Tíminn - 20.05.1989, Page 15
Laugardagur 20. maí 1989
Tíminn 15
llllllllllllllllllllllllilll TÓNLIST lllllllllllilllllllllllll
Sinfóníutónleikar 11. maí
Efnisskrá:
Magnús B. Jóhannsson: Punktar
Beethoven: Píanókonsert nr. 5
Sjostakóvitsj: Sinfónia nr. 15
„Ég vil heldur hafa nokkur strönd
og klárheit á milli, heldur en lutter
dunkelheit," hefur Þorvaldur Thor-
oddsen eftir sr. Hannesi Árnasyni
Lærðaskólakennara. Þessi orð hins
ágæta heimspekings komu í hugann
þegar Halldór Haraldsson var að
spila „keisarakonsert" Beethovens,
því hann spilaði af miklum krafti og
talsverðum glæsileik á köflum, en
fipaðist smávegis nokkrum sinnum.
En slíkt gerir ekkert til, og tæki
raunar ekki að nefna það nema til að
réttlæta tilvitnunina í sr. Hannes.
En það er semsagt full ástæða til að
gleðjast yfir þessum flutningi Hall-
dórs og óska honum til hamingju.
Ýmsir helstu píanistar vorir hafa
flutt konserta Beethovens í vetur,
og var Halldór þeirra síðastur - og
konsertinn auk þess talinn mestur
konserta skáldsins. Nafnið keisara-
konsert er ekki frá Beethoven
komið, heldur líklega frá útgefanda
hans til að örva söluna, því Beet-
hoven hafði einmitt gerst fráhverfur
Napóleóni Bónaparte þegar hann
krýndi sjálfan sig keisara árið 1801 -
en konsertinn var saminn 1809.
Tónskáld 20. aldar hafa séð
nokkra ögrun í þeim möguleikum
sem þau töldu sig sjá í rafeindatækn-
inni og þeim vélum sem af henni
hafa sprottið segulbandstækjum,
hljóðgervlum, mögnurum o.s.frv.
Magnús Blöndal Jóhannsson (f.
1925) er vafalítið í allra fremstu röð
íslenskra tónskálda og hefur komið
víða við á ferli sínum. Punktar fyrir
segulband og hljómsveit er tilraun í
þessa veru, að nota segulband og
„lifandi hljóðfæri“ saman á tónleik-
um. Verkið er frá 1961, og enda þót’t
mikil hugsun og form og hvaðeina
séu í verkinu frá tónlistarfræðilegu
sjónarmiði, svo sem lýst er í tón-
leikaskrá, þá nær sú hugsun ekki til
hlustandans. Tilraunin misheppnast
með öðrum orðum, og er ekkert um
það að segja að öðru leyti en því, að
illu heilli hafa tónskáld almennt ekki
lært af því.
Síðust og mest á efnisskránni var
15. og síðasta sinfónía Sjostakóvitsj
(1906-75), sem hann samdi sumarið
1971. Sjostakóvitsj er talinn mesta
Sínfóníuskáld þessarar aldar, ógur-
legur snillingur sem átti við ýmislegt
mótlæti að etja í viðskiptum sínum
við Jósef Stál og félaga. En skáldið
hertist af mótlætinu, eða lét a.m.k.
aldrei bugast. Fimmtánda sinfónían
er e.k. síðasta yfirlýsing til heimsins
og heldur drungaleg með köflum,
enda óvíst að skáldið hafi séð mikið
tilefni til bjartsýni. . Hljómsveitin
spilaði vel svosem oftast endranær,
en þó má vel vera að þetta sinfóníska
stórvirki hefði þurft ennþá meiri
æfingu til að ná fullkomnari heildar-
svip.
Austurríkismaðurinn Alexis
Hauser (f. 1947) stjórnaði þessum
15. og næstsíðustu sinfóníutónleik-
um vetrarins með góðum árangri og
af mikilli kunnáttu. M.a. stjórnaði
hann blaðlaust síðari verkunum
tveimur, 5. píanókonsert Beet-
hovens og 15. sinfóníu Sjostakovitsj,
og hafði sig þó mjög í frammi
umfram það að slá taktinn, „gaf
innkomur" óspart og lét sér annt um
styrkleikahlutföll.
Sig.Sf.
Dráttarvél
Óska eftir aö kaupa góða notaða dráttarvél með
tvívirkum ámoksturstækjum.
Upplýsingar á auglýsingadeild Tímans í síma
686300.
Veðursæld
Einbýlishús ásamt vænum landskika til sölu á
besta stað í Vopnafirði. Mikið áhvílandi. Uppl. í
síma 97-31442 og í lögfræðistofu Ásmundar S.
Jóhannssonar í síma 96-21721.
BBC eigendur
Nú er komin á markað ný og fullkomnari ritvinnsla fyrir
BBC tölvurnar:
RITSNILLD
Ritvinnslan er alíslensk og notast við gluggakerfi líkt og tíðkast á
ritvinnslum fyrir stærri og dýrari tölvur. Þetta gerir það að verkum að
ritvinnslan er afar einföld og .þægileg í notkun.
Söluaðili Ritsnilldar er Japis, Brautarholti, og fást þar frekari
upplýsingar.
BYGGD
Á HAGKVÆMNI!
Stálgrindahúsin frá Héðni eru þekkt fyrir hag-
kvæmni og traust. Þau má sjá víða um land og
þjóna þarfjölbreyttri atvinnustarfsemi svo sem:
FISKVERKUN, IÐNAÐI, LAGER,
FISKELDI,LOÐDÝRARÆKT, einnig sem
GRIPAHÚS og HLÖÐUR.
Burðarammar úr sandblásnu og ryðvörðu
gæðastáli eru afgreiddir í stöðluðum breiddum
en lengdir eftir þörfum.
Húsin eru klædd með GARÐASTÁLI sem
fæst í mismunandi prófílum og fjölbreyttum lit-
um. Einnig er hægt að velja mismunandi
hurðir.
Gréinagóðar teikningar og upplýsingar um
boltasetningu ofl. fylgja húsunum. Auðveldar
það alla uppsetningu og frágang.
Starfsmenn sölu-ög tæknideildar eru ávallt
reiðubúnir að veita ráðgjöf og skila kostnaðar-
áætlun eða tilboði ef óskað er
= HÉÐINN =
STÓRÁSI 6, GARÐABÆ
SlMAR 52000 OG 54230 (beint innval)
Styrkur til háskólanáms í Japan
Japönsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa íslendingi til háskólanáms
í Japan háskólaárið 1990-91 en til greina kemur að styrktímabil verði
framlengt til 1992. Ætlast er til að styrkþegi hafi lokið háskólaprófi eða
sé kominn nokkuð áleiðis i háskólanámi. Þar sem kennsla við
japanska háskóla fer fram á japönsku er til þess ætlast að styrkþegi
leggi stund á japanska tungu um a.m.k. sex mánaða skeið. -
Umsóknir um styrkinn, ásamt staðfestum afritum prófskírteina,
meðmælum og heilbrigðisvottorði, skulu sendar menntamálaráðu-
neytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 20. júní n.k. Séretök
umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið
17. maí 1989.
Hefur þu smakkað
9
okkar
Kaffibrennsla Akureyrar hf