Tíminn - 04.05.1989, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 4. maí 1989
Tíminn 19
Að missa það sem mað-
ur hefur aldrei átt
Nemendaleikhúsið: Hundhepp-
inn eftir Ólaf Hauk Símonarson.
Leikstjóri: Pétur Einarsson. Leik-
mynd og búningar: Guðrún Sig-
ríður Haraldsdóttir. Lýsing, hljóð
og smíðar: Ólafur Örn Thor-
oddsen.
Sýning Nemendaleikhússins í
Lindarbæ á Hundheppinn er að
mörgu leyti sérstæð. Hún er loka-
verkefni átta nemenda við Leiklist-
arskóla Islands eftir strangt fjögurra
vetra nám. í annan stað er Hund-
heppinn, leikrit Ólafs Hauks Símon-
arsonar, sérstaklega samið fyrir
þennan hóp og tekur því mið af
honum. Það verður að reyna á hæfni
allra leikaranna, en í reynd bjóða
hlutverkin upp á mismikil tilþrif eins
og síðar verður vikið að. Ekki er
mér kunnugt um hversu langan tíma
höfundur hefur fengið til samningar
verksins. Það hlýtur þó að vera
lyftistöng fyrir íslenskt leikhús - þótt
misvel takist til - að allt frá stofnun
Leiklistarskóla íslands hefur verið
leitað til íslenskra rithöfunda að
semja leikrit fyrir Nemendaleikhús-
ið.
Hundheppinn getur ekki talist
veigamikið verk. Það fjallar um
innihaldslítið líf nútímafólks í borg-
arsamfélagi: húsbyggingar og
neysluæði. En það fjallar einnig um
ást, tilfinningu sem persónur leikrits-
ins forðast að skilgreina, um sam-
bandsleysi, svik, framhjáhald, af-
brýði, kynlíf og ofbeldi svo eitthvað
sé nefnt. Leikritið gerist á u.þ.b.
fimmtán árum. Við fylgjumst með
fimm bekkjarsystkinum frá því þau
eru í barnaskóla og fram á þrítugs-
aldur. Aðalpersónan er þó Ari sem
elskar Báru og er hýddur af skóla-
stjóranum fyrir að segjast elska
hana. 1 leikritinu er brugðið upp
stuttum svipmyndum frá lífí þeirra
sem einkum snýst um kynlíf; fyrsta
kossinn, fyrstu samfarir, brúðkaups-
nóttina, framhjáhald o.s.frv. Allt tal
og atferli „elskendanna" vakti kát-
ínu áhorfenda enda á ýktum og
léttum nótum gamanleiksins þar sem
áhorfendur vita meira um persón-
urnar en þær sjálfar.
Nafn leikritsins Hundheppinn
merkir andhverfu sína, óheppinn.
Endir leikritsins má teljast „billeg"
lausn. Þó má taka hann gildan með
texta þann í huga sem Bára les upp
fyrir bekkinn í kennslustund að
tilgangur lífsins sé að elska og vera
elskaður. Ari og Bára kunna ekki
listina og farast.
Ari ætlar í upphafi aldrei að líta á
aðra stelpu en Báru. Þó eiga þau
ekkert sameiginlegt. Þetta sjá áhorf- '
endur en sjálf telja þau sig blind af
ást og hin rómantíska Lóa telur
samband þeirra fullkomið. Um leið
og Bára hefur krækt í Ara hefur hún
eingöngu áhuga á að kaupa og
eignast hluti og tekur þetta æði út
yfir allan þjófabálk.
ístöðuleysi og siðleysi Ara kemur
svo fram meðan Bára dvelst á fæð-
ingardeildinni þar sem hún hefur alið
tvíbura. Þá tekur hann upp samband
við Gróu, konu Valla vinar síns, sem
er erlendis. Gróa þessi er „með
brókarsótt" og algjör andstæða
Báru. Þykir Ara nóg um kynfýsn
hennar. Eftir að Ari byrjar að vinna
við frjálsa útvarpsstöð missir hann
algerlega tök á lífi sínu og lendir í
sukki og svínaríi. Ekki verður sú
saga rakin frekar.
Það reynir mest á Stein Ármann
Magnússon í hlutverki Ara og hon-
um ferst það vel úr hendi eins og
öðrum sem minni hlutverk hafa.
Ýmislegt hef ég séð á leiksviði en
aldrei sund fyrr en hér. Valli vinur
hans er leikinn af Sigurþóri Albert
Heimissyni. Valli er fremur litlaus
persóna en góður og geðþekkur.
Hann reynist vera hommi: „Ég vildi
að þú vissir hver ég væri“, segir hann
við Ara á einum stað. En Ari bregst
við með ofbeldi, aðferð hins ráða-
lausa. Kvenlýsingar eru hefðbundn-
ar og hugmyndir um hlutverk kynj-
anna gamaldags. Vinkonurnar þrjár
eru týpur en ekki persónur: Bára,
hin kyndaufa eiginkona, Gróa, hin
óseðjandi vampíra, Lóa, hin ofur-
rómantíska kona sem bíður eftir
draumaprinsinum sem aldrei kemur,
dæmd til skírlífis að eilífu, eða
hvað? „Heldur þú að þessir froskar
okkar breytist einhvem tímann í
prinsa?" spyr Gróa Lóu á einum
stað. Þessi hlutverk em í höndum
Elvu Óskar Ólafsdóttur, Helgu
Braga Jónsdóttur og Christine Carr,
sem allar em föngulegar leikkonur
og skemmtilega ólíkar. - Sumir
leikaramir eru í fleiri hlutverkum,
t.d. Ólafur Guðmundsson sem er í
sex smáhlutverkum, þeirra á meðal
skólastjórans og sadistans með hitl-
ersskeggið. Þá leikur Steinunn Ól-
afsdóttir t.d. móður Ara sem er ein
þeirra mæðra sem líta ávallt á af-
kvæmin (einkum synina) sem bjarg-
arlaus börn hversu gömul sem þau
verða. Og enn er klifað á hinni
týpísku mynd tengdamóðurinnar
sem er óalandi og óferjandi.
Atburðarásin er hröð, atriðin stutt
og skipti greið. Sviðsmynd er ein-
föld, í rauðum lit og leikmunir fáir.
Áberandi er hve mismunandi rúm
gegna mikilvægu hlutverki, dánar-
beð, hjónarúm, rúm á fæðingar-
deild.
Meginstyrkur leikritsins er bráð-
fyndinn og skemmtilegur texti. Per-
sónusköpun er hins vegar flöt og
persónur leiksins vöktu enga samúð,
manni var einhvern veginn nákvæm-
lega sama um örlög þeirra. Nú er
flest leyfilegt í leikhúsi og ýmsum
formum blandað saman. Slíkt er þó
mikil list. Það er erfitt að flétta
saman gamanleik og sorgarleik svo
vel sé. Hér hefur það ekki tekist sem
skyldi.
En undir léttu yfirborði leiksins
ríkir tómhyggjan þar sem menn
óttast að missa það sem þeir halda
að þeir eigi en hafa aldrei átt.
Gerður Steinþórsdóttir.
rkvmwo ■ «nr
N-ísfirðingar, nágrannar
SUF og kjördæmissambandið standa fyrir félagsmálanámskeiði í
húsi framsóknarmanna á ísafirði, laugardaginn 6. maí n.k.
Nánari upplýsingar hjá Geir Sigurðssyni í síma 4754 og Elíasi
Oddssyni í síma 4256.
Félagar fjölmennið.
Reykjanes
Skrifstofa Kjördæmissambandsins að Hamraborg 5, Kópavogi er
opin á mánudögum og miðvikudögum kl. 17 til 19. Sími 43222.
K.F.R.
Akranes
Fundur verður haldinn laugardaginn 6. maí-kl. 10:30 í Framsóknar-
húsinu við Sunnubraut.
Fundarefni: Dagskrá bæjarstjórnarfundar.
Bæjarfulltrúarnir
Umboðsmenn Tímans:
Kaupstaður: Nafn umboðsmanns Heimill Sfmi
Hafnarfjörður Ragnar Borgþórsson Hamraborg 26 45228
Kópavogur LindaJónsdóttir Holtagerði 28 641195
Garðabær Ragnar Borgþórsson Hamraborg 26 45228
Keflavfk GuðríðurWaage Austurbraut 1 92-12883
Sandgerði Margrót Magnúsdóttir Hjallagötu4 92-37771
Njarðvfk Kristinn Ingimundarson Faxabraut4 92-13826
Akranes Aðalheiður Malmqvist Dalbraut55 93-11261
Borgarnes Inga Björk Halldórsdóttir Kveldúlfsgata 26 93-71740
Stykklshólmur Erla Lárusdóttir Silfurgötu25 93-81410
Ólafsvfk LindaStefánsdóttir Mýrarholti 6A 93-61269
Grundarfjörður Anna Aðalsteinsdóttir Grundargötu15 93-86604
Hellissandur Ester Friðþjófsdóttir Háarifi 49 93-66629
Búðardalur Kristiana Guðmundsdóttir Búðarbraut3 93-41447
ísafjörður Jens Markússon HnífsdalsvegilO 94-3541
Bolungarvík Kristrún Benediktsdóttir Hafnargötu 115 94-7366
Flateyri Guðrún Kristjánsdóttir Brimnesvegi2 94-7673
Patreksfjörður Ása Þorkelsdóttir Urðargötu 20 94-1503
Bfldudalur HelgaGisladóttir Tjarnarbraut 10 94-2122
Þlngeyri Karitas Jónsdóttir Brekkugötu 54 94-8131
Hólmavfk Elisabet Pálsdóttir Borgarbrautö 95-3132
Hvammstangi Friðbjörn Níelsson Fífusundi 12 95-1485
Blönduós Snorri Bjarnason Urðarbraut20 95-4581
Skagaströnd ÓlafurBernódusson Bogabraut 27 95-4772
Sauðárkrókur Guðrún Kristófersdóttir Barmahlið13 95-5311
Siglufjörður Guðfinna Ingimarsdóttir Hvanneyrarbraut 54 96-71555
Akureyri Jóhannes Þengilsson Kambagerði 4 96-22940
Svalbarðseyri ÞrösturKolbeinsson Svalbarðseyri 96-25016
Húsavfk Ólafur Geir Magnússon Hjarðarhóli 2 96-41729
Ólafsfjörður HelgaJónsdóttir Hrannarbyggð8 96-62308
Rautarhöfn Ófeigurl.Gylfason Sólvöllum 96-51258
Þórshöfn KristinnJóhannsson Austurvegi 1 96-81157
Vopnafjörður Svanborg Viglundsdóttir Kolbeinsgötu44 97-31289
Egilsstaðir Páll Pétursson Árskógar 13 97-1350
Seyðisfjörður Anna Dóra Árnadóttir Fjarðarbakka 10 97-21467
Neskaupstaður KristfnÁrnadóttir Nesbakka16 97-71626
Reyðarfjörður Marfnó Sigurbjörnsson Heiðarvegi12 97-41167
Eskifjörður Þórey Dögg Pálmadóttir Svínaskálahlíð19 97-61367
Fáskrúðsfjörður Guðbjörg H. Eyþórsdóttir Hliðargötu4 97-51299
Stöðvarfjörður Svava G. Magnúsdóttir Undralandi 97-58839
Djúpivogur ÓskarGuðjón Karlsson Stapa, Djúpavogi 97-88857
Höfn Ingibjörg Ragnarsdóttir Smárabraut13 97-81255
Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Skólavöllum14 98-22317
Hveragerði Lilja Haraldsdóttir Heiðarbrún51 98-34389
Þorlákshöfn ÞórdisHannesdóttir Lyngberg 13 98-33813
Eyrarbakki ÞórirErlingsson Túngötu28 98-31198
Stokkseyri Hjörleifur Bjarki Kristjánsson Sólvöllum 1 98-31005
Laugarvatn HalldórBenjaminsson Flókalundi 98-61179
Hvolsvöllur JónínaogÁmýJóna Króktún 17 98-78335
Vík VíðirGylfason Austurveg 27 98-71216
Vestmannaeyjar MartaJónsdóttir Helgafellsbraut 29 98-12192
ÓKEYPIS
hönnun auglýsingar þegar þú auglýsir í
TÍMANUM
AUGLÝSINGASÍMI 680001
TÖLVUNOTENDUR -
Við í Prentsmiðjunni Eddu
hönnum, setjum og prentum
allar gerðir eyðublaða fyrir tölvuvinnslu.
Smiðjuvegí 3, 200 Kópavogur. Sími 45000