Fréttablaðið - 21.02.2009, Side 2
2 21. febrúar 2009 LAUGARDAGUR
Ingibjörg, er þetta þitt hjart-
ans mál?
„Já, þetta er eitt þeirra.“
Ingibjörg Pálmadóttir er verndari GoRed-
verkefnisins á Íslandi, sem miðar að
því að vekja konur til meðvitundar um
hjartasjúkdóma.
EFNAHAGSMÁL Enn ganga fjármögn-
unarfyrirtæki hart fram gegn
þeim sem eru í vanskilum og taka
eignir upp í lán. Björn Zakarias
Flohr er einn þeirra sem hefur
átt í vandræðum með að standa
í skilum; enda missti hann vinn-
una fyrir nokkrum mánuðum og
hefur haft stopula atvinnu síðan.
Hann var að reisa sér einbýlishús
þegar kreppan skall á og hefur
því lent í vandræðum á fleiri víg-
stöðvum.
Björn er smiður að atvinnu og
fékk lán fyrir vinnubílnum hjá
Lýsingu. Hann tók yfir rúmlega
milljón króna lán á bílnum fyrir
um einu ári. Hann stóð í skilum
með allar greiðslur fram í októb-
er, þegar bankarnir hrundu.
„Mér tókst einfaldlega ekki
að greiða af bílnum þar sem ég
missti vinnuna. Þegar ég skuldaði
fjóra mánuði nú í janúar hafði ég
samband við Lýsingu og bauðst
til að greiða elsta gjalddagann.
Ég hef fengið vinnu mánuð og
mánuð í millitíðinni og ætlaði að
halda mér þannig á floti; greiða
alltaf elsta gjalddagann og velta
hinum þremur á undan mér. Því
varð hins vegar ekki við komið og
þeir vildu bara fá bílinn,“ segir
Björn.
Hann samþykkti þegar í stað
að láta bílinn af hendi og kaus
að mótmæla ekki þeirri kröfu.
„Engu að síður er ég rukkaður
um 150 þúsund í lögfræðikostn-
að. Fyrir hvað veit ég ekki alveg.“
Bíllinn var metinn á 861 þúsund
þegar hér var komið sögu. Þegar
til kom mat Lýsing hann hins
vegar aðeins á 150 þúsund krón-
ur. Ástæðan er viðgerð upp á 696
þúsund krónur sem fyrirtækið lét
gera.
Björn á enn heimilisbílinn sinn
en á honum hvílir lán frá Avant.
Hann fékk bréf frá fyrirtækinu
dagsett 21. janúar þar sem hótað
var að taka bílinn upp í skuld.
Bréfið var dagsett sama dag og
janúargjalddaginn átti að greið-
ast og því var í raun bara einn
gjalddagi kominn í vanskil þegar
hótunin um upptöku bílsins og
innheimtu lögfræðings var sett
í póst. Þess ber að geta að áður
hafði Björn fengið frystingu á
láninu.
Birni tókst að greiða skuld-
ina við Avant og er því með einn
bíl til umráða. Hann hefur feng-
ið stopula vinnu og á langt í land
með að fjármagna húsið sem er í
byggingu. Fréttablaðið mun fylgj-
ast með Birni á næstunni og því
hvernig honum reiðir af með fjár-
mál sín. Hvorki fengust svör frá
Avant né Lýsingu vegna málsins.
kolbeinn@frettabladid.is
Hótun eftir vanskil
á einum gjalddaga
Avant sendi Birni Zakariasi Flohr hótun um upptöku bíls þegar gjalddagi var í
vanskilum. Lýsing tók annan bíl hans og hafnaði öllum samningum og lét gera
sjö hundruð þúsund króna viðgerð á átta hundruð og fimmtíu þúsund króna bíl.
ÓSÁTTUR Björn er ósáttur við þá hörku sem fjármögnunarfyrirtæki sýna. Öllum til-
raunum hans til samninga við Lýsingu var hafnað og Avant sendi honum hótum um
vörslusviptingu þegar einn gjalddagi var í vanskilum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VIÐSKIPTI Hugmyndir um möguleg kaup kröfuhafa á
Kaupþingi hafa ekki verið slegnar út af borðinu, að
sögn Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra. Sama
gildi raunar um hina bankana þótt ólíklegra sé að
leiðin sé fær í þeirra tilvikum.
Gylfi ræddi málið við fulltrúa skilanefndar Kaup-
þings í gær. „Enn er hins vegar ekki verið að semja
um neitt, heldur er hugmyndum
varpað fram án þess að beinlínis
sé tekin til þeirra afstaða,“ segir
hann. „Þetta er bara ein af mörg-
um leiðum sem er til skoðunar.“
Gylfi segir þó vitanlega hafa í
för með sér ákveðna kosti ef kröfu-
hafar kæmu að bankanum með
einum eða öðrum hætti. „Hugsan-
lega gæti það auðveldað íslenska
fjármálakerfinu að verða almennt
starfhæft og gæti þá kannski líka
dregið úr kröfum um framlag ríkisins til þess að
byggja upp fjármálakerfið,“ segir hann, en telur að
fara þurfi betur yfir málið.
Þá segir Gylfi ekki hafa verið skoðað sérstaklega
hvort hægt væri að selja kröfuhöfum annan hvorn,
eða báða hinna bankanna. „Þótt hugmyndin komi til
greina hvað Kaupþing varðar er ekki alveg augljóst
að hún gangi fyrir hina tvo. Til að mynda vegna sam-
setningar kröfuhafahópsins.“
Möguleg sala Kaupþings til kröfuhafa hefur ekki
farið inn á borð ríkisstjórnarinnar enn. - óká
GYLFI MAGNÚSSON
KAUPÞING Kröfuhafar hafa komið að máli við ráðherra í ríkis-
stjórninni, að sögn viðskiptaráðherra, sem kveður ráðuneytið
reyna að miðla málum þar sem hægt sé. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Kannaður er möguleikinn á að selja kröfuhöfum bæði nýja og gamla Kaupþing:
Salan ekki slegin út af borðinu
STJÓRNMÁL Formenn stjórnarflokk-
anna viðruðu möguleika á því að
kjósa seinna í vor en að hefur verið
stefnt til þessa á fundum með for-
mönnum allra flokka nýverið. Þetta
kom fram í máli Geirs H. Haarde,
formanns Sjálfstæðisflokksins, á
fundi í Valhöll í gær.
Samkomulag hefur náðst um að
kosið verði laugardaginn 25. apríl
en formenn stjórnarflokkanna telja
sig nú þurfa meiri tíma til að ná
sínum málum í gegn fyrir kosning-
ar, sagði Geir. Hann segist alger-
lega andsnúinn því að breyta dag-
setningu kosninganna.
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur Vinstri grænna, segir hugmynd-
ir um að seinka kosningum hafa
komið til umræðu vegna tækni-
legra erfiðleika. Verði kosið 25.
apríl renni frestur til að skila inn
framboðum út á föstudaginn langa.
Hann reiknar hins vegar með því
að þau mál verði leyst öðruvísi en
með því að seinka kosningum.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokksins,
segir flokkinn vilja halda sig við
25. apríl. Þegar skipt hafi verið um
ríkisstjórn hafi verið sterk krafa
um kosningar sem fyrst og við það
eigi að standa.
Guðjón Arnar Kristjánsson, for-
maður Frjálslynda flokksins, segist
hlynntur því að seinka kosningum.
Stjórnvöld þurfi að fá tíma til að
klára það sem þurfi að klára áður
en kosið verði til þings. - bj
Formenn stjórnarflokkanna ræða við formenn stjórnarandstöðuflokka:
Rætt um seinkun kosninga
TÍMA SÓAÐ Geir H. Haarde sagði dýr-
mætan tíma hafa glatast með valdatöku
minnihlutastjórnar. Ábyrgð Framsóknar-
flokksins á því sé mikil. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
VIÐSKIPTI Líkur eru á að 72 millj-
arðar króna falli á íslenska ríkið
og skattborgara vegna Icesave-
reikninga gamla Landsbankans,
gangi eignamat skilanefndar bank-
ans eftir. Þetta er rúmlega helm-
ingi minna en Fjármálaráðuneytið
gerði ráð fyrir.
Staða gamla Landsbankans var
kynnt kröfuhöfum í gær. Stíf
öryggisgæsla var á fundinum en
öryggisverðir stóðu vaktina á
fundarstað frá níu að morgni til
klukkan eitt.
Ekki stendur til að gera gögn af
fundinum opinber eins og í tilviki
hinna bankanna tveggja, sam-
kvæmt upplýsingum frá skilanefnd
Landsbankans. - jab / Sjá síðu 12
Landsbankankabyrðin léttist:
Engum hleypt
í bankagögnin
GAMLI LANDSBANKINN Öryggisverðir
stóðu vaktina á fundi skilanefndar
Landsbankans með kröfuhöfum í gær.
VIÐSKIPTI Það er rangt og á mis-
skilningi byggt að Teymi sé
sakað um „viðskiptasóðaskap“ í
bréfi tveggja fyrrum stjórnar-
manna félagsins, eins og fram
hefur komið í fjölmiðlum. Þetta
kemur fram í nýju bréfi þeirra.
Þeir Hilmar Ragnarsson og
Þórhallur Guðlaugsson sögðu
sig úr stjórn Teymis 10. febrúar.
Þeir segja nú upplýsingar meðal
annars úr trúnaðargögnum, sem
og samtölum við eigendur Teym-
is og tengda aðila, hafa orðið til
þess að þeir hafi notað umrætt
hugtak til að lýsa upplifun sinni.
Í því felist engin ásökun á Teymi,
Capital Plaza, IP fjarskipti, Voda-
fone eða Samkeppniseftirlitið. - bj
Fyrrum stjórnarmenn í Teymi:
Misskilningur
um sóðaskap
SLYS Tvær konur voru fluttar
alvarlega slasaðar með þyrlu
Landhelgisgæslunnar á Landspít-
alann í Fossvogi eftir slys í kart-
öfluverksmiðjunni í Þykkvabæ
um tvöleytið í gærdag.
Samkvæmt lögreglunni á Hvols-
velli voru konurnar að vinna við
að setja lok á tunnur þegar eitt
lokanna þeyttist af. Konurnar
fengu lokið í andlitið og hlutu við
það mikla höfuðáverka. Þær munu
hafa verið með skerta meðvitund
þegar þyrla gæslunnar sótti þær.
Konurnar eru báðar alvarlega
slasaðar og með áverkar í and-
liti. Þær þurfa að gangast undir
aðgerð. - kg
Slys í Þykkvabæ:
Tvær konur al-
varlega slasaðar
NÁM Háskólar landsins kynna
námsframboð sitt næsta skólaár í
Ráðhúsi Reykjavíkur og Háskóla
Íslands milli klukkan 11 og 16 í
dag. Einnig er boðið upp á kynn-
ingu á framhaldsnámi í Danmörku
og Svíþjóð í Norræna húsinu.
Um 3.000 gestir hafa sótt
háskóladaginn undanfarin ár.
„Það má jafnvel gera ráð fyrir
fleirum í ár í ljósi niðursveiflunn-
ar í atvinnulífinu,“ segir Hrund
Steingrímsdóttir, verkefnastjóri
hjá Háskólanum í Reykjavík og
einn skipuleggjenda háskóladags-
ins. - ve/ sjá allt
Háskóladagurinn er í dag:
Námsleiðirnar
mörg hundruð
LÖGREGLUMÁL Pólskur karlmaður
hefur setið í gæsluvarðhaldi að
undanförnu, grunaður um að hafa
reynt að smygla inn fíkniefnum
með póstsendingu frá Póllandi.
Samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins var um það bil kíló af
hvítu efni í pakkanum, sem er þá
líklega amfetamín eða kókaín.
Maðurinn er fæddur 1987. Hann
hefur verið búsettur hér á landi í
einhvern tíma. Hann var handtek-
inn í lok síðustu viku. Gæsluvarð-
haldið rann út í gær og var beðið
eftir úrskurði um farbannskröfu
þegar blaðið fór í prentun.
Málið er enn í rannsókn. - jss
Pólskur karlmaður:
Kíló af fíkniefn-
um í sendingu
Útifundur á Austurvelli í dag
Raddir fólksins standa fyrir úti-
fundi á Austurvelli í dag, tuttugasta
laugardaginn í röð. Fundað er undir
yfirskriftinni Breiðfylking gegn ástand-
inu. Marinó G. Njálsson ráðgjafi og
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,
framkvæmdastýra flytja erindi.
MÓTMÆLI
SPURNING DAGSINS