Tíminn - 20.05.1989, Síða 18
18 Tíminn
Laugardagur 20. maí 1989
SAMVINNU
TRYGGINGAR
ARiíOLA 3 108 REYKJAVIK SIMl (91)681411
Útboð
Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðir sem skemmst
hafa í umferðaróhöppum.
MMC Lancer 1500 GLX 1989
Chevrolet Monza Classic 1988
Chrysler Le Baron GTS 1988
Ford Escort 1600 1987
Trabant Station 1987
Skoda 105 1987
Daihatsu Charade 1000 1986
VWGolf 1986
Skoda 120 LS 1985
Audi 200 1984
Opel Corsa 1984
Mazda 626 2000 1983
Ford TaunusGL 1982
HondaCivic 1981
Bifreiðirnar verða sýndar að Höfðabakka 9,
Reykjavík, mánudaginn 22. maí, kl. 12-16.
Á sama tíma:
Á Patreksfirði:
Daihatsu Charmant 1979
Á Sauðárkróki:
MMCCoit1200GL 1980
Á Hvolsvelli:
Subaru 1800 GL 1985
Á Selfossi:
Daihatsu Charmant 1979
Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga g.t.,
Ármúla 3, Reykjavík, eða umboðsmanna fyrir kl.
16, mánudaginn 22. maí 1989.
Samvinnutryggingar g.t.
- Bifreiðadeild -
Rll
Utboð
Innkaupastofnun Reykjavíkur, f.h. Rafmagnsveitu Reykjavíkur, óskar
eftir tilboöum í jarövinnu vegna Aðveitustöðvar 7 á Hnoöraholti.
Helstu magntölur eru:
Útgröftur 2550 m3
Sprengd klöpp 700 m3
Fylling 900 m3
Útboösgögn veröa afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík,
gegn kr. 10.000,-skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama staö, þriðjudaginn 30. maí 1989, kl.
15,00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
III
^ AA *N
P*s AA y
'jf Utboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Byggingadeildar Borgar-
verkfræöings, óskar eftir tilboöum í jarövinnu og lagnir viö fyrirhugaö
skautasvell í Laugardal.
Útboösgögn fást afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuveg 3, Reykjavík,
gegn kr. 5.000,- skilatryggingu.
Tilboöin veröa opnuð á sama stað, þriðjudaginn 30. maí kl. 14,00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Bændur
Tvítug stúlka óskar eftir að komast í sveit sem
ráðskona. Helst á Suðurlandi.
Upplýsingar gefur Ásdís í síma 91-28648.
■I MINNING llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll^
Sigurbjörg
Halldórsdóttir
Fædd 5. mars 1905
Dáin 28. apríl 1989
Föstudaginn 28. apríl s.l. andaðist
í sjúkrahúsinu á Sauðárkróki Sigur-
björg Halldórsdóttir frá Brekkukoti
í Óslandshlíð, Skagafirði. Var hún
jarðsungin frá Viðvíkurkirkju föstu-
daginn 5. maí s.l. af vígslubiskupi
Hólastiftis, sr. Sigurði Guðmunds-
syni.
Sigurbjörg var fædd í Viðvík í
Skagafirði, dóttir hjónanna Guð-
bjargar Guðmundsdóttur og Hall-
dórs Halldórssonar. Sigurbjörg var
einkadóttir þeirra hjóna en hálf-
bróðir hennar var Sigurður Jóhann
Gíslason, kennari og fræðimaður á
Akureyri.
Sigurbjörg var sín fyrstu ár í
Viðvík þar sem faðir hennar var
ráðsmaður hjá hálfbróður sínum,
séra Sófoníasi Halldórssyni, mikil-
hæfum og vinsælum kennimanni sem
þá þjónaði Viðvíkursókn. Tveggja
ára gömul flyst hún með foreldrum
sínum að Fjalli í Kolbeinsdal og þar
átti hún heima um tíu ára skeið.
Eftir tíu ára búskap á Fjalli flutti
fjölskyldan búferlum að Brekkukoti
t' Óslandshlíð. Var það síðan heimili
Sigurbjargar til æviloka því þar
dvaldi hún að mestu leyti í sjötíu og
tvö ár.
Þau Halldór og Guðbjörg voru
dugnaðarfólk, vel greind og fróð þó
sjálfmenntuð væru að mestu. Þau
bjuggu góðu búi f Brekkukoti á
meðan heilsan leyfði, en Halldór
andaðist 30. mars 1937. Guðbjörg
lést 1. desember 1952 ettir langvar-
andi veikindi og var hún að mestu
rúmföst mörg seinni árin.
Sigurbjörg ólst upp hjá foreldrum
sínum. Hún stundaði skólanám sam-
kvæmt því sem þá tíðkaðist; allt nám
var henni auðvelt því hún var vel
greind og athugul. Þær mæðgur
Guðbjörg og Sigurbjörg lásu dönsk
blöð og bækur þó ekki hefðu þær
lært það tungumál í skóla. Þó Sigur-
björg ætti ekki kost á langri skóla-
göngu þá tókst henni að viða að sér
miklum fróðleik enda las hún mikið
og hafði gott minni.
Árið 1931 var mikið hamingjuár í
lífi Sigurbjargar því þá giftist hún
Magnúsi Hofdal Magnússyni frá
Melstað í Óslandshlíð. Hann var
sonur hjónanna á Melstað, Hart-
manns Magnússonar og Gunnlaugar
Pálsdóttur. Magnús var fæddur 9.
apríl 1910, atgjörvis- og hagleiks-
maður. Árið 1933 hófu ungu hjónin
búskap í Brekkukoti í tvíbýli á móti
foreldrum hennar fyrstu árin en eftir
lát föður hennar tóku þau við jörð-
inni og bjuggu þar myndarbúi um
hálfrar aldar skeið þar til Magnús
lést þann 18. janúar 1985.
Þau hjón Magnús og Sigurbjörg
eignuðust fjögur börn en tveim varð
ekki lt'fs auðið. Dóttir þeirra er
Halldóra Kristín Guðlaug, fædd 2.
október 1941, nú húsmóðir í
Brekkukoti. Hennar maður er Jó-
hannes Sigmundsson, bóndi í
Brekkukoti, fæddur 6. febrúar 1942
að Helgafelli á Svalbarðsströnd, son-
ur hjónanna Ölveigar Ágústsdóttur
og Sigmundar Jóhannessonar. Sig-
mundur er látinn fyrir allmörgum
árum en Ölveig býr í Miðhúsum í
Óslandshlíð í félagi með Jóhannesi
syni sínum og fjölskyldu hans í
Brekkukoti. Börn þeirra Halldóru
og Jóhannesar eru: Sigmundur Jón,
fæddur 21. ágúst 1965, stúdent, er
við nám í búfræði við bændaskólann
á Hvanneyri. Sigurveig, fædd 13.
október 1966, stúdent. Hennar mað-
ur er Pétur Hrólfsson rafvirki. Þau
búa nú í Reykjavík, þeirra dóttir
Tinna Dórey. Magnús Gunnlaugur,
fæddur II. apríl 1968, er við nám í
bifvélavirkjun. Hann er til heimilis
hjá foreldrum sínum. Sæunn Hrönn,
fædd 8. febrúar 1972, nemandi í
Fjölbrautaskóla Sauðárkróks.
Sonur þeirra Magnúsar og Sigur-
bjargar er Hartmann Páll, búsettur
á Hofsósi, fæddur 29. júlí 1944,
bifvélavirki og rekur bifreiðaverk-
stæði á Hofsósi ásamt víðtækri véla-
þjónustu fyrir bændur í Skagafirði.
Kona hans er Herdís Fjeldsteð,
fædd 16. febrúar 1947, dóttir hjón-
anna Sigríðar Sigurlínu Halldórs-
dóttur og Jakobs Líndals Jósepsson-
ar, áður bifreiðarstjóra á Sauðár-
króki. Börn Hartmanns Páls og
Herdísar eru: Sigríður Sigurlína
fædd 9. maí 1966. Hennar maður
Gunnar Eysteinsson sjómaður,
þeirra dóttir Agata Ýr, þau búa á
Hofsósi. Magnús Ómar, fæddur 11.
janúar 1970, nemandi, dvelur í for-
eldrahúsum. Öll eru börnin og
barnabörnin efnileg, dugleg bæði
við nám og störf.
Á þeim fimmtíu árum sem þau
Magnús og Sigurbjörg bjuggu í
Brekkukoti urðu mjög róttækar
breytingar í búskap og lífsháttum
þjóðannnar. Þjóðfélagið lagði fyrir
róða búskaparhætti sem tíðkast
höfðu öldum saman, vélar tóku við
störfum hestanna og steinhús komu
í stað torfbæjanna. Þau hjón voru
vel meðvituð um breytta tíma og
tileinkuðu sér snemma þá tækni sem
bauðst. Þau byggðu upp hvert ein-
asta hús með miklum myndarbrag
og ræktuðu eignarjörð sfna þannig
að hún varð með árunum ein besta
bújörðin í sveitinni. Þrátt fyrir mikl-
ar annir við búskapinn gáfu þau sér
tíma til að sinna öðrum áhugamál-
um. Þau voru mjög virk t' starfi
ungmennafélagsins „Geisla", en það
félag var öflugt um margra ára
skeið; setti m.a. upp mörg leikverk
sem þóttu takast með ágætum. Einn-
ig var skógrækt mikið áhugamál og
sjást þess merki í fögrum skógar-
lundum.
Sigurbjörg starfaði lengi í samtök-
um kvenna í sinni heimasveit og var
þar formaður í yfir þrjátíu ár, enda
sýndu meðlimir í því félagi hug sinn
til hennar með því að standa fyrir
myndarlegum veitingum er hún var
kvödd hinstu kveðju.
Sigurbjörg var afar heilsteypt
persóna, heiðarleiki og samvisku-
semi var henni í blóð borin, sann-
Ieiksást og trúmennska voru í hennar
hug sjálfsagðir eiginleikar. Hún dáði
og þótti vænt um sveitina sína og
íbúa hennar. Það var stundum haft
á orði að fólkið á bæjunum í Ós-
landshlíð væri eins og ein fjölskylda,
allir tilbúnir að rétta hver öðrum
hjálparhönd, gleðjast hver með öðr-
um og reyna að létta sorgir hver
annars á raunastundum. Eftirfarandi
ljóð sem Sigurbjörg flutti í minningu
vinkonu sinnar sem var húsmóðir á
nærliggjandi heimili lýsir höfundin-
um kannske betur en mörg orð frá
öðrum komin.
Far þú heil á friðarvegi,
fagnar þér nú himneskt vor,
minninganna geislagróður
grær um hvert þitt gengið spor.
Bóndakona stór í starfi
stóðst um margra ára skeið,
viljafestan, vinnugleðin
veginn ruddu fram á leið.
Hlíðin sendir hjartans kveðjur
heima þar þú áttir bú.
Pó bærinn þinn sé burtu horfinn
blóm í túni vaxa nú.
Sigurbjörg átti sinn þátt í að móta
mannlífið í þessari hlýlegu sveit,
Óslandshlíðinni. Heimili þeirra
Magnúsar var ætíð til fyrirmyndar,
reglusemi og snyrtimennska ásamt
hlýlegum heimilisbrag gerði öllum
ljúft að koma þangað og dvelja.
Þó starf Sigurbjargar væri mikið á
vaxandi búi þá var hún ætíð reiðu-
búin að bæta á sig störfum til að gera
öðrum lífið léttara. Móðir hennar
átti athvarf á heimilinu til æviloka og
var rúmföst vegna veikinda mörg
síðustu æviárin og annaðist Sigur-
björg hana af alúð og kærleika til
hinstu stundar. Einnig voru foreldr-
ar Magnúsar á heimilinu síðustu
æviár sín og reyndist hún þeim góð
tengdadóttir, enda samheldnin og
einingin á heimilinu einstök. Undir-
ritaður kom á heimilið sem ungur
drengur og dvaldi þar í skjóli þeirra
hjóna fram yfir fermingaraldur.
Minningar frá þeim árum eru
bjartar. Þó Sigurbjörg og Magnús
væru með stóra og samheldna fjöl-
skyldu til að veita ást sína og um-
hyggju þá áttu þau nægan kærleika
til handa óskyldum aðkomudreng
sem þau tóku inn á heimilið og komu
fram við eins og sfn eigin börn. Þeim
verður aldrei að fullu þakkað en
minningin um dvölina hjá þeim og
marga endurfundi síðan verður
ógleymanleg.
Mörg böm og unglingar dvöldu í
Brekkukoti um lengri eða skemmri
tíma og tengdust heimilinu traustum
vináttuböndum.
Nú þegar Sigurbjörg er kvödd að
leiðarlokum þá er efst í huga okkar,
sem nutum samvista við hana, þakk-
læti fyrir liðna tíð. Hún miðlaði
okkur öllum af nægtabrunni góðvild-
ar og lífsspeki. Hún ræktaði garðinn
sinn vel og skilaði afkomendum sem
eru góðir þjóðfélagsþegnar og bera
góðri móður fagurt vitni.
Ég og fjölskylda mín sendum
börnum hennar, ættingjum og vinum
innilegustu samúðarkveðjur.
Það er vel viðeigandi að þessum
línum fylgi Ijóð sem Sigurbjörg hélt
mikið upp á. Það er eftir nábúa
hennar, Jóhann Ólafsson, sem lengi
bjó í Miðhúsum í Óslandshlíð, ágæt-
an hagyrðing sem orti Ijóð sem var
oft sungið við hátíðleg tækifæri í
gamla ungmennafélagshúsinu.
Óslandshlíð með bjarta brá,
blikmynd þín oss töfrað hefur,
fögur sveit með fjöllin há
frjálsa skapar æskuþrá,
fram til sjávar svipþung á
sungið orkuljóðin hefur,
Óslandshlíð með bjarta brá,
blikmynd þín oss töfrað hefur.
Prýðum frjálsir fagra sveit,
fögur tún og skrúðgræn engi,
breytum holti í blómgan reit,
björgum veltir trúin heit,
gerum heima gæfuleit
gjarnan þó hún standi lengi,
prýðum frjálsir fagra sveit,
fögur tún og skrúðgræn engi.
Setjum frjálsir fagurt mark,
fastar saman tökum höndum,
sköpum í oss kraft og kjark
kveðum niður agg og þjark,
fánýtt tísku hávært hark,
hnýtum traustum lokaböndum,
setjum frjálsir fagurt mark,
fastar saman tökum höndum.
1.6.
Blessuð sé minning Sigurbjargar
frá Brekkukoti.
Ari Sigurðsson.