Tíminn - 25.07.1987, Blaðsíða 2

Tíminn - 25.07.1987, Blaðsíða 2
2 Tíminn Laugardagur 25. júlí 1987 Méluð rúða um hábjartan dag: Rakarastofa fyrir skoti Skotið var úr loftbyssu á glugga Rakarastofunnar við Klapparstíg á háannatíma á miðvikudag. Skömmu upp úr klukkan 13:00 þann dag varð viðskiptavinum og hárskurðarmeist- urum illilega bylt við háum hvelli í rúðunni og svo eins og sandi hefði verið grýtt utan af götu í gluggann. Ekki varð starfsmönnum rakarastof- unnar ljóst fyrr en í gær hvað olli. Lögreglan var kvödd til að skoða verksummerki um hádegisbilið í gær, en þá höfðu menn komið auga á skotgat í rúðunni. Hafði ytra byrðið maskast en kvarnast úr því innra eftir skot úr loftbyssu. Það hafnaði þó svo neðarlega, að í raun var fólki á rakarastofunni ekki hætt, en gangandi vegfarendur fyrir utan hefðu verið í beinni skotlínu. Málið verður sent Rannsóknar- lögreglu ríkisins. þj Jafnréttismál: Þórður Harðarson prófesor sýnir Guðmundi Bjarnasyni heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, Finni Ingólfssyni aðstoðarmanni ráðherra og fylgdarliði, nýtt fjarstýrt hjartaþræðingatæki, eitt af þeim fullkomnustu í heiminum. Tímamynd: Brcin Átak í jöfnun launamismunar „Átak verður gert til að koma á jafnrétti kvenna og karla með sér- stakri áherslu á launajafnrétti. Störf kvenna hjá hinu opinbera verði endurmetin. Við þetta endurmat verði m.a. höfð hliðsjón af mikilvægi umönnunar- og aðhlynningarstarfa og starfsreynslu á heimilum." Þannig hljóðar upphaf fréttatil- kynningar frá Jóhönnu Sigurðar- dóttur félagsmálaráðherra, en ráð- herra hefur sent öllum ráðuneytum, stofnunum og fyrirtækjum ríkisins erindi þess efnis að gert verði slíkt átak á grundvelli stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Kemur og fram að þetta átak skuli byggjast á fjögurra ára framkvæmd- aáætlun um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna, en Alexander Stefánsson þáverandi félagsmála- ráðherra lagði þá framkvæmdaáætl- un fyrir Alþingi í janúar sl. í bréfi félagsmálaráðherra er lögð áhersla á þrenn atriði úr fram- kvæmdaáætluninni. í fyrsta lagi að ríkisstjórn og sveitarfélög vinni markvisst að því að tala kynjanna í stjórnum, nefndum og ráðum á veg- um þessara aðila verði sem jöfnust, en hjá ríkinu hefur hlutfall karla í nefndunum verið um 90%. f öðru lagi er það ábendingin um að ráðuneyti vinni að því að konur sem starfa hjá hinu opinbera fái aukin tækifæri til að gegna ábyrgðar- stöðum og er vísað þar til heimildar í Iögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla frá 1985, en þar er veitt heimild fyrir „sérstökum tímabundnum aðgerðum“ til að rétta hlut kvenna. í þriðja lagi er tiltekið úr fram- kvæmdaáætluninni að ráðuneyti og opinberar stofnanir á vegum rfkisins beiti sér fyrir að komið verði á sveigjanlegum vinnutíma til að stuðla að jafnari þátttöku kynjanna í heimilisstörfum og atvinnulífinu. í erindi sínu til ráðuneyta, stofn- ana og ríkisfyrirtækja óskar félags- málaráðuneytið eftir að fá að fylgjast með framgangi málsins og hyggst síðan kanna framkvæmdina. Loks kemur fram að félagsmála- ráðuneytið hefur sent fjármálaráðu- neyti bréf og óskað eftir viðræðum um framgang þeirrar stefnu ríkis- stjórnarinnar sem kveður á um endurmat á kvennastörfum og jafn- frétti í launakjörum og hlunninda- greiðslum hjá ríkinu, en um níu tíundi hluti hlunnindagreiðslna hins opinbera fór til karla árið 1982. ÞÆÓ Guðmundur Bjarnason: Heilbrigðisráðherra heimsækir sjúkrahús Guðmundur Bjarnason heil- brigðis- og tryggingamálaráðherra hefur undanfarna daga kynnt sér ýmsa starfsemi sem heyrir undir ráðuneytið og heimsótt af því til- efni ýmsar opinberar stofnanir eins og Tryggingastofnun ríkisins, sjúkrahús, heilsugæslustöðvar og meðferðarstofnanir fyrir áfengis- sjúklinga. „Ég tel það mjög þýð- ingarmikið að ráðherra reyni aö afla sér upplýsinga um þá starfsemi sem þarna fer fram með því að heimsækja stofnanir og tala við fólkið,“ sagði Guðmundur í sam- tali við Tímann. Hann kvaðst eftir þessar heimsóknir vera sannfærður um að mjög brýnt væri að sjúkra- hús hefðu fullkomna aðstöðu til að annast alla sérhæfða meðferð. „Ég hef sannfærst um það að við erum mjög vel búnir hvað þetta varðar, þó alltaf megi gott bæta. Við búum greinilega við mjög fullkomna þjónustu og sjúkrahúsin okkar hafa á að skipa afar færu starfs- fólki," sagði Guðmundur jafnframt. IDS Verðlagsstofnun kannar villandi auglýsingar: „Nálastungueyrna- lokkar“ og „krafta- verkaskallakrem“ „Stjórn (Lækna)félagsins telur umræddan nálastungueyrnalokk vera einn af þeim hégómum sem hér eru á markaði og ætlaðir eru til lækninga á fólki. “ Þessi ummæli er að finna í nýútkomnu fréttabréfi Verðlagsstofnunar, „Verðlagskönn- un“. í fréttabréfinu er verið að fjalla um villandi auglýsingar og hugsanleg brot á lögum um óréttmæta við- skiptahætti og neytendavernd. í lögunum er kveðið á um að ekki megi aðhafast það sem „brýtur í bága við góða viðskiptahætti, sem Fullvirðisréttur: Jón á Skarfshóli fær kjötið sitt tíðkaðir eru í slíkri starfsemi, eða er óhæfilegt gagnvart neytendum.“ Til- vitnunin hér í upphafi er úr umsögn stjórnar Læknafélags Islands um áreiðanleika auglýsingar um nálast- ungueyrnalokk sem sagður er geta verið „hjálp í baráttunni við auka- kílóin og reykingar". Það er starfandi sérstök neytenda- máladeild við Verðlagsstofnun sem fylgist með því að villandi upplýsing- ar komi ekki fram í auglýsingum og er einn þáttur í starfi deildarinnar, að gera opinberlega grein fyrir þeim málum sem hún hefur afskipti af. Alls voru hjá neytendadeildinni skráð 76 mál í fyrra. í fréttabréfi Verðlagsstofnunar eru tekin sex dæmi um mál af þessu tagi og auk ofangreinds dæmis um nálastungueyrnalokkinn, má nefna auglýsingu um kraftaverka-hárkrem við skalla; auglýsingar um ýmis fæðubótaefni sem skiptar skoðanir eru um; hvenær unnt sé að auglýsa að ákveðnir drykkir séu hollir; vafa- samar fullyrðingar í smáauglýsing- um; og auglýsingu um byltingu í bílaryðvörn. - BG Gos frá Sól hf. og smjörlíki frá Coke? Fyrir dyrum standa samningar milli Vífilfells (Coke) og Akra um kaup gosdrykkjaframleið- slunnar á smjörlíkisgerðinni. Er sagt að með þessu sé mætt komu fyrirtækisins Sól hf. inn á gos- drykkjamarkaðinn. Sem kunnugt er hefur Sól hf. verið umfangs- mesti aðilinn á smjörlíkismarkaði í landinu til þessa. þj Dómur hefur gengið í héraðsdómi í máli Jóns fvars Jónssonar bónda á Skarfshóli. Jóni er nú heimilt að taka út það kjöt sem hann lagði inn hjá verslun Sigurðar Pálmasonar umfram fullvirðisrétt. Ekki var þó tekin afstaða til eignaréttar á kjötinu heldur segir í dómnum að tilkynning landbúnaðarráðuneytisins um að greiðslur kæmu ekki fyrir kjöt um- fram fullvirðisrétt, hafi borist eftir að sláturtíð var lokið. Landbúnaðarráðuneytið hefur vísað málinu til Hæstaréttar. Áskrift oa dreifinq í Reykjavfk og Kópavogi er opin 9-5 daglega og 9-12 á laugardögum. Sími afgreiðslu 686300 YFIRLYSING FRA GEIR WAAGE SÓKNARPRESTI í REYKH0LTI Vegna auglýsinga í fjölmiðlum að undanförnu þar sem auglýst er messa að tilteknum bandarískum hætti og nafn mitt nefnt í því sambandi, vil ég taka eftirfarandi fram: Rétt er að á sínum tíma léði ég máls á því að messa úti að Húsafelli sunnudaginn 2. ágúst. Umtalað var að rætt yrði um form þeirrar athafnar mánudaginn n.k., þann 27. júlí. Allar auglýsingar um at- höfn þessa nú koma mér því mjög á óvart og eru mér óviðkomandi. Af öðrum orsökum en þessari auglýsingu er ljóst orðið að ekki kemur til greina af minni hálfu að koma nálægt samkomuhaldi að Húsafelli um verslunarmannahelg- ina næstu og mun ég ekki messa þar þá.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.