Fréttablaðið - 21.02.2009, Page 42

Fréttablaðið - 21.02.2009, Page 42
 HEIMILISHALD HREFNA SIGURJÓNSDÓTTIR ● Forsíðumynd: Gunnar V. Andrésson tók mynd á veitingastaðnum Dill í Norræna Húsinu Útgáfufélag: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, s. 512 5000 Ritstjórar: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is Auglýsingar: Hlynur Þór Steingrímsson s. 512 5439 Útlitshönnuður: Kristín Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is. heimili&hönnun LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2009 ÍSLENSKT Í EPAL Húsgagna- og innanhúss- hönnuðurinn Pétur B. Lúthersson sýnir bæði ný og eldri verk í verslun- inni Epal í Skeifunni 6. BLS. 7 ÁST OG UMHYGGJA Nokkrar skemmti- legar hugmyndir að gjöfum sem hitta beint í hjartastað á konudaginn. BLS. 6 DULÚÐUGT DILL Í Norræna húsinu hefur verið opnaður nýr veitingastaður BLS. 4 KæliskápaTILBOÐ Fermingartilboð 2009 Sjá nánar á www.betrabak.is ● heimili&hönnun Stofnun Hönnunarsjóðs Auroru markar tímamót í hönnun á Ís- landi því þetta er í fyrsta sinn sem stofnaður er hér sérstakur sjóður sem styrkir hönnuði. „Aur- ora velgerðarsjóðurinn hefur verið til frá árinu 2007 en 13. febrúar, veitti sjóðurinn 25 milljónum til þriggja ára í Hönnunarsjóð Aur- oru á Íslandi,“ segir Hlín Helga Guðlaugsdóttir, vöruhönnuður og framkvæmdastjóri Hönnunarsjóðs Auroru. Markmið sjóðsins er að styrkja íslenska hönnuði til að koma sjálf- um sér, hugmyndum sínum, vörum og verkefnum á framfæri innan- lands sem utan, og aðstoða við vöruþróun. „Við veitum einnig faglega ráðgjöf og er verkefnið tilraunaverkefni til þriggja ára. Sjóðurinn er opinn öllum fag- menntuðum hönnuðum og tekið er á móti umsóknum allt árið og úthlutað nokkrum sinnum á ári. Sjóðurinn verður því sveigjanleg- ur og getur brugðist skjótt við ef verkefnin kalla á það,“ segir Hlín Helga og bendir á heimasíðu sjóðs- ins, honnunarsjodur.is. Í rökstuðningi stjórnar Auroru segir meðal annars að þörf sé á sérstökum hönnunarsjóði á Íslandi til að styðja við efnilega hönnuði en ekki síður til að efla grasrótar- starf í hönnun og vera vettvang- ur hugmynda og skapandi hugsun- ar í greininni. „Vonir standa til að sjóðurinn renni enn faglegri stoð- um undir greinina. Stjórn Auroru vonar að nýi sjóðurinn stuðli að því að íslensk hönnun verði ein af stoðunum sem skotið verði undir atvinnulífið við endurreisn þess,“ segir Hlín Helga og bætir við að ekki sé síst mikilvægt að koma á fót sjóði sem þessum nú. „Sköp- unarkraftur og frjó hugsun hafa blómstrað nú á erfiðari tímum og hönnuðir sjá ýmis tækifæri til að leggja sitt af mörkum í endurreisn- arstarfinu. Sjóðurinn mun vonandi auðvelda það starf,“ segir hún. - hs Tímamót í hönnun á Íslandi ● Hönnunarsjóður Auroru er fyrsti íslenski sjóðurinn sem styrkir hönnuði og markar stofn- un hans því tímamót. Hann tengist velgerðarsjóðnum Auroru sem stofnaður var árið 2007. G óa er á næsta leiti, fimmti mánuður ársins samkvæmt nor- ræna tímatalinu. Mikilvægara er þó að muna að fyrsti dagur Góu er konudagurinn. KONUDAGURINN ER Á MORGUN! Ástæðan fyrir stóru stöfunum og upphrópunarmerkinu er sú að margir herramenn eiga það til að gleyma konudeginum og sama hvað sumar konur segja þá er það svekkjandi. Fyrir utan afmælisdaga þá er þetta eini dagur ársins sem muna þarf eftir. Merkilegt er þó hve erfitt er að festa sér daginn í minni. Hér eru nokkur ráð til þess. 1. Fáið ykkur dagbók. Oftar en ekki er búið að merkja inn daginn fyrirfram en til öryggis má strika undir eða skrifa sjálfur inn. Hugs- anlega væri hægt að líma inn mynd af flottum bíl, feitum fiski eða öðru því sem hugur karlangans þráir til að vekja upp áhuga. 2. Setjið daginn í skipuleggjarann í símanum svo hann pípi á konu- daginn. Einnig má setja nýja hringingu í símann sem hljómar einhvern veginn eins og jóla jóla-tónninn nema í staðinn er sungið kona, kona, kona! Ef þið eruð lítt gefnir fyrir þá tækni má biðja mömmu að hringja í sig. Verið samt ekkert að segja frá því. 3. Oft er það svo að þrátt fyrir að menn hafi jafnvel munað eftir konudeginum allt árið þá vill minnið bregðast þegar dagur upp rennur. Ef dag- urinn stendur ykkur ljóslifandi fyrir hugskots- sjónum í dag setjið þá hluti á undarlega staði til að minna ykkur á að á morgun þurf- ið þið að gera eitthvað sérstakt. Til dæmis má setja skóna á náttborðið, svitalyktareyðinn í rassvasann, líma dömubindi á peningaveskið og fleira. Fyrir þá allra gleymnustu er hægt að tússa „konudagur“ á ennið á sér. Ef ykkur láist að líta í spegil þá mun örugglega einhver minna ykkur á það. Ekki er nóg að muna eftir hinum mæta konudegi heldur þarf líka að skipuleggja eitt- hvað huggulegt fyrir sína heittelskuðu eða gefa henni fallega gjöf. Í guðanna bænum ekki keyra með konuna í næstu búð og segja eitthvað á þessa leið: „Jæja, viltu ekki fara inn og kaupa buxurnar sem þig vantaði?“ Sýnið smá rómantíska tilburði og leggið ykkur fram við að sýna vilj- ann í verki. Þar sem konur eru jafn ólíkar og þær eru margar þá legg ég í ykkar hendur að komast að því hvað hentar best. Lesbísku pörin verða vonandi ekki í vandræðum þar sem þær eiga báðar daginn góða og spennan því meiri þar á bæ. Mikil- vægast er að njóta dagsins saman. Ég meina, einn dagur á ári! Minni kvenna og karla Til dæmis má setja skóna á náttborðið, svitalyktareyðinn í rassvasann, líma dömubindi á peningaveskið og fleira. Hlín Helga Guðlaugsdóttir, framkvæmdastjóri Hönnunar- sjóðs Auroru, við kynningu á sjóðnum í B5 í Bankastræti. FR ÉT TA BL A Ð IÐ /S TE FÁ N ● SKÚLPTÚRAR FRANK PLANTS Frank Plant er bandarískur myndhöggvari sem býr og starfar í Barcelona. Hann hóf að vinna með stál árið 1993, í raun má segja að hann teikni með stáli. Hann flutti til Barcelona árið 1999 og fór að nota fjölbreyti- legri efni í verk sín, ljósmyndir, mótora, hljóð og tónlist. Verið hjartanlega velkomin á Gullfoss café Gullfoss Café er hlýr og heimilislegur veitingastaður í aðeins nokkra skrefa fjarlægð frá hinum kyngimagnaða fossi Gullfoss, um það bil 120 km fjarlægð frá Reykjavík. Opið er frá kl. 9 til 6 alla daga, allt árið í kring. Við bjóðum upp á ekta íslenska kjötsúpu, samlokur, heimabakaðar kökur, frábæra espresso kaffi drykki og frískandi salat. Gullfoss café er einnig með minjagripaverslun með gott úrval af ullarvörum, hágæða útivistarklæðnað frá Cintamani og 66°N og íslenskt handverk. Ekta íslenskur matur í íslenskri náttúru Gullfoss CAFÉ 8 0 1 B l á s k ó g a b y g g ð · T e l : ( + 3 5 4 ) 4 8 6 6 5 0 0 · M o b i l e : ( + 3 5 4 ) 8 9 9 3 0 1 4 · w w w . g u l l f o s s . i s · g u l l f o s s @ g u l l f o s s . i s ei ttN - a ug lý si ng as to fa 21. FEBRÚAR 2009 LAUGARDAGUR2
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.