Tíminn - 25.07.1987, Blaðsíða 9

Tíminn - 25.07.1987, Blaðsíða 9
Laugardagur 25. júlí 1987 Tíminn 9 LAUGARDAGURINN 25.7. 1987 launadeilum eins og aðrir í laun- þegahreyfingunni. Frægt er dæmið þegar fréttamenn lögðu niður starf í þrjá daga í einu launakastinu. Það getur því vel verið að hinn óviðjafnanlegi áhugi fréttastofu á launamálum og samningum þar að lútandi, stafi að einhverju leyti af því, að þeir séu með því að leggja sitt til launabaráttu, sem er líka þeirra barátta. Gróðurslys í Fljótshlíð Alefling uppgræðslunnar í landinu er eitt af brýnustu verk- efnum þjóðfélags sem lifir í allsnægtum og virðist stundum ekki vita aura sinna tal. Lang- varandi ofnotkun á landi vegna búsetu verður að bæta úr nú þegar við höfum efni á fjölmörg- um hlutum, sem varla teljast til brýnustu nauðsynja. Það hlýtur- að vera eitt h'elsta metnaðarmál íslendinga að búa í sátt við land sitt og láta ekki við það eitt sitja að rækta garða sína, sem yfirleitt og allsstaðar er gert með mikilli prýði. Við þurfum líka að rækta út frá okkur og loka moldar- börðunum og hefta sanda. Uppgræðslan hefur átt sér for- mælendur fáa þótt flestir séu sammála um nauðsyn hennar. Málin hafa lent í karpi um sökudólga, en grös gróa ekki á ásökunum heldur framtaki og samhentum aðgerðum. Þjóðar- gjöfin upp á einn milljarð árið 1974 hefur hrokkið skammt. Það þarf fleiri milljarða í þetta mál áður en lýkur. í Njálu er því lýst þegar óvinir Njáls á Bergþórs- hvoli riðu á Þríhyrningsháls og með þeim einn vinur hins vitra taðskeggs. Seinna var kveðið um þennan fund, birt hér eftir minni: Þrír tigir ridu á Þríhyrningsháls þaktir brynju og skjöldum. Allir voru þeir óvinir Njáls nema Ingjaldur á Kjöldum. Nú myndi poppliðið segja, sem líka er að basla í fréttum: Á nú að fara að verða landsföður- legur? Ónei. Hins vegar kom þetta í hugann um þennan eina mann, Ingjald á Keldum, þegar áburðarvél eyðilagðist í Fljóts- hlíðinni á dögunum. Það er nefnilega engum flota af áburð- arvélum fyrir að fara í landinu, og að missa þessa einu litlu vél er ekkert minna en stórfellt gróðurslys. Ingjaldur á Keldum stóð einn í margmenni og lét hvergi af hug sínum til Njáls. Eins er þeim uppgræðslumönn- um farið. Þeir. standa með stráum. í nafni slíkra manna þarf hið bráðasta að bæta fyrir gróðurslysið í Fljótshlíðinni og kaupa nýja áburðarvél, raunar fleiri en eina. Það þarf líka að efna í nýjar þjóðargjafir. Það sem búsetan og náttúran hefur unnið gegn landinu á liðnum öldum verður að bæta. Um það stendur fólk saman til sjávar og sveita minnugt þess að þrjátíu óvinir Njáls urðu nafnlausir í sögunni en Ingjaldur á Keldum lifir. víst að meirihluti stórflokksins í borginni sé tapaður. Með þetta í huga er því spáð að látið verði reyna á þingkosningar áður en til bogarstjórnarkosninga kemur, og því sé alveg ljóst að starfstími stjórnarinnar sé tak- markaður. Þetta er auðvitað ósanngjarnt, því hver ríkisstjórn hlýtur að lifa eins lengi og hún getur og heldur meirihluta sínum. Þótt líklegt sé að innri þarfir stórflokksins hafi eitthvað að segja um þátttöku hans í ríkisstjórn hefur stórflokkurinn sest í núverandi ríkisstjórn með helstu þarfir sínar leystar í augnablikinu og það gegn vilja mikils þorra þjóðarinnar ef marka má skoðanakannanir. Ekki þarf það endilega að vera stórflokknum að kenna, heldur ráðgjöfum hans sem hafa verið að smíða sér útópíur og sigla skýjaflotum milli heimsskauta. Sameinast andstaðan um verðbólgu? Þótt lítið hafi heyrst í stjórnar- andstöðunni enn sem komið er eins og eðlilegt má telja, er þess að vænta að hún taki skriðinn um það bil sem þingstörf hefjast í haust. Ráðstafanir þær sem stjórnin hefur gert í efnahags- málum miðast að því að jafna að nokkru halla á fjárlögum. Sá halli kom til vegna samninga við launþegahreyfinguna, en erfitt getur reynst ofan í þessar ráð- stafanir að byrja að efna að nýju í stórfelldan halla á fjárlögum þegar að næstu lotu launþega- hreyfingarinnar kemur. Þó verð- ur ekki séð hvernig væntanleg- um launakröfum verður mætt öðruvísi en þeirra gæti í fjárlög- um, nema þá að öðrum kosti að gamli skollaleikurinn hefjist að nýju um víxlverkanir kaupgjalds og verðlags, sem síðast enduðu í 130% verðbólgu. Það verður enn að höfða til skynsemi við- mælenda um launamál. Viðhorf í launamálum hefur stórbreyst á síðustu árum, og hefur Ásmund- ur Stefánsson, forseti ASÍ orðið sérstaklega fyrir barðinu hjá sín- um flokksbræðrum vegna þess að hann tók þátt í því að draga úr sífelldum hryðjum hækkana verðlags og kaupgjalds þegar fulireynt þótti að þær færðu, launþegum engan hag. Það er fyrst og fremst kaupmátturinn sem skiptir máli en lítil von er til þess að halda honum eða jafnvel auka hann í óðaverðbólgu. Þessi skynsemi þykir ekki alltaf fín í pólitíkinni, og horfur eru á því nú, að stjórnarandstaðan sjáist ekki fyrir, þegar hún fer að blása í glæður kaupgjaldsmála. Al- þýðubandalagið hefur sínar á- stæður fyrir því að vilja ekki taka af skynsemi afstöðu til kaupgjaldsmála, og Kvennalist- inn hefur þegar lýst skoðun sinni á þeim í viðræðum um stjórnar- myndun. Þess er því ekki að vænta að stjórnarandstaðan setji upp silkihanska þegar umræður um kaupgjald hefjast fyrir al- vöru í haust. Um afleiðingar varðar engan. Fréttastofan og BSRB í sviðsljósi Fréttastofa útvarpsins hefur oft legið undir ámæli fyrir ýmsar sakir og ekki allar trúverðugar. Hún er nauðsynlegur þáttur i þjóðlífinu og ástæðulaust að am- ast við henni út af margvíslegum tilfinningamálum einstaklinga, sem finnst að hlutur þeirra hafi verið fyrir borð borinn og bera þá fyrir sig stofnanir og jafnvel heila stjórnmálaflokka. í nýlegri naflaskoðun fréttamanna á fjöl- miðlum fékk hún hið mesta lof hjá kollegum m.a. vegna þess að fæstir vildu lofa næstu keppi- nauta. Er það út af fyrir sig rannsóknarefni hvernig niður- stöður svona naflaskoðunar segja meira til um það hverju fréttamenn vilja ekki svara en um það hvað er réttmætt og satt. Ljóst er að fréttastofan er veik fyrir ákveðnum efnisþáttum og má þar fyrst telja vinnudeilur. Hvenær sem horfur eru á því að vinnudeilur séu í aðsigi, byrjar hún að tíunda tilefni hennar og undirbúa hlustendur með öllum tiltækum ráðum undir að geta tekið þátt í launapartíinu um leið og það hefst. Þótt ekki sé þess að vænta að launadeildur hefjist hér fyrr en í haust er fréttastofan þegar byrjuð að birta viðtöl sín við Pétur og Pál um nauðsyn þessarar deilu. Síð- an þegar þessi deila er hafin i byrjar fréttaflutningur af gangi viðræðna kvölds og morgna og um miðjan dag. Líklega hefur enginn einn aðili í landinu gert jafn mikið til að þreyta fólk á launadeilum en þessi ágæta fréttastofa með þráhyggju sína. Fréttamenn á fréttastofu eru í BSRB og þurfa að standa í * ' 'í..

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.