Tíminn - 22.12.1990, Side 2
£ nrrífniT
2 Tíminn
' .‘-W -(ívimrtftfth -:i ’nfth*pi>i i« i
Laugardagur 22. desember 1990
Atii Heimir Sveinsson. Guðbjörg Þortijaniardóttir. Sigfús Halldorsson.
Þrír nýir fá
heiðurslaun
Alþingi hefur samþykkt að veita
18 listamönnum heiðurslaun
listamanna. Launin eru 800 þús-
und á ári. Þrír nýir listamenn
bætast í þennan flokk. Þeir eru
Atli Heimir Sveinsson tónskáld,
Guðbjörg Þorbjarnardóttir leik-
kona og Sigfús Halldórsson tón-
skáld og listmálari. Fulltrúar allra
flokka standa að tillögunni.
Listamennirnir 18 eru:
1. Atli Heimir Sveinsson
2. Árni Kristjánsson
3. Finnur Jónsson
4. Guðbjörg Þorbjarnardóttir
5. Halldór Laxness
6. Hannes Pétursson
7. Indriði G. Þorsteinsson
8. Jakobína Sigurðardóttir
9. Jóhann Briem
10. Jón Nordal
11. Jón úr Vör
12. Jórunn Viðar
13. Kristján Dávíðsson
14. María Markan
15. Matthías Johannessen
16. Sigfús Halldórsson
17. Stefán Islandi
18. Þorsteinn Ö. Stephensen
-EÓ
Jólaveðrið og færðin:
Hvít jól, þó kalt,
færð víðast greið
Líklega má segja að flestir landsmenn njóti hvítra jóla í ár, því útlit
er fyrir að snjófól verði víðast hvar á landinu á jólunum. Veðurspá-
in segir að á aðfangadag jóla verði suðvestanátt með éljagangi sunn-
anlands og vestan, en bjart fyrir norðan og austan, nokkuð kalt
verður, eða frost frá 2-8 stig víðast hvar
. Á jóladag er spáð að vindur snúist Greiðfært verður víðast hvar um
í norðaustanátt með éljum fyrir landið. Hjá Vegagerðinni fengust
norðan, en létti til suðvestanlands,
en éljaveður gæti einnig orðið vest-
anlands. Kalt verður áfram og að
líkindum stillt.
Fótboitalands-
liðið undir 16:
þær upplýsingar að nú væri búið að
hreinsa allar helstu leiðir á landinu,
þannig að útlit er fyrir að fært verði
milli Reykjavíkur og Akureyrar og
ísafjarðar yfir hátíðina. í gær var
vonskuveður á Austfjörðum og var
því beðið átekta með að ryðja m.a.
Oddsskarð, Fjarðarheiði og Vatns-
skarð til Borgarfjarðar.
í gær var einnig verið að hreinsa
fjallvegi á Snæfellsnesi og Vestfjörð-
um, t.d. Botnsheiði milli ísafjarðar,
Súgandafjarðar og Flateyrar. Einnig
var verið að moka Steingrímsfjarð-
arheiðina þannig að það verður fært
milli ísafjarðar og Reykjavíkur. Eins
verður hreinsað vestur í dali fyrir
Gilsfjörð og Klettháls svo fært verð-
ur til Patreksfjarðar. Ágæt færð er á
Norður- og Norðausturlandi.
Möðrudalsöræfin eru fær jeppum og
stærri bflum ennþá. Vegagerðin
heldur áfram að hreinsa alla aðal-
vegi í dag og á morgun, Þorláks-
messu, og síðan aftur á annan jóla-
dag þar sem þess verður þörf.
—GEÓ
STRÆTÓFERÐIR
UM JÓLIN
Á aðfangadag og á gamlársdag aka
strætisvagnar Reykjavíkur eins og á
virkum dögum til kl. 13.00. Eftir
það verður ekið samkvæmt tíma-
áætlun helgidaga til kl. 17.00, en þá
lýkur akstri. Á Þorláksmessu verður
ekið eftir tímaáætlun helgidaga.
Á jóladag og á nýársdag aka stræt-
isvagnarnir samkvæmt tímaáætlun
helgidaga að því undanskildu að all-
ir vagnar hefja akstur um kl. 14.00.
Á öðrum degi jóla verður ekið eins
og á helgidegi.
Ókeypis verður í strætisvagnana
22. og 24.-26. desember að báðum
dögum meðtöldum. Ný leiðabók
SVR er komin út og er til sölu á
Hlemmi, Lækjartorgi, Grensásstöð
og í skiptistöð í Mjódd.
khg.
Knattspymusamband íslands
ákvað í gærmorgun að taka ekki
þátt í jólaknattspymumóti lands-
liða undir 16 ira aldrl, sem fram
fer í ísrael nú um jólin. Þetta ráð
hefur verið tekið vegna þess hve
ástand er ótryggt ílandlnu.
Utanríkisráðuneytið réð KSÍ í
gærmorgun eindregið frá að
senda unga dreng) til ísraels við
núverandi aðstæður. Þá hafa
knattspymusambönd Þýska-
lands, Portúgal og Sviss hætt við
þátttöku. Akvörðun KSÍ var
strax tilkynnt stjómvöldum í
fsraeL
ZETOR 5011, 47 ha. ekinn 2600 vst...........árg. 1982
ZETOR 7211, 65 ha. ekinn 1350 vst...........árg. 1987
ZETOR 7245, 65 ha. 4x4 ekinn 900 vst........árg. 1988
ZETOR 7745, 70 ha. 4x4 ekinn 1100 vst.......árg. 1987
ZETOR 7245, 65 ha. m/Alö 540 ám.t. ekinn 1800 vst. árg. 1989
ZETOR 7245, 65 ha. m/Alö 53301 ám.t.........árg. 1986
NEW HOLLAND 945 heybindivél.................árg. 1987
NEW HOLLAND 935 heybindivél.................árg. 1985
WELGER RP 12 rúllubindivél...................árg. 1989
STROUTMAN 38 rúmm. fjölhnífavagn m/matara...árg. 1987
Bændur!
Nú er rétti tíminn til að kaupa notaðar búvélar
á góðu verði.
Góð greiðslukjör.
Globusi
Lágmúla 5 Reykjavík Sími 681555
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið:
Heilsugæslustöðvar
á landsbyggðinni
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið hyggst reyna að bæta kjör
lækna á landsbyggðinni, því á þessu ári hefur reynst erfítt að fá
lækna til starfa á heilsugæslustöðvum á Iandinu, einkum á Vest-
fjörðum og Norðurlandi. Ráðuneytið lét gera könnun sem leiddi í
Ijós að bæta yrði kjör lækna og annars heilbrigðisstarfsliðs á þess-
um stöðvum til að þær séu samkeppnishæfar.
Ráðuneytið og fulltrúar Læknafé-
lags íslands, sem um málið hafa
fjallað, hafa verið sammála um að
frambúðarlausn þessara mála væri
sú að launasamningar iækna á þess-
um heilsugæslustöðvum væru
færðar til samræmis við það sem er
hjá sjúkrahúslæknum. Ekki er
mögulegt, eins og til háttar í þjóðfé-
laginu, að breyta kjarasamningum í
þessa átt og því ákvað ráðuneytið að
ráðstafa allt að 15 milljónum króna
í staðbundnar aðgerðir á nokkrum
stöðum til að bæta ástand mála á
nokkrum heilsugæslustöðvum.
Á þessu hausti hafa verið keyptar
fimm bifreiðar til nota fyrir lækna á
heilsugæslustöðvum, torfærubif-
reiðar til nota á Flateyri, Þingeyri,
Hólmavík og Þórshöfn og fjórhjóla-
drifinn fólksbfl til nota á Djúpavogi.
Stjórnir heilsugæsiustöðvanna á
Flateyri, Þingeyri, Kópaskeri, Þórs-
höfn, Djúpavogi og Vopnafirði
munu fá fjárupphæðir sem veita
þeim möguleika á að bæta starfs-
kjör heilbrigðisstarfsfóiks sem
ræðst að stöðvunum, eftir nánari
ákvörðun stjórnar viðkomandi
heilsugæslustöðvar í samráði við
starfslið stöðvarinnar og ráðuneyt-
ið.
Sorpeyðingarstöð höfuðborgarsvæðisins tekin í gagnið í apríl 1991:
GJÖRBREYTING í
SORPHREINSUN
Áætlað er að sorpeyðingarstöð
Sorpeyðingar höfuðborgarsvæðis-
ins taki tii starfa í aprfl n.k., en nú
er undirbúningur í fullum gangi.
Sótt hefur verið um leyfi hjá heil-
brigðisnefnd, byggingarnefnd,
sveitarfélögum höfuðborgarsvæðis-
ins og fleiri aðilum um að koma fyr-
ir sorpgámum víða á höfuðborgar-
svæðinu. Ögmundur Einarsson hjá
Sorpeyðingu höfuðborgarsvæðisins
segir að ætlunin sé að sveitarfélögin
feli Sorpeyðingu að sjá um gáma-
reksturinn á öllu höfuðborgarsvæð-
inu. „Sveitarfélögin eru að fjalla um
það núna hvar þau vilja setja þessa
staði niður og samræma þá við
skipulagsmál," sagði Ögmundur.
Sorpgámarnir verða á afgirtum
svæðum þar sem fram fer viss flokk-
un á sorpi. Ögmundur sagði að sú
flokkun væri fyrst og fremst til að
aðgreina þann úrgang sem færi í
sorpeyðingarstöðina annars vegar
og svo hins vegar það rusl sem sent
er t.d. til endurvinnslu eins og
málmar, timbur, garðarusl, stein-
efni og fleira, svo og pappír sem
hugsanlegt er að senda utan og
koma í verð, og síðan til að leita að
spillandi efnum sem ekki mega fara
í almenna sorpeyðingu og er eytt á
annan hátt.
Sorpeyðing höfuðborgarsvæðisins
hyggst sjálf sjá um þessi gáma-
svæði, svo að flokkun og mannskap-
ur verði í hennar höndum. „Þetta er
viss samræming milli sveitarfélag-
anna sem við erum að mælast til að
verði gerð,“ sagði Ögmundur Ein-
arsson einnig í samtali við Tímann í
gær. —GEÓ
Hljómsvelt Harmoniku-
félags Reykjavíkur:
skemmt-
anir
Hljómsveit Harmonikufélags
Rcykjavíkur leikur nokkur lög í
verslunarmiðstöðinni Nýjabæ,
Eiðistorgi, Seltjamamesi, í dag,
laugardag 22. desember kl. 16.-00.
Harmonikufélagið stendur fyrir
jólaballi fyrir böm í Tónabæ,
Skaftahlíð 24, sunnudaginn 30.
desember kl. 15:30. Félagar úr
H.R. leika jólalögin og jólasveinar
koma í heimsókn. ÖII böm og for-
eldrar em velkomin meðan hús-
rúmleyfir.