Tíminn - 16.01.1993, Side 2
2 Tfminn
Laugardagur 16 janúar 1993
Héraðsdómur Reykjavíkur:
Sýknaði Sighvat af öllum
kröfum lyfjaheildsalanna
Lækkun á heildsöluálagningu lyfja sem heilbrigðisráðherra frestaði til 1.
febrúar n.k. mun nú væntanlega koma til framkvæmda eftir að Héraðas-
dómur Reykjavíkur hefur sýknað ráðherra af öllum kröfum lyfjahóps stór-
kaupmanna. Félag íslenskra stórkaupmanna hafði fyrir hönd lyfjainnflytj-
enda krafist þess að tilteknar afgreiðslur lyfjaverðlagsnefndar og ákvarðan-
ir sem heiibrigðisráðherra tók á greundvelli þeirra yrðu ógiltar og jafnframt
að Guðjón Magnússon skrifstofustjóri yrði dæmdur vanhæfur til setu í
nefndinni.
Lækkun heildsöluálagningar úr
13,5% í 12,5% ásamt lækkun svo-
kaílaðra FOB- og CIF-stuðla um 2-
3 prósentustig var ætlað, sam-
kvæmt útreikningum ráðuneytis-
ins, að lækka tekjur lyfjaverslun-
arinar um 100 milljónir króna á
þessu ári.
Aðspurður um viðbrögð lyfjainn-
flytjenda svaraði Birgir Thorlaci-
us, talsmaður lyfjahóps FÍS: „Það
er verið að íhuga hvort það verði
áfrýjað eða ekki. Ákvörðun um það
verður trúlega tekin núna eftir
helgina." Birgir sagði lyfjahópinn
aðallega óánægðan með hvernig
staðið var að ákvörðunum, sér-
staklega varðandi lækkun álagn-
ingar. Ekki hafi verið farið al-
mennilega ofan í kjölinn á þessum
málum samkvæmt laganna hljóð-
an heldur hafi þetta frekar verið
eins og ágiskun að nú mætti
lækka álagningu og stuðla.
„Við erum ekki að segja að lækk-
un geti ekki átt rétt á sér heldur að
það hafi ekki verið kannað al-
mennilega hvort svo sé. Hópurinn
er einnig ósáttur við vinnubrögðin
þar sem hann telur Guðjón Magn-
ússon ekki eiga þar heima. Lyfja-
verðlagsnefnd hefur þá sérstöðu
að verði ágreiningur í henni þá
sker ráðherra úr. Með þvf að hafa
starfsmenn sína í nefndinni getur
hann skapað slíkan ágreining",
sagði Birgir.
Til ágreinings kom í lyfjaverð-
lagsnefnd í desember vegna til-
lagna Guðjóns Magnússonar þar
sem hann m.a. rökstuddi lækkun
heildsöluálagningar úr 13,5% nið-
ur í 12,5% með aftiámi aðstöðu-
gjaldsins frá áramótum. Heil-
brigðisráðherra kvað því upp úr-
skurð 18. desember um lækkun
álagningar og stuðla sem skyldi
gilda frá áramótum. Eftir að Félag
stórkaupmanna skaut málinu til
dómstóla skömmu fyrir áramót
frestaði ráðherra framkvæmdinni
til fyrsta febrúar.
Einar Magnússon, deildarstjóri
lyfjamála í heilbrigðisráðuneyt-
inu, var spurður hvort lækkun
álagningar og staðla kæmi nú ekki
til ffamkvæmda.
Hann sagði ráðherra ekki taka
endanlega ákvörðun um það fyrr
en eftir helgi. En allar líkur mætti
þó telja á því að ákvörðun ráðherra
tæki gildi. - HEl
Nítján styrkjum úthlutað úr Kvikmyndasjóði:
Friðrik Þór og Hilmar fengu mest
Kvikmyndafélög þeirra Friðriks
Þórs Friðrikssonar og Hilmars
Oddssonar fengu hæstu styrid úr
Kvikmyndasjóði fslands til bíó-
myndagerðar en tilkynnt var um út-
hlutunina í gær. Alls sóttu 124 um
styrk úr sjóðnum, þar af 17 til að
gera bíómynd. Umsóknir hafa aldr-
ei verið fleiri síðan sjóðurinn var
settur á stofn. Úthíutunaraefnd
Kvikmyndasjóðs hafði að þessu
sinni 75 miÚjónir til ráðstöfunar.
Þrír styrkir voru veittir til að gera
bíómyndir, en 17 umsóknir bárust.
Hæsta styrkinn, 26 milljónir, fékk
íslenska kvikmyndasamsteypan til
að gera myndina Bíódagar. Leik-
stjóri myndarinnar er Friðrik Þór
Friðriksson. Nýja bíó fékk 23 millj-
ónir til að gera myndina Vita et
mors. Leikstjóri hennar er Hilmar
Oddsson. Þá fékk Art Film 3 milljón-
ir til að gera myndina Stuttur
frakki. Leikstjóri myndarinnar er
Gísli Snær Erlingsson. Fjórtán um-
sóknir bárust um að gera stutt-
myndir. Þór Elís Pálsson fékk 7
milljónir til að gera myndina Nifl og
Baldur Hrafnkell Jónsson fékk 3
milljónir til að gera myndina Ráða-
góða stelpan.
Sjö fengu styrki til að gera handrit
og til undirbúnings að gerð bíó-
mynda. Nýtt líf (Þráinn Bertelsson)
fékk milljón til að undirbúa gerð
myndarinnar Einkalíf Alexanders.
Óskar Jónasson fékk milljón til
myndarinnar Snjóbolti. Kvik-
myndafélagið Esjan (Halldór Gunn-
arsson) fékk 600 þúsund til myndar-
innar Svartur himinn. Skífan (Jón
Ólafsson) fékk 600 þúsund til mynd-
arinnar Alveg milljón. Sólskins-
myndir (Halldór E. Laxness) fengu
600 þúsund til myndarinnar Mestur
hiti á landinu. Hillingar (Lárus Ým-
ir óskarsson) fengu 400 þúsund til
myndarinnar Leitin að mömmu.
Friðrik Erlingsson fékk 400 þúsund
til að undirbúa myndina Benjamín
dúfu.
Kvikmyndafélagið Villingur (Þor-
finnur Guðnason) fékk 2 milljónir
til að gera heimildamyndina Húsey.
Lifandi myndir (Erlendur Sveins-
son) fengu 2 milljónir til að gera
heimildamyndina Árabátur. Kári
Schram fékk milljón til að gera
heimildamyndina Dagsverk og Alda
Lóa Leifsdóttir fékk milljón til að
gera heimildamyndina Halló
Reykjavík. Þá fékk Táge Ammendrup
500 þúsund til að undirbúa gerð
heimildamyndarinnar Hugvitsmað-
urinn.
Inga Lisa Middleton fékk 1,2 millj-
ón til að gera myndina Ævintýri á
okkar tímum sem er svokölluð
hreyfimynd og Teiknimyndagerðin
(Sigurður Öm Brynjólfsson) fékk
700 þúsund til að gera teiknimynd-
ina Auðunn og ísbjöminn. -EÓ
GRÍPTU GÆSINAMAÐUR’.
JANDAR
IILBOÐ
?//
Allar Biga eldhúS'Og baðinnréttmgar með
10% verksmiðjuafslættiútjanuar^^ ^
Nú býðst «ns‘”ky?rks^1992 «Sg meúeiS0% verksmiðjuafstett. að
réttingu a verðlista ar , tekur nýr verðlisti gildi.
^kSnúna og sPn"úpS«‘ ‘
En„ eru óseldar 3#%'
brautum vegna væntanl^ubtæíifærið núna.
Visaog Euro raðgreiðslur.
Island
Stjómarmenn og framkvæmdastjórí Kvikmyndasjóðs. Frá vinstri,
Bryndís Schram framkvæmdastjóri, Olga Guörún Árnadóttir, Kríst-
björg Kjeld og Ámi ÞÓrarinSSOn. Tímamynd Sigursteinn.
Jötunn hf. og Ingvar Helgason hf. hafa geng-
ið frá sölusamningi:
Ingvar Helgason hf.
fær bíla og vélar
í gær var undirritaður samningur
um kaup Ingvars Helgasonar hf. á
bfladeild Jötuns hf. ásamt tilheyr-
andi starfsemi varahlutadeildar og
bflaverkstæðis. Ennfremur felur
samningurinn í sér sölu véladeild-
ar Jötuns til Ingvars Helgasonar
en sá hluti samningsins bíður
endanlegrar staðfestíngar þar til í
lok þessa mánaðar.
Samninginn undirrituðu þeir
Ingvar Helgason og Helgi Ingvars-
son fyrir hönd kaupenda og Guð-
jón B. Ólafsson og Sigurður Gils
Björgvinsson fyrir hönd seljenda.
Á fúndi stjórnar Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga fyrr í
mánuðinum lýsti stjórnin sig sam-
þykka samningsgerðinni en Sam-
bandið er sem kunnugt er meiri-
hlutaeigandi að Jötni hf..
Jötunn og Sambandið hafa um
áratuga skeið haft umboð á íslandi
fyrir sölu bifreiða frá General Mo-
tors, Chevrolet, Pontiac, Oldsmo-
bile, Buick, Cadillac og Opel. Þá
hefur fyrirtækið umboð fyrir fjölda
landbúnaðarvéla en þekktastar
þeirra eru Massey Ferguson drátt-
arvélar.
Samningar Ingvars Helgasonar
hf. við hin erlendu fyrirtæki standa
nú yfir. Ingvar Helgason hf. hefur
stoftiað nýtt fyrirtæki til að annast
þennan rekstur og mun það fyrir-
tæki verða rekið fyrst um sinn á
sama stað og áður að Höfðabakka
9 og mun hluta starfsliðs Jötuns
verða boðið að starfa í nýja fyrir-
tækinu.
-EÓ
Árekstra-
■ * *
hrina i
Hafnarfirði
Lögreglan í Hafnarfirði hafði í
nógu að snúast í gær því alls
hafði verið tílkynnt um bfl-
bruna og átta árekstra, þar af
tvo mjög harða, um miðjan
dag.
AðsÖgn lögreglu er langt síð-
an svo margir árekstrar hafa
orðið í bænum. Sem betur fer
urðu engin slys á fólki en fjar-
lægja þurftí bfla úr tveimur
árekstrum með dráttarbfl. -HÞ