Tíminn - 20.05.1989, Qupperneq 2
GOG r ism OS vjDEbisousJ
2 Tíminn
Laugardagur 20. maí 1989
Apótekarar rausnarlegir viö lyfjafræöinga - á kostnaö ríkisins:
Lyfjafræðingar fengu
10-15 þús. kr. hækkun
„Þetta voru engir kennarasamningar, því það tók samn-
inganefndirnar víst ekki nema 2-3 klukkutíma að ljúka
þeim,“ sagði einn af launagreiðendum lyfjafræðinga sem
nýlega hafa samið með svo þægilegum hætti um 10-15 þús.
króna taxtahækkun við undirskrift samnings. Sýnist það
nokkuð ríflegt í samanburði
lágiaunamanna innan ASÍ t.d.
Taxtar lyfjafræðinga voru frá rúm-
lega 72 þús.kr. upp í rúmlega 116
þús.kr. fyrir samningana. Eftir
undirskrift eru þeir orðnir frá tæp-
lega 77 þús.kr. upp í nær 132 þúsund
krónur á mánuði, eftir starfsaldri.
Tímakaup í dagvinnu er frá 480 til
824 kr. og í yfirvinnu frá 797 upp í
1.369 kr. á tímann.
Fyrir apótekara eru þessar ríflegu
kauphækkanir hins vegar ekki eins
dýrar og ætla mætti. Því þær fara,
a.m.k. að hluta, sjálfkrafa beinustu
leið inn í lyfjaverðið með hækkun
svonefndra afgreiðslugjalda, sem
við 2.000 kr. launahækkun
apótekarar fá að leggja á lyfin til
viðbótar við 68% smásöluálagningu.
Örlæti apótekaranna er því ekki síst
á kostnað ríkiskassans og skattborg-
aranna.
Það verða þó tæplega einustu
áhrifin sem þessir „kjarasamningar
á almenna markaðnum" hafa á ríkis-
kassann. Því líklegt er að laun
lyfjafræðinga „á almennum mark-
aði“ verði meðal þeirra sem tekið
verður mið af þegar kemur að þeim
samanburði við laun á almenna
markaðnum sem ríkið hefur nú sam-
ið um við BHMR.
Hin nýja launatafla lyfjafræðinga
bendir til að samningurinn hafi verið
einhverjum sem að henni stóðu
nokkurt feimnismál. Því þótt þess sé
ekki getið í samningi hefur launa-
flokkum allt í einu fjölgað úr 9 upp
í 10, sem þýðir 6% hækkun. Sá hluti
launahækkunarinnar fæst með því
að allir flytjast upp um einn flokk,
en hinn lægsti verður óvirkur.
Apótekarafélag íslands er aðili að
Vinnuveitendasambandi fslands.
Tíminn spurði því Þórarinn V. Þór-
arinsson hvort VSÍ hefði lagt blessun
sína yfir 5-7 sinnum meiri kaup-
hækkanir til lyfjafræðinga heldur en
VSÍ samdi um við t.d. verkalýð og
verslunarmenn.
Þórarinn kvaðst ekki hafa séð
samninginn og VSÍ þar af leiðandi
ekki samþykkt hann, sem er skilyrði
þess að samningurinn öðlist fullt
gildi. " - HEI
Lyfjafræðingar sömdu um verulegar hækkanir umfram það sem almennt var
samið um.
Ásmundur Stefánsson formaöur ASÍ:
Þýðirvæntanlega
aukinn launamun
Ásmundur Stefánsson og Þórarinn V. Þórarinsson.
Þórarinn V. Þórarinsson:
Sjálfdæmi um yf irvinnu
eftir verkfall einsdæmi
„Siðferðilega tel ég það afar
ámælisvert að fara fram á, og að
verða við því, að greiða hluta kaups
til fólks sem verið hefur í verkfalli,"
sagði Þórarinn V. Þórarinsson fram-
kvæmdastjóri VSÍ, í samtali við
Tímann, um nýgerðan kjarasamning
ríkisins og BHMR.
f annan stað kvaðst Þórarinn telja
það einsdæmi, að þeim sem staðið
hafa í vinnudeilu sé síðan fengið
sjálfdæmi um það hversu mikla yfir-
vinnu þeir vinni í framhaldi af kjara-
deilunni. „Og sínu verst er þó það,
að það sjálfdæmi skuli bitna á börn-
um,“ sagði Þórarinn. -HEI
Ásmundur Stefánsson sagði í sam-
tali við Tímann í gær að fljótt á litið
væri erfitt að átta sig á því hvað
nýgerður samningur BHMR fæli í
sér í raun og veru. „Það er æði erfitt
fyrir aðra en þá sem tekið hafa þátt
í samningagerðinni að átta sig á
hvað þær viðmiðanir sem þarna eru
settar fram þýða og hvað sú kjara-
dómsmeðferð sem er fyrirhuguð fel-
ur raunverulega í sér. Þar er ég
auðvitað fyrst og fremst að tala um
þær hækkanir sem eiga að verða á
næsta ári og í framtíðinni. Það mætti
ætla af texta samningsins að stefnt sé
að því að auka launamismuninn
með þvt' að greiða meira fyrir til
dæmis stjórnunarábyrgð og lengd
menntunar. Slíkt er nokkuð þvert á
þá launastefnu sem er í samningum
okkar og BSRB, þar sem mjög
ákveðið var stefnt að launajöfnun.
Nýgerður samningur BHMR myndi,
ef rétt er skilið, leiða til aukins
launamunar.“
Aðspurður sagði Ásmundur að
hvorki væri hægt að svara því játandi
eða neitandi hvort samningur
BHMR kæmi til með að hafa áhrif á
gerð kjarasamninga í lok ársins.
„Það verður að koma betur í ljós
hvað þetta þýðir í raun áður en farið
er að tala um hver áhrifin geti
hugsanlega orðið.“
- En hvað með svokallaðar stríðs-
skaðabætur sem ríkið féllst á að
greiða, þ.á m. laun meðan á verkfall-
inu stóð?
„Ég sé það nú ekki alveg fyrir mér
að það yrði auðvelt að ná slíku fram
í samningum okkar megin en það er
auðvitað alveg ljóst, að í samningum
er frjálst að semja um hvað sem er
og ég sé í sjálfu sér ekki ástæðu til
að vera með sérstakar yfirlýsingar
vegna þessarar launagreiðslu frekar
en annarra,“ sagði Ásmundur að
lokum. SSH
Borgaraflokksfundurinn á fimmtudagskvöldi í Þórskaffi:
Helena með kveðju eða
stuðningsyfirlýsingu?
Á fundi Borgaraflokksins í Þórs-
kaffi s.l. fimmtudagskvöld las Ásgeir
Hannes Eiríksson upp kveðju frá
Helcnu Albertsdóttur við góðar
undirtektir fundargesta. Ingi Björn
Albertsson hefur tekið fyrir að systir
hans hafi sent umrædda kveðju og
segir að með þessu hafí fundarmenn
verið blekktir.
Ingi Björn sagði í samtali við
Tímann í gær að hvað þetta mái
varðaði væri nærtækast að vísa til
ummæla sem Helena sjálf hafði á
einni af útvarpsstöðvunum í hádegis-
fréttum í gær. Þar hafi Helena sagt
að hún hafi einungis sent kveðju til
vina sinna sem væru staddir á fundin-
um en ekki hafi verið um neinar
stuðningsyfirlýsingar eða slíkt að
ræða. Jafnframt hafi hún lýst furðu
sinni á því að ummæli hennar skyldu
túlkuð á þann veg sem gert var á
fundinum.
Ásgeir Hannes Eiríksson stendur
fast á því að Helena hafi sent
stuðningsyfirlýsingu á fundinn og
hefur Ásgeir sent frá sér eftirfarandi
áréttingu:
„Helena Albertsdóttir hringdi á
fund Borgaraflokksins í Þórskaffi í
gærkvöldi og starfsfólk hússins kall-
aði mig í símann. Þar tók ég niður á
blað kveðju frá Helenu til fundar-
gesta og Jón Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri flokksins hlustaði á
samtal okkar og ræddi nokkur orð
við Helenu að því loknu.
Ég las síðan kveðjuna fyrir fund-
argesti á þessum fjölmennasta fundi
Borgaraflokksins frá stofnun hans
og orðrétt hljóðaði hún svo:
„Þó ég sé nú fjarri góðu gamni í
kvöld, þá er ég með ykkur í anda.
Mér er ekki rótt nema kveðjur
mínar berist á þennan fund. Borg-
araflokksfólk mun harðna við hverja
raun. Kveðja, Helena Albertsdótt-
ir.“
Ég læt liggja milli hluta hvernig
fólk úti í bæ kýs að meta þessa
vinarkveðju og skoðanir þess eru
mér áfram að meinalausu."
Um áréttingu Ásgeirs sagði Ingi
Björn: „Þetta finnst mér vera spurn-
ing sem Helena verður að svara.
Þetta var auðvitað tveggja manna tal
milli þeirra og það er ómögulegt að
segja hvor fer með rétt mál en í
mínum huga eru það skýringar Hel-
enu sem eru hið sanna í þessu máli.
Ég tel hana vera miklu trúverðugri
persónu en Ásgeir Hannes. „
Ingi Björn var einnig spurður álits
á þeim ummælum stjórnar Borgara-
flokksins á Akranesi að hann ætti
með réttu að víkja af þingi þar sem
hann væri ekki lengur fulltrúi Borg-
araflokksins. Varðandi þetta sagði
Ingi Björn: „Stjórn flokksins á
Skaganum er nú ekki fullskipuð þar
sem m.a. formaðurinn yfirgafstjórn-
ina er klofningurinn varð. En varð-
andi þetta mál er auðvitað hlægilegt
að varaþingmaðurinn reyni að kom-
ast inn á þing eftir þessum lefðum.
Helena Albertsdóttir.
Við þurfum ekki annað en að líta til
þess tíma er Bandalag Jafnaðar-
manna klofnaði þá gengu þingmenn
þess inn í aðra flokka og sátu þó
áfram á þingi, þannig að það eru
fordæmi fyrir þessu fyrirkomulagi.
Hitt er annað mál að ég fór inn á
þing undir ákveðinni stefnu og
stefnuskrá og ég starfa ennþá eftir
henni en þeir sem enn eru í Borgara-
flokknum starfa ekki eftir henni og
ættu öllu frekar að víkja en ég.“
SSH