Fréttablaðið - 21.02.2009, Side 11

Fréttablaðið - 21.02.2009, Side 11
LAUGARDAGUR 21. febrúar 2009 11 FRAMSÓKNARFLOKKUR Eysteinn Jónsson gefur kost á sér í 1. til 3. sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi. Birgir Þórarinsson gefur kost á sér í 1.-2. sæti í Suður- kjördæmi fyrir Fram- sóknarflokkinn. VINSTRI GRÆN Bergur Sigurðsson gefur kost á sér í 2. til 3. sæti í prófkjöri Vinstri grænna í Suðurkjördæmi. Hrafnkell Lárusson býður sig fram í 5. til 6. sæti í prófkjöri Vinstri grænna í Norðausturkjör- dæmi. Andrés Ingi Jónsson býður sig fram í 3. til 4. sæti á lista Vinstri grænna í Reykjavík. Margrét Pétursdóttir býður sig fram í 3. sæti á lista Vinstri grænna í Suðvestur- kjördæmi. Katrín Jakobsdóttir sækist eftir að leiða lista Vinstri grænna í öðruhvoru Reykja- víkurkjördæminu. SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR Íris Róbertsdóttir gefur kost á sér í 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Haukur Þór Hauks- son gefur kost á sér í 4. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Suðvesturkjördæmi. SAMFYLKING Ragnar Jörundsson býður sig fram í 2. til 3. sæti á lista í prófkjöri Samfylking- arinnar í Norðvestur kjördæmi. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir gefur kost á sér í 3. til 5. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. ERLENTP ÓFKJÖR „Ástin er eins og innstæða sem vex ekki af sjálfu sér.“ Hugsaðu um fjárhagslegu heilsuna. Rómantísk heilsa Efldu rómantíkina í lífi þínu, hvort sem þú ert makalaus eða ekki og ekki bíða eftir að hún komi til þín. Settu þér það markmið að leita hana uppi. Þegar þú hefur fundið ástina í lífi þínu, skaltu leggja jafn oft inn á hana og þú tekur út af henni. Febrúar 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 26 27 2822 Konudagur 23 Bolludagur 24 Sprengidagur 25 Öskudagur 23 24 25 Fjárhagsleg heilsa: Með því a ð leggja reglubundið fyrir áttu fyrir hlutunum áður en þú kaupir þá. VIÐSKIPTI Vorið 2007 greiddi Byr út heildararð að fjárhæð 38,9 milljónir króna fyrir árið 2006. Heildararður upp á 13,5 milljarða króna var greiddur út ári síðar. Mestan arð fengu félög á borð við Imon, Saxhól, Sund og Bygg invest í hlutfalli við eignarhlut. Á lista yfir stærstu hluthafa kemur í ljós að Imon sem er á vegum Magnúsar Ármann, Sax- hóll sem er í eigu Jóns Þorsteins Jónssonar og Sund sem er í eigu Jóns Kristjánssonar eru í hópi allra stærstu hluthafa á hluthafalista í nóv- ember 2007. Imon átti 8,4 prósent, Saxhóll 8,1 prósent og Sund 5,1 prósent. Neðar á hluthafalistanum má sjá Fons sem er í eigu Pálma Haraldssonar, Haga sem eru í eigu Baugs, Kevin Stanford, fjárfesti sem hefur verið í samstarfi við Baug, og Pál Pálsson sem stóð að svokallaðri hallarbyltingu í stjórn SPH árið 2005. Jón Þorsteinn Jónsson, stjórnarfor- maður Byrs, segir að stofnfé hafi verið aukið um 24 milljarða króna árið 2007 til að undir- búa hlutafjárvæðingu og styrkja eiginfé sjóðs- ins. „Síðustu árin hefur alltaf verið greiddur út hámarksarður. Fyrri talan var hámark af því að stofnfé var lítið, árið eftir er stofnféð aukið um 27 milljarða,“ segir hann. „Í kjölfarið skilaði sjóðurinn sínu besta rekstrarári frá stofnun og fjórum mánuð- um síðar var ákveðið á aðalfundi að greiða hámarksarð eins og lög leyfa,“ segir Jón Þor- steinn. Hann bendir á að ekki hafi menn verið að tæma sjóðinn þó 13 milljarðar hafi verið greidd- ir í arð. „Í sjóðnum eru eftir miklar fjárhæðir sem koma úr vasa stofnfjáreigenda.“ - ghs JÓKST Í 13,5 MILLJARÐA Greiddur var heildararður að fjárhæð 38,9 milljónir króna í Byr vorið 2007 fyrir árið 2006. Ári síðar var heildararðgreiðslan 13,5 milljarðar króna. Heildararðurinn hjá Byr sparisjóði nam tæpum 39 milljónum króna 2006 en 13,5 milljörðum ári seinna: Arðgreiðslur jukust um milljarða milli ára ALÞINGI „Engin ákvörðun hefur verið tekin um að skera niður til áróðursmála,“ sagði Kristj- án Möller samgönguráðherra á Alþingi, sem svar við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar. Kristján sagði að nefnd um umferðaröryggismál hafi fund- að um málið, en engin niðurstaða hafi fengist. Skera þurfi niður til umferðarmála, en enginn for- stöðumaður vilji missa spón úr sínum aski. Þá sagði Kristján að á síðustu árum hefðu um 70 milljónir farið á ári í áróðursmál. Hins vegar væri í dag hægt að fá gert fyrir um 30 milljónir það sem áður kostaði 70 milljónir. - ss Áróður Umferðarstofu: Ekki ákveðið um niðurskurð Hóruungi sem þarf að laga.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.