Tíminn - 25.07.1987, Qupperneq 13
Tíminn 13
Laugardagur 25. júlí 1987
Það var grimm skepna sem réðist
á 71 árs gamla konu í Steinafjöllum
í Georgíuríki í síðustu viku, dró
hana yfir innkeyrsluna og gekk svo
frá konunni að sauma þurfti hundrað
spor í líkama hennar.
Það var einnig grimrn skepna sem
réðist á mann í Rochester á þjóðhát-
fðardaginn 4. júlí og beit hann og
meiddi svo alvarlega að hann lést í
síðustu viku af sárum sínum.
Þessi skepna hefur einnig haft sig
í frammi í Atlanta, Houston og
Ramsay í Michiganríki þar sem hún
hefur ráðist á lítil börn og bitið og
molað þau til bana.
Skepnan sem staðið hefur fyrir
þessum voðaatburðum í Bandaríkj-
unum er hundur sem landsmenn
kalla „pit bull“ og má lauslega
yfirfæra á kynblending sem kominn
er af bandarískum Staffordshire
terríer og bandarískum bolaterríer
þ.e. blendingi af bolabít og rott-
uhundi.
Hundurinn hefur sterkan og
vöðvamikinn skrokk og stáltennur
enda kominn af bolabítum nítjándu
aldarinnar í Englandi. Á síðustu
tveimur og hálfu ári hefur þessi
hundur verið valdur að dauða sextán
manns víðs vegar um Bandaríkin og
hafa mörg bæjarsamfélög hert mjög
reglur um eignarhald á svona hund-
um í kjölfar þessa.
Flestir eiga þó hundana án þess
nokkurn tímann að skrá þá.Talið er
að um hálf milljón svona hunda séu
í eigu vafasamra einstaklinga á borð
við eiturlyfjasala og manna sem ala
hunda sína til að berjast fyrir pen-
inga. Þá eru margar smáglæpaklík-
urnar sem hafa þennan hund með í
ferðum og oftar en ekki hefur verið
reynt að misþyrma honum svo að
hann þyrstir í blóð.
Þeir sem starfa að dýravemdun í
Ekki er svipurinn góðlegur á þessum
ingi frá New York.
Umsjón:
Heimir Bergsson.
Bandaríkjunum hafa oft séð hvernig
fáfróðir og einfaldir eigendurnir
reyna að gera hundinn grimman og
viðskotaillan. Sumir gefa þeim litla
hunda til að rífa á'hol, aðrir telja í
heimsku sinni að hundurinn verði
grimmari sé hann fóðraður á byssu-
púðri og sterkri sósu. Þeir sem vilja
Bandaríkin:
„Tímasprengja
á fótum“
- Þannig er hinum grimma kynblendingiaf terríerkyni lýst -
Margir eigendur misþyrma hundunum til aö gera þá að
drápurum
Margir þessara kynblönduðu hunda eru „skapgóðir og einstaklega
tr>gg'r»“ þegar uppeldið er rétt.
þriggja ára gamla terríerkynblend-
styrkja kjálka skepnunnar, sem þó
eru nógu öflugir fyrir, láta hundinn
bíta í dekk sem síðan er sveiflað í
kaðli.
Franklin Loew rektor við Tufts
dýralækningaháskólann segir þessar
aðferðir breyta hundinumismám sam-
an í „tímasprengju á fóturn". Margir
hundanna eru notaðir í hundaslag
sem er nokkuð vinsæll víða í Banda-
ríkjunum jafnvel þótt þessi blóðslag-
ur varði við lög í 36 ríkjum landsins.
Grimmir hundar af þessu kyni eru
líka sjáanlegir í fylgd eiturlyfjasala í
borgum á borð við Chicago og
Filadelfíu. Hundarnir bera nöfn eins
og „Hitler“ og „Morðingi" og eru
með járnslegna hálskraga þar sem
sölumennirnir geyma sitt „krak“ og
kókaín.
„Þetta þykir karlmannlegt, eins
og að bera vopn“, segir einn meðlim-
ur dýraverndunarsamtaka.
En af hverju lifa svo margir
Bandaríkjamenn sig inn í þetta
sambland af sársauka og ofbeldi?
„Hundarnir eru eins og framlenging
af sjálfsímynd eigandans," segir Or-
ville Walls dýralæknir frá Fíladelfíu
og bætir við að eigendurnir séu oft
neðarlega í þjóðfélagsstiganum en
vilji bæta sér það upp með því að
eiga grimmasta og sterkasta hundinn
í hverfinu.
Eigendurnir sjálfir grípa oft til
ofbeldis og sumir sjá þetta samband
breytast í raunverulega hryllings-
mynd þegar þeir þjálfa hunda sína
til að vera eins konar „framhald af
þeim sjálfum“.
Versta tegundin af þessum hund-
um er sú sem hefur einnig verið
blönduð þýskum fjárhundi eða Dó-
berman hundi. Þessi kynblöndun,
segja þeir sem hafa vit á, er slæm og
úr verða „ruslhundar".
Ed Almeida hundaþjálfari í E1
Monte í Kaliforníu bendir á að einu
sinni hafi Dóberman hundarnir verið
þeir grimmustu en nú, eftir vandlega
kynblöndun í mörg ár, séu þeir eins
og góðlegir risar í samanburði við
terríerkynblendingana.
Ekki má þó setja þessa hunda alla
undir sama hatt, að sjálfsögðu eru
margir þeirra vel kynblandaðir og
vel uppaldir og þá eru þetta
“skapgóðar og einstaklega tryggar
skepnur“, segir Richard Laue for-
maður eigendasamtaka terríerkyn-
blendinga í Norður-Kaliforníu.
Byggt á Time
KAPLAHRAUNI 18
220 HAFNARFIRÐI:
S-91.651800
KUABÆNDUR
ATHUGIÐ
Sýklamælarnir komnir.
Til afgreiðslu strax
íslenskur leiðarvísir fylgir
Verð kr. 9.000.-
HR REYKJHIÍKURBORG ffl
'V Aautevi Stödcci ^
1. Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa við:
Barnadeild Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur.
Starfið er sjálfstætt. Það felst m.a. í heimilisvitjun-
um, móttöku á stöðinni og námskeiðahaldi.
Um er að ræða bæði afleysingar og starf til
frambúðar, einnig fullt starf og hlutastarf.
Heilsugæslu í skólum.
Um er að ræða skóla víðs vegar um bæinn, bæði
fullt starf og hlutastarf.
Starfið er mjög sjálfstætt. Það felst m.a. í heilbrigð-
iseftirliti, ráðgjöf og fræðslu, en hjúkrunarfræðingur
getur mótað það nokkuð sjálfur. Hægt er að semja
um ráðningu aðeins yfir skólaárið.
2. Deildarmeinatæknir óskast til starfa við rann-
sóknarstofu Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur.
þetta er lítil rannsóknarstofa, staðsett miðsvæðis
í stöðinni. Hún þjónar öllum deildum stöðvarinnar
svo og Heilsugæslustöð Miðbæjar.
Meinatæknirinn starfar í nánum tengslum við
starfsfólk þessarar deildar, en er að öðru leyti eigin
húsbóndi.
Ákjósanlegt er að tveir starfsmenn skipti starfinu
með sér.
3. Tannfræðingur óskast til starfa við skólatann-
lækningar. Starfið felst í fræðslu og e.t.v. kliniskri
meðferð, eftir nánari samkomulagi.
Nánari upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri og
yfirmenn viðkomandi deilda í síma 22400.