Fréttablaðið - 21.02.2009, Page 10
10 21. febrúar 2009 LAUGARDAGUR
heimur heillandi hluta og hugmynda
Stekkjarbakka 6 - Sími 540 3300 - www.gardheimar.is
Íslenskir karlmenn!
2 fyrir 1
á myndina
Shopaholic í
SAMbíóunum
2 fyrir 1
út að borða í hádeginu
í turninum á Nítjándu
2 fyrir 1
af ljúffengum bollum í
Bakarameistaranum
STÓRGLÆSILEGIR BLÓMVENDIR Í ÚRVALI!
Fylgir konudagsgjöfum meðan birgðir endast
Nú dekrum við við konuna
opnum kl. 8.00 á morgun, konudag
SAMFÉLAGSMÁL Íslandsbanki, sem
áður hét Glitnir, hefur ákveðið að
fresta endurskoðun breytilegra
vaxta á öllum þeim erlendu lánum
sem áttu að koma til endurskoð-
unar á þessu ári til 1. mars árið
2010. Íslandsbanki hefur fryst og
frestað afborgunum á átta þúsund
lánum síðustu mánuði, að stærst-
um hluta eru það bílalán.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri
Íslandsbanka, segir að fyrstu
frystingarnar séu að renna út og
því verði að grípa til varanlegri
aðgerða, frystingarnar séu aðeins
lausn til skemmri tíma. Tvær leið-
ir séu einkum til skoðunar. Þær
hafi verið unnar með hinum bönk-
unum og kynntar yfirvöldum.
„Við höfum að leiðarljósi að
gæta sanngirni milli þeirra sem
tóku erlend lán og verðtryggð
lán. Hvað húsnæðislánin varð-
ar er mikilvægt að hjálpa þeim
sem veðjuðu á að taka erlend lán
þannig að heimilin fari ekki í þrot
en það eru líka til aðrar aðgerð-
ir þar sem jafnræðis væri gætt,“
segir hún.
„Annars vegar er um það að
ræða að greitt verði af lánum
miðað við fasta tölu eða greiðslu á
einhverjum ákveðnum tíma. Þessi
tala myndi taka breytingum miðað
við gengisjöfnunarvísitöluna sem
var kynnt fyrir áramót,“ segir
Birna.
„Hins vegar komi til greina að
hjálpa fólki til að breyta láninu í
verðtryggt lán, bera greiðslurnar
af erlenda láninu saman við verð-
tryggt lán og gera upp mismun-
inn á afborgunum eða bæta þeim
aftan við lánin.“
Íslandsbanki býður upp á helm-
ingslækkun á leigugreiðslum bíla-
samninga í erlendri mynt og hafa
fimm hundruð einstaklingar sótt
um lækkun. Þá er Íslandsbanki
eini bankinn sem lækkaði vexti í
janúar.
Íslandsbanki hefur mildað inn-
heimtu- og fullnustuaðgerðir sínar
og fellt niður uppgreiðslugjald á
húsnæðislánum.
Nafni Nýja Glitnis hefur verið
breytt í Íslandsbanki. Birna segir
að breytingarnar hafi verið unnar
í samstarfi starfsmanna og við-
skiptavina og tilkostnaði hafi
verið haldið eins lágum og hægt
er. Kostnaðurinn nemur 20 millj-
ónum króna. ghs@frettabladid.is
Vaxtaendurskoðun
frestað um eitt ár
Nafni Nýja Glitnis hefur verið breytt í Íslandsbanka. Ákveðið hefur verið að
fresta endurskoðun breytilegra vaxta á erlendum íbúðalánum til 1. mars 2010.
Tvær leiðir koma helst til greina til aðstoðar fólki í greiðsluerfiðleikum.
SAMFYLKING
Benedikt Sigurð-
arson sækist eftir
einu af efstu sætum
Samfylkingarinnar
í Norðausturkjör-
dæmi.
VINSTRI GRÆN
Friðrik Atlason gefur
kost á sér í 4. sæti
í prófkjöri Vinstri
grænna í Reykjavík.
Þorvaldur Þorvalds-
son gefur kost á sér
í prófkjöri Vinstri
grænna í Reykjavík.
Lilja Mósesdóttir
gefur kost á sér í
2. sæti í prófkjöri
Vinstri grænna í
Reykjavík.
Einar Bergmundur
Arnbjörnsson gefur
kost á sér í 3. til 5.
sæti á lista Vinstri
grænna á Suður-
landi.
Ingunn Snædal
býður sig fram í
4.-5. sæti í prófkjöri
Vinstri grænna í
Norðausturkjör-
dæmi.
ERLENTP ÓFKJÖR
SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR
Tryggvi Þór Her-
bertsson gefur kost
á sér í 2. sæti í
prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Norðaust-
urkjördæmi.
Pétur Blöndal
sækist eftir 2. sæti í
prófkjöri sjálfstæðis-
manna í Reykjavík.
ERLENTP ÓFKJÖR
Nýdæmdur fær skilorð
23 ára maður hefur verið dæmdur í
fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir þjófnaði og alvarlega líkamsárás.
Maðurinn var síðast dæmdur fyrir
líkamsárás fyrir rúmum mánuði. Þá
var ákvörðun refsingar frestað.
DÓMSTÓLAR
FYRIRFERÐARLITLIR MARKETTIR
Starfsmaður dýragarðs í Sydney í Ástr-
alíu heldur á tveimur fjögurra vikna
gömlum marköttum í lófa sínum.
Markettirnir fengu nöfnin Zanzibar og
Nairobi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BREYTNGAR KYNNTAR Birna Einarsdóttir bankastjóri kynnti nýtt nafn Glitnis á fundi í
gær. Bankinn mun heita Íslandsbanki eins hann hét áður. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON