Tíminn - 20.05.1989, Blaðsíða 24
AUGLÝSINGASfMAR 680001 - — 686300
Atjan man. binding enO'B,LAsr0
RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR § 7,5% ÞRÖSTUR 685060 PÓSTFAX TÍMANS 687691
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, S 28822 | SAMVINNUBANKINN VANIR MENN w
LAUGARDAGUR 20. MAf 1989
Ágreiningur í ríkisstjórninni um innflutning á smjörlíki:
Guðmundur Bjarnason hcilbrigðis-
ráðherra
Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra
Steingrímur J. Sigfússon landbúnað-
arráðherra
Ráðherratríó
í smjörlíkið
Þriggja manna ráðherranefnd hefur verið falið að jafna
þann ágreining sem kominn er upp í ríkisstjórninni vegna
ákvörðunar viðskiptaráðherra að heimila innflutning á smjör-
líki. Ágreiningurinn felst í því að Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra og Steingrímur J. Sigfússon landbúnaðarráðherra eru
ekki sammála um það hvort leyfisveiting af þessu tagi er á
valdi viðskiptaráðherra eða ekki.
Jafnframt er það mat landbúnað-
arráðherra að innflutningurinn sé
bannaður samkvæmt búvörulögun-
um en viðskiptaráherra segir að
innflutningurinn hafi verið leyfður í
Jdví skyni að lækka verð á smjörlíki.
- Auk þessara tveggja fyrrnefndu
ráðherra á Guðmundur Bjarnason
heilbrigðisráðherra sæti í nefndinni
sem leysa á ágreininginn.
Þess ber að geta að nokkurrar
ónákvæmni gætti í frétt Tímans í gær
af smjörlíkisinnflutningnum. Þess
vegna hefur Hollustuvernd ríkisins
sent frá sér tilkynningu þar sem lögð
er áhersla á að Hollustuverndin hafi
ekki farið fram á að sala á innfluttu'
smjörlíki verði stöðvuð. Hið rétta er
að stofnunin hefur óskað eftir því að
heilbrigðis- og tollayfirvöld afgreiði
ekki úr tolli innflutt smjörlíki hér
eftir nema að stofnunin hafi gengið
úr skugga um að settum reglum
varðandi vöruna sé fullnægt meðal
annars varðandi merkingu umbúða
og innihald aukefna.
Þá tekur stofnunin fram að smjör-
líki, eins og aðrar matvörur, á að
fullnægja settum reglum og skiptir
þá ekki máli hvort það er framleitt
hérlendis eða flutt inn.
Hollustuvernd hefur í bréfi til
heilbrigðisráðuneytis greint frá því
að smjörlíki það sem er kveikjan að
þessu máli, Remina, uppfylli öll
ákvæði reglugerðar um aukefni í
matvælum en ekki að öllu leyti
kröfur um merkingu neytendaum-
búða. Innflytjandi vörunnar þarf því
að bæta merkingu umbúða áður en
hún er sett á markað.
í framhaldi má geta þess að merk-
ingar á innlendu smjörlíki uppfylla
yfirleitt ekki þær reglur sem gilda
um merkingar matvæla og settar
voru um síðustu áramót. Hefur Holl-
ustuverndin veitt undanþágur frá
reglunum til að framleiðendur geti
selt birgðir sem til voru er reglurnar
tóku gildi. Algengast er að á umbúð-
ir íslenska smjörlíkisins vanti upp-
lýsingar um næringargildi og/eða
geymsluþol og geymslustað. SSH
Óvenjulegur tillöguflutningur
Davíðs Oddssonar í borgarstjórn:
Borgarstjórn
vill Valgerði
Nú stefnir í nýtt stríð um skóla-
stjórastöðuna við Ölduselsskóla og
kom málið fyrir borgarstjórnarfund
í fyrradag með afar sérstæðum hætti.
Mörgum þykir það ljóst að sjálf-
stæðismenn telji sig hafa tapað orr-
ustunni sem hófst þegar Birgir ísl.
Gunnarsson fyrrverandi mennta-
málaráðherra setti Sjöfn Sigur-
björnsdóttur í stöðuna. Þeir vilji nú
sigra næstu orrustu og vígbúast því
af kappi.
Þrír umsækjendur eru nú um
stöðuna, sem núverandi mennta-
málaráðherra auglýsti lausa á dögun-
um. Umsækjendurnir eru Valgerður
Selma Guðnadóttir en meirihluti
fræðsluráðs hefur mælt með að hún
verði næsti skólastjóri Öldusels-
skóla, Reynir Daníel Gunnarsson,
sem bæði foreldra- og kennarafélag
Ölduselsskóla vildi og vill enn fá í
starfið, og Auður Stella Þórðardótt-
ir.
Það þykir líklegt að menntamála-
ráðherra muni setja Reyni Daníel í
stöðuna og verði það úr er næsta víst
að nýtt stríð hefjist og verði þá
Davíð Oddsson
ráðherranum legið á hálsi fyrir að
hafa gengið gegn vilja meirihluta
fræðsluráðs, sem eru sjálfstæðis-
menn.
Til að styrkja enn frekar áróðurs-
stöðuna í málinu greip borgarstjóri
til þess óvenjulega bragðs á fundi
borgarstjórnar í fyrradag að hann
flutti tillögu um að borgarstjórn lýsti
yfir stuðningi við umsókn Valgerðar
Selmu.
Sigrún Magnúsdóttir borgarfull-
trúi framsóknarmanna mótmælti
þessari málsmeðferð þar sem
fræðsluráð væri sá aðili sem ætti að
fást við mál af þessu tagi fyrir
borgarstjórn og væri því afgreiðsla
hennar og afskipti af þessu tagi
markleysa.
Davíð Oddsson fór fram á nafna-
kall við atkvæðagreiðslu um tillög-
una. Sigrún Magnúsdóttir greiddi
ekki atkvæði og sagði að tillöguflutn-
ingur af þessu tagi væri óþarfur og
óviðeigandi. Þar að auki hefði hún
ekkert í höndum til að meta hæfni
umsækjenda um stöðuna. Því kysi
hún að greiða ekki atkvæði. -sá
Sigrún Magnúsdóttir
Aukið vinnuálag víða hjá því opinbera eftir að sex vikna verkfalli BHMR er lokið:
Taka til hendi eftir verkfall
Á mörgum vinnustöðum hins opin-
bera lítur út fyrir töluvert aukið
vinnuálag á næstu dögum og
vikum, vegna uppsafnaðra verk-
efna. Meðal þess sem legið hefur
niðri er viðamikið starf á sjúkra-
húsunum, skólastarf, starfsemi
Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðar-
ins, þinglýsingar og margt flcira.
Á Landspítalanum voru til að
mynda fimmtíu starfsmenn í verk-
falli, 130 rúm rýmd og ekkert tekið
inn af fólki á biðlistum. „Starfs-
mennirnir komu allir aftur til starfa
í gær og við opnuðum allar þessar
deildir aftur. Það var kallaður inn
fjöldi sjúklinga. Að vísu er alltaf
minni starfsemi á sjúkrahúsunum
um helgar þannig að mest verður
um að vera á mánudag. En undir-
búningur byrjaði í gær af fullum
krafti þannig að aðgerðir geti byrj-
að strax eftir helgi. Þetta er mikill
gleðidagur hjá okkur,“ sagði Vig-
dís Magnúsdóttir hjúkrunarfor-
stjóri.
Ólafur Jensson forstjóri Blóð-
bankans sagði þá sextán náttúru-
fræðinga sem þar vinna, flest alla,
hafa mætt til vinnu í gær. „í næstu
viku má búast við að starfsemin
fari að komast í eðlilegt horf. En
það tengist auðvitað virkni deild-
anna sem hafa verið í lamasessi,
það er að segja skurðlækninga-
deildanna. Nú í júnímánuði líður
að sumarfríum og þá verður aftur
skerðing á mannahaldi. Það mun
mikið reyna á blóðsöfnunardeild-
ina á næstu fjórum til sex vikum.
Við höfum átt nóg af blóði vegna
neyðartilfella í verkfallinu en það
verður eflaust gerð talsverð krafa
til okkar blóðgjafa," sagði Ólafur.
Hjá Rannsóknarstofnun fisk-
iðnaðarins voru matvæla- og líf-
fræðingar í verkfalli. „Núna erum
við að kortleggja stöðuna. Á sum-
um deildum hafa safnast upp sýni
og er orðið of seint að mæla
.■einhver þeirra þannig að nú er
verið að yfirfara forgangsröðina.
Það er erfitt að gera sér fulla grein
fyrir skaðanum sem af þessu hefur
hlotist, en verkfallið hefur valdið
útflytjendum miklum óþægind-
um,“ sagði Grímur Valdimarsson
forstjóri Rannsóknarstofnunar
fiskiðnaðarins í samtali við
Tímann. Hann sagði engan vafa
leika á því að vinnuálag mundi
aukast að mun á næstunni. „Við
erum í samstarfi við aðrar stofnan-
ir, einkum erlendis og við getum
ekki beðið þá um að bíða eftir
okkur endalaust. Á sumum sviðum
þurfum við því óhjákvæmilega að
leggja í aukavinnu og jafnVel auka-
mannskap,“ sagði Grímur.
. Á.
Veðurfræðingar eru komnir til
starfa aftur og sömu sögu er að
segja af lögfræðingum í þjónustu
ríkisins. Hjá borgarfógetaembætt-
inu verður nú gengið í að þinglýsa
þeim 2500 skjölum sem bárust
meðan á verkfallinu stóð, í tímaröð
miðað við innlagningu. Áætlað er
að það taki um þrjár til fjórar
vikur. Skjöl sem berast til þinglýs-
ingar eftir verkfallslok, verða tekin
í tímaröð á eftir fyrrgreindum
skjölum.
Skólastarf hefur einnig legið al-
gjörlega niðri í framhaldsskólum
landsins. Kennarar mættu til vinnu
aftur í dag og meirihluti nemenda
einnig. Víðast hvar hefur náðst
samkomulag um fyrirkomulag
prófa og verður þeim sem útskrif-
ast á mörgum stöðum nokkurn
veginn í sjálfsvald sett hvernig því
verður háttað. jkb