Fréttablaðið - 21.02.2009, Síða 45
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Við erum fimm í hljómsveitinni og
erum allir annaðhvort nemar í verk-
fræði eða nýbúnir að klára verk-
fræðina,“ segir Darri Freyr Helga-
son, verkfræðinemi og trommari,
sem spilaði ásamt hljómsveit sinni
Whatever á rokkabillí- og svingballi
á Oliver í gærkvöldi.
„Við byrjuðum sem lítið skemmti-
atriði á árshátíð verkfræðinema
fyrir tveimur árum,“ segir Darri
en hljómsveitin hefur troðið upp
nokkrum sinnum síðan. „Við spil-
uðum á kvennakvöldi Fram í fyrra,
á árshátíð læknanema, á halloween-
balli á English Pub og á útihátíð-
inni Hallgeirsey sem er útihátíð sem
verkfræðinemar standa fyrir,“ segir
Darri og lýsir Whatever sem týpísku
ballbandi sem spili tónlist eftir aðra,
allt frá Elvis Presley til Rage aga-
inst the Machine. „Svo eru íslensk
lög í bland eins og Stuðmenn sem
við spilum mikið,“ segir Darri.
En hvernig vaknaði hugmyndin
um rokkabillíball?
„Söngvarinn okkar var í háskóla-
dansinum og vinkona okkar og vinur
voru bæði að kenna þar. Þess vegna
datt okkur í hug að tengja þetta eitt-
hvað saman og úr varð hugmyndin
um rokkabillí- og svingball,“ segir
Darri sem sjálfur kann vel að meta
rokkabillítónlist. Darri telur að hik-
laust verði stefnt að fleiri slíkum
böllum. „Dansararnir eru mjög
hrifnir af þessari hugmynd og ég
hef heyrt marga tala um að það
vanti svona böll,“ segir Darri sem
mun afgreiða á barnum á English
Pub í kvöld þar sem kunningjar
hans í Tríó munu spila en þeir eru
þrír af meðlimum hljómsveitarinnar
Árstíðirnar. Hann segir starf bar-
þjónsins ótrúlega líflegt en hann
hefur starfað við það í mörg ár með
námi.
Darri stefnir á að klára verkfræð-
ina í vor og því nóg að læra. Hann
gefur sér þó yfirleitt frí eftir skóla
á föstudögum og á laugardögum en
sunnudagurinn er tileinkaður lær-
dómi enda næg verkefni sem bíða
úrlausna. solveig@frettabladid.is
Trommaði fyrir dansi á
rokkabillí- og svingballi
Darri Freyr Helgason, verkfræðinemi og trommari í hljómsveitinni Whatever, verður upptekinn um helg-
ina. Fyrir utan að spila á rokkabillíballi á Oliver í gær afgreiðir hann á bar og lærir heima.
Darri Freyr Helgason, verkfræðinemi og trommari verkfræðihljómsveitarinnar Whatever. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÖSKUPOKAR og bolluvendir verða viðfangsefnin á fjöl-
skyldunámskeiði sem Gerðuberg býður upp á í samstarfi
við Heimilisiðnaðarfélag Íslands á morgun frá klukkan 14
til 16. Aðgangur er ókeypis og allt efni er á staðnum.
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
Mallorca
EINN
AF RAFTÆKJUM
SEM ÞÚ MÁTT EKKI MISSA AF!
30% afsláttur af öllum Nettoline
innréttingum í 3 vikur
OPIÐ
www.friform.is
Auglýsingasími
– Mest lesið