Tíminn - 21.05.1988, Síða 19
Laugardagur 21. maí 1988
Tíminn 19
Árni Magnússon
frá Skeiði í Selárdal
Fæddur 29. septeniber 1897
Dáinn 9. maí 1988
Árni Magnússon var fæddur að
Króki í Selárdal við Arnarfjörð.
Hann var sonur hjónanna Kristínar
Árnadóttur og Magnúsar Sveinsson-
ar. Bjuggu þau hjón allan sinn
búskap í Selárdal og var Árni elstur
fimm barna þeirra. Eftirlifandi af
systkinum Árna er eina systirin,
Guðlaug, nú búsett í Reykjavík en
bjó lengst af á Bíldudal. Bræðurnir
voru: Sigurjón, Sveinn og Guð-
mundur. Skömmu eftir fæðingu
Árna flytja foreldrar hans að Neðra-
Bæ í Selárdal, en þar bjuggu þau til
æviloka.
Haustið 1918 kemur ung stúlka
frá Bíldudal, Auðbjörg Jónsdóttir,
til að aðstoða Kristínu við heimilis-
störfin vegna veikinda hennar. Var
ætlunin að Auðbjörg yrði um mán-
aðartíma á heimilinu, en raunin
varð sú að hún dvaldist tæpa hálfa
öld í dalnum. Auðbjörg og Árni
felldu hugi saman og hófu búskap í
Neðra-Bæ í sambýli við foreldra
Árna. Þau fluttust síðan að Uppsöl-
um í Selárdal en fluttu svo að Skeiði
í sömu sveit, þar sem þau bjuggu
samfleytt í um 20 ár.
Auðbjörg Jónsdóttir var fædd að
Kaldabakka á Bíldudal 9. nóvember
1897, dóttir hjónanna Sigríðar
Benjamínsdóttur og Jóns Guð-
mundssonar og var Auðbjörg elst sex
systkina.
Auðbjörg og Árni eignuðust sjö
börn, en dóttur sína Ástu Brynhildi
misstu þau þegar hún var á fyrsta ári.
Börn þeirra eru: Gunnar kvæntur
Lilju Guðmundsdóttur, Sigríðurgift
Stefáni Ólafssyni og eiga þau fjögur
börn, Jón kvæntur EsterFinnsdóttur
ogeiga þau þrjú börn, Sveinn kvænt-
ur Sigrúnu Aradóttur og eiga þau
tvær dætur, Bergsveinn kvæntur
Gróu Friðriksdóttur og eiga þau
fjögur börn og Agnar kvæntur
Magnhildi Friðriksdóttur og eiga
þau þrjú börn.
Á fyrstu hjúskaparárum Auð-
bjargar og Árna var margt um
manninn í Selárdal enda voru bú-
skaparhættir gjörólíkir því sem nú
er. Lífsafkoman byggist á mörgum
þáttum eins og útræði, fuglatekju og
landbúnaði. Má segja að Arnar-
fjörðurinn hafi ráðið mestu þar um
enda gekk hann undir nafninu Gull-
kistan. Ekki var það samt rækjan
eins og nú, sem skapaði þessi lífvæn-
legu skilyrði þá, heldur flest annað.
Það hljóta því að hafa verið erfið
fyrstu búskaparárin, þegar þau
bjuggu á Uppsölum, bæ frammi í dal
og þurfa að fara langan veg niður til
sjávar. Bærinn Skeið stendur aftur á
móti á sjávarkambinum.
Árni hafði mikið yndi ef veiðiskap
og einkum þó með byssu. Fátt held
ég að honum hafi þótt skemmtilegra
en á vor- og sumarkvöldum að taka
byssuna með sér út á sjó.
Árni var grenjaskytta í mörg ár og
þar hafa lyndiseinkenni hans, þolin-
mæði og þrautseigja, notið sín vel.
Það hljóta því að hafa verið þung
spor fyrir Árna þegar sú mikla
ákvörðun var tekin árið 1962 að
bregða búi og flytja til Bíldudals.
Börn þeirra öll nema Agnar voru þá
flutt suður. Allar aðstæður voru þá
breyttar í dalnum, flestir fluttir í
burtu og fiskurinn horfinn úr firðin-
um.
Ég kynnist þessum sæmdarhjón-
um þegar við hjónin fluttumst til
Bíldudals sumarið 1969. Ári síðar
voru sveitarstjórnarkosningar og
skipaði ég efsta sætið á einum af
þremur framboðslistunum, sem í
kjöri voru, en Árni heiðurssætið.
Sagði hann oft við mig að þó að
höfuðið tæki stefnuna þá væri það
stélfjöðrin, sem stjórnaði að ekki
væri farið af leið.
Það fór líka þannig, að við tókum
stefnuna á sömu götu í Reykjavík.
Tíu árum eftir að þau hjónin
fluttu úr dalnum var stórt skref stigið
og flutt til Reykjavíkur. Mun mestu
um það hafa ráðið, að Agnar og
hans fjölskylda höfðu ákveðið að
flytja suður.
Börnin þeirra keyptu lítið hús að
Skipasundi 33. Bæði hús og garður
voru í niðurníðslu þegar eignin var
keypt, en systkinin tóku húsið í gegn
en Áuðbjörg og Árni ræktuðu garð-
inn sinn enda má segja að þau hafi
gert það líka í víðara skilningi þeirra
orða.
Það var stórkostlegt að sjá illgresi
breytast í rósarunna og órækt í
fallegan kartöflugarð.
Þó að Árna væri það þungbært að
flytjast að vestan þá voru þau hjónin
bæði þannig af guði gerð að finna lífi
sínu ávallt tilgang með sköpunar-
gleði og vinnusemi.
Auðbjörg sat og saumaði út marg-
víslega muni og tók ntikinn þátt í
félagsstarfi aldraðra, en Árni smíð-
aði forláta kistla og kistur og áhuginn
var svo mikill að ekki var alltaf hægt
að mæta í mat á réttum tíma.
Árni var bundinn dalnum sínum
og Arnarfirði afar sterkum böndum
og hans bestu stundir, eftir að hann
flutti þaðan, var þegar einhver kom
í heimsókn, sem hafði fréttir að færa
að vestan. Einnig var hann sjálfur
hafsjór af sögum og vísum og áhuga-
samur hlustandi fékk að heyra
margar skemmtilegar veiðisögur að
vestan.
Þau hjónin voru einstaklega gest-
risin og Auðbjörg eldsnögg að koma
upp sannkölluðu veisluborði, jafnvel
þó óvæntan gest bæri að garði.
Þegar fólk hefur búið saman yfir
60 ára verða þau ósjálfrátt sem ein
heild í huga manns. Það var mikill
missir fyrir Árna, þegar hann missti
konuna sína snögglega í september
1982. Þó hann væri orðinn 85 ára
gamall vildi hann búa áfram í Iitla
húsinu þeirra. Þar til fyrir rúmu ári
bjó hann einn, en með dyggri
aðstoð barna sinna.
Árni lifði að sjá öll barnabörn sín
fermast, en núna um páskana fermd-
ist yngsta barnabarnið og sat Árni og
spjallaði við gestina, engu farinn að
tapa af ntinni og sama áhugann fyrir
mönnum og málefnum.
Það er mikill ávinningur að hafa
haft tækifæri til að kynnast fólki af
þessari kynslóð, sem var mótað af
því að bjarga sér sjálft, vera ekki
upp á aðra komið.
Veiðiáhuginn lifir í afkomendum
Árna og fylgist hann eflaust með
þegar synir hans róa á mið Faxaflóa
sér til ánægju á gamla bátnum, sem
áður sótti fisk úr faðmi Arnarfjarð-
ar.
Blessuð sé minning Árna Magnús-
sonar.
Sigrún Magnúsdóttir.
t
Útför
Valentínusar Alberts Jónssonar
fyrrverandi bónda að Réttarholti, Gnúpverjahreppi
sem lést 14. maí sl. fer fram frá Stóra-Núpskirkju, Gnúpverjahreppi,
þriðjudaginn 24. maí n.k. kl. 15.00.
Aðstandendur
—ÁBURDAR------
DREIFARAH
•JOL/I *
Samvinnuskólinn
Bifröst
Undirbúningsnám á Bifröst
Frumgreinadeild Samvinnuskólans veitir
undirbúning fyrir rekstrarfræðanám á háskóla-
stigi.
Inntökuskilyrði: Þriggja ára nám á framhalds-
skólastigi án tillits til námsbrautar, t.d. í iön-, vél-,
verkmennta-, fjölbrauta-, mennta-, fiskvinnslu-,
búnaðar-, og sjómanna- eða verslunarskóla
o.s.frv.
Viðfangsefni: Bókfærsla, hagfræði, tölvugreinar,
enska, íslenska, stærðfræði, lögfræði,félagsmála-
fræði og samvinnumál.
Námslýsing: Áhersla lögð á sjálfstæð, raunhæf
verkefni, auk fyrirlestra og viðtalstíma o.fl.
Námstími: Einn vetur, frá september til maí.
Aðstaða: Heimavist, fjölskyldubústaðir, skóla-
heimili, félagsaðstaða og mötuneyti á Bifröst í
Borgarfirði ásamt vinnustofum, bókasafni, tölvu-
búnaði o.s.frv.
Kostnaður: Fæði, húsnæði, þjónusta og fræðsla
áætluð um 32.000,- kr. á mánuði fyrir einstakling
næsta vetur.
Umsóknir: Með persónulegu bréfi til skólastjóra
Samvinnuskólans á Bifröst fyrir 10. júní. Umsókn
á að sýna persónuupplýsingar, upplýsingar um
fyrri skólagöngu með afriti skírteina og upplýsingar
um fyrri störf. Ekki sérstök umsóknareyðublöð.
Veitt er innganga umsækjendum af öllu landinu.
Þeir umsækjendur ganga fyrir sem orðnir eru eldri
en 20 ára og hafa öðlast starfsreynslu í atvinnulíf-
inu.
Samvinnuskólinn á Bifröst,
311 Borgarnesi, sími: 93-50000.
REYKJKJÍKURBORG ■■«
Mi >N
Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur
óskar eftir að ráða eftirtalið starfsfólk til sumaraf-
leysinga:
Við heilsugæslustöðvar í Reykjavík
Skrifstofumann til símavörslu og afgreiðslu.
Læknaritara
Upplýsingar eru gefnar á skrifstöfu framkvæmda-
stjóra heilsugæslustöðva, sími 22400.
Við útibú barnadeildar, Aspsrfelli 12
Hjúkrunarfræðinga
Upplýsingargefurhjúkrunarforstjóri í síma75100.
Umsóknum skal skila til Starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, fyrir kl. 16.00, föstudaginn 27.
maí 1988.
Afgreiðslustörf
Óskum eftir að ráða starfsfólk til eftirtalinna
afgreiðslustarfa.
1. Afgreiðslumann í Kjötiðnaðarstöð við afgreiðslu
á unnum kjötvörum.
2. Starfsmann á kassa í verslun. Vinnutími eftir
hádegi.
Umsóknareyðublöð fást hjá starfsmannastjóra
sem veitir upplýsingar.
SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉIAG A
STARFSMANNAHALD