Fréttablaðið - 21.02.2009, Qupperneq 96
Iceland Express karla
Keflavík-Grindavík 82-85 (46-50)
Stig Keflavíkur: Sigurður Gunnar Þorsteinsson 22,
Hörður Axel Vilhjálmsson 20, Gunnar Einarsson
17, Sverrir Þór Sverrisson 15, Jón Norðdal Haf-
steinsson 7, Axel Þór Margeirsson 1.
Stig Grindavíkur: Brenton Joe Birmingham 18,
Páll Axel Vilbergsson 15, Nick Bradford 14, Þor-
leifur Ólafsson 13 (11 frák.), Arnar Freyr Jónsson
12, Páll Kristinsson 10, Guðlaugur Eyjólfsson 3
ÍR-Snæfell 76-82 (39-42)
Stigahæstir: Hreggviður Magnússon 22,
Sveinbjörn Claessen 17, Eiríkur Önundarson 15
- Sigurður Þorvaldsson 20, Lucious Wagner 19,
Hlynur Bæringsson 14 (13 frák.).
Breiðablik-FSu 77-96
N1 deild kvenna
Haukar-Fylkir 42-26
Markahæstar: Hanna Guðrún Stefánsdóttir 17,
Erna Þráinsdóttir 5- Sunna Jónsdóttir skoraði ,
Sunna María Einarsdóttir 6, Hanna Rut Sigur-
jónsdóttir 5.
64 21. febrúar 2009 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Hollenski þjálfarinn Guus
Hiddink þreytir frumraun sína
með Chelsea um helgina. Hann
byrjar á risavöxnu verkefni enda
er Chelsea að fara í sex stiga leik
gegn Aston Villa á Villa Park.
„Við erum tíu stigum á eftir
Man. Utd og auðvitað verður þetta
erfitt en við verðum að láta reyna
á þetta. Við erum réttri leið í bik-
arnum og Meistaradeildinni en að
ná þessum titli er verðu áskorun,“
sagði Hiddink sem ætlar aðeins að
stýra Chelsea út þessa leiktíð. „Ég
er samt ekki kominn hingað bara
til þess að drepa tímann.“
Topplið Man. Utd tekur á móti
Blackburn og Edwin van der Sar
getur haldið hreinu fimmtánda
leikinn í röð. Edwin van der Sar
hefur ekki fengið á sig mark í 1.302
mínútur í ensku úrvalsdeildinni.
Ef Hollendingurinn heldur hreinu
í 89 mínútur í dag mun hann slá
Evrópumet Danny Verlinden sem
spilaði með Club Brugge. Það met
hefur staðið síðan 1990.
Á sunnudag er síðan athyglis-
verður slagur á Anfield þegar
Liverpool tekur á móti Man. City.
Steven Gerrard verður ekki með í
leiknum en vonir stóðu til að hann
gæti tekið þátt. Liverpool verð-
ur einnig án Xabi Alonso sem er í
banni. - hbg
Áhugaverðir leikir í ensku úrvalsdeildinni um helgina:
Hiddink byrjar í sex
stiga leik gegn Villa
GUUS HIDDINK Hollendingurinn þarf
sárlega á þremur stigum að halda gegn
Aston Villa í dag. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
ÚRSLITIN Í GÆR
FRJÁLSAR Það verður örugglega
jöfn og spennandi keppni í 3.
bikarkeppni Frjálsíþróttasam-
bandsins innanhúss sem fram
fer í Laugardalshöllinni í dag.
Keppt verður í tólf greinum
karla og kvenna og hefst keppn-
in kl. 13.00.
ÍR-ingar eru núverandi
bikar-meistarar en hlutu einu
stigi meira en FH í fyrra. FH,
sem hefur verið mjög sigur-
sælt í bikarkeppninni utanhúss,
á enn eftir að vinna innanhús-
bikarinn því Breiðablik sigraði
árið 2007. - óój
Bikarkeppni FRÍ innanhúss:
Verja ÍR-ingar
bikarinn í dag?
KÖRFUBOLTI Grindvíkingar unnu
sinn fyrsta sigur í Keflavík í sjö ár
þegar þeir lögðu heimamenn 85-82
í Toyota-höllinni í Iceland Express
deild karla í gærkvöldi. Sigurinn
stóð tæpt í lokin en eftir hann er
Grindavík aðeins tveimur stigum
á eftir KR í baráttunni um deildar-
meistaratitilinn.
„Þetta var verulega ljótur sigur.
Þetta var basl allan leikinn, þeir
komu alltaf til baka og við náðum
aldrei að komast almennilega upp
á tærnar í leiknum.Það eina sem ég
tek jákvætt út úr þessum leik er að
vinna hérna í Keflavík því Grinda-
vík hefur ekki unnið hér í sjö ár,“
sagði Friðrik Ragnarsson, þjálf-
ari Grindavíkur. Grindavíkurliðið
hafði fyrir leikinn tapað ellefu leikj-
um í röð í Toyota-höllinni í Kefla-
vík eða öllum leikjum síðan að liðið
vann 97-92 í deildinni 15. nóvember
2002. Keflvíkingar voru hins vegar
að tapa sínum þriðja leik í röð á
heimavelli sem gerist ekki oft.
Grindvíkingar byrjuðu betur,
röðuðu niður þriggja stiga körfum
og skoruðu mikið úr opnum skot-
um úr hraðaupphlaupum. Grinda-
vík var mest komið tólf stigum
yfir um miðjan annan leikhluta en
Keflavíkurliðið kom sér aftur inn í
leikinn með því að setja niður 8 stig í
röð á 45 sekúndum þar af voru tveir
þristar frá Herði Axel Vilhjálms-
syni. Munurinn var þá fjögur stig
og hélt þannig fram að hálfleik.
Grindvíkingar náðu aftur tök-
unum í seinni hálfleik en Keflvík-
ingar héldu sér alltaf inni í leikn-
um á góðri baráttu og svæðisvörn
sem fór eitthvað illa í gestina úr
Grindavík.
„Mestu vonbrigðin voru að við
vorum búnir að búa okkur vel
undir svæðisvörn en við höktum
á móti henni. Grindavík á ekki að
hökta á móti svæði. Við munum
eyða næstu dögum í að laga sókn-
ina á móti svæðisvörn því það á ekk-
ert lið að geta spilað svæðisvörn á
móti okkur,” sagði Friðrik þjálfari
Grindavíkur.
Arnar Freyr Jónsson átti góða
innkomu í lokin en var síðan næst-
um því búinn að færa Keflvíkingum
tækifæri á að jafna leikinn með því
að klikka á þremur vítum í blálokin.
Keflvíkingar nýttu hins vegar ekki
tvær sóknir í kjölfarið og gestirnir
sluppu með sigur.
„Við erum að spila við annað af
tveimur bestum liðunum í deildinni
og hefðum alveg getað tekið þetta.
Það gekk ekki í kvöld en ég er samt
bjartsýnn á framhaldið því við erum
að gera flotta hluti og þetta er allt
upp á við hjá okkur,” sagði Keflvík-
ingurinn Sverrir Þór Sverrisson.
Ég var stressaður
Margra augu voru á Nick Brad-
ford sem sneri aftur á sínar gömlu
heimaslóðir. Hann fann sig hins
vegar aldrei í leiknum en fagnaði
samt enn á ný sigri í íþróttahúsinu
í Keflavík. „Þetta var góður sigur
en ég spilaði sjálfur ekki vel. Ég er
mjög vonsvikinn með mína frammi-
stöðu í kvöld. Ég held jafnvel að ég
hafi verið svolítið stressaður fyrir
þennan leik og ég er það aldrei,“
sagði Nick eftir leikinn en honum
voru eitthvað mislagðar hendur á
móti sínum gömlu félögum og var
meðal annars með 12 tapaða bolta.
ooj@frettabladid.is
Langþráður en ljótur sigur
Grindavík er ennþá með í baráttunni um deildarmeistaratitilinn eftir þriggja stiga sigur í Keflavík í gær
þann fyrsta þar síðan árið 2002. Nick Bradford fann sig aldrei á gamla heimavellinum sínum.
SIGUR Á GÖMLU FÉLÖGUNUM Arnar Freyr Jónsson var góður á upphafsmínútunum
í sigri Grindavíkur á hans gömlu félögum úr Keflavík en lenti í villuvandræðum í
upphafi seinni hálfleiks. Hann var með 12 stig og 7 stoðsendingar í leiknum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ein besta frjálsíþróttakona landsins, Helga Margrét Þorsteinsdóttir,
verður fjarri góðu gamni á Bikarkeppni FRÍ um helgina alveg eins
og hún hefur verið á MÍ í frjálsum og MÍ fjölþraut undanfarnar tvær
helgar.
„Ég var í mjög góðu formi þannig að þetta var virkilega
svekkjandi. Upphaflega hélt ég að það væri rifinn einhver
hluti af sininni í ilboganum en við höldum núna að þetta sé
rifinn távöðvi. Ég fann fyrir þessu á MÍ 15 til 22 ára en svo
var ég að taka spretti á þriðjudeginum á eftir mótið þá fann
ég eitthvað smella,“ segir Helga Margrét sem var aðeins búin
að keppa á tveimur innanhúsmótum þegar hún meiddi sig.
„Ég er búin að vera ótrúlega heppin hingað til og það hafa
margir sagt við mig að þetta fylgi bara og að ég sé
að taka út ákveðin meiðsli núna,“ segir Helga en
hún gæti verið frá í meira en sex vikur.
„Það voru tvær vikur frá þessu á þriðju-
daginn og ég er ekki enn farin að skokka
neitt. Þetta tekur tíma og getur tekið allt
að sex vikum. Ég þarf ekki að fara í
neina aðgerð og þetta jafnar sig,” segir Helga en hún er að hlaupa í
sundi, lyfta og labba í gegnum tæknigreinarnar þessa dagana og fer í
kringum meiðslin í æfingunum. „Ég ætla fyrst að byrja á því að jafna
mig á þessu. Ég er að æfa á fullu og er að gera allt nema það
sem ég finn til við. Í sumar er EM 19 ára og yngri en svo
eru líka Smáþjóðaleikar, Norðurlandamótið í fjölþraut
og Evrópubikarkeppni landsliða,” segir Helga sem segir
Evrópumótið 19 ára yngri vera aðalmótið fyrir sig.
„Þessi meiðsli gætu haft áhrif en ég reyni samt ekki að
velta mér upp úr því þar sem að það er það langt í þetta
ennþá. Auðvitað mun þetta hafa einhver áhrif en ég ætla
bara að láta þetta ekki hafa nein áhrif,” segir Helga en
það er samt erfitt að missa af hverju mótinu á fætur öðru.
„Auðvitað hugsar maður að ég sé búinn að leggja allan
þennan tíma í æfinga og svo get ég ekki keppt í vetur.
Þetta innanhústímabil skiptir ekki neinu máli með
hvað ég ætla að gera í framtíðinni. Þetta verður
ekkert mál og ég kem alveg brjáluð inn í utan-
hústímabilið.“
HELGA MARGRÉT ÞORSTEINSDÓTTIR MEIDD Á FÆTI: MISSIR AF ÖLLUM ÞREMUR STÓRU INNANHÚSSMÓTUNUM Í ÁR
Ég kem alveg brjáluð inn í utanhústímabilið
> Hefnir Keflavík líka bikartapsins?
Bikaúrslitaliðin í kvennaflokki, meistarar KR og silfurlið
Keflavíkur, mætast í Iceland Express-deild
kvenna í Keflavík dag. KR-konur hafa
tapað níu leikjum í röð í Keflavík og hafa
ekki unnið þar síðan 31. janúar 2005.
Keflavíkurkonur hafa líka unnið sjö
heimaleiki í röð í deild og bikar.
Silfurlið KR náði að hefna bikartaps-
ins á móti Stjörnunni með 29 stiga
sigri á fimmtudagskvöldið og nú
er að sjá hvort Keflavíkurkonur
nái að leika sama leik í dag en
leikurinn hefst klukkan 16.00 í
Toyota-höllinni í Keflavík.
Mikil stemning á öðru móti Meistaradeildar VÍS:
Sigurður varði fjórgangstitilinn
HESTAR Sigurður Sigurðarson vann
annað árið í röð fjórgangskeppn-
ina í Meistaradeild VÍS en annað
mótið í mótaröðinni fór fram í
Ölfushöll á fimmtudag. Fullt var
út úr dyrum og þúsundir fylgdust
með á Netinu.
Sigurður sigraði á Suðra frá
Holtsmúla en annar var Jakob
Sigurðsson á Auð frá Lundum.
Hinrik Bragason á Náttfara frá
Þorláksstöðum varð þriðji.
Eyjólfur Þorsteinsson leiðir
einstaklingskeppnina með 17 stig
en Sigurður er annar með 12 stig.
Næsta mót fer fram 5. mars og þá
verður keppt í slaktaumtölti.
- hbg
FJÓRGANGSMEISTARI Sigurður Sig-
urðarson sést hér á efsta þrepi ásamt
þeim Jakobi Sigurðarsyni og Hinriki
Bragasyni MYND/JENS EINARSSON