svo má kalla, hefur komið í staðinn. Þá er leitað eftir áliti allra þeirra sem tiltekin heit mál varða, og mismunandi skoðanir koma fram. Við þetta hafa fréttir í útvarpi breyst mjög til batnaðar.“ Alltaf verið skammaðir Eruð þið mikið skammaðir? „Já, mikil ósköp. Það hefur fylgt fréttamanna- starfinu frá upphafi. Það sem okkur féll verst hjá útvarpinu var þegar við sættum ásökunum í okkar eigin fjölmiðli, en fengum ekki aðsvara fyrir okkur. Ég á við þá ákvörðun útvarpsráðs sem ritstjórar dagblaðnna sátu löngum í, að láta lesa leiðara dagblaðnna í útvarpi. Þar gátu ritstjórarnir ef þeir neyttu þess beint spjótunum að okkur án þess að við gætum borið hönd fyrir höfuð. í þessu sambandi dettur mér í hug ljóð Davíðs Stefánssonar um Gunnar Gjúkason hörpuleikara, sem varpað var í ormagryfju með bundnar hendur fyrir aftan bak: „Hendur hans bundu þeir báðar/ og brenndu hans hvíta lín./ Svo var Gunnari Gjúkasyni/ gefin harpa sín.“ Við vorum bundnir á höndum að vissu leyti, en síðan áttum við að spila. Það gekk misjafnlega, en Gunnari Gjúkasyni tókst svo vel að spila á hörpuna með tánum, að hanndáleiddiormana með tónum sínum, utan einn. Sá reyndist banvænn. Þú ferð til starfa á sjónvarpinu 1965, ári áður en það byrjar útsendingu. Hvað réði því? „Ég hafði einfaldlega áhuga á því. Árið 1960-61 hafði ég dvalist í Bretlandi, og var þá m.a. fréttaritari útvarpsins þegar þorskastríðið var í Óháði söfnuðurinn er einn af þremur fríkirkju- söfnuðum landsins. Er ágreiningur milli safnaðarins og þjóðkirkjunnar um trúarleg málefni? „Nei, það er enginn slíkur ágreiningur fyrir hendi. Munurinn er stjórnunarlegur. Við erum óháð ríkinu, aðeins háð guði og samviskunni. Það hefur ekkert fé runnið frá ríkinu til kirkju okkar. Það var raunar engin tilviljun að ég endaði sem prestur í söfnuði utan þjóðkirkjunnar. Ég hef allt frá því að ég var 15 ára gamall, og las bækling um fríkirkjuhreyfinguna í Ameríku, verið þeirrar ■ „Ég hef alltaf verið efasemdarmaður. Ég held að það hljóti allir „trúmenn“ að vera; annars eru þeir hugsunarlitlir.“ skoðunar að það væri ákaflega óeðlilegt að andleg mál væru ríkisrekin. Ég tel að það sé löngu kominn tími til að ríkiskirkjan, sem er réttara nafn en þjóðkirkja, verði aflögð hér á landi, og í þeim fáu löndum sem hún viðgengst enn. Kirkja á að veita forystu í andlegum efnum, og það versta sem fyrir hana getur komið er að vera bundin á klafa ríkisvaldsins. Og það liggur líka ljóst fyrir að þetta ósjálfstæði kemur kirkjunni í koll, hún nær ekki fram málum sínum. Kirkjuþing og prestastefnur hafa t.d. árum saman farið þess á leit við Alþingi að prestskosningar verið afnumdar, en sú málaleit- an hefur engan hljómgrunn hlotið. Engin frumvörp sem Kirkjuþing samþykkti 1982 hafa náð fram að ganga á Alþingi, að því að ég best veit.“ Ríki og kirkja verði aðskilin „Ég held að það yrði kirkjunni til mikilla bóta,“ Þjóðvarnarflokksins, eða a.m.k. voru hugmyndir okkar mjög í svipuðum anda og hjá þeim flokki urðu. Það má segja að þetta hafi verið svona róttækt rit og vinstri sinnað, eins og eðlilegt var um unga menn, en flokkspólitískt var það ekki, þó sjálfur væri ég oft titlaður „kommúnisti" í þann tíð.“ algleymingi, og þar kynntist ég vel sjónvarpi. Ég hef alia tíð frekar verið gefinn fyrir að taka áhættu og breyta til, og þótt ég væri orðinn nær fimmtugur, fannst mér ekkert óeðliegt að prófa þetta. Ég var óvanur því að starfa fyrir sjónvarp en það voru líka allir aðrir. Ég spurði fréttastjóra útvarps hvort hann ætlaði að sækja um starf dagskrárstjóra frétta- og fræðsludeildar, en hafði ekki hugsað sér það, og þá var teningnum kastað.“ „Hennar líf er eilíft kraftaverk“ Hefur þessi stofnun ekki gerbreyst s.l. 18 ár? ■ Frú Álfheiður Guðmundsdóttir, eiginkona séra Emils, og viðmælandi Helgar-Tímans. Myndin er tekin í húsakynnum Óháða safnaðarins árið 1975. ■ „Mig var farið að langa til að verða sveita prestur, og hugsunin um það varð m.a. til þess að ég hóf nám í guðfræði.“ „Jú. Hennar líf er eilíft kraftaverk", segir í kvæði um íslensku þjóðina, og sama má segja um líf þessa sjónvarps. Á hverju einasta kvöldi hefur maður nánast beðið eftir því með öndina í hálsinum að eitthvað færi úr böndunum. Fréttir eru gífurlega fjölbreytt dagskrárgerð, og vandaverk að halda öllum þráðum saman. Allt hefur þó farið vel oftast nær til allrar hamingju. Þökk sé færum starfs- mönnum. Ef ég læt hugann reika, og velti fyrir mér helstu breytingum sem orðið hafa þá kemur mér fyrst í hug hve fljótt tókst að koma dreifikerfinu á um land allt. Erlendir ráðgjafar sjónvarpsins voru í upphafi mjög efins um að þetta væri unnt, enda landið fjöllótt og víðlent en í þessu efni hafa íslenskir tæknimenn unnið kraftaverk. Fjórir aðrir áfangar eru líklega merkilegastir. Fyrst er það litvæðingin, þá gervihnattasambandið við útlönd, síðan örbylgjusendarnir til beinna

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.