Tíminn - 20.05.1989, Síða 4
4 Tíminn
Laugardagur 20. maí 1989
LBfSMES
GRÓÐURHÚSIN
ERU
KOMIN
Vönduð álhús m/3
mm. gróðurhúsa-
gleri eða 4 mm tvö-
földu ylplasti.
Stærðir:
6,6 ferm. 256x256 cm.
8,2 ferm. 256x320 cm.
9,8 ferm. 256x382 cm.
SINDRAÆlSTÁLHF
IÐNSKÓUNNI REYKJAVlK
Til aö Ijúka þeirri kennslu, sem féll niður í verkfalli
H.Í.K., hefst kennsla samkvæmt stundaskrá
mánudaginn 22. maí. Kennt verður í tvær vikur.
Þriðjudaginn 23. maí hefjast vorannarpróf sam-
kvæmt nýrri próftöflu. Þeim nemendum, sem þess
óska, verður gefinn kostur á að Ijúka vorönn í
ágústmánuði með þátttöku í námskeiði og/eða
prófum til að Ijúka námi á vorönn.
Fundur verður með nemendum kl. 18.00 á mánu-
dag.
Iðnskólinn í Reykjavík
Niðjamót
Fyrirhugað er að halda niðjamót Guðbjargar og
Árna sem bjuggu á Bæ á Bæjanesi í V.-Barða-
strandarsýslu um og eftir 1850.
Til að kanna áhugann er fólk vinsamlegast beðið
að hafa samband við Ólínu í síma 98-34324,
Kristjönu í síma 98-34165 og Sigurð í síma
91-76697.
Röskur strákur
16 ára, óskar eftir að komast í sveit í sumar.
Er vanur öllum sveitastörfum.
Upplýsingar í síma 91-78914.
Sveit
14 ára stelpa og 12 ára strákur óska eftir að
komast í sveit. Eru vön.
Upplýsingar í síma 91-73361.
■ I ' '-f : W§L i v p* 1 ?
\n L 4|fi
W'mmwÆ - ' f f ^ J| líÍlÖÍl&v*' 1
Sfir 1
Framkvæmdastjóri Menningarsjóðs, Einar Laxness og varaform. menntamálaráðs, Ásiaug Brynjólfsdóttir sjást hér
ásamt nokkrum styrkþeganna. Tímamynd Arnl Bjama
Styrkjum úthlutað
úr Menningarsjóði
Menningarsjóður hefur veitt 11 styrki til listamanna, þar af
8 dvalarstyrki að upphæð 110 þúsund kr. hvern og þrjá styrki
til útgáfu tónverka að upphæð samtals 160 þúsund kr.
Það var Áslaug Brynjólfsdóttir
varaform. menntamálaráðs sem af-
henti styrkina og sagði við það
tækifæri að fjölmargar umsóknir hafi
borist um styrkina og valið því verið
erfitt. Hún kvaðst vonast til að þessi
viðurkenning yrði styrkþegunum til
uppörvunar og yki hjá þeim sköpun-
argleði þeirra og ímyndunarafl og
vitnaði í framhaldi af því til Þórbergs
Þórðarsonar þar sem hann segir:
„Megnið af volæði veraldarinnar
stafar af skorti á ímyndunarafli."
Eftirfarandi aðilar fengu dvalar-
styrki: Auður Bjarnadóttir, til að
kynna sér klassískan ballet í
London. Guðjón Petersen til að
kynna sér þýsk leikhús og leikstjórn.
Grétar Reynisson, til að kynna sér
leikmyndagerð í Lubeck. Kolbrún
S. Kjarval, til að vinna að leirmuna-
gerð í Bandaríkjunum. Mist Þor-
kelsdóttir til að vinna að tónsmíðum
í Bandaríkjunum. Sigurður A.
Magnússon, til að afla sér gagna á
söfnum í Stokkhólmi og Kaup-
mannahöfn. Sigurjón Birgir Sigurðs-
son (Sjón), til að afla sér gagna á
söfnum í Hollandi vegna skáldverks.
Tónlistarstyrkina hlutu hins vegar
þessir: Gísli Magnússon, fær 50.000
til útgáfu á hljómplötu með píanó-
leik. Mótettukór Hallgrímskirkju
fær 60.000 kr. til útgáfu hljómdisks
með íslenskri kirkjutónlist. Tónlist-
arfélag Kristskirkju fær 50.000 kr til
útgáfu hljómdiska með íslenskri
flautu- og sembaltónlist. - BG
Kennarar, hjúkkur og iðnaðarmenn sprengdu húsnæðislánakerfið:
Nær 30% allra umsókna
frá menntamillihópum
Fjórðungur (25%) allra fjölskyldna sem teljast til mennta-
millihópa (aðallega kennslu- og heilbrigðisstéttir) sóttu um
lán frá Húsnæðisstofnun á innan við tveim árum, þ.e. frá
haustinu 1986 til sumarsins 1988, ef marka má húsnæðiskönn-
un Félagsvísindastofnunar.
Um 29% allra sem sótt höfðu um
lán í fyrrasumar tilheyrðu þessum
stéttum. Miðað við 15.000 lánsum-
sóknir sem þá höfðu borist hafa til
Húsnæðisstofnunar hafa því um
4.350 verið frá þessum hópi. Það eru
fleiri umsóknir heldur en samtals frá
verkamönnum, verslunarmönnum,
sjómönnum og bændum. Þar til
viðbótar kváðust 13% menntamilli-
hópsins ætla að sækja um lán á næstu
tveim árum. Gangi það eftir eru nær
4 af hverjum 10 í þessum hópi í
íbúðakaupahugleiðingum.
Úr gögnum húsnæðiskönnunar
sinnar vann Félagsvísindastofnun
nákvæmari úttekt fyrir félagsmála-
ráðuneytið í því skyni að fá betri
mynd af þeim þúsundum manna sem
sótt hafa um lán Húsnæðisstofnunar
(eftir september 1986) eða hyggðist
gera það á næstu tveimur árum
(1989-90). Hópnum er m.a. raðað
niður í stéttir þar sem miðað er við
starf eiginmannsins ef um hjón/par
er að ræða.
Athygli vekur hve þessi „millihóp-
ur“ sker sig úr þegar litið er á hlutfall
hverrar stéttar sem þegar hafði sótt
um lán. Og á hinn bóginn hve
hlutfallslega fáar umsóknir voru frá
fjölskyldum/einstaklingum í hópi
verkamanna og verslunar-og skrif-
stofumanna. Hlutfall hverrar stéttar
sem sótt hafði um lán er sem hér
segir:
Millihópar 25%
Stjórnendur/sérfr. 15%
Iðnaðarmenn 13%
Sjómenn/bændur 11%
Verkafólk 7%
Afgr./skrifstofuf. 6%
Húsm./lífeyr.þ./nemar 3%
Meðaltal allra 12%
Sé gengið út frá að þær u.þ.b.
15.000 lánsumsóknir sem Húsnæðis- stofnun höfðu borist þegar könnunin var gerð skiptist eins og niðurstöður hennar benda til hefur fjöldi um- sókna frá hverjum hópi verið sem
hér segir:
Fjöldi umsókna eftir stéttum:
Millihópar 4.350
Iðnaðarmenn 3.750
Stjórn./sérfræðingar 2.550
Verkafólk 1.760
Sjómenn/bændur 1.430
Afgreiðslu/skrifst. f. 970
Húsm./lífeyrþ./nemar 190
Umsóknir alls: 15.000
Þess má geta að í könnun sem
Félagsvísindastofnun gerði fyrir
tveim árum kom m.a. fram að um
80% svarenda úr hópi iðnaðar-
manna, kennslu- og heilbrigðisstétta
og sjómanna bjuggu í eigin íbúðum,
frá 85-90% sérfræðinga, stjórnenda,
bænda og atvinnurekenda. Hlutfall
verslunarfólks í eigin húsnæði var
hins vegar 72% og verkafólks aðeins
64%.
Þegar kemur að þeim 14% þjóðar-
innar sem sögðust ætla að sækja um
lán á næstunni verður skiptingin
milli stétta hins vegar mun jafnari.
Þó vekur athygli, að um 6-7 sinnum
fleiri ætla að sækja um heldur en
þegar höfðu gert það úr hópi hús-
mæðra/lífeyrisþega/nema. Hlutfall
væntanlegra umsækjenda úr hópi
verslunar/skrifstofufólks er líka hátt,
öfugt við hlutfall raunverulegra um-
sækjenda. Af öðrum hópum voru
það 11-16% sem ætluðu að senda
inn lánsumsókn.
Ef litið er á samanlagt hlutfall
þeirra sem sótt höfðu um og ætluðu
að sækja um á næstu tveimur árum
eru það á bilinu 22-27% í hverri stétt
sem eru í íbúðakaupa eða byggingar-
hugleiðingum, að millimenntahópn-
um undanskildum. Af þeim ætluðu
11% að senda inn umsókn til viðbót-
ar þeim 25% hópsins sem þegar
höfðu gert það, þ.e. samtals 38% af
öllum þeim sem teljast til þessarar
stéttar. - HEI