Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.02.2009, Qupperneq 87

Fréttablaðið - 21.02.2009, Qupperneq 87
LAUGARDAGUR 21. febrúar 2009 55 JPV-útgáfa hefur sent frá sér skáldsöguna Tilræðið. Sagan kom fyrst út á frönsku árið 2005 og er níunda skáldsaga Yasminu Khadra en sú fyrsta sem kemur út á íslensku. Yasmina Khadra er hins vegar dul- nefni Mohammeds Moulessehoul. Mohammed var hershöfðingi í alsírska hernum og skrifaði sex bækur undir eigin nafni til ársins 1988. Þá setti herinn honum skilyrði; annað- hvort hætti hann að skrifa eða öll handrit hans yrðu ritskoðuð af hernum. Mohammed sætti sig við hvorugan kostinn og hóf að skrifa undir nafni eiginkonu sinnar. Þegar Mohammed gat hætt í hernum árið 2001 fluttist hann til Frakklands og svipti hulunni af Yasminu Khadra. Tilræðið fjallar um Amin Jaafari sem er virtur skurðlæknir í Tel Avív. Hann og kona hans, Sihem, eru palestínsk að uppruna en ísraelskir ríkisborgarar, vel stæð og vinamörg í samfélagi gyðinga. Dag einn er veitingastaður sprengdur í loft upp og Amin sagt að Sihem sé meðal hinna látnu og bendi margt til að hún beri ábyrgð á tilræðinu. Karl Emil Gunnarsson þýddi úr ensku. Bókin Hann er ekki nógu skotinn í þér kom fyrst út hjá Vöku-Helga- felli árið 2006 og seldist fljótlega upp. Hinn 20. febrúar nk. verður stjörnum prýdd kvikmynd byggð á þessari sérstöku og bráðskemmti- legu bók frum- sýnd hérlendis og af því tilefni var ákveðið að endurprenta bókina. Hann er ekki nógu skotinn í þér er ögrandi, fyndin og frels- andi bók sem er eins og blanda af skáldsögu og sjálfshjálp í léttum dúr. Eftir lesturinn þurfa fallegar, klárar og fyndnar konur ekki lengur að eyða tíma í að finna afsakanir fyrir að halda vonlausu sambandi áfram. Þessi bók hjálpar þeim að finna hinn eina rétta … þann sem er raunverulega skotinn. Þýðandi er Þóra Sigurðar- dóttir. Vaka-Helgafell gefur út. Út er komin í kilju metsölubókin Áfrýjunin eftir John Grisham á forlagi Veraldar. Kviðdómur í þétt- setnum réttarsal í Missisippi sakfellir risafyrirtæki fyrir að menga vatnsból smábæjar með eiturefnaúrgangi með þeim afleiðingum að fjöldi manns deyr úr krabbameini. Fyrirtækið áfrýjar til hæstaréttar Missisippi. Dag einn verða níu dómarar að taka afstöðu til máls- ins – máls sem getur knésett risafyrirtækið. Magnþrungin spennusaga um taumlausa græðgi auð- manna og spill- ingu stjórnmálamanna sem víla ekkert fyrir sér. John Grisham er einn vinsælasti spennusagnahöfundur allra tíma en bækur hans hafa selst í meira en 225 milljónum eintaka. Hann sló upphaflega í gegn með lögfræðitryllinum Fyrirtækinu sem sat á metsölulista New York Times í tæpt ár. Áfrýjunin fór beint á toppinn á metsölulistum vestan hafs þegar hún kom í innbundnu formi og aftur ári síðar í kilju. Áfrýjunin er 430 blaðsíður að lengd. NÝJAR BÆKUR Sunna Gunnlaugsdóttir djasspíanisti heldur tónleika í Salnum ásamt Þorgrími Jónssyni og Scott McLemore í dag kl. 17. Tríóið flyt- ur frumsamið efni í bland við útsetningar á íslenskum lögum s.s. „Stóð ég úti í tungls- ljósi“ og „Það búa litlir dvergar“. Sunna Gunnlaugsdóttir er lærð í djass- fræðum frá Bandaríkjunum. Hún hefur gefið út 4 geisladiska með eigin tónsmíðum og komið fram í Kanada, Japan, víða í Evrópu og Bandaríkjunum. Í erlendum tímaritum er hún sögð fella saman þokka evrópsks djass og eldmóð hins bandaríska með tónsmíðum sem höfða til fleiri en bara djassunnenda. Síðasti diskur Sunnu, Live in Europe, náði inn á topp- 10 lista á djassútvarpsstöðvum í Bandaríkj- unum 2003. Sunna kennir við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og í Tónheimum. Trommarinn Scott McLemore útskrifað- ist í djassfræðum frá William Paterson Coll- ege 1997. Hann var virkur á djasssenunni í New York næstu ár og hefur komið fram í fjölmörgum löndum Evrópu, Kanada, Japan og víðs vegar um Bandaríkin. Hann flutt- ist búferlum til Íslands árið 2005 og starfar sem tónlistarmaður og kennari við Listaskóla Mosfellsbæjar. Scott hefur leikið inn á fjölda geisladiska með erlendum og íslenskum tón- listarmönnum. Þorgrímur Jónsson kontrabassaleikari lauk burtfaraprófi úr djassdeild FÍH vorið 2001. Hóf klassískt nám á kontrabassa undir handleiðslu Gunnlaugs Stefánssonar í Tón- listarskóla Sigursveins. Fór í framhalds- nám til Haag í Hollandi og útskrifaðist með BM-gráðu vorið 2006. Auk þessa hefur hann leikið með helstu djassleikurum Íslands á hinum ýmsu stöðum. Þorgrímur kennir við Tónlistarskóla Árbæjar, Garðabæjar og Tón- skóla Sigursveins. - pbb Tríó Sunnu í Salnum í dag TÓNLIST Sunna Gunnlaugsdóttir djasspíanisti. Bólgu í munni og hálsi má lina með því að... Stíflaðar nasir má lina með því að... Þegar maður er með kvef og særindi í hálsi er almennt gott að... Otrivin auðveldar þér andardrátt þegar þú ert með kvef! Strepsils, við særindum í hálsi! Hringdu í síma ef blaðið berst ekki
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.