Tíminn - 25.07.1987, Side 4
4 Tíminn
Laugardagur 25. júlí 1987
Hæstiréttur klofnar í afstöðu sinni:
Vanhæf isdómur yfir
Hallvarði staðfestur
Hæstiréttur staðfesti í gærmorg-
un hinn kærða frávísunardóm
Sakadóms í Reykjavík í máli fyrr-
verandi forráðamanna Hafskips hf.
Það liggur nú fyrir hjá Jóni Sigurðs-
syni, dómsmálaráðherra, að skipa
nýjan saksóknara í Hafskipsmál-
inu, þar eð Hallvarður Einvarðs-
son hefur endanlega verið dæmdur
vanhæfur í málinu. Jafnvel hefur
verið rætt að saksóknarar verði
skipaðir tveir, annar til að annast
Útvegsbankaþátt málsins og hinn
til að sjá um mál forráðamanna
skipafélagsins. En nú hefur heyrst
að Jónatan Sveinsson, hæstaréttar-
lögmaður, verði skipaður saksókn-
ari yfir þessu máli öllu. Það yrði
undir honum komið hvort aðrir
eða fleiri aðilar yrðu ákærðir í
Hafskipsmálinu en áður var, en
Þorsteinn Geirsson í dómsmála-
ráðuneytinu hefur áður sagt í við-
tali við Tímann, að hann teldi
óþarft að hefja rannsókn málsins
frá upphafi. Margir þættir þess
væru fullkannaðir þrátt fyrir allt.
Hæstaréttardómarar voru fimm,
en hafðir þrír í viðaminni málum.
Málið dæmdu Magnús Thor-
oddsen, Guðmundur Jónsson,
Guðrún Erlendsdóttir, Halldór
Þorbjörnsson, sem skilaði sérat-
kvæði og var á öndverðunt meiði
við meirihluta dómara, og síðast
Gaukur Jörundsson, settur hæsta-
réttardómari.
Hinn kærði frávísunardómur var
kveðinn upp 16. þessa mánaðar,
en þá taldi Sakadómur Hallvarð
Einvarðsson, ríkissaksóknara,
vanhæfan til að fjalla um Hafskips-
málið þar sem bróðir saksóknara
átti sæti í bankaráði Útvegsbank-
ans og þóttu mál bankans og skipa-
félagsins svo tengd að þau bæri að
fjalla um í einu máli. Þá lýsti
vararíkissaksóknari, Bragi Stein-
arsson, yfir því að hann, af hálfu
ákæruvaldsins, kærði dóminn til
Hæstaréttar og krefðist þess að
hinn kærði dómur yrði felldur úr
gildi.
í greinargerðum verjenda
ákærðu er þess aftur á móti krafist
að frávísunardómurinn yrði stað-
festur og varnaraðiljum dæmdur
kærumálskostnaður.
I dómi Hæstaréttar segir: „Fall-
ast ber á rök héraðsdómara fyrir
því að rétt sé að vísa ákæru í máli
þessu frá dómi. Samkvæmt því er
niðurstaða hins kærða frávísunar-
dóms staöfest."
Eftir þessum málalokum er ríkis-
sjóði gert að greiða allan
kærumálskostnað sakarinnar, þar
með talda þóknun til skipaðra
verjenda ákærðu, 25. þúsund krón-
ur til hvers þeirra.
Halldór Þorbjörnsson, hæsta-
réttardómari, skilaði sératkvæði. í
áliti sínu tekur hann fram að ríkis-
saksóknari skuli tilkynna það
dómsmálaráðherra ef hann er svo
við mál riðinn að hann mætti ekki
gegna dómarastörfum í því og
skipar þá ráðherra annan í hans
stað. „Mat á því hvort slíkrar
ráðstöfunar sé þörf ber endanlega
undir dómsmálaráðherra, enda er
hvorki í nefndri 22. gr., 124. gr.
sömu laga né annars staðar í lögum
gert ráð fyrir því að máli verði
vísað frá dómi sakir þess að hand-
hafi ákæruvalds mætti eigi gegna
dómarastörfum í því. Samkvæmt
því ætti að vísa kröfu varnaraðila,
þeirri sem um er dæmt í þessu
máli, frá héraðsdómi."
Halldór segir að ríkissaksóknari
sé ekki í neinum tengslum við
varnaraðila máls þessa er mundu
gera hann vanhæfan sem dómara í
máli á hendur þeim, né heldur að
sýnt hafi verið fram á vanhæfi hans
af öðrum ástæðum. Halldór lýkur
svo áliti sínu: „Tel ég því að fella
eigi hinn kærða frávísunardóm úr
gildi og leggja fyrir Sakadóm
Reykjavíkur að taka málið til með-
ferðar að efni til.“ þj
Önnur hver vændiskona á
Ítalíu smituö:
Eyöni
eykst
með
fíklum
í skýrslu dagsettri 31. mars 1987
frá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni,
þar sem gefinn er upp fjöldi eyðnitil-
fella í Evrópuíöndum, kemur fram
að farsóttin hefur síðastliðin ár auk-
ist meira meðal fíkniefnaneytenda
en samkynhneigðra og að mcðal
fíkniefnaneytenda beri mikið á ung-
um konum á aldrinum 20 til 29 ára.
Það rennir stoðum undir þá skoðun
að eyðni breiðist óðfluga út meðal
vændiskvenna. Samkvæmt skýrsl-
unni ber því að beina forvarnarað-
gerðum sem mest að þessum hópi.
Á ráðstefnu stofnunarinnar í Genf
nýverið kom fram að margir af
gagnkynhneigðum, sem hafa smitast
af eyðniveirunni, hafa smitast vegna
skyndikynna við vændiskonur. Tölur
frá ftalíu leiða í Ijós að 58% vændis-
kvenna í Aviano, sem neyta eitur-
lyfja, voru með jákvæða mótefna-
mælingu gegn eyðniveirunni. Það er
því meira en önnur hver vændiskona
á lyfjum sem mögulega getur smitað
aðra af eyðni.
Talið er að þessi hlutfallstala sé
svipuð í mörgum borgum í S-Evrópu
og löndum Afríku. þj
Vísbending um sektina áreiðanleg:
íslendingum skipuð
vörn í fíkniefnamáli
Lögregluþjónn afhendir ökumanni „Ferðafélagann" Tímamynd brein
Lögreglan:
w
Uthluta ökumönn-
um ferðafélaga
íslendingarnir tveir og Hollend-
ingurinn, sem hnepptir voru í varð-
hald í Málmey í Svíþjóð á þriðju-
daginn, vegna ábendingar um að
þeir hefðu smyglað til landsins
umtalsverðu magni af amfetamíni,
sitja enn inni og ekki hefur verið
tekin ákvörðun um hvort þeir verði
framseldir til Danmerkur. Danska
fíkniefnalögreglan hefur farið fram
á það vegna tengsla þeirra við mál
53 ára gamals íslendings sem grip-
inn var í Kaupmannahöfn með 1,3
kílógrömm af amfetamíni.
Að sögn lögreglunnar í Málmey
hefur hún enn ekki haft uppi á
þeim fikniefnum, sem grunur leik-
ur á um að smyglað hafi verið til
Svíþjóðar, en vísbending þeirra er
áreiðanleg. Saksóknari í Málmey
hefur skipað þeim verjendur. Ekki
er vitað til þess að íslendingarnir
þrír, sem sitja í gæsluvarðhaldi
erlendis, hafi æskt aðstoðar sendi-
ráða íslands eða ræðismanna. þj
íþróttasamband lögreglumanna í
samvinnu við Umferðarráð mun
dreifa „Ferðafélaganum" til öku-
manna um allt land. Byrja laganna
verðir að dreifa þessu í dag. „Ferða-
félaginn" er lítil handbók, þar sem
fjallað er um margt sem viðkemur
umferð og æskilega umgengni far-
þega og öryggiskröfur. Lögð verður
sérstök áhersla á að börn verði í
aftursætum. Lögregluþjónar munu
víða um land stöðva ökumenn og
ræða við þá um leið og handbókin
verður afhent. Við það tækifæri
verður börnum í aftursæti afhent
lítil stjarna, sem um leið er happ-
drættismiði. Tugir vinninga eru á
boðstólunum, reiðhjól og sitthvað
fleira. Vinningshafar verða síðan
tilkynntir eftir ferðahelgina miklu,
verslunarmannahelgina. -ES