Fréttablaðið - 21.02.2009, Síða 19

Fréttablaðið - 21.02.2009, Síða 19
LAUGARDAGUR 21. febrúar 2009 19 UMRÆÐAN Valgerður Bjarnadóttir skrifar um Evrópumál Ætli það sé einfaldlega þannig að við, á ég þá við okkur Íslendinga, kunnum ekki að vera frjáls? Ætli við séum bara best geymd í gjaldeyris- höftum, vísitölutrygging- um og verðlagsnefndum? Ef sú er raunin þá erum við á góðri leið inn í óskalandið. Þeir eru til sem treysta okkur ekki til að vera frjáls og sjálf- stæð, berandi höfuðið hátt í sam- félagi og samstarfi við aðrar þjóðir. Þeir eru þeirrar skoðunar að við verðum borin ofurliði, auð- lindinni verði stolið frá okkur og við munum standa uppi slypp og snauð. Einver gæti haldið að þeir væru útlendingar, en svo er ekki. Þeir sem treysta okkur svona vel – eða hitt þó heldur – í samfélagi þjóðanna, í samfélagi við annað fólk, eru góðir og gegnir Íslend- ingar. Þeir mega auðvitað hafa þessa skoðun, en þeir mega ekki halda að þessar skoðanir geri þá að betri Íslendingum en okkur hin sem erum á annarri skoðun. Merkasta pólitíska tilraunin Enginn er eyland. Ég held að það séu mikil sannindi. Engin getur farið alein í gegnum lífið. Hversu sjálfstæð, sjálfum sér nóg og sjálfbjarga sem hún er. Það sama held ég að eigi við um þjóðir. Ekki síður eftir að fjarlægðir hættu í rauninni að vera til og urðu bara eitt símtal eða skeyti í tölvunni. Þjóðir þurfa á öðrum þjóðum að halda. Ekki bara til að verja sig þegar heimurinn á í köldu stríði heldur líka til að styðja hver við aðra og eflast saman í sameigin- legu átaki á friðartímum. Þjóðir í Vestur-Evrópu hafa átt með sér náið efnahagslegt sam- starf í meira en hálfa öld. Til samstarfsins var stofnað til að tryggja frið í álfunni. Nágrann- ar höfðu átt í stríði í aldir. Á rétt rúmlega fjörutíu árum voru tvö stríð – tvær heimsstyrjaldir – háð, mest á litlum bletti heims- ins, sem nefnist Evrópa. Þá datt framsýnum mönnum í hug að binda þjóðirnar þeim böndum sem erfitt yrði að slíta, nefnilega efnahagslegum böndum. Í fyrstu vildu ekki allir vera með. Það er ekki nema eðlilegt. En samstarfið hafði ekki varað í hálfan áratug þegar fyrst var bankað upp á, þó það tæki nokkuð lengri tíma að nokkrum væri hleypt inn. Stofnun Efnahagsbandalags- ins á sínum tíma var ábyggilega ein merkilegasta póitíska tilraun sem nokkurn tíma hefur verið gerð. Það er kannski enn merki- legra að núna meira en fimmtíu árum síðar vitum við ekki hvort hún tókst. Af hverju vitum við það ekki, spyr kannski einhver. Svarið er einfalt. Tilrauninni er ekki lokið. – Hingað til hefur hún þó heppnast betur en nokkur þorði að vona. Það þori ég að fullyrða. Við, Noregur og Liecht- enstein Einn kafli í tilrauninni var Evr- ópska efnahagssvæðið. Það var stutt í blóma, vegna þess að Berlínarmúrinn féll. Heims- myndin breyttist, kalda stríð- inu lauk. Þjóðir sem höfðu verið hlutlausar, Svíar og Austurrík- ismenn, gátu skyndilega verið í nánu félagi með nágrönnum sínum. Finnar voru því fegnast- ir að fá skjól, ef rússneski björn- inn skyldi nú ranka við sér á ný. Svisslendingar vildu ekki einu sinni vera í Sameinuðu þjóðun- um. Norðmenn þurfa á engum að halda því þeir eiga fullt af olíu, svo þeir sögðu nei. Þar með töldu íslenskir stjórnmálamenn sig ekki þurfa að hugsa um þetta meir. Eftir urðum við með Norð- mönnum og Liechtenstein í EES. Ekki EES að kenna EES-samningurinn hefur reynst okkur vel. Honum er ekki um að kenna að við erum á hausnum. Vissulega er það rétt að samn- ingurinn leyfði að bindiskylda bankanna yrði lækkuð. Vissu- lega er það rétt að ef bindiskylda íslensku bankanna hefði ekki verið lækkuð, þá hefði bindi- skylda þeirra verið hærri en ein- hverra annarra banka í Evrópu. Heimildarákvæði eru ekki dag- skipanir. Heimildarákvæði eru rammi um það sem má gera. Ef Seðlabankanum þótti óskynsam- legt að leyfa íslenskum bönkum að hafa jafn lága bindiskyldu og einhverjir aðrir bankar í öðrum löndum höfðu, þá átti hann ekki að lækka bindiskylduna. Það skiptir engu máli að hann mátti lækka hana skv. EES-reglum. Ef útivistartími barna er til klukkan tíu, þá þýðir það ekki að foreldrar verði að leyfa börnum að vera úti til klukkan tíu. Foreldrar þurfa ekki einu sinni að leyfa krökkum að fara út á kvöldin, ef þau halda að börnin fari sér að voða. Þetta er það sem ég á við þegar ég velti því fyrir mér hvort við kunnum ekki að vera frjáls. Velti því fyrir mér hvort við kjósum frekar boð og bönn en olnboga- og andrými. Hvernig viljum við hafa þetta: að það sé leyft sem ekki er bannað, eða að það sé bannað sem ekki er leyft. Ég vel fyrri leiðina og tel þess vegna brýnasta verk- efnið að koma okkur í Evrópu- sambandið. Höfundur er viðskiptafræðingur. UMRÆÐAN Finnur Sveinbjörnsson skrifar um nýju bank- ana Eru nýju bankarnir ekki að standa sig? Svo mætti stundum ætla af þeim ummælum sem heyrst hafa að undan- förnu, hvort heldur er frá aðilum atvinnulífsins eða stjórnmála. Það er ljóst að nýju bankanna bíður verulega krefjandi verkefni að reisa við fjármálakerfi lands- ins eftir að það hrundi með áður óþekktum hætti á einni viku í okt- óber. Það verður að hafa í huga að allir sem að þessari endurreisn koma eru að feta sig áfram, einnig erlendir sérfræðingar sem fengn- ir hafa verið til landsins. Þótt unnt sé að styðjast að einhverju leyti við reynslu af svipuðum atburð- um annars staðar, þá er umfang vandans og mikil erlend skuldsetn- ing heimila og fyrirtækja ólíkt því sem aðrar þjóðir hafa glímt við. Á þeim rétt rúmlega 100 dögum sem liðnir eru síðan Nýja Kaupþing var stofnað tel ég að okkur hafi tek- ist mjög vel til miðað við erfiðar aðstæður. Margt af því sem við í Nýja Kaupþingi höfum gert frá stofn- un bankans hefur gengið betur en við áttum von á. Til dæmis hefur ekki komið til neinna truflana á greiðslumiðlunarkerfinu hér inn- anlands, uppgjör sjóða í vörslu bankans hefur komið vel út og breyting á yfirstjórn bankans hefur gengið fumlaust fyrir sig. Annað hefur tekið lengri tíma. Til dæmis er gerð stofnefnahagsreikn- ings bankans ekki lokið og ríkið hefur ekki látið af hendi hluta- féð. Þetta þýðir meðal annars að nýju bankarnir vita ekki á hvaða kjörum þeir kaupa eignir af gömlu bönkunum eða hvaða vaxtakjör verða á skuldabréfi sem þeir borga þessar eignir með. Þetta þýðir að töluverð óvissa ríkir um verðlagn- ingu á þjónustu bankans. Útlán ekki réttur mælikvarði Stjórnmálamenn, viðskiptalíf og almenningur spyrja sig hvernig stendur á því að bankarnir veita ekki fleiri lán? Ástæðan er tvíþætt, a.m.k. hér í Kaupþingi. Annars vegar hefur eftirspurn eftir lánum dregist verulega saman, vegna þess að horfur í efnahagsmálum eru mjög óvissar, bæði hér heima fyrir og erlend- is. Til viðbótar kemur óvissa í stjórnmálum og átök milli ríkisstjórnar og seðlabankastjóra. Fyr- irtæki eru síður í stakk búin til að ráðast í frek- ari fjárfestingar þar sem veruleg óvissa er uppi um raunverulega skulda- stöðu margra þeirra þar sem gengi krónunnar er ekki enn tekið að fljóta og því veit enginn hvað raunverulegt gengi henn- ar er. Óvissa er einnig meiri en áður í hagkerfinu sem gerir allar framtíðaráætlanir torveldari. Og alþekkt er að á óvissutímum halda heimili að sér höndum, fresta útgjöldum, greiða niður skuldir og safna innlánum. Hin ástæðan er sú að framboð af lánsfé í bankakerf- inu hefur dregist verulega saman. Ísland fór frá því á innan við ári að vera með besta mögulega láns- hæfismat frá Moody’s í það að vera með eitt lægsta lánshæfismatið í Evrópu. Þótt það dragi úr fram- boði lánsfjár alls staðar í heimin- um munu áhrifin verða meiri hér en annars staðar. Aukning útlána er því ekki réttur mælikvarði á árangur banka í dag, heldur er sá vandi sem við eigum við að etja miklu frekar afleiðing af of auð- veldu aðgengi að lánsfé á fyrri árum. Það sem við hjá Kaupþingi teljum réttan mælikvarða á árang- ur okkar er hvernig okkur tekst að hjálpa fyrirtækjum og heimilum að laga sig að breyttum aðstæð- um. Gagnsæi í fyrirrúmi Kaupþing afgreiðir daglega tugi beiðna frá einstaklingum og fyr- irtækjum um greiðsluaðlögun. Sú vinna hefur gengið vel. Því til viðbótar veitir bankinn töluvert af nýjum lánum enn, þótt eins og gefi að skilja sé megináhersl- an um þessir mundir að gera við- skiptavinum okkur kleift að greiða niður lán. Bankinn hefur kynnt ýmsar nýjungar að undanförnu til að styðja við bakið á heimilunum. Má þar nefna fjármálaráðgjöf á netinu sem felst í stöðumati, heim- ilisbókhaldi, netdreifingu og við- tölum við þjónusturáðgjafa. Nú þegar hafa þúsundir viðskiptavina okkar nýtt sér þessa nýju þjónustu. Þessu til viðbótar tilkynntum við nýverið um aðgerðir til að liðka um fyrir fasteignamarkaðinum. Ann- ars vegar hefur félögum í Vexti, sem er samþætt fjármálaþjónusta, verið heimiluð yfirtaka áhvílandi fasteignalána bankans á upphaf- legum vöxtum við kaup, ef þeir standast greiðslumat. Hins vegar hefur verið veittur tímabundinn helmingsafsláttur á uppgreiðslu- gjöldum íbúðalána bankans. Í tilfelli fyrirtækja,vinnur bank- inn hörðum höndum við að aðstoða þá viðskiptavini sem eiga í tíma- bundnum rekstrarerfiðleikum og gengur það starf vel. Til að auka á gagnsæi hefur bankinn birt verka- lagsreglur um úrlausn á útlána- vanda fyrirtækja á netinu og stjórn bankans hefur ráðið umboðsmann viðskiptavina til að tryggja jafn- ræði og gagnsæi í hvívetna. Í þeim tilfellum þegar bankinn þarf að leysa til sín stærri eignir verður það gert í tveimur aðskildum eign- arhaldsfélögum. Stærri fasteignir í útleigu verða í fasteignafélaginu Landfestum en fyrirtæki í eignar- haldsfélaginu Eignaseli. Bankan- um hefur tekist að fá til liðs við sig hóp af reynslumiklu en óháðu fólki til að taka að sér stjórnarsetu í þessum félögum og tryggja þannig fagleg vinnubrögð og ákveðna fjar- lægð frá bankanum. Það eru rétt rúmir 100 dagar liðnir síðan að sá einstæði atburð- ur í veraldarsögunni átti sér stað hér á landi að fjármálakerfi heils lands hrundi á einni viku. Hverjar sem nákvæmar ástæður hrunsins voru er ljóst að mikið ójafnvægi hafði byggst upp í íslenska fjár- málakerfinu. Þegar menn meta störf nýju bankanna er ekki rétt að bera þá saman við hvernig hlutirn- ir gengu fyrir sig á veisluárunum í gömlu bönkunum. Lausn á of mik- illi skuldsetningu er ekki aukn- ing útlána. Mikilvægasta verkefni bankanna, stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins er að stuðla að stöðugleika á Íslandi svo við vinn- um bug á verðbólgunni, vextir lækki og gengi krónunnar styrk- ist. Þannig eflum við hag heimila og fyrirtækja. Höfundur er bankastjóri Nýja Kaupþings banka. Verk að vinna VALGERÐUR BJARNADÓTTIR FINNUR SVEINBJÖRNSSON Evrópa er brýn- asta verkefnið Blaðberinn bíður þín Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 8-17. óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn... Þegar menn meta störf nýju bankanna er ekki rétt að bera þá saman við hvernig hlutirnir gengu fyrir sig á veisluárunum í gömlu bönkunum. Fjármálanámskeið á vegum Íslandsbanka og Opna háskólans í Háskólanum í Reykjavík Undanfarið hafa margir viðskiptavinir Íslandsbanka lýst þeirri skoðun sinni að bankinn eigi að bjóða upp á fjármálafræðslu fyrir almenning. Þess vegna býður Íslandsbanki nú upp á fjármálanámskeið í samstarfi við Opna háskólann í Háskólanum í Reykjavík. Leiðbeinandi verður Þór Clausen, M.Sc. í fjármálum, ásamt ráðgjöfum frá Íslandsbanka. Markmið námskeiðsins er að veita ráðleggingar um flest sem snýr að fjármálum fjölskyldunnar. Þátttakendur verða fræddir um sparnað, lán, efnahagsreikning heimilisins, heimilisbókhald, fjárfestingar, lífeyrissparnað og margt fleira. Námskeiðin fara fram í Opna háskólanum í Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2, og eru öllum opin. Hvert námskeið stendur í 3 klst. og þátttökukostnaður er 1.000 kr. eða 1.000 punktar í Vildarklúbbi Íslandsbanka. Nánari upplýsingar á islandsbanki.is/fjarmalanamskeid Námskeiðin verða: • Laugardaginn 28. febrúar Kl. 10.00–13.00 • Miðvikudaginn 4. mars Kl. 17.15–20.15 • Laugardaginn 7. mars Kl. 10.00–13.00 • Miðvikudaginn 11. mars Kl. 17.15–20.15 • Laugardaginn 14. mars Kl. 10.00–13.00 Skráning á www.opnihaskolinn.is eða í síma 599 6394.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.