Tíminn - 05.12.1987, Blaðsíða 6

Tíminn - 05.12.1987, Blaðsíða 6
6 Tíminn : SAMVINNU Iá\J tryggingar ' ■/‘V AKJ.IOLA 3 108 REYlLjAVlK SIMI (91)601411 Útboð Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðir sem skemmst hafa í umferðaróhöppum. Subaru 1800 GL árgerð 1987 Lada Samara 2108 árgerð 1987 Chevrolet Monza árgerð 1987 Daihatsu Charade TS árgerð 1986 Daihatsu Charade CX árgerð 1985 Daihatsu Charade TX árgerð 1984 Saab 99 árgerð 1982 Nissan Cherry GL árgerð 1980 Ford Escort 1300 L árgerð 1977 Honda 450 vélhjól árgerð 1968 Bifreiðirnar verða sýndar að Höfðabakka 9, Reykjavík, mánudaginn 7. desember 1987, kl. 12-16. Á sama tíma: Að Skemmuvegi 26, Kópavogi: Mercedes Benz LR 111313 árgerð 1972 Kranabifreið GROVE árgerð 1971 Á Siglufirði: Mazda 626 2000 árgerð 1983 í Borgarnesi: Lancer 1500 GLX árgerð 1985 Galant Sigma árgerð 1979 Á Kópaskeri: Lancer1200 árgerð 1986 A Rauðalæk: Colt 1500 GLX árgerð 1987 Willy’s árgerð 1978 Á Vopnafirði: Subaru 1600 árgerð 1978 Á ísafirði: Mazda 323 1300 árgerð 1984 Toyota Cressida árgerð 1978 Á Akranesi: Lada Vaz 2105 árgerð 1986 Daihatsu Charade árgerð 1981 í Stykkishólmi: Subaru 1800 árgerð 1983 Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga g.t. Armúla 3, Reykjavík eða umboðsmanna fyrir kl.12, þriðjudaginn 8. desember 1987. Samvinnutryggingar g.t. Bifreiðadeild m OM' Dregið var í Jólahappdrætti SÁÁ þ. 3. desem- ber um 10 SONY SRF-6 ferðaútvarpstæki. Upp komu eftirtalin númer: 39787 48710 59856 1144 105376 44163 13959 103064 115665 47552 Þar sem útsending miða dróst á langinn hefur stjórn SÁÁ ákveðið, að sú regla gildi um þennan eina drátt,að dagsetning greiðslu skipti ekki máli. Ef miði er greiddur verður tækið afhent. Númer gíróseðilsins er happdrættisnúmerið og eftir er að draga 10 SONY ferðageislaspilara þ. 10. des., 10 rafdrifna leikfangabíla þ. 17. des., og loks 10 MITSUBISHI PAJERO jeppa, 5 stutta og 5 langa, á öðrum degi jóla, þ. 26. des. Dráttur fer fram í beinni útsendingu á STÖÐ 2 ofantalda daga í þættinum 19:19. Þökkum stuðning nú sem fyrr. Laugardagur 5. desember 1987 Dæmi um Ármannaflugu. Engin fiskur ku eiga að standast hana og hennar líka;-. Dugguvogur 13 um helgina: Tímamynd Ámi Þór ARMENN SELJA JÓLAFLUGURNAR Þeir fluguveiðimenn sem farnir eru að hugsa fyrir næsta veiðisumri ættu að líta inn í hið nýja félags- heimili Stangaveiðifélagsins Ar- manna í Dugguvogi 13 um helgina. Ármenn hafa undanfarnar vikur verið önnum kafnir við að hnýta hinar fjölbreyttustu flugur í öllum stærðum og munu um helgina bjóða þær til sölu. Verða þær seldar í boxum nokkrar saman og geta menn bæði orðið sér úti um lax- og silungsflugur. Hafa Ármenn bent á flugur sínar sem ákjósanlega jólagjöf veiði- mannsins og bjóða þeir einnig upp á jólakortin til veiðimannsins. Eru þau skreytt með laxa- eða silunga- flugu. Flugu- og jólakortasalan er liður í fjáröflun félagsins til að fjármagna kaup á hinu nýja félags- heimili. Er hér um gott tækifæri að ræða fyrir þá sem hug hafa á að skoða nýja og vistlega aðstöðu Ármanna í Dugguvoginum að renna við um helgina, birgja sig upp af flugum og ræða málin við þá Ármenn yfir kaffibollum og með- læti. Opið hús verður báða dagana frá klukkan 13 til 18. - ES Reykjaskóli við ísafjarðardjúp: Rothögg Brottfluttir Djúpmenn og aðrir velunnarar Reykjaskóla og byggðar- lagsins við ísafjarðardjúp hafa nú safnað undirskriftum til að styðja þá ósk heimamanna að Reyjaskóli verði ekki felldur út af fjárlögum næsta árs. Forsaga málsins er sú að í frum- varpi til fjárlaga fyrir árið 1988, sem nú liggur fyrir Alþingi, er við það miðað að héraðsskólinn á Reykja- nesi verði lagður niður. Sveitarstjórnir í fjórum innhrepp- um ísafjarðardjúps hafa sent sam- hljóða áskorun til fjármálaráðherra, Jóns Baldvin Hannibalssonar, fjár- veitingarnefndar og þingmanna Vestfjarða, um að þessari ákvörðun verði breytt og skólinn tekinn á fjárlög fyrir árið 1988. Með undirskriftum sínum vilja brottfluttir Djúpmenn beina þeirri ákorun til fjármála- og menntamála- ráðherra og til þingmanna Vest- fjarða, að þeir beiti sér fyrir því að skólinn fái starfað áfram. „Öllum þeim er til þekkja er ljóst, að byggð við Djúp stendur það tæpt nú um mundir að ef til þess kæmi að Reykjaskólinn, eini skólinn í byggð- arlaginu, yrði lagður niður, þá þýddi það rothögg fyrir b^ggð á þessum slóðum. Við treystum því að til þess komi ekki!“ eins og segir í niðurlagi áskorunarinnar. KB Fullt af orkugjöfum frá Sovétríkjunum á næsta ári: 80.000 tonn af blýlágu Á fullveldisdaginn var undirritað- ur í Moskvu viðskiptasamningur milli viðskiptaráðuneytisins og sov- éskra seljenda um kaup okkar á 80.000 tonnum af bensíni, 80- 120.000 tonnum af svartolíu og 140.000 tonnum af gasolíu, sem afhendist á næsta ári. Er um að ræða svipað magn og samið var um til kaups á þessu ári. Verð og aðrir skilmálar eru að mestu óbreyttir frá samningum þessa árs, en ein nýjung fylgir samt með. Bensínið verður með mjög lágu bensíni blýinnihaldi og gasolían með lágu brennisteinsinnihaldi, hvort tveggja vegna umhverfisverndar. 1 viðræðunum af íslands hálfu tóku þátt þeir Fórhallur Ásgeirsson, ráðuneytisstjóri í viðskiptaráðuneyt- inu, forstjórar olíufélaganna, þeir Indriði Pálsson, Jón Atli Kristjáns- son og Vilhjálmur Jónsson og Árni Kr. Þorsteinsson, deildarstjóri hjá Olíufélaginu, en hann hefur í yfir 30 ár annast framkvæmd olíusamning- anna við Sojuznefteexport. - SÓL Gleðin hefst í Hard Rock kl. 19.30: Formleg stofnun Zappa- félagsins í kvöld verður stofnað nýtt tónlistarfélag, og er það til- einkað og stofnað til heiðurs tónlistarmanninum Frank Zappa. Zappa þessi hefurgefið út um 50 hljómplötur, auk nokkurra myndbanda og er mjög vinsæll hér á landi, þó ekki fari lög hans inn á vins- ældalista útvarpsstöðvanna. Þessi dagur var alls ekki valinn fyrir tilviljun. í dag eru nefni- lega einmitt 16 dagar þangað til að meistarinn á afmæli. Af því tilefni ákváðu nokkrir eld- heitir Zappaaðdáendur að láta slag standa og stofna klúbb um goðið. Gleðin hefst klukkan 19.30 í Hard Rock Café og gefst gest- um þá tækifæri til að bragða á Zappamáltíð og hlusta á tónlist snillingsins meðan melting fer fram og gestir kynnast hver öðrum. Síðan er stefnan sett á skemmtistaðinn Lennon, sem í hugum manna verður skírður Zappa þetta eina kvöld. Ergo, Zappaaðdáendur mæti í Hard Rock klukkan 19.30, eða Lennon klukkan 22. - SÓL

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.