Tíminn - 21.05.1988, Síða 14

Tíminn - 21.05.1988, Síða 14
14 Tíminn Laugardagur 21. maí 1988 FRÉTTAYFIRLIT BONN - George Shultz utanríkisráöherra Bandaríkj- anna sagði að á leiðtogafund- inum í Moskvu 29. maí myndu risaveldin skýra frá árangri sem náðst hefur í takmörkun langdrægra kiarnaflauga, en samningar yrou ekki endan- lega frágengnir á þeim tíma. Shultz sagði einnig að mann- réttindamal myndu skipa verð- ugan sess í viðræðunum í Moskvu. DAMASKUS - Ali Kham- enei forseti írans sendi forseta Sýrlands, Hafez Al-Assad, orðsendingu á sama tíma og sýrlenskar hersveitir undir- bjuggu inngöngu inn í suður- hverfi Beirútborgar til að skakka leikinn í bardögum Am- alskæruliða sem njóta stuðn- ings Sýrlendinga og skæruliða Hizabollah sem njóta stuðn- ings l’rana. Ekki er vitað hvert innihald orðsendingarinnar var. MOSKVA - Stjórnin í Kabúl hefur sakað stjórn Pakistans um að brjóta Afganistansam- komulagið með því að birgja afganska skæruliða upp af vopnum og vistum. LISSAÐON - Skæruliðar Unitahreyfingarinnar sem nýt- ur stuðnings Bandaríkjanna og Suður-Afríkumanna skýrðu frá sigrum sínum í átökum við stjórnarhermenn Angóla, að- eins degi eftir að Bandaríkja- menn og Sovétmenn luku við- ræðum sínum um hugsanlegt friðarsamkomulag í Angóla. BUDAPEST - Ungverski þjóðarleiðtoginn Janos Kadar hvatti til víðtækra pólitískra umbóta og endurnýjunar á for- ystuliði landsins. Hann gaf þó ekkert í skyn um að hann hygðist fara frá völdum eftir 31 ár í valdastól. PARÍS - Franskir íhalds- menn funduðu með miðju- mönnum í von um að ná á síðustu stundu samkomulagi um kosningabandalag gegn sósíalistum sem eiga sigur vís- an t þingkosningum í næsta mánuoi. VARSJA - Dómstóll í Varsjá nam úr gildi fangelsis- dóm yfir Janusz Onyszkiewicz, talsmanni verkalýðssamtak- anna Samstöðu, en skipaði honum þó í tuttugu ára þegn- skylduvinnu. Januszi var gefið að sök að hafa veitt vestræn- um fjölmiðlum rangar upplýs- ingar á meðan á verkföllum stóð á dögunum. Fjöldi félaga í Samstöðu strunsaði úr réttar- salnum í mótmælaskyni þegar dómurinn tók ekki mark á vitn- um verjanda Januszar. AMSTERDAM - Innbrots- þjófar stálu málverki eftir Vinc- ent van Gogh, málverki sem metið er á 35 milljónir dollara, og hékk uppi í Amsterdam Stedelijk museum art gallery. íranar segjast eiga í stríði við Bandaríkin, en Bandaríkin segj- ast ekki eiga í stríði við íran. Þetta er það nýjasta í værum írana og Bandaríkjamanna á Persaflóa, en ástand þar hefur verið mjög eldfimt eftir að Bandaríkjamenn gerðu árásir á íranska olíuborpalla og herskip í síðasta mánuði. „Bandaríkin hafa í raun hafið stríð við okkur. Við munum eiga raunverulega í stríði við Bandaríkin í framtíðinni," sagði Rafsanjani tals- maður íranska þingsins í gær. Lagði Rafsanjani áherslu á að franar yrðu að undirbúa sig fyrir frekari hernaðarátök við Bandaríkjamenn. Bandaríkjastjórn vill þó ekkert kannast við að Bandaríkin eigi í stríði við írana, né að það sé á dagskrá á næstunni. Hins vegar ítrekaði talsmaður bandarísku stjórnarinnar að Bandaríkjamenn myndu verja hendur sínar á Persafl- óa ef á þá yrði ráðist. íranar hafa sakað Bandaríkja- menn um að hafa skipað sér við hlið íraka í Persaflóastríðinu með því að trufla radarstöðvar írana þegar ír- akskar þotur gerðu loftárás á olíuhöfn í íran á dögunum og hafa nú í hótunum við Bandaríkjamenn. „Bandaríska þjóðin ætti að vita að ef bandaríska stjórnin heldur út í stríð við írönsku þjóðina, þá verður það henni dýrkeypt, og margir ungir menn bandarískir menn deyja,“ sagði Rafsanjani á vikulegri bæna- stund í íslamska háskólanum í Teheran. Hvað stríðið við íraka, sem nú hefur staðið á áttunda ár, varðar þá hefur ekkert dregið úr vígamóð írana ef marka má orð Rafsanjanis. „Við munum ekki hætta, jafnvel þó við hefðum aðeins einn mann eftir með byssu í hönd, fyrr en réttlætinu hefur verið fullnægt í þessu stríði." íranar segja Bandaríkin vera komin í stríð við Íran, en Bandaríkjamcnn kannast ekki við það. Rafsanjani forseti íranska þingsins hvatti írana til að undirbúa átök við Bandaríkja- menn. Þetta barn virðist tilbúið í slaginn. Manndrápin halda áfram á Indlandi Poul Schluter fær um- boðtil stjórnarmyndunar Bið eftir stjórn í Danaveldi Loks kom að því að Poul Schlúter forsætisráðherra Dan- merkur fengi umboð til stjórn- armyndunar. Margrét Dana- drottning afhenti honum um- boðið í gær eftir að Niels Helveg Petersen formaður Radikal venstre hafði gefist upp við verkefnið. „Þetta er mjög erfitt verkefni og óvíst að það takist. Ég mun ekki kosta hverju sem er til að mynda ríkisstjórn," sagði Schlúter á tröppum Kristjánsborgarhall- arinnar í Kaupmannahöfn eftir að hann tók við umboðinu. Það er næsta víst að erfitt verkefni bíður Schlúters því ef hann ætlar að mynda hægri stjóm þarf hann bæði stuðning eða hlutleysi Framfaraflokks Glistrups og hins frjálslynda flokks Niels Helvegs Peter- sens, Radikal venstre. Radikal venstre hefur lýst því yfir að flokkurinn geti ekki undir nein- um kringumstæðum stutt stjórn sem Framfaraflokkurinn á sæti t. Leggur Niels Helveg áherslu á að mynduð verði ríkisstjórn á breiðum grund- velii. Schlúter hefur hins vegar sagt að ekki komi til greina að íhaldsflokkurinn vinni saman í stjórn með jafnaðarmönnum. Því virðist allt ætla að verða í hnút í dönskum stjórnmálum á næstunni. Indverska stjórnin hefur sent fjölmennt lið sérþjálf- aðra lögreglumanna til Punjabhéraðs til að fást við byssumenn Shíka þar, en ekkert lát virðist ætla að verða á grimmdarverkum þeirra. Á þremur dögum hafa hundrað þrjátíu og fimm manns verið drepnir í Punjab héraði, flestir þeirra hindúar sem Shíkar hafa myrt í hefndarskyni fyrir það sem þeir telja helgispjöll ind- verskra sérsveita er þær réðust inn- göngu í Gullna hof- ið í Amristar, helg- asta stað Shíka í Punjabhéraði. Shíkar sem vilja stofna íslamskt ríki í Punjab og krefjast aðskilnaðar frá Indlandi tóku Gullna hofið her- skildi til að leggja áherslur á kröfur sínar. En það eru vær- ingar á milli músl- íma og hindúa á fleiri stöðum en í Punjab. í gær létust að minnsta kosti nítján manns í óeirðum á milli hindúa og múslíma í borginni Aurangabad á vestur Indlandi, en um fjóröungur íbúa borgarinnar er múslímar. Óeirðirnar urðu í kjölfar Eid-Al Fitr hátíðar- haldanna sem marka lok hins heilaga Ramadan mánaðar múslíma og var tilefnið það að dómstóll hafði frestað m m Herskáir Shítar tóku Gullna hofíð á sitt vald á dögunum og gáfust ekki upp fyrr en indverskar hersveitir rédust inn í hofíö. Nú hafa hópar sérsveita indversku lögreglunnar veriö sendir til Punjabhéraðs til aö eiga við byssumenn Shíka sem eru iðnir við að myrða hindúa í hefndarskyni. ÚTLÖND að úrskurða í kærumáli sem snerti síðustu þingkosningar á Indlandi. Neyddust yfirvöld að setja á sólar- hrings útgöngubann í borginni. Nú hefur verið upplýst að í um- sátrinu um Gullna hofið létust þrjá- tíu og þrír hermenn, en aðeins fimm Shíkar. UMSJÓN: Ha ur Magnússon ’ BLAÐAMAÐUP Sérþjálfaðar sveitir lögreglu sendar til Punjab: ll Bandaríkjamenn kannast ekki við að eiga í stríði við írana, en: íranar segjast eiga ' stríði við Kanann

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.