Fréttablaðið - 21.02.2009, Side 38

Fréttablaðið - 21.02.2009, Side 38
ÞAÐ HEITASTA Í ... HÓTELUM, VEITINGASTÖÐUM, GRÆJUM, BÚÐUM, MÖRKUÐUM OG FERÐANÝJUNGUMMIÐBAUGUR ferðalög kemur út mánaðarlega með laugardagsblaði Fréttablaðsins. Ritstjóri Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is Útlit Silja Ástþórsdóttir Forsíðumynd Búddamunkur í Bútan Pennar Viktor Sveinsson Ljósmyndir Fréttablaðið, Getty Images Auglýsingar Benedikt Freyr Jóhannson Benediktj@365.is É g er á leið til Bútan. Það eru ekki margar leiðir sem liggja þang- að því enn er þetta ríki, sem liggur klemmt á milli stórveld- anna tveggja, Kína í norðri og Indlands í suðri, eitt það einangraðasta í heimi. Ég flýg frá heimalandi mínu Taílandi þar sem ríkisflugfélag Bútan, Druk Air, hefur lent annarri af tveimur flugvélum sínum til að sækja mig, nokkra Bútana og Bangladessa. Ég uppgötva þegar ég innrita mig að é g hef aldrei áður hitt Bútana. Ætli þeir sé u ekki vandfundnari en Íslendingar? Ég he f svo lengi beðið þess að komast til Bútan a ð ég er ögn uppnuminn, líkt og að hitta popp - stjörnu. Áberandi myndarlegur og kar l- mannlegur stöðvarstjórinn er mættur til a ð fylgjast með því að innritun gangi rétt fyri r sig. Minn fyrsti Bútani. Smjörþefur af kar l- mennsku Bútans. Beinvaxinn, dökkleitu r, sterklegur og með friðsæld Himalajafjal la í augunum. Seinna á ég eftir að hitta munk a og bændur sem eru myndrænni en heim s- fræg módel og kvikmyndastjörnur. Hverjir eru skyldleikarnir við Ísland? Í Bútan, þessu síðasta konungsríki Him a- lajafjalla, eru samkvæmt opinberum up p- lýsingum, um 600.000 þegnar en til flug - vélaflotans teljast tvær flugvélar sem Þetta litla ríki í Himalaja- fjöllunum hefur verið kallað Konungsríki þrumudrekans. Viktor Sveinsson segir frá ferðalagi sínu til þessa afskekkta lands. AÐ ANDA AÐ SÉR BÚTAN FRAMHALD Á BLS. 4 [ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ] ferðalög FEBRÚAR 2009 Vistvænn lúxus Glænýtt heilsulindarhótel á partí - eyjunni Ibiza BLS 2 Í tilefni af tískuviku Þrennt sem þú verður að gera í París BLS 6 2 FERÐALÖG S pænska partíeyjan Ibiza er kannski ekki þekkt fyrir heilsu og heilnæman lifnað. Hinn fyrsta mars næstkom- andi opnar þar hins vegar himneskt hótel og heilsulind er nefnist Aguas de Ibiza Lifestyle & Spa. Það er hannað af arkitektum frá Barcelona sem kalla sig Triade Studio en þeir hafa skapað vel heppnaða blöndu af hefðbundnu spænsku hefðarsetri og nýtískulegu hóteli. Aguas de Ibiza er einnig eitt af hinum svoköll- uðu „eco-luxury“ hótelum, sem þýðir vistvænn lúxus en hótelið notar 35 pró- sent minni orku en hefðbundin hótel. Á þaki hótelsins er stórfengleg sundlaug með útsýni yfir hafið en þar er einn- ig hægt að gæða sér á kokkteilum og tapas, en stærri máltíðir má nálgast á veitingastaðnum Le Sal þar sem hefð- bundnir spænskir réttir eru framreiddir á nútímalegan máta. Rúsínan í pylsuend- anum er svo hin glæsilega heilsulind sem er tileinkuð heilnæmum áhrifum sjávar- ins. Þar er notast við leir frá Formentera, sjávarsölt, náttúrulegar olíur og þara til þess að veita líkamanum aukna orku og bæta almenna líðan og útlit. - amb Aguas de Ibiza, Salvador Camacho no9, Ibiza, Spánn. www.designhotels.com/aguasdeibiza HEILNÆMUR HAFSJÓR Ný heilsulind á eyjunni Ibiza frá hótelkeðjunni Design Hotels opnar nú í marsmánuði. Það er alltaf gaman þegar nýir áfangastaðir bæt- ast í hóp þeirra sem flogið er til frá litla Íslandi. Nú í sumar hefur Iceland Express flug til Bologna á Ítalíu, Kraká í Póllandi, Genf í Sviss og Álaborgar í Danmörku. Allar eru borgirnar sérlega skemmti- legar og eiga það einnig sameiginlegt að vera ein- staklega vel í sveit settar og tengdar fyrir þá sem vilja halda áfram ferð sinni. Álaborg er ein af þess- um dásamlegu dönsku borgum þar sem ríkir ró og spekt og veðursæld. Kraká er þekkt fyrir einstaka fegurð en þar er að finna stórfenglegar miðalda- byggingar sem sluppu undan sprengjuregni seinni heimstyrjaldarinnar. Bologna er vel staðsett mið- svæðis á Ítalíu og er einstök menningarborg. Þess má einnig geta að matargerð Bolognabúa er heims- fræg og hver þekkir ekki réttinn klassíska Spag- hetti Bolognese. Genf er fögur svissnesk borg rétt hjá Ítölsku ölpunum. Það er skemmtilegt að ferð- ast yfir Genfarvatn til þess að komast á milli borg- arhluta en Genf er einnig sérlega skemmtileg verslunarborg þar sem hægt er að finna öll helstu alþjóðlegu tískumerkin ásamt svissneskum úra- og súkkulaðiverslunum að sjálfsögðu. Það er um að gera að stökkva yfir á meginlandið í sumar og skoða alla þá spennandi möguleika sem þar eru í boði. www.icelandexpress.is NÝIR ÁFANGASTAÐIR Í EVRÓPU Svissnesk heimsborg Genf er sérlega falleg og býður upp á skemmtilegar verslanir. F lest okkar ferðast með þá skammtímahug- sjón að skemmta sér, borða góðan mat, sleikja sólina og njóta lífsins. Minnistæð- ustu ferðalög margra eru þó af öðrum toga, ferðalög til fjarlægra staða þar sem fólk lifir í sárri veraldlegri fátækt en býr að ríkulegri andlegri fæðu. Viss vakning virðist vera um þessar mundir um að leita meira inn á við, margir eru að uppgötva jóga, hugleiðslu og andlega rækt í stað þess veraldlega kapphlaups sem hefur ásótt okkur Íslendinga sem aðra undanfarin ár. En hvað er það sem gerir einn áfangastað ríkari fyrir andann en einhvern annan? Stórbrotin náttúra hlýtur alltaf að tengja manninn við það sem er stærra en hann en svo getur líka vel verið að ákveðnir punktar á jarðkringlunni búi yfir ákveðnum kynngimögnuðum krafti. Margir slíkir staðir koma upp í hugann: Egyptaland, Macchu Picc- hu í Perú, Navajo-hérað í Arizona, Vatíkanið í Róm, Góa á Indlandi, Jerúsalemborg og Mekka í Sádi- Arabíu sem dæmi. Einn frægasti „andlegi áfanga- staðurinn“ er væntanlega Himalajafjöllin í löndum eins og Tíbet, Bútan, Nepal og Indlandi. Þar finn- ast fjölmargir helgistaðir búddista, klaustur, hell- ar og bæir. Í Ferðalögum marsmánaðar segir Elín Kjartansdóttir okkur frá „Litlu-Tíbet“ sem er hérað á Norður-Indlandi þar sem margir búddamunkar hafa sest að af því að Kínverjar hafa flæmt þá burt frá föðurlandinu. Dalaí Lama sjálfur býr á þessum slóðum, í borginni Daramsalah. „Það minnistæð- asta sem ég upplifði í ferðinni var að kynnast þessu yndislega, friðsæla fólki sem býr þarna í fjöllunum við ótrúlega kröpp kjör. Hús eru nánast óeinangr- uð, rennandi vatn og rafmagn hvergi að finna og á veturna er frost allt að 50 stig með miklu fannfergi sem lokar fólk inni í afskekktum fjallahéruðum svo mánuðum skiptir,“ segir Elín um héraðið og tekur fram að hlýjan og gæðin hafi skinið úr veðurbörn- um andlitum heimamanna. Það er okkur öllum hollt að ferðast á áfangastaði þar sem fólk býr við verald- lega kröpp kjör, jafnvel þó það sé til þess eins að við skiljum hversu gott við höfum það í raun og veru. Og þegar slíkt fólk lifir í sátt við sjálft sig, guð og alheiminn er það líka góð áminning fyrir okkur að líta inn í okkar eigin hjörtu þar sem hina raunveru- legu lífshamingju er að finna. Anna Margrét Björnsson skrifar AÐ NÆRA ANDANN ÍS L E N S K A SI A. IS FL U 44 84 4 01 .2 00 9 1 kr. aðra leiðina + 990 kr. (flugvallarskattur) Aðeins 1 króna fyrir börnin www.flugfelag.is | 570 3030 Gildir til 15. mars – bókaðu á www.flugfelag.is Glæsileg heilsulind Leir, sjávarsalt og þari. Himneskt hótel Öll herbergi eru með stórum gluggum og svölum með útsýni yfir miðjarðarhafið.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.