Tíminn - 25.07.1987, Qupperneq 15
Laugardagur 25. júlí 1987
Tíminn 15
lllllllllllllllllllll MINNING llllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllll
Kristján Jóhannesson
Fæddur 29. nóvember 1892
Dáinn 21. júlí 1987
Er ísland var hernumið af Bretum
á vordægrum 1940 var talið að búast
mætti við einhverjum hernaðarað-
gerðum Þjóðverja í því tilefni. Var
jafnvel búist við loftárásum á
Reykjavík. Vegna þessa var skipu-
lagður brottflutningur barna úr
Reykjavík og var allmikill fjöldi
fluttur að Laugum í Suður-Þingeyj-
arsýslu. Ég fékk að fara með þessum
krökkum norður því foreldrar mínir
höfðu fengið fyrir mig dvöl í Klam-
braseli hjá föðursystur minni Þuríði
Þorbergsdóttur og manni hennar
Kristjáni Jóhannessyni. Það er
skemmst frá því að segja að í
Klambraseli var við mér tekið sem
þeirra eigin syni og ekki var langt um
liðið er „flóttamaðurinn" bað þau
hjón leyfis um að mega kalla þau
mömmu og pabba á sama hátt og
önnur börn á heimilinu. Þegar ég lít
til baka og skoða húsakynnin í
gamla Klambraselsbænum undrast
maður hvað margir gátu búið þröngt
án þess að maður yrði þess nokkurn
tímann var. Á þessum tíma voru öll
börn þeirra hjóna 8 talsins heima svo
og systir Þuríðar (föðursystir mín)
Guðrún Þorbergsdóttir. Ellefu
manns voru í heimilinu og svo kom
einn í viðbót 9 ára gamall snáði sem
hlaut að auka enn frekar á erfiði
húsmóðurinnar. En enga grein gerði
ég mér fyrir því þá og aldrei var ég
látinn verða þess var. Gamalt mál-
tæki segir: „Þar sem er hjartarúm
þar er líka húsrúm.“ Þetta átti
sannarlega við um dvöl mína í
Klambraseli, þaðan á ég margar
góðar minningar en engar slæmar.
Mér veittist sú ánægja að vera áfram
í Klambraseli næsta vetur og sumar-
ið eftir, þannig að ég kynntist heimil-
isfólkinu vel svo ogsveitarstörfunum
eins og barni var unnt. Ég bar mikla
virðingu fyrir bóndanum, enda var
hann fjölhæfur og áhugasamur um
flesta hluti og á mörgum sviðum
meðal brautryðjenda í sinni sveit.
Má þar til nefna að þá þegar árið
1940 hafði hann rafvætt bæ sinn og
einnig rak hann refabú, en refaskytta
sinnar sveitar var hann um fjölda
ára. Einn atburður er mér einkar
bóndi
minnisstæður sem lýsir vel hve úr-
ræðagóður Kristján var þegar vanda
bar að höndum. Það var einhverju
sinni að hestur sló annan hest svo
illilega að stórt skeifumyndað sár
opnaðist á lend hestsins og lærvöðv-
inn þrýstist út. Bóndinn dó ekki
ráðalaus. Voru nú teknir strengirnir
úr fiðlunni, vöðvanum þrýst á sinn
stað og sárið saumað saman. Að-
gerðin tókst vel og lífi hestsins þar
með borgið.
Eftir að Kristján og Þuríður
brugðu búi fluttu þau til Þorbergs
sonar síns og Guðfinnu konu hans í
nýbýlið Brúnahlíð, sem reist var við
hlaðvarpann í Klambraseli. Þarna
undu þau sér vel því bæði var að þau
voru áfram á heimaslóðum og jafn-
framt nutu þau í ellinni hlýrrar
umönnunar yngri hjónanna.
Síðustu árin hefur Kristján dvalið
á Dvalarheimili aldraðra Hvammi á
Húsavík, við heldur lélega líkamlega
heilsu en alveg ern andlega. Hann
var sí skrifandi og nær níræður reit
hann tvær greinar í Árbækur Þingey-
inga. Aðra um mæðiveikina og hina
um byggð á Þeystareykjum, en um
það svæði var hann sérlega fróður og
varla leið það sumar að hann ekki
vitjaði Þeystareykja. En hann fylgd-
ist og með daglegum málum okkar
þjóðfélags og var vel heima í þeim
málum til hinstu stundar. Það er
ekki lengra síðan en í vor að hann
sendi mér bréf þar sem hann fjallaði
um áfengis og vímuefnavandamál
þjóðarinnar og hve mikilvægt væri
að leita úrræða í þeim efnum.
21. febrúar 1920 kvæntist Kristján
Þuríði Þorbergsdóttur, frá Litlu
Laugum í Reykjadal, fædd 7. janúar
1895, dóttur hjónanna Þorbergs Da-
víðssonar bónda og konu hans Sigur-
veigar Jónatansdóttur. Hjónaband
þeirra var einkar farsælt og ljúft og
bjuggu þau börnum sínum gott og
kærleiksríkt heimili. Þuríður lést 18.
ágúst 1977. Þeim hjónum varð 8
barna auðið og eru 7 þeirra á lífi.
Þau eru: 1) Jóhannes Sigþór, bóndi
í Klambraseli, kvæntur Sigríði Jóns-
dóttur. 2) Kristín, lést 25. 25.7 1942
aðeins 20 ára. 3) Sveinbjörn Kristj-
ánsson, málmsteypumaður í Garða-
bæ, kvæntur Sylvíu Kristjánsson. 4)
Þorbergur, bóndi í Brúnahlíð í
Reykjarhverfi, hann var kvæntur
Guðfinnu Árnadóttur, en hún lést
15. júní 1985. 5) Sigurveig, gift
Þórarni Jónssyni bónda í Skarða-
borg í Reykjahverfi. 6) Sigríður
Kristjana, gift Matthíasi Björnssyni,
trésmíðameistara á Akureyri. 7)
Gísli, starfsmaður við Laxárvirkjun
og bóndi í Lækjarhvammi í Aðaldal,
kvæntur Helgu Jónsdóttur. 8) Ásdfs,
gift Haraldi Þórarinssyni trésmiði á
Húsavík.
Minn tryggi aldni vinur verður nú
jarðsettur í dag frá Grenjaðarstaðar-
kirkju. Hinni löngu ævi hans er lokið
en við hjónin erum þakklát fyrir
hinar mörgu ánægjustundir sem við
höfum átt með þeim hjónunum Þur-
íði og Kristjáni og reyndar allri
þeirra stóru fjölskyldu. Við vottum
aðstandendum okkar dýpstu samúð
en sérstakar samúðarkveðjur send-
um við dóttur hans Sigríði sem
liggur á sjúkrahúsi í Reykjavík og
getur því ekki fylgt föður sínum
hinsta spölinn.
Eilíft líf.
ver oss huggun, vörn og hlíf,
líf í oss, svo ávallt eygjum
ædra lífid, þó að deyjum.
hvað er allt, þá endar kíf?
Eilíft líf.
Matth. Jochumsson
Sigurður Jörgcnsson.
CARRIE SYSTIR
- eftir Theodore Dreiser, ný útvarpsssaga á Rás 1
Eitt af höfuðverkum bandaríska
stórskáldsins, Theodore Dreiser,
skáldsagan „Carrie systir" (Sister
Carrie), hefur göngu sína sem út-
varpsssaga á Rás eitt á mánudags-
kvöld kl. 21.30. Atli Magnússon
þýðir söguna og les.
„Carrie systir“ kom út í New York
árið 1900. Sagan átti erfitt uppdrátt-
ar til að byrja með, því umfjöllun
höfundar um ýmis viðtekin siðferðis-
norm þótti útgefendum um skör
fram á sinnar tíðar mælikvarða.
Löngum hefur verið sagt að með
þessari sögu hafi bandarískar bók-
menntir stigið fyrsta skrefið inn í 20.
öldina.
Carrie Meeber kemur átján ára til
hraðvaxandi stórborgar, Chicago,
árið 1889. Hún kynnist dapurlegum
kjörum systur sinnar sem þar er gift
og kjörum verkastúlkna í verksmiðj-
um. Margt verður til þess að henni
greiðist Ieið til kynna við vel stæða
menn í borginni og hún gerist ást-
kona sölumannsins, Charles Drouet,
er hún síðan yfirgefur með hinum
glæsilega framkvæmdastjóra nætur-
klúbbs Fitzgeralds og Moe, Charles
Hurstwood. Hurstwood, sem er
kvæntur, stelur fé úr eigin hendi og
flýr með Carrie til Kanada og þaðan
til New York. Þar tekur óðfluga að
halla undan fæti hjá framkvæmda-
stjóranum, en Carrie opnast leið til
frama á vettvangi leikhúsa og nætur-
lífs.
Atli Magnússon.
Sem í öðrum verka Dreisers eru
það hinar sterku og margslungnu
lýsingar á stórborgarlffi og þeirri
refskák sem tefld er á landaskilum
auðs og örbirgðar, sem gæða þessa
löngu sögu klassisku gildi. Hér er
það þó lýsingin á framkvæmda-
stjóranum Hurstwood og örlögum
hans, sem orðið hefur mörgum les-
anda minnisstæðust.
Theodore Dreiser var fæddur í
Terre Haute í Indiana 1871. Faðir
hans var af ættum þýskra innflytj-
enda, sem löngum barðist í bökkum,
og settu þröng kjör fjölskyldunnar
sinn svip á mótun sonarins í uppeld-
inu. Ungur braust hann að heiman,
tókst með tilstyrk frænku sinnar að
stunda nám við Indianaháskóla einn
vetur, en hafði síðan ofan af fyrir sér
Theodore Dreiser.
sem járnbrautaverkamaður, spreytti
sig á tímaritaútgáfu og gerðist loks
blaðamaður, sem hann var lengi
framan af ævi.
Eftir útkomu „Sister Carrie" réðst
hann f ritun „Jennie Gerhard“
(1911). Loks 1912 hóf hann svo að
rita hina miklu „trilogíu" sína -
„Thc Financier," „The Titan“ og
„The „Stoic.“. Heimfrægð öðlaðist
hann með útkomu „An American
Tragedy" 1925. Meðal annarra verka
hans má nefna “The Bulwark" og
„The Genius.“
Á fyrri hluta þessarar aldar má
heita óumdeilt að Dreiser var lengst
af „sá stóri" í bókmenntasköpun í
heimalandi sínu og verðugur skrá-
setjari umbrotasamrar samtíðar.
Hann lést í Hollywood 1945.
Auglýsing frá
Reykjahreppi
Reykjahreppur í Suður-Þingeyjarsýslu býður upp
á ýmsa möguleika:
Jarðnæði til loðdýrabús og annarra skyldra bú-
greina.
Lóðir fyrir iðnaðarhús.
Lóðir fyrir íbúðarhús.
Lóðir fyrir sumarhús.
Möguleikar fyrir fiskeldi.
Hreppurinn er vel staðsettur, með ódýra hitaveitu,
stutt í verslun og aðra þjónustu. Daglegur akstur
barna í grunnskóla.
Möguleikar á leigu eða söluíbúðum nú þegar.
Allar nánari upplýsingar veitir oddvitinn Stefán
Óskarsson í síma 96-43912.
REYKJMJÍKURBORG
Acuucvi Stödíci
Viltu gefandi vinnu?
Við starfsfólkið á Laufásborg, viljum fá hressar og
góðar manneskjur til að vinna með okkur á
dagheimilinu Laufásborg frá og með 4. ágúst 1987.
Okkur vantar:
Yfirfóstru
Fóstrur
Starfsfók í 100%, 75% og 50% vinnu.
Matráðskonu
Starfsmann til aðstoðar í eldhúsi í 50% vinnu f.h.
Laufásborg er stórt og fallegt steinhús sem
stendur við Laufásveg og er í gamla miðbænum.
Sigrún forstöðumaður gefur upplýsingar í síma
14796 (líka á kvöldin).
Við hiökkum til að sjá þig!
St. Jósefsspítali
Landakoti
Deildarritari
Óskum eftir að ráða deildarritara nú þegar á
lyflækningadeild 1A.
Upplýsingar veittar á skrifstofu hjúkrunarforstjóra
í síma 19600/220 alla virka daga kl. 9.-13.
Reykjavík 24. júlí 1987.
Bændur athugið
Maurasýran er komin á lækkuðu verði.
Tryggið ykkur gott súrhey og notið
maurasýruna frá Olís. Ennfremur allar
olíuvörur.
Söluskali Olís
Arnbergi, Selfossi
Sími 99-1685
c
2
Skipaflutningar
Óskað er tilboða í flutning áfengis, tóbaks og iðnaðarvara fyrir
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins frá höfnum í Evrópu og Ameríku,
næstu 12 mánuði.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri og verða tilboð þar opnuð
föstudaginn 7. águst n.k. kl. 11. f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
•,epAS'0
** Bil %