Tíminn - 20.02.1993, Page 10

Tíminn - 20.02.1993, Page 10
10 Tíminn Laugardagur 20. febrúar 1993 Nú f föstuinngangi fara í hönd þrír merkisdagar, sem allir eiga það sam- merkt að þeir áttu sér meíra og minna háaivaríegt inntak fyrr á tlð, inntak sem nu hefur snúist upp I glens eltt og gam- an. Hér er auðvitað um að ræða bollu- daginn, sem menn munu fagna nk. mánudag, sprengi- daginn sem er á þríðjudag, og loks öskudaginn á mið- víkudag. Hér á eftír verður sitthvað rifj- að upp um uppruna þessara þriggja há- tíðisdaga og hvernig þelr fengu það létt- úðuga inntak sem raun er á. Heimlld okkar er bók Árna Björnssonar, „Saga daganna“, en Árni er sem kunnugt er manna fjölvisastur um þetta efni. Hópur barna á Akureyri „siær köttinn úr tunnunni“ um 1920. Oft var öskudagurinn valinn til þessarar gleði, en stundum efnt til sérstaks „kattarslagsdags“. Á Akureyri var reynt að ná f flækingskött og hann þá skotinn, en annars hrafn, sem nóg var af. Skepnan var svo sett í tunnu, sem hengd var upp og lamin utan uns hún var fallin I stafi. Sá, sem sló síöasta stafinn úr tunnunni, hét „tunnukóngur", en sá, sem tókst aö höggva niöur hrafninn eöa köttinn, hét „kattarkóngur". M _ tókst aö höggva möur hrafnmn eöa ne,ca'/o(qa.. upp í glms °9LÍfTTÚ‘Ð ar sem snerust Sagt frá uppruna bolludagsins, sprengidagsins og öskudagsins Áhrif norskra eða danskra bakara Heiti bolludagsins mun vera til- tölulega ungt, en fyrirbærið sjálft er þó a.m.k. nálægt hundrað ára gamalt hérlendis. Flest bendir til að siðurinn hafi borist hingað fyr- ir dönsk eða norsk áhrif á síðari hluta 19. aldar, Ifklega að frum- kvæði þarlendra bakara sem sett- ust hér að. Þó hefur hann öðlast hér nokkra sérstöðu. Aðalþættir hans eru tveir: Að flengja menn með vendi áður en þeir komast úr bólinu og fá f stað- inn eitthvert góðgæti. Fyrra atriðið mun eiga rætur að rekja til þeirra hirtinga og písla, sem menn lögðu á sig og aðra sem iðrunarmerki á föstunni til að minnast pínu frelsarans. En eftir siðbreytinguna þróaðist þetta hvarvetna smám saman yfir í gam- anmál. Bolluátið mun hinsvegar vera leif frá því að „fasta við hvítan mat“, nema nú var hann mun bet- ur úti látinn en fyrrum. Þesskonar bolluát eða feitmetisát virðist á öðrum Norðurlöndum reyndar hafa verið meir bundið við þriðju- daginn næsta. En á íslandi hafa menn fest þennan sið við mánu- daginn, sennilega til að trufla ekki hefðbundinn matarsið morgun- dagsins. Vitað er að ekki síðar en milli 1880-90 höfðu börn f Hafnarfirði og Reykjavík fyrir sið að fara fylktu liði um götur á bolludag- inn, búin stríðsklæðum og tré- vopnum með bumbuslætti og söng og sníkja peninga eða sæl- gæti í verslunum. Er þetta arfur frá „föstugangshlaupum" þeim, sem einnig verður vikið að í sam- bandi við tvo næstu daga. Sprengikvöld og sprengir Þetta er þriðjudagurinn í föstu- inngang, áður síðasti dagur fyrir upphaf lönguföstu. Önnur af- brigði nafnsins eru sprengikvöld og sprengir. Það er alkunna að kaþólskar þjóðir gera sér nokkra glaða kjöt- kveðjudaga áður en fastan hefst. Upphaflega mun hér um að ræða vorhátíðir í sunnanverðri Evrópu, sem síðan hafa runnið saman við föstuinnganginn. BORGARVERKFRÆÐINGURINN I REYKJAVÍK GARÐYRKJUSTJÓRI SKÚLATÚNI 2. 105 REYKJAVlK, SlMI 632460. MYNDSENDIR 624034 Húsverndarsjóður Reykjavíkur ( apríl verður úthlutað lánum úr Húsverndarsjóði Reykja- víkur. Hlutverk sjóðsins er að veita lán til viðgeröa og endurgerðar á húsnæði í Reykjavík sem hefur sérstakt varðveislugildi af sögulegum eða byggingasögulegum ástæðum. Umsóknum um lán úr sjóðnum skulu fylgja verklýsingar á fyrirhuguðum framkvæmdum, kostnaðaráætlun, teikning- ar og umsögn Árbæjarsafns. Umsóknarfrestur er til 15. mars 1993 og skal umsóknum, stíluðum á Umhverfismálaráð Reykjavíkur, komið á skrif- stofu Garðyrkjustjóra, Skúlatúni 2, 105 Reykjavík. Utboð Suðurlandsvegur, Skálm- Klaustur Vegagerö ríkisins óskar eftir tilboöum I lagningu 38 km kafla á Suöurlandsvegi milli Skálmar og Klausturs. Þar af er 16 km nýlagning. Helstu magntölur: Fyllingar og buröarlög 260.000 m3, slitlag 238.000 m3, varnargaröar 46.000 m3 og grjótvörn 14.300 m3. Verki skal lokiö 15. ágúst 1994. Útboösgögn veröa afhent hjá Vegagerö rlkisins á Selfossi og i Borgartúni 5, Reykjavik (aöal- gjaldkera), frá og meö 22. þ.m. Skila skal tilboöum á sömu stööum fyrir kl. 14:00 þann 8. mars 1993. Vegamálastjóri

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.