Tíminn - 25.07.1987, Qupperneq 11
Laugardagur 25. júlí 1987
Tíminn 11
llllllllllllll ÍÞRÓTTIR lllllllllillllllllllllilinnillllllílilSllllllll^
Helcna Ólafsdóttir í dauðafæri við Þórsmarkið en boltinn endaði í horni. Helena gerði tvö mörk í leiknum.
Tímamynd Pjetur.
íslandsmótið í knattspyrnu, 1. deild kvenna:
Stórsigur KR á Þór
- sanngjarn Skagasigur í Keflavík
KR-ingar sigruðu Þórsara með 6
mörkum gegn engu í Ieik liðanna í
1. deild kvenna á KR-vellinum í
gærkvöldi. Tölurnar eru fjarri því að
gefa rétta mynd af leiknum því
Þórsliðið var sterkari aðilinn í fyrri
hálfleik án þess þó að skapa sér
verulega hættuleg tækifæri, voru
miklu ákveðnari og virtust hafa alla
burði til að vinna leikinn. Staðan í
hálfleik var 0-0 en KR liðið mætti
UMSJÓN:
Hiotdis
Árnadóttir
BLAÐAMABUR
ákveðið í seinni hálfleikinn. Arna
Steinsen skoraði fyrsta markið úr
víti eftir 10 mínútna Ieik en ein
Þórsstúlkan hafði þá handleikið
knöttinn innan vítateigs. Kolbrún
Jóhannsdóttir bætti við öðru marki
með skalla af markteig sjö mínútum
síðar og þriðja markið skoraði
Kolbrún einnig með skalla, kastaði
sér fram eftir aukaspyrnu sem Arna
Steinsen tók, fallegt mark.
Það var fyrst eftir þriðja markið
sem KR fór að hafa verulega yfir-
burði og þá urðu þeir algerir. KR-
liðið fór að spila skemmtilega
saman, nokkuð sem ekki hafði sést
fyrr í leiknum og á það við um bæði
lið. Þórsliðið var aftur á móti alveg
steinhætt og síðustu 10 mínúturnar
urðu mörkin þrjú til viðbótar. Hel-
ena Ólafsdóttir gerði fjórða markið
með skoti af stuttu færi eftir ágæta
sókn og Arna bætti því fimmta við,
alein á markteig og hafði nógan tíma
til að leggja boltann fyrir sig. Helena
skoraði svo sjötta markið með lausu
skoti.
Sanngjarnt í Keflavík
Akranes vann ÍBK 2-0 í Keflavík.
Sigur þeirra var sanngjarn miðað við
gang leiksins. Fyrra markið kom á
28. mín. þegar Halldóra Gylfadóttir
komst ein innfyrir vörn Keflvíkinga
og skoraði af öryggi. Stuttri stund
áður hafði Ragnheiður Jónasdóttir
átt stangarskot. Á 40. mín. kom
óvænt mark. Engin hætta virtist á
ferðum þegar Halldóra Gylfadóttir
sendi fyrir markið en boltinn datt í
markið framhjá Guðnýju markverði
í nærhornið.
Á 52. mín. átti Ragnheiður aftur
stangarskot eftir fyrirgjöf frá Hall-
dóru og 65. mín. skaut Halldóra í
slá.
Keflvíkingar áttu sín færi en þær
voru alls ekki nógu ákveðnar. Best í
liði ÍA var Halldóra Gylfadóttir en
engin afgerandi best í ÍBK. ms/HÁ
ERUM FLUTTIR
að Ármula 3 (Hallarmúlamegin)
Símanúmer okkar er eftir sem ðður „ - *
SAMVINNU
LÍFEYRISSJÓDURINN
íslandsmótið í knattspyrnu, 2. deild:
IR vann Þrótt í opnum
og skemmtilegum leik
ÍR sigraði Þrótt 4-2 í leik liðanna
í 2. deildinni á Laugardalsvelli í
gærkvöld. Leikurinn var opinn og
skemmtilegur. Það voru Einar
Ólafsson, Bragi Björnsson með tvö
mörk og Sigurfinnur Sigurjónsson
sem skoruðu fyrir ÍR-inga en Heimir
Karlsson misnotaði víti stuttu fyrir
leikslok. Atli' Helgason (víti) og
Kristján Svavarsson svöruðu fyrir
Þrótt. Tveir leikmenn voru fluttir á
sjúkrahús eftir að þeir skölluðu sam-
an í loftinu.
Gömlu góðu
og sterku
leikföngin!
+ HÚSIÐ
HJÁLPARSTÖÐ RKÍ
fyrir bóm og unglinga
TJARNARGÖTU 35
SÖLUUMBOÐ
HJÁ R.K. HÚSINU
TJARNARGÖTU 35 - SÍMI 622266
- styrkið gott málefni!
Allur ágóði af sölimni rennur í rekstur Rauða
kross hússins, Tjamargötu 35 í Reykjavík,
sem er hjálparstöð fyrir böm og ungllnga af
öllu landinu.
Bílunum fylglr
skoðunarvottorð þar
sem eigandi er tilgreindur
og bílnúmer.
armqT/