Fréttablaðið - 21.02.2009, Blaðsíða 36
I BLS. 2 + Bókaðu á www.icelandair.is
Flug til Minneapolis gefur
4.000–12.800 Vildarpunkta.
Vildarklúbbur
Land hinna
himinbláu vatna
Minnesota er svo sannarlega
eftirsóknarverður staður fyrir þá sem
langar til að ferðast um á bílaleigubíl.
Ríkið er víðlent og landshættir fjöl-
breytilegir en mestan svip á landið
setja þó stöðuvötnin sem sögð eru
vera 11.842 ef allt er talið.
Í Minnesota gefst kjörið tækifæri til að
kynnast þeirri hlið á Bandaríkjunum
sem sjaldnast ber mikið á í kvikmynd-
um eða æsifrásögnum fjölmiðla. Þar
má ferðast um skógi vaxnar óbyggðir
og grónar sveitir, heimsækja hlýlega
smábæi, njóta veðursældar og stytta
sér stundir við hvers konar leiki og
íþróttir á vötnum eða landi á heillandi
útivistarsvæðum.
MINNEAPOLIS
BA
Reykjavík –
Minneapolis
frá 29.720 kr.
Flug aðra leiðina með flugvallar-
sköttum. Flogið er allt að
6 sinnum í viku.
Valleyfair
Þetta er vinsælasti skemmti-
garðurinn í Minnesota. Ég bjó í
Minneapolis-St. Paul þar til ég var
fimm ára og hef farið í heimsókn
þangað flest sumur eftir það. Ég
reyni alltaf að komast í Valleyfair
þegar ég er þar. Þar er mikið úrval af
leiktækjum, t.d. rússíbanar, fallturn,
klessubílar, stórar rólur og tæki fyrir
þau yngstu. Síðan eru nokkrir
veitingastaðir og einnig er hægt að
sjá skemmtiatriði. Í lokin er sniðugt
að kæla sig niður í vatnsrennibrauta-
garðinum.
Linden Hills
Mjög skemmtilegt hverfi. Aðeins
lengra frá er Lake Harriet. Umhverfis
vatnið er göngustígur þar sem
frábært er að fara á línuskauta sem
hægt er að leigja þar og einnig er
hægt að leigja sér bát. Á sumrin eru
líka oft tónleikar við vatnið. Wild
Rumpus er skemmtileg bókabúð
sem ég fór oft í þegar ég var lítill en
þar eru allskonar dýr á rölti sem
koma manni stundum á óvart.
Science Museum
Vísindasafnið er meira fyrir eldri
krakkana. Margt hægt að sjá og
læra þar.
Sebastian Joe’s
Uppáhalds ísstaðurinn minn. Það er
ekkert betra en að fara þangað og
fá sér „raspberry chocolate chip“ á
heitum sumardegi. Sebastian Joe's
er í Linden Hills og líka annars
staðar í borginni.
Mall of America
Stærsta verslunarmiðstöðin í
Ameríku. Fyrir þá sem elska að
versla er ekki hægt að sleppa því að
fara þangað. Þar er einnig skemmti-
garður með rússíbönum og öllum
pakkanum.
Como Zoo
Frábær dýragarður fyrir yngri
krakkana sem hefur mikið upp á að
bjóða, t.d. selinn Sparky sem er
uppáhaldsstjarnan í vinsælasta atriði
dýragarðsins. Como Zoo er á stóru
svæði og þarna er einnig er tívolí og
mini-golf sem er líka mjög vinsælt
meðal gesta.
Minnesota
Children’s Museum
Skemmtilegt safn fyrir litlu krakkana.
Ég fór þangað oft þegar ég var lítill.
Mikið af skemmtilegum hlutum og
alls konar fjöri.
Sérmerktar ökuleiðir
Scenic Byways
Í Minnesota hafa verið sérmerktar 22
ökuleiðir fyrir ferðamenn sem hafa
hug á að kynnast landinu betur,
íbúunum, mannlífinu og ekki síst
náttúrufegurð og útivistarmöguleikum
fjarri hraðbrautum og umferðardyn.
Leiðirnar heita hver sínu nafni og
spanna um 4.500 km. Hin stysta
þeirra er aðeins um 14 km og hin
lengsta, Mississippi River Route, er
um 900 km. Sérhver ökuleið hefur sín
auðkenni, hvort sem þar er um
sérkenni náttúrunnar að ræða,
sérstakt andrúmsloft í þorpum og
bæjum eða sérstaka menningar-
arfleifð. Hægt er að fá bækling um
hverja leið með korti af leiðinni, helstu
upplýsingar um það sem fyrir augu
ber og ábendingar um heppilega
næturstaði og veitingastaði. Prófið
eitthvað nýtt og kynnið ykkur málið á
www.exploreminnesota.com/experien
ces/byways/drives.aspx
Miðvötnin
– Central Lakes
Norður og vestur af „Tvíburaborg-
unum“ Minneapolis-St.Paul er
landsvæði með aragrúa stöðuvatna
sem oft er kallað „Miðvötnin“ eða „the
Central Lakes“. Þetta eru vinsælar
ferðamanna- og útivistarslóðir með
fjölmörgum gistimöguleikum, hvort
sem fólk vill sofa í tjaldi, hjólhýsi,
sumarhúsi eða á hóteli. Heimamenn
hafa mikinn áhuga á að róa um vötnin
eða renna fyrir fisk en margt annað er
í boði. Þarna eru víða skemmtilegir
göngu- og hjólreiðastígar, golfvellir,
söfn, leiktækjagarðar o.fl. Þetta er því
kjörlendi fyrir fólk sem vill fara í útilegu
og njóta þess að leika sér úti í
náttúrunni.
Til Íslendingabyggða
í Kanada
Frá Minneapolis er um átta stunda
akstur að kanadísku landamærunum
og þá er ekki svo ýkja langt að fara á
slóðir Vestur-Íslendinga við Winnipeg-
vatn. Fyrir þá sem hafa hug á að
heimsækja slóðir Vestur-Íslendinga í
Suður-Kanada getur því verið
álitlegur kostur að taka beint flug til
Minneapolis og bílaleigubílinn þaðan.
Golf í Minnesota
Golf nýtur mikilla vinsælda í Minne-
sota. Þar eru um 450 golfvellir. Það er
því freistandi fyrir golfara að taka með
sér kylfurnar þegar haldið er til
Minneapolis-St. Paul. Þar má í grennd-
inni víða leika golf á afbragðsvöllum
og heita má að golfvöllur sé innan
seilingar hvar sem er í ríkinu.
Willmar
Willmar er líflegur bær
þar sem er t.d. sérstakt listasafn,
The Buffalo Fish Gallery með
verkum eftir listamenn úr sveitinni.
Áhugamenn um traktora og bíla geta
litið inn á Schwanke-safnið. Í norður
frá Willmar liggur sérmerkt ökuleið,
„The Glacial Ridge Trail“, og þræðir
á milli hálsa og vatna til bæjarins
Alexandria.
Fyrsti bærinn meðfram þessari
sérmerktu leið er Spicer á strönd
Green Lake. Milli Spicer og New
London er 27 holu golfvöllur hjá Little
Crow Country Club. Fyrir þá sem
langar til að hjóla má nefna að á milli
New London, Spicer og Willmar
liggur um 20 km langur hjólastígur.
Á sumrin stendur fólki til boða að
snæða kvöldverð á meðan siglt er
um Green Lake um borð í Spicer
Castle Belle.
Elk River
Suðaustur af St. Cloud er Elk River,
í norðvesturjaðrinum á höfuðborgar-
svæðinu. Hér er t.d. Oliver Kelley
Farm, landbúnaðarsafn á sveitabýli
sem er enn í fullum rekstri. Þar fá
gestir að kynnast búnaðarháttum eins
og þeir voru á þessum slóðum fyrir
einni og hálfri öld. Milli Elk River og
St. Cloud er friðlandið Sherburne
National Wildlife Refuge, paradís
fyrir fuglaskoðara.
M
ÍN
Fyrir börn og foreldra
FLUG
OG BÍLL
Vegir til allra átta
Við mælum eindregið
með flugi og bíl í
samstarfi við Hertz til áfangastaða
Icelandair í Evrópu, Bandaríkjunum
og Kanada. Pantið bílaleigubíl um
leið og þið gangið frá pöntun á
flugfari á www.icelandair.is
Bíllinn bíður síðan eftir ykkur þegar
þið lendið á áfangastað.
Gunnar Francis,
grunnskólanemi
Green Mill
Rosalega góður veitingastaður.
Mæli eindregið með ,,Deep dish“
pizzunum þeirra. Staðurinn er á
mörgum stöðum í borginni.
Minnesota Twins
Aðal hafnaboltaliðið í Minnesota.
Þeir eru að opna nýjan heimavöll
sem er ekki yfirbyggður. Það er
alltaf mikill atgangur í stuðnings-
mönnum á leikjunum. Ég fór á einn
leik í fyrra og ég skemmti mér
rosavel.
Flug og gisting
í 3 nætur
frá 63.900 kr.
á mann í tvíbýli á Holiday Inn
Bloomington Mall of America ***
Innifalið: Flug báðar leiðir,
flugvallarskattar og gisting.
Grand Avenue
„Laugavegurinn“ í Minneapolis-St.
Paul. Mikið af búðum og kaffi-
húsum. Veitingastaðurinn/kaffihúsið
Café Latte er mjög flottur staður og
líka mjög vinsæll. Þeir selja frábærar
samlokur og ótrúlegar kökur ásamt
mörgu öðru. Síðan er það Creative
Kids dótabúðin; frábært úrval af
sniðugum leikföngum.