Fréttablaðið - 21.02.2009, Side 4
4 21. febrúar 2009 LAUGARDAGUR
- Lifið heil
www.lyfja.is
20% verðlækkun
NORMADERM frá Vichy. Taskan inniheldur rakakrem, hreinsimjólk,
næturkrem, bólubana og andlitshreinsi. 4.112 kr. 3.289 kr.
Frábært fyrir húð sem
á við óhreinindi eða
vandamál að stríða.
Hentar sérstaklega
vel fyrir unglinga.
Gildir til
5. mars
2009.
LÖGREGLUMÁL „Upplifun okkar sem
vinnum á gólfinu í Foreldrahúsi er
sú að vændi barna og unglinga sé
algengara en fólk heldur,“ segir
Díana Óskarsdóttir, ráðgjafi hjá
Foreldrahúsi. Hún sinnir meðal
annars þeim hópi unglingsstúlkna
sem leitað hafa sér aðstoðar þar
vegna fíkniefnaneyslu og fylgi-
fiska hennar.
Fréttablaðið greindi frá því í
gær að kynferðisbrotadeild lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu
rannsaki nú mál tveggja stúlkna,
þrettán og fjórtán ára, vegna gruns
um að þær hafi fengið fíkniefni og
áfengi gegn kynlífsþjónustu. Það
munu hafa verið viðkomandi skóla-
yfirvöld sem fyrst fór að gruna að
ekki væri allt með felldur um hagi
stúlknanna. Rannsókn málsins er
á frumstigi.
„Oftast koma þessi mál inn hjá
okkur með þeim hætti að eldri
stelpurnar segja okkur frá því að
þegar þær voru unglingar hafi þær
selt sig,“ segir Díana. Yngri stelp-
urnar ræði yfirleitt ekki mál af
þessum toga fyrr en þær séu farn-
ar að taka á sínum málum. Þá leysi
þær frá skjóðunni.“
Díana segir að stúlkurnar segist
sumar hverjar hafa byrjað að selja
sig þrettán til fjórtán ára.
„Það er alltof mikið um þetta.
Mér sýnist að þetta sé það sem
stelpurnar geri til þess að ná sér í
fíkniefni, en þó alls ekki allar.“
Spurð hvort þrettán ára börn
séu orðin það háð neyslunni að þau
grípi til þessa ráðs segir Díana það
til í dæminu. Einnig geti ástæða
vændisins verið sú að unglingur-
inn sé með brotna sjálfsmynd og
tilheyri engum hópi. Vændið sé þá
yfirleitt leið til að komast inn í hóp
eldri unglinga. Heimilisaðstæður
skipti þá ekki máli heldur grípi
unglingurinn til þessa úrræðis til
að fá að vera með.
„Þó nokkuð er um að stelpur
stundi að veita mun eldri strákum
kynferðislega þjónustu gegn því
að fá fíkniefni og inngöngu í partí.
Margar þeirra telja sér trú um að
þær séu ástfangnar af þessum
strákum. Það gera þær einkum til
þess að afbera skömmina og rétt-
læta hlutina fyrir sjálfum sér.“
Díana segir að strákar selji sig
líka fyrir fíkniefni. Þeir sem komi
í Foreldrahús séu yfirleitt eldri
en stelpurnar þegar þeir byrja
að stunda vændi, eða í kringum
sextán ára aldurinn. Þeir nýti sér
mikið stefnumótasíður til að selja
sig.
jss@frettabladid.is
Barnavændi algeng-
ara en fólk heldur
Vændi barna og unglinga er algengara en fólk heldur, að mati Díönu Óskars-
dóttur, ráðgjafa hjá Foreldrahúsi. Hún telur að bæði stelpur og strákar selji sig
fyrir fíkniefni en að stelpurnar byrji oft yngri heldur en strákarnir.
FORELDRAHÚS Í Foreldrahúsi eru í boði viðtöl og stuðningur fyrir fjölskyldur sem lent
hafa í vanda meðal annars vegna fíkniefnaneyslu. Þá er boðið upp á eftirmeðferð
þegar unglingar eru farnir að viðurkenna vandann og vilja snúa við blaðinu.
Mér sýnist að þetta sé
það sem stelpurnar geri
til þess að ná sér í fíkniefni, en þó
alls ekki allar.
DÍANA ÓSKARSDÓTTIR
RÁÐGJAFI HJÁ FORELDRAHÚSI
Vestfirski fréttavefurinn sem vitnað
var í heitir Bæjarins besta en ekki
Bæjarins bestu eins og ritað var í
grein um hugsanlega sameiningu
sveitarfélaga á Vestfjörðum.
LEIÐRÉTTING
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
16°
7°
6°
0°
3°
8°
5°
4°
2°
2°
20°
11°
3°
21°
1°
10°
12°
-1°
0
0
0
3
5
5
1
3
1
1
-5
18
18
13
10
10
15
13
15
23
23
23
Í DAG KL. 18
Á MORGUN
8-13 m/s austan til annars
mun hægari.
MÁNUDAGUR
8-13 m/s á Vestfjörðum
annars hægari.
-4
-4
-5
00
-2
-4
-5
1
4
STORMUR Í DAG
Núna fyrir hádegi verður
vindur yfi rleitt skaplegur
af suðri eða suðvestri
með rigningu víða
um land. Um eða eftir
hádegi en þó einkum
síðdegis verður kominn
vestan stormur á vestur-
hluta landins og seint í
dag eða í kvöld gengur
vindstrengurinn yfi r á
austanvert landið. Sam-
fara storminum kólnar
ört með éljagangi á
Suður- og Vesturlandi
og sumstaðar norðvest-
an til.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
VIÐSKIPTI Þremur bindandi tilboð-
um í Árvakur, útgáfufélag Morg-
unblaðsins, var skilað til Fyrir-
tækjaráðgjafar Íslandsbanka áður
en frestur til að skila tilboðum
rann út klukkan 14 í gær. Eitt til-
boðið hefur þegar verið útilokað.
Tilboðin sem bárust eru frá
almenningshlutafélagi um rekst-
ur Morgunblaðsins, ástralska fjár-
festinum Steve Cossers, og hópi
fjárfesta sem Óskar Magnússon
leiðir. Tilboðin voru opnuð í við-
urvist óháðs matsaðila í gær.
Tilboð almenningshlutafélags-
ins var útilokað strax í gær, sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins.
Bogi Örn Emilsson, talsmaður
félagsins, vildi ekki staðfest það,
en segir félagið hafa verið komið
með hlutafjárloforð fyrir yfir 300
milljónir króna.
Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka
mun vinna úr tilboðunum á næstu
dögum og tilkynna um hæstbjóð-
anda í næstu viku.
Fimm óbindandi tilboð bárust í
félagið fyrr í mánuðinum og var
fjórum bjóðendum í framhaldinu
boðið að gera bindandi tilboð. Þrír
skiluðu inn slíku tilboði. Fjórði
hópurinn, sem í voru Árni Hauks-
son og Hallbjörn Karlsson, sem
ráku eitt sinn Húsasmiðjuna, skil-
aði ekki inn bindandi tilboði.
Árvakur hefur átt í miklum fjár-
hagserfiðleikum og skuldar í það
minnsta 4,5 milljarða króna. - bj
Hafna tilboði almenningshlutafélags í Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins:
Tveir bítast um Morgunblaðið
SKÝRIST Tilkynnt verður í næstu viku
hver átti hagstæðasta tilboðið í Árvakur.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ASÍA AP Hillary Clinton, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, segir
að deilur við kínversk stjórnvöld
um mannréttindi, Tíbet og Taí-
van þjóni litlum tilgangi. Betra
sé að einbeita sér að samstarfi á
sviðum, sem auðveldara er að ná
sáttum um.
„Þetta þýðir ekki að Taívan,
Tíbet, mannréttindi og fjöldi ann-
arra deilumála séu ekki á dag-
skránni,“ sagði hún í Peking í
gær. „Málið er bara að við vitum
nokkurn veginn hvað þeir munu
segja.“
Clinton er á ferðalagi um nokk-
ur Asíuríki og hefur meðal ann-
ars átt í orðaskaki við Norður-
Kóreustjórn. - gb
Clinton í Kína:
Tilgangslítið að
deila við Kína
FAGNAÐ Í SUÐUR-KÓREU Clinton sagði
Norður-Kóreu að hætta hótunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SVÍÞJÓÐ Stjórn sænsku bíla-
smiðjunnar Saab fór í gær fram
á greiðslustöðvun. Áður höfðu
sænsk stjórnvöld hafnað beiðni
móðurfyrirtækisins, bandaríska
bílarisans GM, um ábyrgðir fyrir
þrautalánum til að hægt verði að
bjarga Saab og selja fyrirtækið á
næsta ári. GM ætlar ekki að setja
meiri peninga í Saab.
Fimmtán þúsund starfsmenn
Saab í Svíþjóð hafa því miklar
áhyggjur af framtíð fyrirtækis-
ins. Þeim finnst miður að sænsk
stjórnvöld vilji frekar stofna
framtíð fyrirtækisins í hættu en
að veita nægan stuðning til að
Saab lifi kreppuna af. - ghs/aa
Saab-smiðjurnar sænsku:
Beðið um
greiðslustöðvun
LÖGREGLUMÁL Um 1.300 kannabis-
plöntur hafa verið teknar af lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu
frá áramótum, samkvæmt upplýs-
ingum frá Karli Steinari Valssyni,
yfirmanni fíkniefnadeildar. Þá
skipta gróðurhúsalamparnir sem
teknir hafa verið í tengslum við
ræktanirnar hundruðum.
Lögreglu hefur orðið vel ágengt
við að uppræta kannabisræktun
undanfarið. Plöntur hafa verið
teknar um allt höfuðborgarsvæð-
ið, allt upp í um 200 plöntur í einni
ræktun. Þess má geta að árið 2008
lagði lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu hald á um 700 kannabis-
plöntur. - jss
Höfuðborgarsvæðið:
Lögreglan hefur
tekið um 1.300
kannabisplöntur
ALÞINGI Viðskiptanefnd Alþingis
ætlar að taka bílaeign ríkisbank-
anna til sérstakrar skoðunar, að
því er Álfheiður Ingadóttir, for-
maður nefndarinnar, greindi frá á
Alþingi í gær.
Eygló Harðardóttir, þingmað-
ur Framsóknarflokks, kvaddi sér
hljóðs undir liðnum fundarstjórn
forseta og kvartaði yfir því að
enn hefðu ekki borist fullnægj-
andi svör við fyrirspurn hennar
frá því fyrir áramót um bílaeign
ríkisbankanna. Einungis Glitnir
hefði skilað svörum, en hvorki
Kaupþing né Landsbankinn. Hún
sagði það óvirðingu við Alþingi og
spurði hvað bankarnir hefðu eig-
inlega að fela. - sh
Viðskiptanefnd Alþingis:
Bílar bankanna
skoðaðir í nefnd
Nýr forstöðumaður ráðinn
Guðrún Nordal hefur verið skipuð for-
stöðumaður Stofnunar Árna Magnús-
sonar í íslenskum fræðum. Hún tekur
við 1. mars og er skipuð til fimm ára.
ÁRNASTOFNUN
GENGIÐ 20.02.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
177,7134
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
113,70 114,24
162,27 163,05
143,3 144,10
19,232 19,344
16,414 16,51
12,974 13,050
1,2078 1,2148
167,42 168,42
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR