Fréttablaðið - 21.02.2009, Page 16

Fréttablaðið - 21.02.2009, Page 16
16 21. febrúar 2009 LAUGARDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRI: Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is og Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. RITSTJÓRAR: Jón Kaldal jk@frettabladid.is og Þorsteinn Pálsson thorsteinn@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Í kjölfar bankahrunsins hafa margir velt vöngum yfir bágri stöðu krónunnar og orsökum hrakfara hennar. Margir vilja kenna bönkunum sálugu um. Því miður verður að grafa dýpra eftir raunverulegum ástæðum núver- andi efnahagsstöðu. Árið 2003 hófust umfangsmestu framkvæmdir Íslandssögunn- ar með gerð Kárahnjúkavirkjun- ar og byggingu álvers á Reyðar- firði. Framkvæmdirnar námu nærri þriðjungi landsframleiðslu og voru alfarið unnar með erlendu fjármagni. Við upphaf þessa mikla framkvæmdaskeiðs var ljóst að til mótvægis þyrftu stjórn- völd að draga saman í ríkisrekstri ella ylli svo stór erlend fjárfesting mikilli þenslu, ofrisi krónunnar og skekktri samkeppnisstöðu undir- stöðuatvinnugreina, þ.e. sjávarút- vegs og iðnaðar. Ríkið brást hins vegar í aðhaldsaðgerðum og valdi þenslutímann til að slaka á í rík- isfjármálum með lækkun tekju- skattshlutfalls, helmingun matar- skatts, aflagningu ýmissa annarra skatta og hækkun lánshlutfalls íbúðarlána. Afleiðingin varð sú að frá 2003 til 2007 jókst einkaneysla um nær 40% á föstu verðlagi. Góða veislu gjöra skal Þegar árið 2004 brást Seðla- bankinn við vaxandi verðbólgu- þrýstingi með vaxtahækkun- um sem jafnframt styrktu gengi krónunnar. Hærra gengi vann á móti verðbólgu skamma hríð með lækkun innflutningsverðs en skapaði falskan kaupmátt sem örvaði einkaneyslu og olli miklu þjóðhagslegu ójafnvægi með viðskiptahalla er nam tugum prósenta af landsframleiðslu. Viðskiptahallinn var síðan fjár- magnaður með erlendri skulda- söfnun. Nokkurt hlé varð á þess- ari þróun 2006 þegar krónan féll og verðbólga hækkaði í 8,5%. Margir vonuðu að hagkerfið væri að ná jafnvægi enda hillti undir lok stóriðjuframkvæmda. Reynd- in varð önnur og enn var bætt á eldinn með kosningafjárlög- unum 2007 sem sýndu að ríkis- stjórn og Seðlabanki reru ekki í sömu átt. Bitlítið úrræði Seðla- bankans var að hækka stýrivexti sem voru komnir í 13% í byrjun árs 2007. Með þátttöku okkar í EES undirgengumst við fjórfrels- ið, m.a. frjálst flæði fjármagns. Háir stýrivextir vöktu athygli á krónunni og skyndilega streymdu hingað peningar úr öllum áttum til að njóta hins mikla vaxta- munar. Staða útlendinga með krónunni óx úr 100 milljörðum í 800-1000 milljarða. Þetta hjálp- aði verðbólgumarkmiðum Seðla- bankans um hríð; gengið hætti að veikjast og verðbólguskotið frá miðju ári 2006 gekk að mestu til baka ári síðar. Sökum hárra vaxta hérlendis töldu Íslending- ar nú þjóðráð að skulda í erlendri mynt. Fyrirtækin juku erlend- ar skuldir um 100% og heimil- in, sem áður skulduðu eingöngu í krónum, skulduðu skyndilega 100-200 milljarða í erlendum lánum. Skynsamlegt hefði verið á þessum tíma að Seðlabankinn yki gjaldeyrisvaraforðann verulega til að geta mætt flæðisbreyting- um á gjaldeyrismarkaði en það var því miður ekki gert. Blaðran springur Í ársbyrjun 2008 lá fyrir að dæmið gengi ekki upp. Við höfð- um búið við falskan kaupmátt og eytt um efni fram. Við vorum ekki svona rík, gengið var bara vitlaust. Við lifðum á lánum og veislan var á enda. Útlendingar spáðu harðri lendingu. Þeir byrj- uðu að fikra sig út úr krónunni og Íslendingar einnig. Of miklu var hlaðið á þessa litlu mynt og Seðla- bankinn hafði ekki mótvægisafl. Hrunið var óumflýjanlegt, bara spurning um tíma. Krónan veikt- ist allt árið 2008 og verðbólgan var á stöðugri uppleið. Innflutn- ingur á varanlegum neysluvör- um fraus og byggingariðnaðurinn stefndi í alkul. Við blasti grjót- hörð lending íslensks efnahags- lífs … og svo fraus alþjóðlegt fjár- málakerfi og íslensku bankarnir urðu úti á berangri. Það er vandasamt að starf- rækja örmynt eins og krónuna og búa við frjálst flæði fjár- magns. Stjórnvöld verða að sýna sérstaka aðgæslu til að missa ekki verðbólguna úr böndunum og Seðlabankinn þarf ávallt að hafa nægilegan gjaldeyrisvara- forða til að mæta snöggu flæði úr landi. Séríslensk vísitöluteng- ing lána gerir illt verra. Ríkis- stjórn og Seðlabankinn brugðust á sinni vakt og þess vegna býr íslenska þjóðin nú við gjaldeyr- ishöft. Íslenskri þjóð og viðskipta- lífi er nauðsyn að losa um gjald- eyrishöftin. Þau eru myllu- steinn um háls atvinnulífsins og útiloka allar tilraunir um að endurvekja traust á kerf- inu. Semja verður við erlenda fjárfesta, sem eiga krónur í kerfinu, um greiðslu í erlendri mynt nú eða seinna. Jafnframt er fullreynt að íslenska krónan sé okkar framtíðargjaldmiðill. Evran og ESB er nærtækasta leiðin en skoða þarf fleiri kosti. Það hjálpar hins vegar í þeirri vinnu að auðveldara er að eiga við krónuna á krepputímum en þenslutímum. Höfundur er forstjóri Kjalars hf. HJÖRLEIFUR JAKOBSSON Í DAG | Hví er krónan í gjörgæslu? Kreppan og krónan UMRÆÐAN Jón Baldvin Hannibalsson skrifar um stjórnmál Það var smáfrétt í vikunni að Jón Magn-ússon, sem kosinn var á þing 2007 fyrir Frjálslynda flokkinn, hefði loksins ratað aftur heim til íhaldsins. Það eina sem sætir tíðindum við þetta er tímasetning- in. Gleymd er öll gagnrýni á Sjálfstæðis- flokkinn út af gjafakvótum, og annarri kerfislægri spillingu sem hefur eitrað útfrá sér um allt þjóðfélagið í skjóli Eimreiðarklíkunnar eftir að hún náði völdum í flokki og landi. Þessi misserin eru Íslendingar einmitt að upplifa afleiðingarnar af valdatöku og valdbeitingu þessa hóps sl. átján ár. Listinn lítur svona út: Gjaldmiðillinn er hrun- inn. Fjármálakerfið er hrunið. Um 70% fyrirtækj- anna í landinu eru tæknilega gjaldþrota. Himin- háir stýrivextir munu ganga frá þeim fyrirtækjum sem enn hanga uppi á næstu mánuðum eða misser- um að óbreyttu. Fréttir dagsins frá innheimtulög- fræðingum, kollegum Jóns, eru þær að 10 fyrirtæki muni verða gjaldþrota á dag út þetta árið. Atvinnuleysingjar teljast nú 15.000. Það er eini þjóðfélagshópurinn sem er í örum vexti. Erlendar skuldir heimilanna hafa tvöfaldast á sama tíma og íbúðarverð er í frjálsu falli. Skuldugasti hópurinn – unga fólkið – er í bið- röð í atvinnuleit í útlöndum. Landflótti í stór- um stíl er fyrirsjáanlegur. Þeirra sem ætla að reyna að þrauka bíður að bera níðþunga skatta á næstu árum um leið og velferðar- kerfið verður skorið inn að beini. Loks hefur þjóðin glatað því eina sem hún átti og mölur og ryð fær ekki grandað – nefnilega mannorðinu. Þetta er viðskilnaður Sjálfstæðisflokksins eftir átján ára samfelldan valdaferil. Sagði ekki Jón Magnússon einhvers staðar að það væru átján ár frá því að hann villtist að heiman frá íhaldinu? Það eru þessi sömu átján ár, ekki satt? Hvort skyldi nú Jón vera að umbuna íhaldinu fyrir frammistöðuna eða er aumingjagæska Jóns komin á svo hátt stig að hann telji þetta rétta augnablikið til að snúa heim og rétta þeim sáttfúsa hjálparhönd? Höfundur var einu sinni formaður Alþýðuflokksins. Skilyrðislaus uppgjöf JÓN BALDVIN HANNIBALSSON V iðbrögð við óskum um stjórnlagaþing hafa ekki látið á sér standa. Kennimenn hafa stigið fram og hvatt til þess að stjórnmálaflokkar sem fulltrúa eiga á Alþingi sameinist um að boðað verði til stjórnlaga- þings. Þingflokkur Framsóknar hefur lagt fram frumvarp þess efnis sem deilt er um í þingflokkum. Sam- starfssamningur Vinstri grænna og Samfylkingar gerir ráð fyrir breytingum á stjórnarskrá. Róttækar tillögur hafa komið fram um breytingu á niðurröðun framboðslista sem gætu gefið kjósendum kost á vali milli frambjóðenda hvers flokks. Kerfið er í uppnámi og sýnt að alþingismenn munu ekki koma sér saman um lendingu í málinu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur þegar tekið afstöðu: prófkjörin sem flokkurinn ætlar að ráðast í næstu vikur skulu ganga fyrir þeirri lýðræðislegu kröfu að kjósendur fái að raða á lista eftir einföldum reglum. Þó voru prófkjörin sett í gang á sínum tíma til að auka lýðræðið og styrkja valrétt flokksfólks til að ráða listunum. Þegar flokkn- um býðst að bjóða þann kost í kjörklefanum er hikað. Allar götur frá 1948 hefur tillögum um stjórnlagaþing verið stungið undir stól. Alþingi hefur allt frá lýðveldisstofnun reynst ógerlegt að endurskoða stjórnarskrána. Hver endur- skoðunarnefndin af annarri hefur reynt að ná samkomulagi í málinu. Einkahagsmundir þingmanna og flokkshagsmunir hafa reynst sá veggur sem umlukið hefur stjórnarskrána. Í hennar skjóli hefur flokkakerfið byggt upp valdastrúktúr í landinu sem hefur í tímans rás fært okkur inn í spillingar- kerfi embættismannaveitinga, fjármagnssóunar og misréttis atvinnuvega og fyrirtækja. Og sitjandi þingheimur ætlar að tryggja þessu kerfi lengri lífdaga. Á sama tíma leggjast sérfræðingar og áhugamenn um raun- verulegar breytingar á íslenskri stjórnskipan á eitt og munu raddir þeirra verða enn háværari þegar á kosningaundirbún- ing líður. Staða forseta Íslands er í uppnámi. Staða þingsins er hallandi gagnvart ofurvaldi ráðherra sem stýra landi og atvinnuvegum með dagskipunum. Stjórnarskráin stendur lýð- ræði fyrir þrifum. Það eru haldlítil rök að kostnaður komi í veg fyrir stjórnlagaþingskosningu: í tillögunum frá 1948 var gert ráð fyrir 24 fulltrúum á stjórnlagaþingi. Engin ástæða er til að hafa þá 63. Kjósa má þá í einu kjördæmi og veita því vinnutíma til eins árs til að leggja fram nýtt uppkast sem kosið yrði um í sveitarstjórnarkosningum að ári. Það er mikill ábyrgðarhluti hjá sitjandi þingi að koma ekki til móts við þessa kröfu kennimanna og almennings. Og ættu kjósendur að líta til þess, fari fram sem horfir, hvaða þing- menn leggjast gegn þessari brýnu réttarbót samfélaginu til handa: Við þurfum róttæka endurskoðun á stjórnskipan landsins svo hér verði von um betri stjórnunarhætti og betra mannlíf. Þingmenn hundsa almannavilja. Nýja stjórnarskrá frá stjórnlagaþingi PÁLL BALDVIN BALDVINSSON SKRIFAR Svekkjandi Árni Johnsen greinir frá því í helgar- blaði DV að honum hafi verið sýnd morðtilraun þegar eitrað var fyrir hann. Hann slapp, sem betur fer, en þó ekki án þess að hendur hans bólgnuðu upp og neglurnar skorpnuðu. Árni segir að eitrinu hafi verið laumað í fæðubótarefni sem hann tók og grunar hver var að verki. Um fyrstu viðbrögð sín segir hann: „Ég bara trúði þessu ekki. Ég hugsaði með mér að þetta gæti ekki verið rétt. Þetta er svekkjandi en það þýðir ekki að velta sér upp úr þessu.“ Þarna talar alvöru karlmað- ur. Honum er sýnd morðtil- raun og í staðinn fyrir að fara til lög- reglu og upplýsa hvern hann grunar – þá ypptir heljarmennið öxlum, segir „þetta er svekkjandi“ og fer í viðtal við DV. Afsökunarbeiðni Árni gerir það í viðtalinu sem sáraf- áir hafa gert; hann biðst afsökunar á kreppunni. Hann gengur lengra og skorar áGeir H. Haarde að gera slíkt hið sama. Það vita líka allir sem hafa séð myndina Frost/Nixon að manni líður mun betur eftir að hafa beðist afsök- unar. Þeir sem sjá Nixon þverskallast við að biðjast afsökunar því hann hafi ekkert gert rangt eiga erfitt með að hugsa ekki til íslenskra ráðamanna, núverandi sem fyrrverandi. Til glöggvunar Njósnamyndahöfundum er vandi á höndum eftir að fyrirtækið Google (sem hlýtur að heita Til glöggvunar, þar sem sögnin að gúgla hefur fengið heitið að glöggva) setti fram Google Earth-forritið. Nú geta allir skoðað minnstu smáatriði og leyndir herflug- vellir Bandaríkjamanna og leyniflutn- ingar Kínverja eru nú öllum ljósir og er búið að finna sjálfa Atlantis. Kannski James Bond framtíðar- innar verði tölvunjörður, umkringd- ur flatbökukössum og tölvuskjám þysjandi inn og út á Google Earth, sér og öðrum til glöggvunar? kolbeinn@frettabladid.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.