Tíminn - 05.12.1992, Qupperneq 1
Ekkert samkomulag er í ríkisstjórninni um niðurskurð á ríkisútgjöldum. Fjármálaráðherra
segir að niðurskurðartillögurnar verði kynntar „á næstu dögum“:
Laugardagur
5. desember 1992
210. tbl. 76. árg.
VERÐ í LAUSASÖLU
KR. 110.-
Fresta verður umræðum
um fjárlagafrumvarpið
Flest bendir til að ekki takist að hafa aðra umræðu um fjárlaga-
frumvarpið á þriðjudag eins og áætlað hafði verið. Friðrik Sophus-
son, fjármálaráðherra, segir að ákvarðanir um hvernig staðið verður
að frekari niðurskurði á ríkisútgjöldum muni liggja fyrir einhvetja
næstu daga, en Karl Steinar Guðnason, formaður fjárlaganefndar,
hafði áður lýst því yfír að þessar ákvarðanir yrðu kynntar í fjárlaga-
nefnd í dag.
Guðmundur Bjarnason (Frfl.)
spurði formann fjárlaganefndar og
fjármálaráðherra hvenær fjárlaga-
nefnd fengi að vita um hvernig rík-
isstjórnin ætlaði að standa að 1.240
milljón króna niðurskurði á ríkis-
útgjöldum og eins hvernig stjórnin
hugsaði sér að skipta 500 milljón-
um sem verja á aukalega til fram-
kvæmda og viðhalds á opinberum
byggingum.
„Þær aðgerðir sem gripið var til
seint í síðasta mánuði voru víðtæk-
ar og kosta nokkrar breytingar
bæði á tekju- og gjaldahlið tjárlaga.
Að þessum málum er unnið og ég
vonast satt að segja til að þær geti
komist til fjárlaganefndar á allra
næstu dögum," sagði fjármálaráð-
herra. Hann bætti því við að önnur
umræða um fjárlagafrumvarpið
gæti vel farið fram þótt ekki lægju
allir þættir málsins fyrir. Það hafi
oft verið gert á liðnum árum.
Guðmundur Bjarnason sagði að
þetta svar sýndi að það væri ekkert
samkomulag í ríkisstjórninni um
hvernig ætti að skera niður um
þessar 1.240 milljónir. Hann sagði
útilokað að stjórnarandstaðan gæti
samþykkt að hefja aðra umræðu
um fjárlagafrumvarpið án þess að
upplýsingar lægju fyrir um hvar
niðurskurður uppá annan milljarð
ætti að koma niður. Hann sagði það
rétt að oft áður hefðu ríkisstjórnir
verið seinar með sínar ákvarðanir
en fá eða engin dæmi væru um að
önnur umræða hefði farið fram án
þess að fyrir lægju ákvarðanir um
svo stórfelldan niðurskurð eins og
nú hefur verið boðaður.
„Það er hver höndin upp á móti
annarri í ríkisstjórninni um skipt-
ingu á þessu fé. Umræða um fjár-
lagafrumvarpið getur ekki farið
fram á þriðjudaginn. Það er alveg
dagljóst. Það er best að viðurkenna
það strax og forsætisnefndin komi
saman og endurskoði áætlunina í
samræmi við þær upplýsingar sem
hér hafa komið fram,“ sagði Jón
Kristjánsson (Frfl.).
Forystumenn stjórnarflokkanna í
fjárlaganefnd, Karl Steinar Guðna-
son og Sturla Böðvarsson, sögðust
enn gera sér vonir um að önnur
umræða um fjárlagafrumvarpið
gæti farið fram á þriðjudag.
í umræðunum kom fram hjá Guð-
rúnu Helgadóttur (Alb.) að nýlega
hefði Egill Jónsson, formaður land-
búnaðarnefndar, og Eiður Guðna-
son, umhverfisráðherra, mætt á
fund fjárlaganefndar og óskað eftir
auknum fjárveitingum til landbún-
aðar- og umhverfismála. -EÓ
Eru veiðiheimildir í loðnu og karfa jafngildar?
Nei, segir
markaðurinn
Útgerðarmaður sem getur valið á milli þess að fá þrjú þúsund tonn af karfa
eða þijátíu þúsund tonn af loðnu veldi án efa karfann vegna þess að hann
fengi meira fyrir þann rauða en loðnuna á fijálsum markaði.
Síðustu daga hafa þingmenn deilt
um það á Alþingi hvort þrjú þúsund
tonna veiðiheimildir Evrópubanda-
Iagsins í karfa innan íslenskrar land-
helgi séu jafngildar 30 þúsund tonn-
um af loðnu sem íslendingar fá í
staðinn frá EB. Stjórnarandstaðan
hefur talið að þessar veiðiheimildir
séu ekki jafngildar en því hafa for-
ystumenn stjómarflokkanna mót-
mælt og fullyrt hið gagnstæða.
Á sama tíma og fiskimjölsverk-
smiðjur greiða fjögur þúsund krón-
ur fyrir tonnið af loðnu fengust
Stóra kókaínmálið:
Sjö ára fangelsi
Steinn Ármann Stefánsson var í gær
dæmdur í sakadómi Reykjavíkur í sjö
ára fangelsi fyrir að hafa flutt til lands-
ins 1.2kgafkókaíni.
Steinn Armann var jafnframt dæmd-
ur fyrir vítaverðan akstur, fyrir að hafa
stórslasað lögreglumann og ráðist að
öðrum með eggvopni.
dagar til jóla
rúmar 64 krónur fyrir kílóið af karfa
á Faxamarkaði í fyrradag. Lægst fór
karfakílóið á Fiskmarkaði Suður-
nesja, eða á 52 krónur. Munurinn er
enn meiri sé tekið mið af því verði
sem fæst fyrir kílóið af karfa á fisk-
mörkuðum í Þýskalandi. í byrjun
vikunnar seldi Breki VE 108 tonn af
karfa í Bremerhaven og var meðal-
verðið 167,48 krónur fyrir kílóið. Á
meðan greiða erlendar fiskimjöls-
verksmiðjur trúlega um fimm þús-
und krónur fyrir tonnið af loðnu.
—grh
„Hentu þér
í veg fyrír
stræt’
isvagn“
Útdráttur úr bókinni
„íþróttastjörnur" eftir
Heimi Karlsson þar sem
rætt er við Sigurð Sveins-
son handknattleiksmann,
Pétur Guðmundsson
körfuknattleiksmann og
Atla Eðvaldsson knatt-
spymumann.
Blaðsíða 14
MIKILL VIÐBUNAÐUR var hjá Slökkviliði Reykjavíkur í gærkvöldi, þegar
eldur kom upp í vöruskemmum Esso á Gelgjutanga. Einnig var slökkviliðið á Reykjavíkurflugvelli sett í við-
bragösstööu. Nokkurn tíma tók að slökkva eldinn. Eldsupptök eru ókunn. Tímamynd Sigursteinn
Sjúkraliðadeilan:
Næstum sam-
komulag
Sáttafundur í sjúkraliðadeilunni
sem hófst kl. 14 á miðvikudag stóð
enn í gærkvöld. Þá hafði náðst
samkomulag um kjarasamning.
Undirritun strandaði á því að ríkið
vildi ekki draga til baka þá ætlun
sína að hýrudraga sjúkraliða fyrir
þá tvo daga sem þeir mættu ekki til
vinnu í byijun vikunnar.
Sátt var þó orðin um sjálfan kjara-
samninginn og eru helstu atriði
hans þau að sjúkraliðar á lands-
byggðinni halda sínum kjörum, fá
1.7% hækkun og 8.000 kr. orlofs-
auka, og það sama fá sjúkraliðar á
höfuðborgarsvæðinu ofan á sín
laun.
1.... N
Verðlauna-
krossgáta
Tímans
Verðlaunakrossgáta er í
Tímanum í dag.
Dregið verður úr réttum
Iausnum og hinn heppni
hlýtur 10 þúsund króna
vöruúttekt í sérvöruversl-
un Kaupstaðar í Mjódd, 2.
hæð.
Blaösíöa 16
Samtök atvinnulausra beita
sér fýrir áframhaldandi sölu á
ódýrum mat:
Ódýr síld seld
í stórmörkuðum
Samtök atvinnulausra beita sér fyrir
sölu á 3 tonnum á frystrí síld í öllum
stórmörkuðum í dag og næstu daga.
Þetta kemur fram í samtali við
Reyni Hugason, formann samtak-
anna. Hann segir að síldin verði seld
á 120 kr. kílóið og telur að síld fyrir
40 kr. ætti að duga í matinn fyrir tvo.
f þessari lotu segir Reynir að seld
verði 3 tonn af síld en hann á von á
framhaldi ef vel gengur. Hann segir
að samtökin hafi komið þessari sölu í
kring en að öðru leyti sé hún ekki á
hendi félagsmanna. „Það er fiskverk-
andi sem gerir þetta og hann gerir
það ekki til að tapa á því,“ segir
Reynir.
—HÞ