Fréttablaðið - 21.02.2009, Síða 64
● heimili&hönnun
SILFUR Í NÝJU LJÓSI Hönnunarkeppnin Beyond Silver, sem er haldin á vegum vöruhönn-
unarvefsíðunnar designboom.com, fór nýverið fram en 3.566 hönnuðir frá 89 löndum tóku þátt.
Eins og nafnið gefur til kynna er þátttakendum ætlað að ganga skrefinu lengra í silfursmíði og
bar bandaríski hönnuðurinn Heather Bayless sigur úr býtum með sínum sveppalaga krydd-
staukum. Þegar sveppirnir eru hristir fellur kryddið, sem er í höttunum, til jarðar eins og
sveppagró. Caroline Pipos og Jonathan Krawczuk frá Bretlandi buðu upp á öllu hefðbundnari
kryddbauka en þó með nýstárlegu ívafi enda skreyttir ósviknum silfurkórónum.
Hver dropi
skiptir máli
S úpuskálin Every drop counts, eða Hver dropi skiptir máli, var
hluti af mastersverkefni listakonunn-
ar Aydu Anlagan.
Súpuskálarnar eru margvíslegar
en allar með sama lagi. Botn þeirra
hallar örlítið þannig að súpan safn-
ast meira fyrir öðrum megin. Á botni
skálanna er annaðhvort texti eða
mynd og er ætlunin að fá fólk til að
klára af diskum sínum enda sést ekki
lokaorðið eða öll myndin nema allt
sé farið af diskinum.
Í mastersritgerð Aydu hafði hún
það að markmiði að athuga leiðir til
að minnka þann ósið að henda mat
sem hefur verið áberandi, sérstak-
lega í hinum vestræna heimi.
Sjá www.aydaanlagan.com. - sg
Ætlunin með hönnuninni er að fá fólk til
að klára af diskinum sínum.
Tillögurnar eiga að efla miðbæinn með
„mótun yfirbragðs sem virðir, viðheldur
og styrkir þau gæði sem gera Akureyri
að einstökum stað“. MYND/AKUREYRARBÆR
A kureyrarbær býður til kynningar og samráðs um nýtt deiliskipulag
í Amtsbókasafninu í dag klukkan 14.
Bæjarstjóri og formaður bæjarráðs
munu ásamt hönnuðum frá Gra-
eme Massie Architects og skipulags-
stjóra gera grein fyrir skipulagshug-
myndunum og svara fyrirspurnum,
en Akureyrarbær og Graeme Massie
Architects hafa unnið að því að móta
verðlaunahugmyndir úr hugmynda-
samkeppni Akureyrar í öndvegi.
Nú liggur fyrir tillaga að nýju deili-
skipulagi og er óskað eftir viðbrögð-
um íbúa og atvinnurekenda við
þeim.
Tillögum og athugasemdum við
deiliskipulagstillöguna má skila á
netfangið midbaer@akureyri.is fyrir
5. mars 2009 en búist er við að hefj-
ast handa um fyrstu breytingar í
miðbænum í sumar. - rat
Kynning á nýju
deiliskipulagi
P
IP
A
R
• S
ÍA
• 9
0
3
0
0
FYRIRTÆKJAEIGENDUR
Notað og Nýtt > Mörkinni 1 > sími: 517 2030
Suðurlandsbraut
Sk
eið
av
og
ur
Miklabraut
Gnoðavogur
Mörkinni 1
>
Opnunartími:
Virka daga 11-18
Laugardaga 11-16
Sunnudaga 13-16
Tökum á móti vörum utan opnunartíma,
upplýsingar í síma 517-2030
>
Tökum á móti vörum í umboðssölu:
> Skrifstofuhúsgögnum
> Lagerum
> Innréttingum
VEG
NA
GRÍ
ÐAR
LEG
RAR
EFT
IRS
PUR
NAR
VAN
TAR
OK
KUR
SK
RIF
BOR
ÐSS
TÓL
A
21. FEBRÚAR 2009 LAUGARDAGUR8