Tíminn - 20.05.1989, Side 19
Laugardagur 20. maí 1989
llllllllllllllllllllllllli MINNING
Geirmundur Valtýsson
bóndi frá Seli
Fæddur 17. janúar 1896
Dáinn 8. maí 1989
Hinn 8. maí s.l. lést Geirmundur
Valtýsson afabróðir minn á Borgar-
spítalanum 93 ára að aldri. Geir-
mundur var fæddur hinn 17. jan.
1896 að Búðarhóli í Austur-Land-
eyjum. Hann var sonur hjónanna
Guðbjargar Guðmundsdóttur og
Valtýs Brandssonar bónda þar.
Geirmundur - var næstelstur sex
systkina sem voru: Magnús, sem nú
er látinn, Karel. Þórhildur, Þuríður
og Helga en þau eru öll á lífi og búa
í Reykjavík.
Ungur fluttist Geirmundur með
foreldrum sínum að Seli í Austur-
Landeyjum. Það tók hann við búi
að föður sínum látnum, bjó fyrst
með móður sinni og systkinum en
síðan með Þórhildi systur sinni og
Karel bróður sínum. Þau systkinin
bjuggu að Seli allt til ársins 1972 er
þau fluttu til Reykjavíkur en þá
hafði Sverrir systursonur Geirmund-
ar tekið við búinu þar.
Geirmundur stýrði búinu að Seli
með miklum myndarskap. Hann var
duglegur bóndi, einn af þeim mönn-
um sem lagði á sig ómælt erfiði við
að yrkja jörðina og kappkostaði að
skila sínu verki þannig að til fram-
fara mætti horfa fyrir land og þjóð.
Ungur átti ég þess kost að kynnast
Geirmundi nokkuð þegar ég með
móður minni fékk að dvelja nokkrar
vikur að sumarlagi að Seli. Þá fann
ég hvern mann hann geymdi. Hann
var ákveðinn og fastur fyrir, harður
af sér til vinnu og ætlaðist til þess
sama af öðrum. Hann var þó sann-
gjarn og réttsýnn þannig að manni
þótti strax vænt um hann og bar
ótakmarkað traust til hans.
Þrátt fyrir það að Geirmundur
væri ákveðinn og fastur fyrir var
hann í eðli sínu glaðlyndur maður.
Honum þótti gaman að fá gesti að
Seli, ekki síst unga gesti, og þú var
hann gjarnan hrókur alls fagnaðar,
hló oggerði að gamni sínu. Minning-
arnar uni heimsóknir mínar að Seli
eru mér enn ferskar og Ijúfar, sam-
Góður drengur er genginn
Guðs á síns fund og vina.
Léltur í spori var löngum,
langaði til að gefa
öllum sem minni máttar
mœtti á vegi sínum.
Beygði sig niður að barni
blíður og huggandi jafnan.
í Landeyjum lífsþrótti eyddi
lagaði þœr og prýddi,
fljólur að finna livar þurfti
félagsstörf góð að styrkja.
verustundirnar með Geirmundi hafa
enn yfir sér ákveðinn ævintýrablæ.
Eins og fyrr segir fluttist Geir-
mundur ásamt Þórhildi og Karel til
Reykjavíkur 1972. Frá þeim tíma
bjuggu þau systkinin saman í Ljós-
heimum og voru hvert öðru stöð
þegar ellin færðist yfir.
Hafi verið gott að koma að Seli
var ekki síður gott að koma í
Ljósheimana. Er gesti bar að garði
fylltust þau systkinin gleði og allt var
gert til þess að gera gestunum til
hæfis. Rætt var um lífið og tilveruna,
spurt frétta og skipst ú skoðunum.
Þannig leið heimsóknartíminn. Sér-
staklega þótti þeim systkinunum,
ekki síst Geirmundi, gaman að fá
börn í heimsókn. Þá var gjarnan
Hugsaði ei um sinn hagnað
hetjusmiðurinn viða.
Hendurnar sterkar lilýddu
huganum frjóum og víðum,
hamarinn tíðum handlék
hagleik hans sýndu verkin.
Hesta liann stríðól við stallinn
stormaði á þeim til lœknis
fyrir þá sem að þurftu
í þraut sér hjálpar að leita.
Ljósmóður fljótt hann flutti
fumlaus þögull og glaður.
Ekkert þó barnið œtti
öðlingsmaðurinn sóma.
Hjartað var hlýtt í drengnum
hláturinn frá því mjúkur
einnig í djúpi þess átti
angur og sorgin heima.
Greiði nú fyrir þér góði
gœfumaðurinn heilla
öll þín góðverk, er gekkstu
á guðsvegum þessarar jarðar.
Ingibjörg
Björgvinsdóttir
Afmælis- og minningargreinar
Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og/eða
minningargreinum í blaðinu, er bent á, að
þær þurfa að berast a.m.k. tveim dögum
fyrir birtingardag. Þær þurfa að vera vélrit-
aðar.
laumast inn í skáp, sótt litabók og
litir, leikföng eða eitthvað því um
líkt og gefið. Alltaf var nóg til í
skápnum. Börnin urðu í senn ánægð
og undrandi en um leið fundu þau
þá hlýju og manngæsku sem þau
systkinin höfðu til að bera. Og mér
er sérstaklega minnisstætt hve vel
Geirmundi leið er hann fann trúnað-
artraust barnanna sem heimsóttu
liann í Ljósheimana.
Fyrir nokkru tók heilsu Geir-
mundar að hraka enda færðist ellin
yfir hægt og sígandi. Nú hefur hann
lokið hlutverki sínu hér og því
hlutverki skilaði hann með sóma.
Ég votta eftirlifandi systkinum og
ættingjum Geirntundar samúð mína
við fráfall hans. Blessuð sé minning
lians.
Kagnar Óskarsson.
Verkstæðissala
Hornsófar og sófasett á heildsöluverði.
Bólsturverk,
Kleppsmýrarvegi 8. Sími 91-36120.
Hjartans þakkir til allra sem heimsóttu mig á
áttræðis afmælinu þann 21. apríl.
Ég þakka innilega fyrir ógleymanlegan dag, sólskin
úti og inni.
Ég þakka innilega fyrir öll skeytin og kortin og
hlýjar kveðjur og gjafir, svo þakka ég fjölskyldu
minni fyrir veisluna og allar gjafirnar og bið góðan
guð að varðveita ykkur öll.
Kristín Eysteinsdóttir,
Snóksdal.
Magnús Sveinsson
kennari
Fæddur 6. september 1906
Dáinn 5. maí 1989
Mjög kom það mér á óvart að sjá
dánarfregn eina nýlega. Þar stóð, að
Magnús Sveinsson, fyrrum kennari,
væri látinn. Ég hafði skömmu áður
heilsað honum niðri í Lækjargötu,
en þar mátti oft sjá hann á seinni
árum. Horfinn var af sviði lífsins
heiðursmaður, sem engum vildi
mein gera. Hann var þar að auki
vammlaus maður, orðheldinn og
áreiðanlegur. Sagt er að slíkum
mönnum fari ört fækkandi og er illt
til að vita, ef satt er.
Magnús Sveinsson var fæddur á
Hvítsstöðum á Mýrum snemma á
þessari öld, eins og yfirskrift þessa
greinarkorns ber með sér, sonur
bændafólks. Foreldrar hans voru
Sveinn Helgason og Elísabet Jóns-
dóttir. Mörg voru systkini Magnús-
ar. Tveir af bræðrum hans urðu
kennarar: Jakob og síra Helgi í
Hveragerði. Þorsteinn var héraðs-
dómslögmaður og Sigurður garð-
yrkjufræðingur og garðyrkjustjóri
Reykjavíkurborgar.
Magnús lagði á menntabraut, líkt
og fleiri systkini hans, og stundaði
nám á Hvítárbakka 1928-30, í skóla-
stjóratíð Lúðvígs Guðmundssonar.
Eftir námið á Hvítárbakka lagði
Magnús leið sína til Svíaríkis og
stundaði nám í lýðháskóla þar,
Tárna Folkehögskola, 1931-32.
Ekki lét Magnús þar staðar numið í
Leiðrétting
í minningargrein um Magnús
Sveinsson, sem birtist í Tímanum
17. maí s.l. er sagt að á tilteknu
æviskeiði hafi hann dvalið á heimili
föðursystur sinnar Guðnýjar Níels-
dóttur. Þarna er rangt með tengsl
þeirra farið, því Guðný var fóstur -
systir Magnúsar.
Um leið og þetta leiðréttist eru
hlutaðeigandi beðnir velvirðingar.
gaf út sjálfur og seldi. Magnús ritaði
auk þess margar blaðagreinar, með-
al annarra um bækur sem ég hafði
séð um útgáfu á. Allt var það af
skilningi mælt.
Magnús var tvíkvæntur. Fyrri
konu sína missti hann frá nýfæddri
dóttur. Var hún einkabarn Magnús-
ar. Aftur kvæntist Magnús ágætri
konu, Guðnýju Sveinsdóttur Ijós-
móður. Þau var gott heim að sækja.
Aðstandendum Magnúsar frá
Hvítsstöðum votta ég samúð rnína
við fráfall hans. Hvíli hann í friði.
Auðunn Bragi Sveinsson
frá Refsstöðum.
Ég undirritaður þakka hjartanlega börnum mínum,
tengdabörnum, Ingu dóttur-dóttur minni og manni
hennar, Gunnari, sem heiðruðu mig og héldu mér
veislu á 90 ára afmæli mínu 6. maí ’89 og tóku á
móti gestum mínum, í tilefni dagsins.
Ég þakka öllum, bæði ættingjum og vinum,
komuna. Fyrir gjafirnar, blómin, blómakörfurnar,
hlý handtök og kvæði. Ég þakka öll heillaskeytin,
símtöl og alla vinsemd. Ég þakka starfsfólki í
Seljahlíð fyrir heillaóskir og gjöf, einnig vistfólki
góðar óskir.
Guð blessi ykkur öll.
Davíð Sigurðsson,
frá Miklaholti.
námi, heldur settist hann nú á skóla-
bekk í Kennaraskóla íslands, til að
ná sér í kennararéttindi við barna-
skóla, en hafði árin 1932-34 stundað
barnakennslu. Sat því aðeins einn
vetur í Kennaraskólanum og útskrif-1
aðist vorið 1935, þá tekinn að nálgast
þrítugt. Sést af þessu að Magnús var
vel menntaður maður orðinn, bæði
af námi hér heima og erlendis.
Kennsla varð aðalstarf Magnúsar
frá Hvítsstöðum. Hann hætti
kennslu árið 1975 og hafði þá kennt
í fjóra áratugi. Um fertugt stundaði
hann nám í landafræði við Stokk-
hólmsháskóla og lauk fyrri hluta
prófi þar í þeirri fræðigrein. Einnig
stundaði Magnús nám á Norður-
löndum í orlofi sínu áratug síðar.
Hann var óþreytandi lærdómshest-
ur, ef svo má að orði kveða.
Magnús ritaði talsvert. Þannig
komu þrjár bækur frá hans hendi:
Hvítárbakkaskólinn og Mýramanna-
þættir. Auk þess kom minningabók
eftir hann fyrir síðustu jól, er hann
IkSUíl
ll&MTOIt
@ISEKI
ARMULA3 REYKJAVIK SlMI 38900
T.VilCiO
TX3I40
Vélar og úrval
aukabunaðar
og tækja
fyrirliggjandi