Fréttablaðið - 21.02.2009, Blaðsíða 88
56 21. febrúar 2009 LAUGARDAGUR
utlit@frettabladid.is
DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA
Anna Margrét Björnsson
Þetta gerist alltaf með ákveðnu millibili. Blóm og blómamynstur birt-
ast hjá tískuhönnuðum fyrir sumarið í ótal skrautlegum útgáfum.
Þau minna mig á línuna úr kvikmyndinni The Devil wears Prada þar
sem ritstýran, leikin af Meryl Streep, kastar hrúgu af fötum í stíl-
istana og skammar þá fyrir skelfileg ófrumlegheit: „… blóm á sumr-
in eru svo AUGLJÓS.“ Auðvitað er ég hrifin af blómum, og hvaða kona
er það ekki. Málið er bara að ég vil ekkert sjá þau á fötunum mínum.
Ég get dáðst að öðrum konum í blómamynstrum og jafnvel líka þeim
fáu hippalegu karlmönnum sem skarta blómaskyrtum. En um leið og
ég er komin í blóm finnst mér eins og það sé búið að yfirdekkja allan
innri styrk og svalleika með rósrauðu ilmandi skýi, eins konar ofgnótt
og „óverdós“ af sykursætri sykurull. Allt er best þegar jafnvægis er
gætt er hin gullna regla lífsins og auðvitað er það regla tískunnar um
leið. Til dæmis eru óskrifuð lög um að konur með mikinn augnfarða
eigi að spara varalitinn og öfugt. Því er eins farið með kvenleikann.
Ég myndi áætla að blóm og svoleiðis dútl myndu fara karlmannlegum
konum mjög vel. Þá á ég við svona töff mjónuspírur með stutt hár eins
og Agyness Deyn sem myndu gæða bleiku rósirnar pönki og vænum
skammti af „attitjúdi“. Á hinn bóginn er kvenlega vaxin kona með sítt
hár orðin of mikið af því góða í blómahafi og nýtur sín betur í einföld-
um, jafnvel karlmannlegri fatnaði. Ég var einmitt að hugsa um þetta
um daginn, að í raun yrði ég mjög sátt með strákafataskáp. Þar myndi
ég ná mér daglega í svartar gallabuxur og jakka, stuttermaboli og
klúta og einskis sakna nema einstaka mínípilsa. Lífið væri mun þægi-
legra í þessu nýja strákalíki mínu, það eina sem ég þyrfti að huga að
væru nokkrir mismunandi bolir og támjóir skór til skiptanna. En fyrir
allar hinar konurnar, ykkur bleiku dísir, þá eru auðvitað ótal aðferðir
við að skjóta rokki í rósirnar. Til dæmis er töff að henda snjáðum leð-
urjakka eða strákalegum „blazer“ yfir blómakjóla, eða ganga í þeim
yfir þröngu gallabuxunum. Þá breytast blómakjólarnir úr einhverju
sem passar við breskt „high tea“ í eitthvað ívíð meira í anda The Kills.
Annað sniðugt ráð er að ganga í þeim við pönkaralega háa hæla eða
stígvél. En þið hafið að minnsta kosti verið varaðar við, sumar ástar,
friðar og blóma er fram undan.
Rokk versus rósir
Dúndur
hrukkuban-
ann Prodigy
RePlasty frá
Helenu Rubin-
stein sem á að
sýna árangur
eftir aðeins
nokkra daga.
Undurfagran kjól sem
minnir á sumarið sem
koma skal frá Henrik
Vibskov. Fæst í Kron-
Kron.
Þvottaefni fyrir fínleg efni
eins og kasmír, silki og ull
frá The Laundress. Ilma
dásamlega.
OKKUR
LANGAR Í
…
Tískuvikunni í New York er að ljúka og óhætt er að
segja að hönnuðurinn Marc Jacobs hafi vakið einna
mesta athygli fyrir haustlínu sína. Hann sótti innblást-
ur sinn stíft til níunda áratugarins og sendi fyrirsæt-
ur niður sýningarpallana klæddar í efnismiklar muss-
ur og kjóla í glansandi neonlitum ásamt tilheyrandi
greiðslu, förðun og axlapúðum. „Mér varð hugsað til
gömlu góða daganna í New York,“ sagði Jacobs eftir
sýningunna. „Þá var alltaf svo gaman að vera til og
allir lögðu svo mikið í að dressa sig upp til að fara út á
lífið.“ - amb
GYLLT Efnis-
mikill gylltur
og glansandi
kjóll með
púffermum.
MARC JACOBS FER AFTUR TIL NÍUNDA ÁRATUGARINS
Duran Duran klippingar,
neonlitir og axlapúðar
K
ÞOK
FU
Falle
sva
kjóll m
bleik
áhersl
KANARÍ-
FUGLS-
GULUR
Skemmti-
legur
stuttur
kjóll með
svörtu
belti.
GIRLS ON
FILM Skærblá
herðaslá
með svörtum
bryddingum.
SKÆRBLEIKT Kokkteil-
kjóll með dæmigerðu
„eighties“ sniði.
Vinningar verða afhendir hjá ELKO Lindum – Skógarlind 2. Með því að taka
þátt ertu kominn í SMS klúbb. 199 kr/skeytið.
SENDU SMS EST BCD Á NÚMERIÐ 1900
- ÞÚ GÆTIR UNNIÐ EINTAK!
VINNINGAR ERU: 100 ÍSLENSKAR BALLÖÐUR, GOS,
GEISLADPLÖTUR, DVD MYNDIR OG MARGT FLEIRA!
WWW.SENA.IS/100SERIA
9. HVERVINNUR!
Allar uppáhalds ballöðu
rnar
þínar á 5 geislaplötum!
> ER AGYNESS AÐ HÆTTA ?
Stærsta nafnið í fyrirsætu-
heiminum um þessar mundir
er án efa hin breska Agyness
Deyn. Hún er einungis
tuttugu og fimm ára en sagði
við tímaritið New York Mag-
azine að hún hygðist brátt
hætta störfum sem fyrisæta
þar sem tískuheimurinn væri
ekki upphaf og endir alls.