Fréttablaðið - 21.02.2009, Síða 12
12 21. febrúar 2009 LAUGARDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 113 Velta: 348 milljóni
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
284 -3,42% 841 -4,67%
MESTA HÆKKUN
MAREL FOOD SYST. 0,10%
MESTA LÆKKUN
STRAUM.-BURÐA. 19,28%
EIMSKIPAFÉLAGIÐ 10,00%
ATLANTIC PETROL. 5,56%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,25 +0,00% ... Atlantic
Airways 158,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 425,00 -5,56% ...
Bakkavör 1,90 -3,55% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið
0,90 -10,00% ... Føroya Banki 101,00 -2,89% ... Icelandair Group
13,40 +0,00% ... Marel Food Systems 49,90 +0,10% ... SPRON 1,90
+0,00% ... Straumur-Burðarás 1,80 -19,28% ... Össur 93,80 -1,16%
Stjórn sænska bílafram-
leiðandans Saab óskaði
eftir greiðslustöðvun
í gær í kjölfar þess að
General Motors sagð-
ist ætla að slíta á þann
streng sem tengir fyrir-
tækin saman.
Bandaríski bílafram-
leiðandinn, sem hefur
átt við gríðarlegan
rekstrarvanda að stríða,
sagði í vikunni að hann ætli að
endurskoða alþjóðlega starfsemi
sína. Undir eignahattinum er Saab,
sem hefur skilað tapi um
áraraðir.
Fyrirtækið ætlar nú
að endurskipuleggja
reksturinn, svo sem með
sölu hlutafjár.
Sænska ríkið ætlar að
styðja sína þrátt fyrir
þetta að því gefnu að ný
rekstraráætlun og önnur
gögn verði lögð fram,
hafði Reuters-fréttastof-
an eftir Göran Hagglund, aðstoðar-
iðnaðarráðherra Svíþjóðar í gær.
- jab
SAAB Framleiðsla á
Saab-bílum hefur ekki
skilað General Motors
miklum tekjum.
Saab í greiðslustöðvun
Meirihluta skóverslana undir fyrir-
tækjahatti bresku íþróttavörukeðj-
unnar JJB Sports hefur verið lokað
og 438 starfsmönnum sagt upp, að
ósk KPMG í Bretlandi sem stýrir
greiðslustöðvun þeirra.
Undir JJB Sports heyra skóversl-
anirnar Original Shoe Company og
Qube. Rúmum helmingi verslana
Original Shoe Company af 64 hefur
nú verið lokað en átta af þrettán
verslunum Qube.
Tólf þúsund starfsmenn voru hjá
JJB fyrir uppsagnirnar. Íslenska
ríkið er einn stærsti hluthafi félags-
ins eftir að Kaupþing leysti til sín
tæpan þriðjungshlut Exista og fyrr-
verandi forstjóra JJB með veðkalli
í síðasta mánuði. - jab
Uppstokkun
í skódeild JJB
Í Ráðhúsi Reykjavíkur verður kynning á námi frá Háskólanum á Akureyri, Háskólanum á
Bifröst, Háskólanum á Hólum, Háskólanum í Reykjavík, Landbúnaðarháskóla Íslands og
Listaháskóla Íslands. Á Háskólatorgi, Gimli og Odda verður kynning á námi við Háskóla
Íslands. Í Norræna húsinu verður kynning á framhaldsnámi í Danmörku og Svíþjóð.
Háskóladagurinn um allt land:
Ísafjörður: Kynning í MÍ 3. mars
Akureyri: Kynning í VMA 11. mars
Egilsstaðir: Kynning í ME 12. mars
Kynntu þér möguleika framtíðarinnar á www.haskoladagurinn.is
ÞETTA ER SNÚIÐ – ÞITT ER VALIÐ!
HÁSKÓLADAGURINN 21. FEBRÚAR KL. 11.00–16.00
HÁSKÓLA
DAGURINN
Skilanefnd gamla Lands-
bankans telur líkur á að
72 milljarðar króna falli á
íslenska ríkið vegna Ice-
save-innlánsreikninga
Landsbankans. Allt að sjö
ár getur tekið að fá endan-
lega mynd á stöðuna.
Lárus Finnbogason, formaður
skilanefndar Landsbankans, sagði
að loknum kynningarfundi með
kröfuhöfum bankans í gær, líkur
á að talsvert lægri byrði lendi á
íslenska ríkinu vegna Icesave-
reikninga gamla Landsbankans
en áður var talið.
Hann benti á að 144 millj-
arða króna munur væri á eign-
um bankans og forgangskröfum,
samkvæmt mati skilanefndar-
innar. Bankinn þurfi að greiða
innistæðutryggingu upp á 20.887
evrur fyrir hvern reikning en
afgangurinn muni lenda á herðum
tryggingarsjóðs innistæðueigenda
í hverju landi fyrir sig. Afgangur-
inn er 72 milljarðar króna, sem er
rúmlega helmingi minni upphæð
en fjármálaráðuneytið áætlaði að
myndi lenda á herðum ríkisins.
Eignir bankans, samkvæmt
mati skilanefndarinnar, að við-
bættu skuldabréfi frá nýja bank-
anum vegna millifærslu eigna
úr gamla bankanum í þann nýja,
nema 1.195 milljörðum króna. Það
er um tuttugu prósentum meira
en áætlað var undir lok síðasta
árs.
Á sama tíma nema heildar-
skuldir 3.348 milljörðum. Þar af
eru forgangskröfur, innlán hér
og í Bretlandi og Hollandi vegna
Icesave-reikninganna.
Samkvæmt þessu vantar Lands-
bankann 2.153 milljarða króna til
að standa við skuldbindingar sínar
að fullu, sem er talsvert verri
staða en hinna bankanna tveggja.
Erlendir kröfuhafar kvöddu marg-
ir fundinn vonsviknir en þeir bera
lítið úr býtum.
„Það er mikil óvissa um matið
eins og það lítur út í dag,“ segir
Lárus og bendir á að eignirnar
felist að stærstum hluta í lánum
til fyrirtækja og einstaklinga.
Gera þurfi upp á lánstímanum því
ekki komi til greina að selja lána-
söfnin.
Hann benti enn fremur á að end-
anlegt uppgjör banka gæti tekið
langan tíma og vísaði til þess að
þegar sænska fjármálakreppan
hafi riðið yfir í byrjun tíunda ára-
tugar síðustu aldar hafi það tekið
sjö ár að vinda ofan af og gera upp
viðskipti bankanna við einstakl-
inga og fyrirtæki. Þótt mikið verk
sé fyrir höndum nú megi gera ráð
fyrir því að niðurstaða fáist í máli
gamla Landsbankans eftir þrjú til
sjö ár. jonab@markadurinn.is
KRÖFUHAFAR KVEÐJA Staða gamla Landsbankans er talsvert verri en hinna bank-
anna tveggja sé tekið mið af eignum og skuldum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Uppgjör gæti
tekið sjö ár
EIGNA- OG SKULDAYFIRLIT
GÖMLU BANKANNA
Bankar Eignir* Skuldir* Mismunur
Landsbankinn 1.195 3.348 -2.153
Glitnir 1.008 2.417 -1.409
Kaupþing 2.962 3.769 -807
Skuldabréf úr nýju bönkunum:
Glitnir 422
Landsbankinn 284
Kaupþing 174
Samtals 880
* Í milljörðum króna.
Icelandair Group tapaði 7,5 milljörðum
króna í fyrra eftir að hafa skilað 275 millj-
óna króna hagnaði árið á undan.
Flugsamstæðan fór ekki varhluta af
banka- og efnahagshruninu hér í enda
árs. Haft er eftir Björgólfi Jóhannssyni,
forstjóra Icelandair Group, í uppgjörinu
að aðstæðurnar hafi gjörbreytt rekstr-
arforsendum og niðurstaðan sé ákveðinn
varnarsigur. Tapið á þessum síðustu þrem-
ur fjórðungum ársins nam 10,6 milljörðum
króna samanborið við 780 milljóna mínus
í hitteðfyrra.
Tekjur Icelandair Group voru 112,7
milljarðar króna í fyrra, sem er 78 pró-
senta aukning á milli ára. Tekjurnar námu
28,3 milljörðum á fjórða ársfjórðungi, sem
er 85 prósenta aukning.
Eignir í árslok námu 98,8 milljörðum
króna en þær námu 66,8 milljörðum í byrj-
un árs. Eiginfjárhlutfall var 20,3 prósent,
sem er talsverð lækkun frá ársbyrjun en þá
nam hún 37,5 prósentum. Handbært fé frá
rekstri var 2,9 milljarðar króna í lok síðasta
árs sem er fjórðungslækkun. - jab
Tapið varnarsigur
HAGNAÐUR/TAP HLUTHAFA
Tímabil Upphæð
4. ársfj. 2008 -10.570 milljónir kr.
4. ársfj. 2007 -780 milljónir kr.
Allt árið 2008 -7.468 milljónir kr.
Allt árið 2007 +257 milljónir kr.
Hagnaður/tap á hlut
Allt árið 2008 -8,10 kr.
Allt árið 2007 +0,25 kr.