Tíminn - 05.12.1992, Blaðsíða 5
Laugardagur 5. desember 1992
Tíminn 5
Eftir flokksþing
Jón Kristjánsson skrifar
Framsóknarmenn halda flokksþing á
tveggja ára fresti. Það er æðsta sam-
koma í flokksstarfmu. Þeir, sem lifa og
hrærast í stjórnmálum og stjórnmála-
flokkum, líta á flokksþingin sem mikinn
viðburð og áfangastað í flokksstarfmu.
Þar er litið yfir farinn veg, en þó einkum
reynt að gera sér grein fyrir framtíðinni
og móta stefnu næstu ára.
Þessi viðburður í flokksstarfmu hjá
okkur var um síðustu helgi, og var þetta
þing að mörgu leyti með ólíkum brag og
hin fyrri og kom margt til.
Ég man þá tíð að þessar samkomur
voru lokaðar fréttamönnum. Síðan var
tekin ákvörðun um að opna þingin fyrir
fjölmiðlum, að undanteknum nefndar-
fundum. Nú var brotið blað í þinghaldi
stjómmálaflokka hér á landi og sjón-
varpað beint frá fundum þingsins á
svæði Sýnar, og einnig var sjónvarpað á
Stöð 2 utan dagskrártíma þar og náði þá
útsendingin mjög víða.
Það er ekki ofsögum sagt að það kom
þægilega á óvart hvað mikið var horft á
þessa útsendingu. Þó að engin könnun
sé til þar um, er vissa fyrir því að fólk sat
drjúgum og horfði, og skipti þá ekki
máli hvar í flokki menn stóðu. Pólitísk-
ur áhugi er mikill á íslandi og marga
fysti að vita hvað var verið að ræða á
þessu þingi.
Þingað í stjómarandstöðu
í öðru lagi var þetta í fyrsta sinn um
langt árabil sem framsóknarmenn
komu saman í stjómarandstöðu til þess
að halda flokksþing. Þótt flokksþing hafi
auðvitað ávallt snúist um stefnu flokks-
ins, bám umræður þó alltaf keim af því
ríkisstjómarsamstarfi sem flokkurinn
var í á hverjum tíma. í stjómarandstöðu
er hægt að beina kröftunum að því að
skerpa línurnar, fremur en að geðjast
samstarfsflokkum.
Vinnuhópar vítt um land
Það er mikil vinna að undirbúa þing
sem þessi og undirbúa þau ályktunar-
drög, sem nauðsynleg em sem gmnd-
völlur umræðna. Sú vinna fór að þessu
sinni fram í miklu nánari tengslum við
trúnaðarmenn um allt land heldur en
áður. Vinnuhópar í öllum kjördæmum
landsins fengu úthlutað málaflokkum
til þess að fara yfir í samráði við þing-
flokkinn og þá málefnahópa sem þar
vinna. Kjördæmisþingin í hinum ein-
stöku landshlutum fjölluðu síðan um
vinnuplögg þeirra. Á þennan hátt komu
hundmð manna að þessu undirbún-
ingsstarfi. Þessa sá mjög stað á þinginu
í mjög vandaðri undirbúningsvinnu,
sem dró umræðumar bæði í nefndum
og á þinginu sjálfu meira að aðalatrið-
um mála og skoðanaskiptum um þau
mál sem ágreiningur er um.
Kastljósið á EES
Kastljós fjölmiðla var á þessu flokks-
þingi Framsóknarflokksins m.a. vegna
þess að fréttamenn áttu von á ágrein-
ingi á þinginu
milli fylkinga í
EES-málinu.
Um það mál
vom mjög
gagnleg skoð-
anaskip t i.
Þetta er mesta
og marg-
slungnasta
mál, sem hefur
verið til meðferðar í þjóðfélaginu á síð-
ari ámm. Af eðlilegum ástæðum er ugg-
ur í brjósti margra þegar dregur að úr-
slitastundinni, ekki síst þar sem fram-
sóknarmenn og fomsta þeirra hefur
ekki verið með í samningum í eitt og
hálft ár. Það er ljóst að um málið em
skiptar skoðanir innan Framsóknar-
flokksins eins og í öðmm flokkum,
nema Alþýðuflokknum þar sem menn
virðast stefna inn í Evrópubandalagið
með bundið fyrir augun.
Forsagan
Ég var einn í hópi þeirra manna, sem
töldu rétt að hefja þessar samningavið-
ræður á sínum tíma, og veitti fyrri ríkis-
stjórn fulltingi til þess að gera það með
mínu atkvæði þegar þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins bám fram vantraust á
hana á Alþingi. Ég gerði það vegna þess
að ég vonaði þá að þarna gætum við
fengið viðunandi lausn á viðskiptum og
samskiptum við nágrannaþjóðir okkar í
Evrópu, án þess að ganga í Evrópu-
bandalagið og undir þá yfirstjóm auð-
linda sem það hefur í för með sér. Ég
átti einnig von á því þá að það gæti allt
eins slitnað upp úr þessum viðræðum,
og við yrðum í stöðu til þess að biðja um
tvíhliða viðræður. Svo varð ekki, en í
stað þess hafa nú allar EFTA-þjóðirnar
sótt um aðild að EB nema við íslending-
ar. Einn gallinn á málsmeðferð ríkis-
stjómarinnar er sá að ekki hefur á neinn
formlegan og viðhlítandi hátt verið beð-
ið um viðræður um stöðu okkar eftir að
hinar EFTA-þjóðimar hafa sótt um aðild
að EB. Munnlegar yfirlýsingar einstakra
manna um að stofnanakerfið verði ein-
faldað duga einfaldlega ekki.
Illa haldið á málinu
Ég er einn af þeim sem hafa hvorki lýst
yfir stuðningi né fullkominni andstöðu
við EES-samn-
inginn. Hins
vegar er ég ein-
dreginn and-
stæðingur EB-
aðildar. Mér
finnst ríkis-
stjórnin hafa
haldið illa á
þessu máli og
látið undir höf-
uð leggjast að gæta margra grundvallar-
atriða, svo sem að taka af allan vafa með
stjómarskrárþátt málsins og leggja það
í þjóðaratkvæði til þess að fá víðtæka
umræðu í þjóðfélaginu um það og
kanna þjóðarviljann. Þetta gerir það
auðvitað að verkum að stjómvöldum er
enn verr treyst í málinu og spillir fyrir
víðtækri samstöðu um það.
Nú er framundan önnur umræða í Al-
þingi um þetta viðamikla mál, og mun
þá hver þingmaður taka afstöðu í því.
Flokksþing Framsóknarflokksins hefur
lagt sínar línur um stjómarskrárþátt
málsins, m.a. með því að álykta um að
túlka beri allan vafa stjórnarskránni í
hag og því verði að breyta henni áður en
hægt er að samþykkja samninginn um
Evrópskt efnahagssvæði.
Neyðarleg hræðsla
Það er auðvitað neyðarlegt að stjórnar-
liðar skuli ekki ganga til þessa verks af
ótta við kosningar sem því mundu
fylgja. Hræðslan við ástand mála er slík
að þeir mega ekki til kosninga hugsa og
vilja heldur hokra á stjórnarheimilinu í
rifrildi og fýlu, en að hætta á neitt.
Hluti þingmanna Framsóknarflokksins
hafa metið galla samningsins fleiri en
kostina og munu greiða atkvæði gegn
honum af þeim ástæðum og einnig á
forsendum stjórnarskrárinnar. Aðrir
hafa ekki gengið svo langt. Á flokksþing-
inu virtu menn mismunandi sjónarmið
og það munu þingmenn flokksins einn-
ig gera.
Öll hin málin
Hins vegar voru samþykktar ítarlegar
ályktanir á flokksþinginu í fjölmörgum
málaflokkum, þótt EES- málið væri
mest áberandi í fréttum vegna lyktar af
ágreiningi. Flokksþingið tók til dæmis
afstöðu til þess hvaða skilyrði yrðu að
vera uppfyllt við sölu ríkisfyrirtækja og
breytingu á rekstrarformi þeirra. Álykt-
að var um séreignarsjóði lífeyrisréttinda
og nýjungar í tryggingarstarfsemi, t.d.
athugun á því hvort hægt sé að tryggja
fyrir greiðslufalli húsnæðislána vegna
veikinda eða atvinnumissis. Það var
einnig ályktað um sameiningu og
verkaskiptingu sveitarfélaga, þar sem
samstaða náðist um ályktun um þróun í
átt til sameiningar, en gegn öllu vald-
boði í þeim efnum. í atvinnumálum
voru samþykktar mjög ítarlegar álykt-
anir auk hefðbundinnar stjómmála-
ályktunar. Allar em þessar ályktanir
góður leiðarvísir fyrir þá sem fara með
fomstu í flokksstarfinu til næsta flokks-
þings.
Gott þing
Ég er afar ánægður með þetta flokks-
þing. Það var málefnalegt og þar vom
hreinskilin skoðanaskipti. Framkvæmd
þess og undirbúningur var hiklaust sá
besti sem verið hefur hingað til. Sér-
stakur fundur um nýjungar í atvinnu-
lífi, sem var í Háskólabíó, og sýning á
nýjungum í tengslum við hann var ljós í
því svartnætti, sem einkennir alla um-
ræðu um atvinnumál í landinu. Það fá-
menna starfslið flokksins, sem kom
þessu öllu í kring, á miklar þakkir skilið,
því það er ekkert áhlaupaverk að láta
500-600 manna samkomu ganga
snurðulaust fyrir sig.
Þingið skilur eftir sig vandaðar álykt-
anir, sem verða leiðarvísir fyrir málefna-
starfið næstu tvö ár, auk þeirra góðu
stunda þegar félagar og skoðanabræður
hittast.