Tíminn - 25.07.1987, Side 14
14 Tíminn
Laugardagur 25. júlí 1987
LESENDUR SKRIFA
llilllllll!
Jóhannes Straumland:
Hvalfriðunarstríð Þjóðviljans
Nú hefur Þjóðviljinn lýst því yfir
(„Klippt og skorið", 21.07.’87), að
andstaða gegn heimsvaldastefnu
Bandaríkjanna sé „þjóðremba" í
sama klassa og nasismi Hitlers; - og
er þessi speki greinilega hugsuð sem
áminning til samtaka herstöðvaand-
stæðinga, þótt svokallað„hvalamál“
sé haft að yfirvarpi. Undireins kem-
ur fram gáfuleg söguskýring á eðli
nasismans, - þess er lagði Evrópu í
rúst á sínu tíma - nefnilega að
nasisminn hafi stafað af spéhræðslu
Hitlers og þó einkum og sérílagi af
því að hann hafi „verið gyðingur að
einum fjórða“. - (Hvað skyldi gamla
Marx hafa fundist um söguskýringu
af þessari sort? - Hann var nú
reyndar gyðingur að meiru en „ein-
um fjórða", - nefnilega að fórum
fjórðu; kannski hefur marxisminn
einmitt stafað af því!!)
Fyrir utan þetta vísindalega fram-
lag Þjóðviljans til „hvalamálsins“,
þá hafa ýmis önnur blaðaskrif um
títtnefnt mál verið með furðulegum
hætti, sérstaklega í svokölluðum
fréttagreinum. Hvað eftir annað er
staglast á því að „Bandaríkjastjórn"
sé „undir miklum þrýstingi" frá Gre-
enpeace og öðrum hvalfriðunarsinn-
um, og fyrirsögn eins og þessi:
„Óttast að Bandaríkjastjórn láti
undan hvalfriðunarsinnum“ (DV,
21.07) er dæmigerð. Það sem er,
fáránlegt við þennan málatilbúnað
er að þarna er hlutunum gjörsamlega
snúið á haus. Greenpeace og Co.
stjórna nefnilega ekki Bandaríkja-
stjórn né beita hana „þrýstingi“ í
raunveruleikanum. Þvert á móti er
það Bandaríkjastjórn sem stjórnar
Greenpeace og öðrum hvalfriðunar-
samtökum (þar á meðal Sea
Sheperd). - Þeir sem ráða ferðinni
setja svo „sel“ í staðinn fyrir „hval“
þar sem það á betur við eins og í
hernaðinum gegn Grænlendingum.
- Hitt er annað mál, að Bandaríkja-
stjórn er vissulega stjórnað. Hún á
sína húsbændur sem eru bandarísku
auðhringarnir og sú samsteypa auð-
hringa og herveldis sem öllu ræður.
En Greenpeace og önnur slík sam-
tök eru algjörlega gerð út af Banda-
ríkjastjórn og húsbændum hennar,
bæði fjárhagslega og í öðrum grein-
um, og stjórnað af þeirra hand-
löngurum. Til að Ieyna þessu forræði
og blekkja „almenningsálitið í heim-
inum“ er svo Greepeace látið setja á
svið eitthvert málamynda andóf
gegn kjarnorkuvopnum sem er tóm-
ur leikaraskapur og hræsni. Þeir sem
hafa trausta vitneskju um hvernig
allt er í pottinn búið, sjá auðveldlega
í gegnum hræsnina.
Bandaríkjastjórn er nefnilega
staðráðin í að sigra alveg gjörsam-
lega í þessu hvalamáli vegna þess, að
það er liður í framtíðaráætlun
bandarísku heimsvaldastefnunnar, -
en hún er hin sönnu trúarbrögð hins
vesturheimska peningaskríls, - og
skiptir þá sáralitlu máli hverjir eru í
stjórn (óþægir forsetar eru ekki
hafðir lengi við völd, - og jafnvel
ekki of lengi á lífi heldur). Eitt
óumdeilanlegt trúaratriði er að
Bandaríkin eigi að ráða algjörlega
yfir Noröur-Atlantshafinu og þeim
löndum sem að því liggja. Ekki er
nóg að hafa hernaðarráðin heldur er
óumflýjanlegt uppá framtíðina að
hafa í smáu og stóru yfirráðin yfir
efnahags- og atvinnulífi á þessum
stöðum.
En þar stóð nú hnífurinn í kúnni
um tíma, (þó ekki mjög lengi, guði
sé lof!). Það var nefnilega erfiðara
við þetta að eiga en að drottna yfir
Suður-Ameríku, - það gerði blessað
„almenningsálitið í Gamla heimin-
um“ og sögulegar erfðir þjóðanna
við Norður-Atlantshaf, sem ekki
voru alveg á réttu róli. Þá var nú
betra að eiga við Indíánana forðum,
- þeir höfðu engan bakhjarl; „Gamla
heiminum“ og „almenningsálitinu"
var skítsama um þá. Á þessu varð að
ráða bót, og það var gert.
Það er klók aðferð hjá „drottnur-
um heimsins" að ráðast fvrst á
veikustu hlekkina, eins og atvinnulíf
smáþjóða, (ég tala nú ekki um
veiðimannaþjóða, sem auðvitað eru
hin viðbjóðslegustu fyrirbæri í aug-
um siðvæddra stórvelda sem lifa á
manndrápum, eins og USÁ)-j>á fyrst
á fjárhagslega veika hlekki í atvinnu-
lífi viðkomandi smáþjóða og færa
sig svo upp á skaftið. Gagnvart
„almenningsálitinu í heiminum" sáu
þeir gullið tækifæri í dýravinafélög-
um. Greenpeace og önnur slík, sem
fyrr á árum voru fámenn, félítil og
lítt áberandi, blómstruðu skyndilega
með ótakmarkaða fjármuni og
áróðursaðstöðu.
Þegar búið er að afgreiða hvala-
málið verður tekið til við þorskinn.
Það er ekki mikill vandi að gera
þessa gáfuðu og tilfinninganæmu
skepnu að næsta gæludýri „almenn-
ingsálitsins" í „heiminum" (þ.e.
USA). Bandaríska heimsvaldastefn-
an, veit hvað hún syngur og hvað
hún vill. Þegar undirstöðuatvinnu-
vegir okkar eru komnir í rúst munu
Bandaríkin bjóða okkur efnahags-
aðstoð, með sínum skilyrðum. Og
þá fáum við að sjá hvar Davíð keypti
ölið. Bandaríska heimsvaldastefn-
an, er grimmasta kúgunarafl sem nú
er upp. Það er nefnilega bandaríska
heimsvaldastefnan sem er sannur
arftaki þýska nasismans, en ekki
sjálfstæðisviðleitni smáþjóðanna.
Nú ætti Þjóðviljinn að vera sjálf-
um sér samkvæmur og letra gullnum
stöfum á blaðhausinn sitt nýja
kjörorð:
Drepa hval: nei, nei, nei!
Drepa fólk: já, já, já!
Lengi lifi friðunarstefna USA!
Jóhannes Straumland
REYKJkMIKURBORG
Jlau&ar Stödcci
Dagvist barna óskar að ráða:
1. Fóstrur óskast til starfa nú þegar eöa eftir
nánara samkomulagi á eftirtalin dagvistarheimili
Reykjavíkurborgar:
Laufásborg v/Laufásveg, sími 14796
Bakkaborg v/Blöndubakka sími 71240
Hólaborg v/Suöurhóla sími 76140
Staðarborg v/Háageröi sími 30345
Sundaborg v/Sólheima sími 36385
Um er að ræöa heils- og hálfsdags störf. Nánari
upplýsingar veita forstöðumenn viðkomandi heim-
ila eöa umsjónarfóstrur í síma 27277.
2. Forstöðumenn óskast til starfá frá og með 1.
ágúst á eftirtalin dagheimili Reykjavíkurborgar:
Fálkaborg og Hólakot.
Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Dagvista og
umsjónarfóstrur í síma 27277.
3. Dagvist barna óskar að ráða umsjónarfóstru
með dagvist á einkaheimilum.
Nánari upplýsingar veitir Fanný Jónsdóttir, deildar-
stjóri í síma 27277.
4. Ritari óskast til almennra skrifstofustarfa.
Upplýsingar veitir Fanný Jónsdóttir, deildarstjóri í
síma 27277.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á
sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
Dagvist barna í Reykjavík tilkynnir opnun leyf-
isveitingu fyrir daggæslu á einkaheimilum á
tímabilinu 1. ágúst til 31. október. Nánari upplýs-
ingar veita umsjónarfóstrur með dagvist á einka-
heimilum á skrifstofu Dagvista í Hafnarhúsinu
v/Tryggvagötu.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á afgreiðslu
Dagvista.
Læknastofa
Hef opnað stofu í Læknastöðinni hf., Álfheimum
74. Tímapantanir í síma 686311 alla virka daga
frá kl. 9-17.
Einar Ólafsson
Sérgrein: Háls nef og eyrnalækningar.
Óskar
Valdimarsson
Fæddur 26. júlí 1918
Dáinn 13. júlí 1987
Hér er kvaddur Óskar Valdimars-
son móðurbróðir minn, sem lést á
Landsspítalanum eftir langa og erf-
iðasjúkdómslegu. Það varundravert
hvað hann gat lengi barist gegn
þessum ógnvekjandi sjúkdómi sem
herjar svo hart á mannkyninu í dag.
Óskar var fæddur að Streiti í
Breiðdal, sonur Valdimars Bjarna-
sonar og Kristínar Kristjánsdóttur
sem flest sín búskaparár bjuggu á
Fáskrúðsfirði, þar sem Óskar ólst
upp elstur af átta systkinum. Óskar
fór snemma að vinna eins og þá var
títt. Árið 1939 var farið að þrengjast
um hópinn í litla húsinu hans afa,
Sjónarhóli, og var ákveðið að reyna
að kaupa stærra. Kom þá Óskar til
hjálpar sem oftar þó ungur væri og
lánaði þá upphæð sem upp á vantaði
í útborgun í Laufás sem var mun
Höfn í Hornafirði
stærra hús, og þaðan á ég ljúfar
minningar í faðmi afa og ömmu og
frændsystkina minna.
Skömmu seinna kynnist hann
heilladísinni sinn, Maren Júlíusdótt-
ur, og hófu þau búskap á Fáskrúðs-
firði í leiguhúsnæði, en frændi minn
var stórhuga og hóf byggingu á stóru
tveggja hæða húsi, Sólbrekku, í
næsta nágrenni við Laufás. Þar
bjuggu þau í nokkur ár en fluttu
síðan til Hafnar í Hornafirði, sénni-
lega vegna þess að þar var styttra í
fengsæl fiskimið og þar átti konan
hans sínar rætur. í Höfn byggði
Óskar húsið þeirra á Bogaslóð 14,
þar sem þau bjuggu alla tíð síðan.
Ég á góðar minningar um þessi
elskulegu hjón; og í mínu minni man
ég ekki eftir að hafa séð jafn fallega
ástfangin hjón í gegnum öll þeirra
samveruár.
Við systkini mín og móðir okkar
heitin sem var þriðja í röðinni af
sínum systkinum, fylgdumst vel með
fréttum í útvarpinu af Óskari á
Gissuri hvíta sem fengsælum og
heppnum sæfara og vorum að vonum
afskaplega stolt af honum.
Hann var traustur og góður
maður. Ekki vissi ég fyrr en nú
síðustu ár að Óskar var góður hag-
yrðingur, þar var farið dult með sem
og fleiri náðargáfur. Ég læt hér
fylgja ljóð sem hann orti til þeirrar
byggðar sem hann tók mestu ást-
fóstri við.
Séð af Almannaskarði
Horfi ég á þig Hornafjörður
hátt af brattri fjallabrún,
listaverk af Guði gjörður
gróin engi, akrar, tún.
Eyjakrans um fjörðinn flýtur,
fjöllin prýða jökullín,
ekki vfða auga lítur
yndislegri fjallasýn.
ÓV.
Far þú í friði frændi minn. Blessun
fylgi þér Maja mín, dætrunum og
fjölskyldum þeirra um ókomna tíð.
Gunný Gunnarsdóttir.
Vöruskemma til sölu
á Patreksfirði
Vöruskemma Kaupfélags Vestur-Barðstrendinga
við Patrekshöfn, Patreksfirði ertil sölu ef viðunandi
tilboð fæst. Húsnæðið er Héðinsskemma 480 fm.
Allar nánari upplýsingar veitir Jens H. Valdimars-
son í síma 94-1308.
Netamann vantar
Hraðfrystihús Patreksfjarðar hf. vantar starfsmann
til að annast netaverkstæði félagsins.
Upplýsingar veitir:
Jens H. Valdimarsson í síma 94-1308