Tíminn - 05.12.1992, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Laugardagur 5. desember 1992
Samtök launafólks leggja fram kröfur um kauphækkanir í framhaldi
m af dómi Hæstaréttar:
ASI vill iá það
sama og BHMR
Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ, telur einsýnt að miðstjóm ASÍ muni fara
fram á sams konar bætur fyrir félagsmenn ASÍ og Hæstiréttur hefur dæmt
félögum í BHMR. Páll Halídórsson, formaður BHMR, segir að í framhaldi
af dómi Hæstaréttar muni BHMR krefjast þess að fá 1,7% launahækkun og
8.000 króna orlofsuppbót, líkt og aðrir launþegar hafa fengið.
Ekki er ljóst hvaða áhrif dómur
Hæstaréttar hefur á launaþróun
næstu misseri. Það eina, sem íiggur
fyrir, er að á næstu vikum fá félagar
í BHMR greiddar 22.600 krónur
ásamt vöxtum.
Ein af forsendum þjóðarsáttar-
samninga ASÍ og VSÍ, sem gerðir
voru í upphafi árs 1990, var að
launaþróun hjá öðrum launþegum
yrði sú sama og hjá félagsmönnum
Þetta kemur fram í frétt frá hljóm-
plötuútgefendum. Þeir segja að nú
sé áberandi vönduð útgáfa á sígildri
tónlist, ásamt endurútgáfu á eldra
efni sem í mörgum tilfellum hafi
ekki verið fáanlegt lengi.
Þá kemur fram að gamla plastplat-
an, sem allir þekkja, er að verða
nánast ófáanleg í verslunum. Útgef-
endur hafa komið sér saman um að
nota orðið geislaplata í stað orðsins
ASÍ. „Þaö var gert ráð fyrir því að ef
þessar forsendur breyttust, þá yrði
málið tekið upp að nýju til samn-
inga. Vinnuveitendasambandið
hafði lýst sig reiðubúið til þess að
það yrði gert. Ég tel þess vegna ein-
hlítt að ef niðurstaðan er þessi, að
þarna hafi félagsmönnum í BHMR
verið dæmdar einhverjar tilteknar
bætur sem komi á skjön við þessar
forsendur, þá munum við leita eftir
geisladiskur. Einnig kemur fram að
útgefendur hafa ákveðið að breyta
viðmiðun þegar veitt er gull- eða
platínuplata fyrir seld eintök. Sam-
kvæmt því verður platínuplata veitt
fyrir sölu 10.000 eintaka í stað 7.500
áður, og gullplata fyrir 5.000 eintök
í stað 3.000 eintaka áður. Sagt er að
þessar viðmiðanir séu þær hæstu
sem þekkjast, miðað við höfðatölu.
-HÞ
því að Vinnuveitendasambandið
bæti okkur á sama hátt,“ sagði
Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ.
Benedikt sagði að forystumenn ASÍ
ættu eftir að skoða þennan dóm bet-
ur. Málið verði lagt fyrir miðstjóm
ASÍ um miðja næstu viku og þá
verði formleg afstaða til málsins
mótuð. Miðstjóm BHMR hefur þeg-
ar komið saman vegna dómsins. Páll
Halldórsson, formaður BHMR, var
spurður um viðbrögð við dómum.
„Það, sem stendur upp úr í þessu
máli, er að þegar bráðabirgðalögin
vom sett á sínum tíma var þar með
brotin stjórnarskrá.
Hinu er ekki að neita að í dómum
er samningsrétturinn takmarkaður,
þ.e.a.s. dómurinn fellst á að það sé
hægt að grípa inn í samning, en
hann setur því líka skorður. Hingað
til höfum við upplifað þetta þannig
að ríkið hefúr bara sett bráðabirgða-
lög þegar því hefur sýnst. Það hefur
lítið verið gert við því, menn hafa
bara hlítt þeim. Við ákváðum að láta
reyna á þetta og niðurstaðan er sú
að ríkið getur ekki umhugsunar-
laust sett bráðabirgðalög. Að því
leytinu finnst mér að þama sé um
að ræða áfangasigur fyrir okkur og
reyndar öll stéttarfélög í landinu,“
sagði Páll.
Páll sagði að BHMR standi núna
frammi fyrir þeirri spurningu hvað
eigi að verða um kjarasamninginn
frá árinu 1989. Páll sagði að sér-
fræðingum BHMR sýndist að iesa
mætti út úr dóminum að takmark-
anirnar gildi aðeins á gildistíma
bráðabirgðalaganna. Þar af leiðandi
geti BHMR reist kröfur á grundvelli
þessa samnings nú. Páll sagði að
fjármálaráðherra hafi þegar verið
sent erindi. Til að byrja með verði
farið fram á 1,7% launahækkun og
8000 króna orlofsuppbót. -EO
Hljómplötuútgáfan fyrir jólin:
Endurút-
gáfur eru
áberandi
Endurútgáfur á hljómplötum eru áberandi fyrir jólin, en af 80 útgefnum
plötum eru 30 endurútgefnar.
Opinn fundur um
atvinnuleysi
í tilefni af uggvænlegu ástandi í
atvinnumálum stendur Fríkirkjan
í Reykjavík fyrir fundi, sem ber yf-
irskriftina „Opinn fundur um at-
vinnuleysi og innri mann“.
í frétt frá kirkjunni kemur fram að
tilefni fundarins sé atvinnuleysið
og afleiðingar þess á einstaklinginn
sem fyrir því verður. Einnig verður
rætt um viðbrögð, sem unnt er að
grípa til, og viðbrögð sem rétt sé að
forðast. Þá verður leitað svara, sem
komið geta að haldi, og ráða, sem
grípa má til í baráttunni við þær
neikvæðu hugsanir og kenndir sem
gjarnan fylgja í kjölfar þess að
missa vinnuna.
Frummælendur verða Cecil Har-
aldsson safnaðarprestur, Unnur
Konráðsdóttir ritari Landssamtaka
atvinnulausra, og Gunnar Klængur
Gunnarsson félagsráðgjafi.
Fundurinn verður í safnaðar-
heimili kirkjunnar að Laufásvegi
13 í Reykjavík og hefst í dag kl.
13:30.
10 milljón króna styrkveitingar til nýjunga í smáiðnaði:
MARGT NÝTT Á DÖFINNI
Mikil fjölbreytni var í umsóknum um styrkveitingar til nýjunga í smá-
iðnaði, sem iðnaðarráðuneytið auglýsti eftir sl. sumar. Sem dæmi má
nefna nýjungar á sviði framleiðslu minjagripa og matvæla, ferðaþjón-
ustu og framleiðslu er lýtur að umhverfisvemd.
Alls bárust 68 umsóknir og nýver-
ið var ákveðið að veita styrk til 30
aðila. Nam heildarfjárhæðin 10
milljónum króna. Þessum styrkjum
er ætlað að styðja við bakið á þeim,
sem stofna til nýjunga í smáiðnaði
eða nýrra iðnfyrirtækja, og þá eink-
um á landsbyggðinni. Við val á styrk-
þegum var fyrst og fremst miðað við
að greiða fyrir tæknilegum undir-
búningi, hönnun, stofnsetningu og
markaðssetningu og ekki síst hjá
þeim, sem þegar höfðu skýrt mótuð
áform um að hefja slíka starfsemi og
höföu lagt til eigið áhættufé.
Án efa munu þessir styrkir, sem
iðnþróunarfélög og atvinnuþróun-
arfélög hver á sínum stað munu af-
henda, verða til þess að auðvelda
framtakssömu fólki að hrinda hug-
myndum sínum í framkvæmd og, ef
að líkum lætur, skipta sköpum fyrir
framgang mála.
Það voru fulltrúar frá Byggðastofn-
un, Iðntæknistofnun íslands og Iðn-
aðarráðuneytinu auk ráðgjafa, sem
lögðu mat á umsóknirnar 68, og á
grundvelli þess var síöan ákvörðun
tekin um styrkþega.
-grh
Staðinn að
ólöglegum
veiðum
Flugvél Landhelgisgæslunnar stóð
bát að ólöglegum veiðum úti fyrir
Rifi á Snæfellsnesi í gær.
Báturinn heitir Esjar SH 75, 12
tonna, og er frá Rifi. Hann var stað-
inn að ólöglegum veiðum í svoköll-
uðu skyndilokunarhólfi úti fyrir
heimahöfn, en slík hólf eru venju-
lega Iokuð í viku í senn. Báturinn
var sendur til heimahafnar og er
málið nú í höndum sýslumanns.
Sænskar vörur hafa ekkert lækkað
Vörur frá Svíþjóð, sem þrír aðilar selja, hafa ekkert lækkað í verði, þrátt fyr-
ir 6% hærri gengisfellingu þar en hér. Þetta gengur þvert á það, sem ýms-
ir forsvarsmenn í verslunar- og atvinnulífi hafa haldið fram. „Sænska krón-
an féll um 12%, en íslenska krónan féll um 6%. Það þýðir að sænska krón-
an hefur fallið 6% meira og þess ætti að gæta í vöruverði hér á landi. í mín-
um huga er ekki nein spuming um þetta,“ segir Þórarinn V. Þórarinsson,
framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambandsins.
Jóhannesi Gunnarssyni, for-
manni Neytendasamtakanna,
finnst óeðlilegt að vörur hækki al-
mennt um 6% yfir línuna. „Ég hef
haldið því fram að það sé mjög
undarlegt að þeir aðilar, sem flytja
inn frá þeim löndum þar sem
gengisfelling var framkvæmd og
hún var meiri en gengisfelling ís-
lensku krónunnar, virðast þegar
búnir að kaupa inn óhemju miklar
birgðir og ætla engu að breyta. Á
sama tíma hafa fjölmörg fyrirtæki,
sem t.d. flytja inn frá Þýskalandi,
eiga nánast engar birgðir," segir
Jóhannes. „Við hjá Neytendasam-
tökunum spyrjum og krefjumst
svara: Er þetta trúverðugt?"
„Málið er að við erum með birgð-
ir fyrir þrjá mánuði. Um áramótin
ætlum við að endurskoða hvar við
stöndum," segir Halldór Gunnars-
son, markaðsfulltrúi hjá IKEA
Hann segir að í framhaldi af því
væri möguleiki á lækkun. „Við
álítum okkur ekki geta í dag lækk-
að vöruverðið, því birgðirnar sem
við eigum eru keyptar á gömlu
gengi," segir Halldór. Hann tekur
undir það sjónarmið að það sé ekki
eðlilegt að hækka vörur, sem
keyptar eru inn fyrir gengisfell-
ingu.
Hann bætir við að verð á IKEA-
vörum hafi aldrei hækkað í kjölfar
gengisfellingar fyrr en ný vara
kemur inn. „Þá hefur það bara
gerst jafnóðum, en ekki allt hækk-
að í einu,“ segir Halldór.
„Ég býst ekki við því að það verði
mikil lækkun, og það hefur engin
lækkun orðið á þeim vörum sem
við seljum út úr búð í dag,“ segir
Sigurður Stefánsson, verslunar-
stjóri hjá Heimasmiðjunni sem
flytur inn heimilistæki með
sænska vörumerkinu Electrolux.
Um ástæður þessa segir Sigurður:
„Það er einhver óstöðugleiki enn-
þá á sænsku krónunni, þannig að
þetta er ekki komið ennþá í ljós.“
„Bfllinn, sem við flytjum inn, er
framleiddur í Hollandi og við
kaupum hann með hollenskum
gyllinum. Hann átti að hækka um
6%, en við hækkuðum hann um
4.7%,“ segir Egill Jóhannsson,
markaðsstjóri hjá Brimborg sem
flytur inn sænskar bifreiðar. „Síð-
an flytjum við inn bfla sem við
kaupum með sænskum krónum,
en sem eru framleiddir í Belgíu, en
Svíamir hækka þá strax um 11% í
verði, því þeir þurfa að greiða belg-
ísku verkamönnunum laun,“ segir
Egill. Hann segir að fyrirtækið hafi
ekki átt neina bfla á lager, sem
hægt hefði verið að lækka.
-HÞ