Tíminn - 25.07.1987, Side 12

Tíminn - 25.07.1987, Side 12
Laugardagur 25. júlí 1987 12 Tíminn Hæstiréttur í Svíþjóö: Ætlar að taka fyrir mál dauðs kattar Milljónir Kínverja unnu saman Yangtzefljót. gær við að styrkja flóðgarða við Kína: Milljónir manna í flóðgarðavinnu Pekíng - Keuter Milljónir bænda, verkamanna og hermanna voru í gær komnir að bökkum Yangtzefljótsins í Kína tii að styrkja flóðgarða. Það var Kín- verska dagblaðið sem skýrði frá þessu. Blaðið sagði að vatnsmagnið í efri hluta Yangtze, lengstu á Kína- veldis, væri nú það þriðja mesta síðan árið 1949 er kommúnistar komust til valda. Li Peng varaforseti og yfirmaður flóðavarnanefndar landsins hafði beðið héraðsstjórnir í Hubei og Hunan að kalla út allt tiltækt lið til að styrkja flóðgarðana og í gær var fólk að störfum alls staðar með fljótinu þar sem það rennur í gegnum Hubeihérað. Siglingar þar voru einnig bannaðar. Mörg hundruð ntanns hafa látist í flóðum það sem af er þessu ári í Kína enda hefur rignt mikið víðs vegar í larídinu. f Shanghæ lést tíu ára drengur á miðvikudag af völdum eldingar og gífurleg rigning gerði ræktað land fyrir utan borgina að einu stöðu- vatni. 1-á hafa tólf þorp í Jiangsuhéraði orðið flóðum að bráð á síðustu dögum svo og 32 þúsund hektarar ræktaðs lands. FRÉTTAYFIRLIT COLOMBO — Valdamesti I foringi Tamila á Sri Lanka flaug til Indlands til viðræðna um áætlun er miðar að því að binda enda á hið fjögurra ára skæruliðastríð á eynni. KÚVAIT — Olíuflutninga- skipið Bridgeton, sem er í eigu Kúvaitbúa en siglir nú undir bandarískum fána, sigldi á djúpsjávarsprengju í norður- hluta Persaflóa í fyrrinótt. Nokkrar skemmdir urðu á skip- inu en engin meiðsl á mönnum og það gat haldið áfram ferð sinni. PARIS — Hópur öfgamanna í Líbanon, hlynntur Iranstjórn, er hefur þrjá franska gísla I haldi sínu ítrekaði kröfur sínar við frönsk stjórnvöld og hótuðu gíslunum lífláti. NÝJA DELHI - Rajiv Gandhi forsætisráðherra Indlands, sem hefur verið mik- ið gagnrýndur að undanförnu, viðurkenndi að hópur stuðn- ingsmanna sinna hefði ráðist að Vishwanath Pratap Singh, fyrrum ráðherra og helsta gagnrýnanda Gandhis. ALGEIRSBORG - Rilw- anu Lukman forseti OPEC sagði þessi samtök þrettán ríkja qeta hækkað yfirlýst olíuverð sitt upp í 18 dollara á tunnu á næsta fundi samtak- anna í desember. MOSKVA — Tveir sovéskir geimfarar og fyrsti sýrlenski geimfarinn tengdu Soyuz geimflaug sína við geimstöð- ina Mir og fóru strax að undir- búa brottför þar sem fara þurfti með veikan geimfara, sem dvalið hefur í Mir síðustu sex mánuðina, til jarðar. KAUPMANNAHÖFN - Sir Geoffrey Howe utanríkis- ráðherra Bretlands sagðist vera hóflega bjartsýnn a að stórveldin tvö næðu að komast að samkomulagi um eyðingu meðaldrægra og skamm- drægra kjarnaflauga bæði frá Evrópu og öðrum stöðum í heiminum. MANILA — Mörg hundruð vinstrisinnaðir bændur mót- mæltu hinum nýju lögum stjórnarinnar á Filippseyjum um dreifingu lands og sögðu þau vera svik ein. MAXIXE, Mósambik - Bandaríkjamaðurinn Mark Van Koevering sagðist hafa verið vitni af fjöldamorðunum um síðustu helgi þegar hægrisinn- aðir skæruliðar skutu til bana 386 manns I þorpi einu. Þetta eru ein verstu fjöldamorðin í sögu Mósambik. Stokkhólmur - Reuter Hæstiréttur í Svíþjóð mun innan tíðar taka fyrir óvenjulegt mál svo ekki sé meira sagt, nefnilega mál sem snýst um umráð yfir dauðum ketti. Fresskötturinn Astor lifði hálf- gerðu hundalífi fram til ársins 1985 er Else Wigh, meðlimur dýravinafé- lags í Gautaborg, tók hann að sér. Wigh veitti kettinum húsaskjól og gaf honum mat þar til hún lét hann í hendurnar á Askefors fjölskyld- unni. Astor fór hinsvegar aftur á flæking en Wigh vann nótt og dag að því að finna köttinn að nýju og tókst það eftir sex vikur. í samningnum sem gerður var þegar Wigh lét Askefors fjölskyld- unni köttinn í hendur var klásúla um illa meðferð. Wigh benti á þessa klásúlu og neitaði að láta köttinn fara aftur til fjölskyldunnar. Hún brást illa við og lét lögregluna sækja Astor hið snarasta. Wigh fór í mál og krafðist umráða- réttarins yfir Astor. Margir hefðu haldið að málinu væri lokið þegar Astor dó í maímánuði en hæstiréttur landsins ætlar samt að fjalla um það í haust á þeim forsendum að hér sé um lagalegt fordæmi að ræða. Sviss: Áhöfnin yfirbugaði flugvélaræningjann - ungur Líbani rændi stórri farþegaflugvél í gær og skaut einn Frakka til bana Genf - Reuter Áhöfn DC-10 flugvélar afríska flugfélagsins Air Afrique sýndi mik- inn hetjuskap í gærmorgun þegar hún yfirbugaði mannræningja sem hafði drepið einn franskan farþega vélarinnar með köldu blóði. Atburð- ur þessi átti sér stað á flugvellinum í Genf í Sviss. Áhafnarmeðlimirnir réðust á byssumanninn eftir að farþegar frammi í vélinni höfðu náð að opna neyðardyr og tekið að laumast út úr vélinni. Mannræninginn tók eftir hrcyfingu og’hugðist aðgæta hvað væri á seyði en þá réðust áhafnar- meðlimirnir á hann. Þeirra á meðal var flugþjónn sem fékk skot í mag- ann og særðist alvarlega. Svissnesk víkingasveit réðist inn í flugvélina þegar þeir sáu fólkið streyma út um neyðardyrnar og gátu komið áhöfninni til hjálpar. „Við voru heppnir hvernig þetta ævintýri okkar endaði... “, sagði flugstjórinn eftir að ógnaratburður- inn var yfirstaðinn. Flugvélaræninginn hóf byssu á loft þegar vélin, með 148 farþega og 15 áhafnarmeðlimi innanborðs, var á leið frá Róm til Parísar. Ræning- inn, rúmlega tvítugur Líbani, sagðist eiga ýmislegt vantalað við Frakka og skipaði flugstjóranum að halda til Beirút. Flugstjórinn fékk hann hins vegar til að leyfa lendingu á Genfar- flugvelli fyrst til að taka eldsneyti. Maðurinn sem rændi vélinni er Hussein Ali Amir Mohamed Hariri, 21 árs gamall Líbani sem var leystur úr fangelsi árið 1985 þegar skipti fóru fram á palestínskum og líbönsk- um skæruliðum og ísraelskum her- ntönnum. Lögreglan sagði í gær að hann yrði ákærður um morð á franska farþeganum en vitni að at- burðinum sögðu drápið hafa verið gert með köldu blóði. Flugvélin hóf þetta flug sitt í Brazzaville, höfuðborg Kongó, og millilenti í Bangui, höfuðborg Mið Afríkulýðveldisins, áður en hún lenti á Rómarflugvelli. í gær var staðfest að flugræninginn hefði kom- ist um borð í vélina í Bangui með 94 öðrum farþegunt. Air Afrique er flugfélag í eigu nokkurra Áfríkuþjóða og hefur höfuðstöðvar sínar á Fílabeins- ströndinni. íran: Ný hefndarstefna Lundúnir - Reuter Helsti talsmaður íranstjórnar í hermálum sagði í gær að Iranher myndi ekki hika við að gera árásir á bandamenn íraka við Persaflóann ef írakar gerðu árásir á olíustöðvar og önnurefnahagsleg mannvirki í íran. Það var Ali Akbar Hashemi Rafs- anjani forseti íranska þingsins sem hótaði þessu, nú þegar aðeins fimm dagar eru liðnir frá því að Öryggis- ráð Sameinuðu Þjóðanna krafðist þess að vopnahlé yrði tafarlaust virt í hinu sjö ára gamla stríði írana og íraka. írakar hafa lýst yfir að þeir vilji virða samþykkt öryggisráðsins ef íranir gera slíkt hið sama. franir hafa enn ekki svarað þessari kröfu formlega en ólíklegt verður að telj- ast að þeir fallist á hana. Ríkin í Persaflóaráðinu, Bahrein, Kúvait, Óman, Qatar, Saudi Arabía og Sameinuðu arabísku furstadæmin eru öll hliðholl írökum þótt þau forðist að taka beina afstöðu í stríð- Rafsanjani: Tilkynnti í gær að Iran- stjórn hefði tekið upp „nýja hefndar- aðgerðastefnu“. inu. Hin opinbera fréttastofa í íran hafði eftir Rafsanjani að stjórn sín hefði tekið upp „nýja hefndarað- gerðastefnu" sem væri afleiðing af íhlutun Bandaríkjamanna í Persa- flóanunt. Amma Whitney klifrar upp á Fujifjall Tokyo - Reuter Bandarísk amma, 91 árs að aldri, komst upp á tind Fujifjalls í vikunni og varð þar með elsta konan til að klifra þetta hæsta fjall Japans. Hulda Crooks frá Loma Linda í Kaliforníu, sem þekkt er undir nafninu Amma Whitney þar vestra, er reynd fjallgöngukona og henni var ekki skotaskuld úr þvf að klifra þetta 3.776 metra háa fjall á tveimur dögum. Hulda sagði í samtali við borg- arstjórann í Loma Linda að aldur væri ekkert mál og yngra fólk ætti að hafa þann anda í sér að vilja takast á við erfiðar þrautir. Hulda sagðist hafa hrópað „Banzai" þegar hún komst upp á tindinn rétt þegar sólin var tekin að rísa. „Banzai" er japanskt heróp og kveðja til keisarans. Hulda hefur gengið upp á Whitneyfjall í Kaliforníu í 22 skipti síðan hún var 66 ára gömul og fékk þá viðurnefnið „Amma Whitney". Þess má geta að Whitneyfjall er 4.418 metra hátt og er hæsta fjall Bandaríkjanna utan Alaska.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.