Tíminn - 22.12.1990, Qupperneq 30
rn
30 Tíminn Laugardagur 22. desember 1990
Sjötugur:
Haukur Gíslason
hreppstjóri, Stóru-Reykjum
Haukur Gíslason, bóndi og hrepp-
stjóri á Stóru-Reykjum í Hraun-
geróishreppi, er sjötugur í dag.
Haukur er fæddur á Þorláksmessu
1920, fjórði elstur af níu systkinum,
börnum Maríu Þorláksínu Jónsdótt-
ur frá Seljatungu og Gísla Jónsson-
ar, hreppstjóra á Stóru- Reykjum.
Gísli og María bjuggu rausnarbúi á
Stóru-Reykjum. Var Gísli í farar-
broddi í félagsmálum í sveit sinni og
sýslu um áratugaskeið, oddviti,
hreppstjóri og sýslunefndarmaður
og formaður stjórnar Kaupfélags Ár-
nesinga á mestu uppbyggingarárum
félagsins.
Það var því gestkvæmt á Stóru-
Reykjum; þangað komu margir til
skrafs og ráðagerða, heimilið var
miðstöð mikilla umsvifa og hús-
bóndinn störfum hlaðinn. Haukur
og systkini hans fóru því ung að ár-
um að vinna og létta undir við bú-
skapinn á Stóru-Reykjum, en á
heimilinu hjá Gísla og Maríu var
einnig frændi sem systkinin kölluðu
svo, Hannes Jónsson, bróðir Gísla.
Vann hann alla tíð að búinu og var
lítið út á við, þó ekki skorti hann
gáfur og hæfileika.
Það kom fljótt í hlut Hauks að
verða sá bræðranna sem mest starf-
aði að búskapnum. Bæði var það að
hugur bræðra hans stefndi til ann-
arra starfa og svo hitt að Haukur
varð fljótt kappsfullur við vinnu og
glöggur búfjárhirðir.
Einnig mun Gísli hafa talið eðlilegt
að einhver sona sinna yrði bóndi á
Stóru-Reykjum, en jörðin hefurver-
ið setin af sömu ættinni allt frá 1841
og oftast erfst í beinan karllegg.
Það varð því hlutskipti Hauks
Gíslasonar að standa við hlið for-
eldra sinna og innleiða nýja búskap-
arhætti; öld véltækninnar var að
þoka til hliðar aldagömlum siðum í
búskaparháttum.
Stóru-Reykjaheimilið var þar eins
og víðar í fararbroddi nýrrar sóknar.
Lífsstarf Hauks hefur því að mestu
verið bundið við búskapinn á Stóru-
Reykjum. Hann stundaði að vísu
vinnu út í frá í sláturtíðinni á haust-
in um tíma, enda orðlagður flán-
ingsmaður. Hann fór einnig í vist og
aflaði sér þekkingar og starfsreynslu
um landbúnaðinn, en það var gert
til að búa heimilið undir öld vél-
tækninnar, fyrst eftir helsta og síðar
þá miklu þróun sem átt hefur sér
stað frá stríðslokum og öllum er
kunn.
Haukur gekk að eiga Sigurbjörgu
Geirsdóttur frá Hallanda 1952. Sig-
urbjörg er af kunnu dugnaðarfólki
komin í báðar ættir. Fyrstu árin
bjuggu þau í félagsbúi með gömlu
hjónunum og í sama húsi, þó heim-
ilin væru aðskilin að forminu til.
Aldur var aö færast yfir gamla fólkið
og heilsunni tók að hraka, svo þau
Haukur og Sigga báru hitann og
þungann af umönnun og umhirðu á
báðum heimilum. Unga stúlkan frá
Hallanda tók að sér mikið hiutverk
þegar hún gerðist húsfreyja á þessu
forystuheimili, en henni farnaðist
það vel og bar aldrei skugga á sam-
skipti hennar og tengdaforeldranna
eða við Hannes. Lifði gamla fólkið til
æviloka á Stóru-Reykjum og minn-
ist Sigurbjörg þeirra jafnan með
virðingu og hlýhug.
Haukur og Sigurbjörg hafa verið
samhent í lífi og starfi og byggt upp
jörð sína og ræktað. Eru nú Stóru-
Reykir ein best hýsta jörð í Árnes-
sýslu.
Þau hjónin eiga sex börn sem eru:
María, f. 1953, býr í Geirakoti í
Sandvíkurhreppi, gift Ólafi Krist-
jánssyni. Margrét, f. 1955, býr á Sel-
fossi, gift þeim er þetta ritar. Gerður,
f. 1958, býr á Skálá í Skagafirði,
sambýlismaður Karl Bergmann.
Gísli, f. 1961, bóndi á Stóru-Reykj-
um, kvæntur Jónínu Einarsdóttur.
Vigdís, f. 1956, garðyrkjufræðingur í
Reykjavík. Hróðný Hanna, banka-
maður á Selfossi, sambýlismaður
Hróbjartur Örn Eyjólfsson.
Barnabörnin eru nú þrettán og eitt
langafabarn. Haukur á Reykjum hef-
ur verið starfi sínu og stétt trúr;
óvenju kappsfullur og fljótur að
vinna hvert verk. Hefur næmt auga
og gott verksvit, þolir illa droll og
tafsamar vinnuaðferðir. Jafnan með
þeim fyrstu að Ijúka heyskap í sveit
sinni, glöggur á veður og oft forspár
um tíðarfar; mikill búfjárræktar-
maður, ekki síst á sauðfé, jafnan
með verðlaunahrúta í fremstu röð í
sveit sinni og sýslu. Oft hefur þeim
er þetta ritar verið það undrunarefni
hversu glöggur og skjótur Haukur
er að velja sér ásetningarhrúta úr
hjörðinni á haustin.
Haukur hefur verið kvaddur til
Haukur Gíslason með nágranna sínum og vini, Ágústi heitnum
Þorvaldssyni í Skeiðaréttum.
trúnaðarstarfa fyrir sveit sína, átti
sæti í hreppsnefnd um langt skeið
og var varaoddviti. Hefur gegnt
hreppstjórastarfi í ein þrjátíu ár. Það
er gott að leita til Hauks; hann
greinir aðalatriði hvers máls, þannig
hefur hann reynst farsæll í félags-
málum og leyst öll mál í sátt og
friði.
Haukur hefur ekki tamið sér mikil
ræðuhöld á mannfundum, en bæði
þar og í einkaviðtölum gerir hann
oft athugasemdir sem sýna vel
hversu glöggur hann er og vel
heima í hinum flóknustu málum.
Enda fylgist hann vel með þjóðmál-
um og tekur afstöðu til mála hverju
sinni. Hann er umtalsgóður um
fólk; sé eitthvað sem honum mislík-
ar, talar hann sem minnst um það
og eyðir öllu slíku tali. Hann sér að
vísu hina spaugilegu hlið tilverunn-
ar og hefur gaman af atvikum sem
engan særa.
Heimilið á Stóru-Reykjum er
myndarlegt menningarheimili; þau
hjón hafa reglu á hverjum hlut. Um-
gengni, bæði innanbæjar sem og úti
við, er til fyrirmyndar. Á síðustu ár-
um hafa þau hjón ferðast talsvert
bæði hér innanlands sem og erlend-
is. Hafa þau af slíku yndi og hafa
eignast í gegnum slíkar ferðir góða
kunningja um allt land.
Þau Haukur og Sigurbjörg geta nú
horft með nokkru stolti yfir farinn
veg; þau lögðu sig fram og gæfan
hefur verið þeim hliðholl. Búskap-
urinn á Stóru-Reykjum er enn að
ganga í beinan karllegg, færast í
hendurnar á syni og tengdadóttur
sem hafa byggt sér glæsilegt íbúðar-
hús á staðnum.
Þótt Haukur Gíslason sé nú sjötug-
ur og lífssól hans að ganga inn á
vesturloftið, þá ber hann aldurinn
vel, varla er hægt að greina grátt hár
á höfði hans; fullur orku og starfs-
gleði. Megi hamingjan fylgja þeim
hjónum um alla framtíð.
Guðni Ágústsson
Brynjólfur Björnsson
mjólkurbílstjóri
Fæddur 25. júní 1916
Dáinn 13. desember 1990
í dag fer fram frá Selfosskirkju út-
för Brynjólfs Bjarnasonar, mjólkur-
bflstjóra á Seifossi.
Brynjólfur var fæddur 25. júní
1916 að Kolsholtsvelli í Villinga-
holtshreppi, sonur Björns Brynjólfs-
sonar og Þórunnar Guðmundsdótt-
ur sem bjuggu síðar í austurbænum
í Skeiðháholti og þar ólst Brynjólfur
upp í foreldrahúsum fram að tví-
tugsaldri. Brynjólfur Björnsson
vann næstu sumur á búi foreldra
sinna en réðst í vist annað yfir vet-
urinn, var marga vetur hjá feðgun-
um í Litlu-Sandvík, þeim Guð-
mundi og Lýði. Árið 1941 réðst
Brynjólfur til þeirrar vinnu sem
varð hans lífsstarf, gerðist bflstjóri
hjá Kaupfélagi Árnesinga og síðar
mjólkurbúi Flóamanna þegar það
tók yfir mjólkurflutningana árið
1946.
Brynjólfur Björnsson hlaut gott
uppeldi og var vel gerður til sálar og
líkama, rammur að afli og hugur
fylgdi hverju því sem hann tók að
sér. Hann stóð albúinn til starfa á
miklum umbrotatímum í íslensku
þjóðfélagi, þjóðin var að vinna sig út
úr kreppunni og síðan skall heims-
styrjöldin á með hernáminu og öll-
um þeim sviptingum sem því fylgdi.
Egill í Sigtúnum var að efla Árnes-
inga til dáða í gegnum tvö sterk
samvinnufélög, annars vegar Kaup-
félag Árnesinga og hins vegar Mjólk-
urbú Flóamanna, en þar var hann
stjórnarformaður. Það félag kom áð-
ur en lauk með lífsbjörgina inn á
nánast öll heimili á Suðurlandi. Eg-
ill þurfti vaskan her manna sem
nenntu að vaka og vinna, takast á
við vosbúð og ófærð. Brynjólfur var
réttur maður á réttum stað í þessu
nýja landnámi Suðurlands, dugnað-
urinn og þjónustulundin gerðu það
að verkum að hann átti auðvelt með
að vinna þetta starf. Hann var trúr
fyrirtækinu sem hann vann hjá og
óvenju lipur að þjóna sveitafólkinu,
eins og þeir voru margir mjólkurbfl-
stjórarnir. Snúningarnir voru marg-
ir sem Brynjólfur vann fyrir fólkið,
annaðist bankaviðskipti, borgaði af
víxlum, lagði inn og tók út peninga
og keypti hitt og þetta sem fólkið
vanhagaði um. Allt var með fullum
skilum af hans hálfu og á fjörutíu
ára ferli sem bflstjóra varð honum
varla misdægurt, veikindadagarnir
hans urðu ekki margir hjá Mjólkur-
búi Fióamanna.
Árið 1947 gekk hann að eiga eftir-
lifandi konu sína, Guðbjörgu
Sveinsdóttur frá Arnarbæli, og
stofnuðu þau sama ár heimili að Ár-
túni 6 hér á Selfossi og hafa búið þar
síðan. Þau eignuðust fjögur börn
sem eru: Kristín, búsett í Svíþjóð,
hennar maður var Karl Erik Huld-
gren, hann er látinn. Sveinbjörg
Þóra, gift Alfreð Guðmundssyni, þau
eiga 1 son. Hulda, gift Fróða Larsen,
þau eiga 2 syni. Björn, sambýliskona
Rósa Magnúsdóttir, Björn á 2 dætur
frá fyrra hjónabandi.
Heimili Brynjólfs og Guðbjargar er
myndarlegt, húsinu vel við haldið,
allt fágað og snyrtilegt, bæði úti og
inni. Þá allt of sjaldan er sá er þetta
ritar heimsótti þau í eldhúskrókinn,
var gestrisnin söm og þægilegt við-
mót þeirra beggja.
Kynni okkar Brynjólfs hófust fyrir
alvöru þegar hann hætti akstrinum
og gerðist afgreiðslumaður á vöru-
lager Mjólkurbúsins, þeirri deild
sem sá um varahlutaþjónustu og
vörur til bænda. Þetta mun hafa ver-
ið 1979, man ég enn að ég var hálf-
kvíðinn að maður, kominn á sjö-
tugsaldur, ætti að taka þetta starf að
sér, setja sig inn í og fara að þekkja
mjaltavélar o.fl. sem Brynjólfur
hafði aldrei komið nálægt í lífinu.
En þetta fór á annan veg. Á stuttum
tíma hafði hann sett sig það vel inn í
þetta nýja starf að ekki varð betur
gert. Þarna nýttist honum vel þjón-
ustulundin og viljinn til að gera vel.
Ennfremur sá hann um innkaup á
vörulagerinn og fórum við stundum
saman til Reykjavíkur í slíkum er-
indum. Voru það skemmtilegar ferð-
ir.
Með Brynjólfi var gott að vera,
hann var málefnalegur, tilgerðar-
laus og forðaðist deilur. Hvort sem
ég hitti hann í önnum á vinnustaðn-
um eða á förnum vegi var hann allt-
af samur og jafn, hlýr í viðmóti og
glaður. Það eru margir sem kveðja
nú Brynjólf Björnsson með söknuði,
hann var skyldurækinn heimilisfað-
ir og frístundir sínar notaði hann til
að vinna heimili sínu gagn, hjálpa
börnum og barnabörnum sínum.
Hann lifði margan hamingjudag,
vann erfitt starf og hlífði sér hvergi,
uppskar þakklæti og vinskap margra
og dó sáttur við alla.
Að lokum sendi ég og fjölskylda
mín innilegar samúðarkveðjur til
Guðbjargar og barna hennar.
Guðni Ágústsson
UMLANGAN ALDUR HÖFUM VIÐ
SÉÐ LANDSMÖNNUM FYRIR
FLUTNINGUMÁSJÓ
RIKISSKIP
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 101 Reykjavík, pósthólf 908, sími (91) 28822, myndsendir (91) 28830