Tíminn - 15.10.1988, Page 5
Laugardagur 15. október 1988
Tími'hn 5
Ymsar leiöir kannnaðar í ráðuneyti heilbrigðismála,
útgjaldafrekasta ráðuneytinu, til niðurskurðar á næsta ári:
Kostnaður við sérfræðinga,
tryggingar og lyf krufinn
Á löngum fundi ríkisstjórnar sl. fimmtudag var fjallað um
fjárlagadæmið fyrir komandi ár. Engar ákvarðanir voru
teknar á fundinum en mál verða áfram skoðuð. Gert er ráð
fyrir að fjármálaráðherra leggi fjárlagafrumvarp fram á
Álþingi í síðustu viku október. Tími er því naumur til að hnýta
saman alla enda, bæði hvað viðvíkur tekjuhlið og útgjaldahlið
fjárlagafrumvarpsins. Á öllum vígstöðvum verður því stíft
setið við næstu daga og helgidagar þar ekki undanskildir.
Niðurskurðarhnífnum verður
brugðið á loft í öllum ráðuneytun-
um, þó misjafnlega hressilega eftir
ráðuneytum.
Heilbrigðisráðuneytið er með um
40% af útgjöldum ríkissjóðs á sínum
snærum og því er viðbúið að á þeim
bæ þurfi til að koma mikill niður-
skurður. Guðmundur Bjamason,
heilbrigðisráðherra, segist ekki vilja
nefna neinar tölur í því sambandi en
í heilbrigðisráðuneytinu sé nú verið
að kanna ýmsar leiðir til að minnka
útgjöld heilbrigðis- og tryggingageir-
ans. Guðmundur segir að augu
manna beinist fyrst og fremst að
þremur liðum í því sambandi; trygg-
ingamálum, sérfræði- og lyfjakostn-
aði.
Varðandi tryggingakerfið segir
Guðmundur að menn séu að skoða
það í heild sinni og „reyna að koma
fram þeim sjónarmiðum að trygging-
akerfisins njóti fyrst og fremst þeir
sem þurfa á því að halda. Það er
kannski það mottó sem menn ganga
út frá í þessari vinnu. Tryggingakerf-
ið verður að vera alvöru kerfi sem
greiðir einungis þeim sem rétt eiga
og þurfa á bótum að halda“.
Kostnaður við
sérfræðingaþjónustu
Kostnaður við sérfræðingaþjón-
ustu hefur hækkað á síðustu árum
langt umfram aðra þætti heilbrigðis-
þjónustunnar. Ástæður þessa eru nú
til athugunar í heilbrigðisráðuneyt-
inu. Meðal annars er nú verið að
skoða svokallað tilvísanakerfi en
lögum samkvæmt þarf tilvísun frá
heimilislækni til þess að ganga til
sérfræðings. Eftir þessu hefur ekki
verið farið að undanfömu. Sam-
kvæmt núgildandi samningum við
sérfræðinga geta sjúklingar gengið
til þeirra og tryggingakerfið greiðir
síðan tilfallandi reikninga. „Menn
spyrja sig í ljósi reynslunnar hvort
ekki verði að líta á þessi mál að nýju
og svo almennt samningana milli
sérfræðinganna og ríkisins," segir
Guðmundur.
Lyfjakostnaður er, að sögn heil-
brigðisráðherra, þriðji liðurinn sem
til skoðunar er í heilbrigðisráðuneyt-
inu, en fiann hefur löngum þótt úr
hófi fram hár hér á landi. Kemur þar
margt tií, t.d. ofnotkun fúkkalyfja.
„Lyfjamálin hafa verið í umræðunni
lengi en nú ætlum við að gera enn
eina hríð að þeim.“
Þar sem ekki hefur verið tekin
pólitísk ákvörðun um annarsvegar
niðurskurðartölur og hinsvegar leið-
ir til að auka tekjur ríkissjóðs á
næsta ári liggur ekki fyrir hlutfalls-
skipting milli ráðuneyta á niður-
skurði á næsta ári. Guðmundur
Bjarnason segir að þetta verði að
ráðast af verkefnum og getu hvers
ráðuneytis til að skera niður. „í
heilbrigðisgeiranum er búið að reyna
að spara mjög, t.d. varðandi rekstur
heilbrigðisstofnana. Þar hefur verið
reynt að gæta aðhaldssamrar stefnu.
Því segir það sig sjálft að það er
tæpast hægt að koma þangað og
segja enn; nú eigið þið að skera
niður um 5-10%. Þetta verður að
fara eftir efnum og ástæðum, sjónum
verður að beina að þeim málaflokk-
um sem menn telja sig geta sparað
en viðurkenna útgjaldaþörf annar-
ra.“
Lýst eftir 46 ára gömlum manni frá ísafiröi:
Leit árangurslaus
Leitin að Gísla Jósefssyni til heim-
ilis að Hrannargötu 3 ísafirði, sem
lýst var eftir í gær, hafði engan
árangur borið í gærkvöldi.
Síðast sást til Gísla á miðvikudags-
kvöld um klukkan 21.30 við togar-
ann Pál Pálsson í ísafjarðarhöfn.
Hann er 46 ára gamall, um það bil
170 sm á hæð, klæddur í brúnar
buxur, köflótta skyrtu og brúna
úlpu.
Björgunarsveitir hófu leit að Gísla
um miðnætti í fyrrakvöld og leituðu
um 50 manns alla nóttina. Eitthvað
fleiri leituðu í gær. Kafað var í
höfninni og gengnar fjörur, en án
árangurs. - ABÓ
Gufan og gufubaðið
Eins og alkunna er hefur útvarp
Reykjavík, rás eitt, gengið undir
nafninu „Gamla gufan“. Það mun
hafa veerð Þorgeir Þorgeirsson rit-
höfundur 'sem gaf henni þetta nafn.
Nú hefur dagskrárdeild Sjónvarps
fengið nýjan dagskrárstjóra, al-
þekktan mann úr leiklistarlífi borg-
arinnar, og hefur hann haft á orði í
útvarpsviðtali að leikið innlent efni
þyrfti að vera meira í sjónvarpinu.
Af þessu tilefni var bent á að þar sem
útvarpið væri kennt við gufu væri
ekki úr vegi að kalla sjónvarpið
gufubaðið með hliðsjón af þyngri
dagskrá í vændum.
BogdanogGatvitilSpánar?
Dropateljara hefur borist til eyrna
að Bogdan Kowalzcyk landsliðs-
þjálfari í handknattleik sé alvarlega
að íhuga að fara til Spánar til að
þjálfa þar lið Barcelona. Einnig
hefur dropateljarinn hlerað að
Guðjón Guðmundsson (Gaupi) ætli
þá að fara með Bogdan til Baska-
liðsins, en þeir félagar hafa átt mjög
náið samstarf undanfarin ár. Átli
Hilmarsson landsliðsmaður mun
leika með Granollers á Spáni í vetur
og það verður því stutt fyrir þá
Bogdan og Gaupa að skreppa í kaffi
til Atla ef að líkum lætur.
Slegið á þenslu - minni
tekjur í rikiskassann
Eins og áður segir velta menn nú
fyrir sér ýmsum dæmum til þess að
ná því markmiði ríkisstjómarinnar
að skila fjárlögum næsta árs með
tekjuafgangi upp á 500 til 1000
milljónir. Steíngrímur Hermanns-
son, forsætisráðherra, sagðist í sam-
tali við Tímann ekki geta tjáð sig um
hugsanlegar leiðir til að ná þessu
markmiði.
Aðspurður um hvort ríkisstjórnin
hefði rætt um 3,5 milljarða skatt-
heimtu á næsta ári sagðist forsætis-
ráðherra hvorki vilja staðfesta þá
tölu eða neita. „Það er hinsvegar
ljóst að það verður að hækka skatta
eitthvað," sagði Steingrímur. Og
hann bætti við: „Óneitanlega verður
erfiðara að ná saman endum vegna
þess að þenslan er að minnka, sem
betur fer. Þetta hefur það hinsvegar
í för með sér að söluskattstekjur
minnka og sama gildir um skatta af
tekjum einstaklinga. Sem betur fer
er minnkandi þensla en hún hefur
neikvæð áhrif á stöðu ríkissjóðs.“
Samkvæmt óstaðfestum en áreið-
anlegum heimildum Tímans stefnir í
um 2,2 milljarða króna tekjumissi
ríkissjóðs, frá því sem upphaflega
hafði verið gert ráð fyrir á fjárlögum
yfirstandandi árs. Þetta helgast af í
fyrsta lagi 500 milljóna lægri tekjum
af tekjuskatti, í öðru lagi 1000 mill-
jón króna tekjutapi vegna minni
veltu, þ.m.t. minni söluskattstekjur,
og í þriðja lagi 700 milljóna króna
lægri tollatekjum en gert var ráð
fyrir.
Indriði H. Þorláksson, hagsýslu-
stjóri, sagðist ekki geta staðfest
þessar tölur en hitt sagði hann rétt
að menn horfðu nú fram á mun
minni tekjur í ríkiskassann en áætlað
hafði verið vegna þess m.a. að slegið
hefði verulega á þensluna. Þá sagði
Indriði það deginum ljósara að þessi
staðreynd hlyti að hafa áhrif þegar
fjárlagadæmi næsta árs væri reiknað.
óþh
Hjá Húsasmiðjurmi dugar
eldd að biðja kassadömuna
um fittiugs!
Heimilisverslun Húsasmiðjunnar
er með sérstaka deild fyrir pípu-
lagnir. Þar kennir ýmissa grasa, sem
eru sérstaklega áhugaverð fyrir
áhugamenn um ofna, eldhúsvaska
og krana. Þar eru líka pípulagninga-
menn til leiðbeininga fyrir þá sem
ætla sér að leggja út á hálar brautir
pípulagna heimilisins. Þess vegna
köllum við nýju verslunina okkar
heimilisverslun.
Á hinn bóginn eru pípulagnir
vandasöm iðngrein, sem oftast nær
er heppilegast að fela fagmönnum.
Þess vegna er pípulagnadeild Húsa-
smiðjunnar að mestu leyti sniðin að
þörfum atvinnumanna, —
pípulagningamanna, sem vita hvað
þeir vilja og þurfa atvinnu sinnar
vegna. Þeir geta gengið beint að
hlutunum í pípulagnadeild okkar, -
og fengið afgreiðslu á einfaldan og
snöggan hátt.
Heimilisverslun Húsasmidjunnar
Pípulagnadeild — með réttan skrúfgang!
HUSA
SMIDJAN
SKÚTUVOGI 16 • SÍMI 68 77 00