Tíminn - 25.07.1987, Qupperneq 3
Laugardagur 25. júlí 1987
Tíminn 3
Ólafur Ólafsson landlæknir:
Dauðsföll vegna lyfja
fleiri en vitað er um
„Það er rétt, dauðsföll sem rekja
má til aukaverkana lyfja kunna að
vera langtum fleiri en landlækni-
sembættinu hefur borist upplýsing-
ar um“, sagði Ólafur Ólafsson
landlæknir í samtali við Tímann.
„I nýútkomnu riti Hjúkrunarfé-
lags íslands; Hjúkrun, ritar Ólafur
Ólafsson landlæknir grein sem
hann nefnir „Dauðsföll af völdum
aukaverkana lyfja.“ Þar vitnar
hann í tvær rannsóknir sem gerðar
hafa verið á innlögnum vegna
aukaverkana. Annars vegar á
Sjúkrahúsi Akraness þar sem rann-
sóknin náði til 1410 sjúklinga með
2671 legudag. Hins vegar á lyf-
læknisdeild Landspítalans þar sem
um var að ræða 795 sjúklinga sem
lögðust inn vegna aukaverkana á
fjögura mánaða tímabili. Þar kem-
ur fram að dauðsföll af völdum
aukaverkana eru skráð fimm, og er
þar um að ræða fólk á aldrinum
59-78 ára. Athyglisvert er að sýkla-
lyf eru hvað hættulegust og fram
kemur að af 1410 innlögnum á
Sjúkrahús Akraness, vegna auka-
verkana lyfja er réttur helmingur
vegna aukaverkana sýklalyfja.
Ólafur bendir á, að aukaverkan-
ir séu mun algengari en fram
kemur í tilkynningum lækna. Ef
litið er á þessar niðurstöður má
skrifa miklar þjáningar og jafnvel
dauða á kostnað aukaverkana
!yfja.
Ólafur bendir einnig á að kostn-
aður sé umtalsverður og tekur sem
dæmi, að ef sjúklingur með auka-
verkun vegna lyfja, vistist allt að
þrefalt lengur á sjúkrahúsi en aðrir,
eins og fram kemur í skýrslum
lækna, má búast við að aukakostn-
aður við legu 51 sjúklings, þ.e. um
1.000 legudagar, hafi verið 7-8
milljónir króna. Þannig að fyllsta
ástæða sé að fylgjast með gangi
mála.
Ólafur Ólafsson sagði ennfrem-
ur, að áríðandi væri fyrir almenn-
Tafla 1: Lyflækningad. Áætlaðartölur
Sj.h. Akran. lyfld.
og Landsp. landsins/ár
Fjöldi innlagna 3.466 ca. 8000
Fjöldi aukaverkana 317 >700
Fjöldi einstaklinga með aukaverkanir 253 i> 600
Aukaverkanir sem orsök innlagna 51 > 100
Dánir 5 12?
Sjúklingar sem dóu voru á aldrinum 59- 78 ára.
Tafla 2: Algengustu lyf er valda aukaverkunum eru þessi:
Sjúkrahús Akraness Landspítalinn
(fj.sjúkl. 1410) % (fj. sjúkl. 795) Fj.
Sýklalyf 50,0% Hjartalyf 10
Joðlyf 9,0% Hormónalyf 7
Geðlyf 9,0% Öndunarfæralyf 7
Þvagfæralyf 8,5% Sýkingalyf 6
Giktarlyf 4,5% Giktarlyf 5
Hjartalyf 1,5% Blóðlyf 4
Önnurlyf 1,8% Önnurlyf 11
ing að vera vakandi og þá sér í lagi
hvað sýklalyf varðaði. Hann sagði
að vinnuálag íslendinga væri einn
þáttur í því sambandi, að allir vildu
vera frískir til að geta haldið áfram
vinnu og menn þrýstu því oft á
lækna að fá lyf sem oft væri ekki
þörf á.
Aðspurður sagði Ólafur að enn
gerðist það að rekja mætti dauða
til aukaverkana af völdum sýkla-
lyfja. Hann teldi fulla þörf á að
vekja bæði foreldra og lækna til
umhugsunar um hættuna sem staf-
aði af því að ætla að leysa veikindi
barna með sýklalyfjum til að for-
eldrarnir kæmust til vinnu. Þar
erum við íslendingar sér á báti í
samanburði við hinar Norðurland-
aþjóðirnar.
Að lokum sagði landlæknir að
öllum væri hollt að hafa orð Bern-
hards Shaw í huga; Vísindi leysa
. ekkert vandamál án þess að vekja
upp tíu í staðinn.
- BD
Óskar Vigfússon formaöur Sjómanna-
sambands íslands:
Fiskbúðirnar
hækka verðið
„Samkvæmt könnun okkar, á
meðal fisksala og fiskmarkaða, bæði
fyrir og eftir opnun markaðanna, er
niðurstaða okkar algjörlega öfug við
það sem mér finnst koma fram hjá
viðmælanda Tímans í gær,“ sagði
Óskar Vigfússon formaður Sjóm-
annasambands íslands.
„Ástæða þess að við hvöttum til
opnunar uppboðsmarkaðar var sú
að verið var að taka stóran hlut
aflans framhjá skiptum við sjómenn,
til fisksala á miklu hærra verði
heldur en til skiptanna kom. Það
sem gerðist í raun við opnun mark-
aðanna var það að allir þeir aðilar
sem voru í skiptum við fisksala
óskuðu eftir því að halda þeim
viðskiptum áfram.
Fisksalar hafa hins vegar sagt að
úr því að markaðurinn væri kominn
myndu þeir kaupa fiskinn þar. Það
DAUDA-
SLYSÍ
ÖXNA-
DAL
Banaslys varð í Öxnadal í fyrri-
nótt þegar bíll fór út af veginum
við Bakkasel og valt. Ung kona
var ein í bílnum.
Vöruflutningabílstjóri til-
kynnti lögreglu um slysið um
klukkan 2:30, en ekki er nákvæm-
lega ljóst hvenær slysið átti sér
stað. þj
væri full ástæða til að kanna það af
hverju þessi afstaða var upp tekin af
hálfu þeirra.
Nú fá þeir fiskinn almennt á mun
lægra verði en þeir þurftu að borga
fyrir hann inn á borð til sín áður.
Þannig er þessu alveg öfugt farið
miðað við það sem haldið er fram af
fisksala í fréttinni.“
Hann kvaðst vita til þess að ýsan
hafi verið að seljast á 30-40% hærra
verði en ekki þó daglega. Þetta sagði
hann að tekið hefði verið til greina
af hálfu verðlagsráðs í sambandi við
neytendamarkaðinn. Hann sagði að
hátt verð á ýsu út úr fiskbúð hefði
verið kvörtunarefni þeirra vegna
þess að það kemur ekki til skipta við
sjómenn.
„Með opnun markaðanna fór að
skapast leið fyrir fisksala að fá
jafnvel fisk á miklu lægra verði
heldur en áður í föstum viðskiptum.
Fisksalarnir hafa almennt farið á
markaðina til að kaupa fisk, beinlín-
is vegna þess kostnaðar sem þeir
áður lögðu í að fá fiskinn. Fisksalar
hafa fullyrt við mig að þetta hafi
verið Gósenland fyrir þá. Fyrir opn-
unina voru þeir að endasendast hér
um allt Suðurland og vestur á Snæf-
ellsnes til að afla sér fiskjar. Þennan
kostnað hjá fisksölum hefur neyt-
andinn verið látinn borga.
Nú koma menn þarna á ákveðnum
tíma inn á fiskmarkað á svæðinu og
kaupa það sem þá vantar. Tilkost-
naður þeirra hlýtur að hafa lækkað
eitthvað við þetta.
Trillukarlar og aðrir sem selt hafa
áður beint til fisksala eru núna
hundóánægðir með verð til sín og
þetta verð sem fisksalinn nefnir í
Tímanum í gær er fjarri sanni."
Óskar Vigfússon sagði að lokum
að rétt væri að spyrja fisksala að því
hvað þeir hafi nú þegar hagnast á því
að þurfa ekki lengur að hendast eftir
fiski allar nætur, hingað og þangað
um landið. KB
Krísuvíkursöfnunin:
Hringhjólid komið
eftir erfiða ferð
Þrettán unglingar úr félagsmið-
stöðvunum Þróttheimum og
Frostaskjóli komu þreytt en ánægð
á Lækjartorg á föstudaginn eftir að
hafa hjólað í heila 24 daga til
styrktar Krísuvíkursamtökunum
sem hyggjast byggja meðferðar-
heimili fyrir unglinga sem orðið
hafa vímuefnum að bráð. Á Lækj-
artorgi var samankominn mann-
fjöldi til að taka á móti Hringhjól-
inu. Davíð Oddsson borgarstjóri
flutti ávarp, Takk-dúettinn flutti
nokkur lög og krökkunum var
afhent viðurkenning fyrir frábæra
frammistöðu.
Úlfar Snær Arnarson og Kristján
Maack fararstjórar krakkanna
sögðu að ferðin hefði gengið vel en
væri jafnframt búin að vera mjög
erfið. Ýmis óhöpp hentu Hring-
hjólið á leiðinni, rútan bilaði í tvo
daga auk þess sem hjólin biluðu
öðru hverju. Kaupfélög um allt
land sáu hópnum fyrir mat og alls
staðar kváðust krakkarnir hafa
hlotið frábærar móttökur. Þau
sögðu mótvindinn hafa verið sinn
versta óvin en hann þurftu þau að
berjast við mestan hluta leiðarinn-
ar. Söfnunin gekk vonun framar.
Söfnunarféð hafði að vísu ekki
verið talið endanlega en síðast er
talning fór fram höfðu safnast 2,5
milljónir. Sigurlfna Davíðsdóttir
formaður Krísuvíkursamtakanna
hrósaði unglingunum mjög í ávarpi
sem hún flutti á Lækjartorgi.
„Unglingar sem geta hjólað hring-
inn í kringum landið til styrktar
góðu málefni geta allt,“ voru lok-
aorð Sigurlínu. IDS