Tíminn - 03.04.1993, Side 5

Tíminn - 03.04.1993, Side 5
Laugardagur 3. apríl 1993 Tíminn 5 Sameining sveitarfélaga Jón Kristjánsson skrifar Undanfarin tvö ár hef ég átt sæti í tveimur nefndum á vegum félagsmálaráðuneytisins, sem fjölluðu um sameiningu sveitarfélaga, nýja verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og tekjustofna sveitarfélaga. Sveitarfélaganefnd hin síðari hefur nú lokið störfum. Þvf þykir mér rétt að nota þennan vettvang að þessu sinni til þess að ræða þá niðurstöðu, sem varð að lokum, og líklega framvindu mála næstu mánuðina. Hvers vegna sameining? Nokkrar meginástæður eru til þess að rétt þykir að endurskoða mörk sveitarfélaga. Hin fyrsta er sú að fólksflutningar úr dreifbýli í þéttbýli hafa verið miklir síðustu áratugi og fækkað hefur mjög í mörgum dreifbýlissveit- arfélögum. Samgöngur hafa batnað mjög og samstarfsverkefnum milli sveitarfélaga fjölg- að. Auknar kröfur eru gerðar til sveitarfélaga um þjónustu við íbúana, bæði frá íbúum sveitarfélaganna og með löggjöf frá ríkisvald- inu. Má þar til dæmis nefna þjónustu á sviði umhverfismála, sorphreinsun og fráveitu. Þar að auki er góð reynsla af þeim verkefnatil- flutningi sem verið hefur frá ríki til sveitarfé- laga, sem ýtir undir þá skoðun að sveitar- stjómarstigið eflist og betur verði stjómað með meiri verkefnatilflutningi. Sveitarfélag — samfélag Hins vegar em mörg ljón í veginum. Sveitar- félög eru ákaflega misjöfn að stærð og munu verða það, þótt veruleg sameining eigi sér stað. Þar af leiðir misjöfn aðstaða þeirra til þess að takast á við ný verkefni. Hin litlu sveitarfélög eru samfélag sem íbú- amir hafa tilfinningu fyrir og þykir vænt um. Það vita allir, sem hafa alist upp í dreifbýli og þekkja þær aðstæður sem þar em. Dreifbýlis- sveitarfélögin verða ekki þurrkuð út með til- lögum úr ráðuneyti eða stjórnskipaðri nefnd, eða með lagasetningu frá Alþingi. Fólkið sem byggir þau verður að ákveða sjálft í lýðræðis- legum kosningum hvort það vill ganga til sameiningar við nágranna sína. Ég er ánægð- ur með að samstaða náðist í sveitarfélaga- nefndinni og á vettvangi Sambands íslenskra sveitarfélaga um að þessi háttur verður hafð- ur. Þvinganir með lögum eða afbrigðilegum kosningareglum hefðu getað haft hinar verstu afleiðingar. Umdæmisnefndir í nefndarálitinu er lagt til að komið verði á fót svokölluðum umdæmisnefndum heima- manna, er verði skipaðar af landshlutasam- tökum. Þessar nefridir ákveði þau svæði þar sem kjósa skal um sameiningu. Með starfi umdæmisnefnda færast málin á vettvang heimamanna, sem er til bóta. Samþykki tveir þriðju hlutar sveitarfélaganna á ákveðnu svæði sameiningu, getur hún farið fram, þótt hinir sem fella séu ekki með. Kostir og gallar sameiningar Ég hef í gegnum starfið í sveitarfélaganefnd hitt sveitarstjómarmenn víðs vegar um land- ið. Það hefur verið sérlega lærdómsríkt. Þegar grannt er skoðað eru það, þrátt fyrir mismun- andi aðstæður, sömu atriðin sem upp úr standa þegar rætt er um ókostina við sameininguna: Sveitarstjómar- mönnum fækkar og hætta er á að fleiri verði óvirkir. Sveitarfé- lögin verða ópersónulegri og tortryggni er gagnvart sameiningu dreifbýlis og þéttbýlis. Ótti er við að þéttbýlið verði sterkara í þeim viðskiptum og valdið fjarlægist fólkið. Allt em þetta rök sem þarf að hlusta á og ræða af fullri hreinskilni. Með sama hætti má benda á augljósa kosti við sameiningu: Geta sveitarfélaganna til þess að veita félagslega þjónustu verður meiri. Árekstrum út af skiptingu atvinnusvæða eða öðmm réttindamálum á svæðum, sem em fyrir löngu orðin eitt þjónustusvæði, ætti að fækka. Við sjávarsíðuna ætti að draga úr þeim átökum, sem em varðandi landanir skipa, kvótamál og fleira sem tilheyrir sjávarútveg- inum. Þessi rök með eða á móti verður hinn al- menni kjósandi að meta, en það hvílir þá sú skylda á stjómmálamönnum í sveitarstjóm- um og á Alþingi að halda uppi málefnalegum og upplýsandi umræðum um þessi mál. Hins vegar ber að varast í þessum umræðum að ganga út frá því að af sameiningu sveitarfé- laga verði stórkostlegur spamaður, jafnvel svo að þetta sé úrræði í aðsteðjandi vanda í efna- hagsmálum. Litlu sveitarfélögin hafa ekki mikla yfirstjóm, og hún mun tæplega verða ódýrari við sameininguna. Samvinna — sameining Margir sveitarstjómarmenn halda því fram að þeir séu hlynntir samstarfi um einstök mál, sem geti komið í stað sameiningar. Þetta getur vissulega verið leið til þess að fást við stærri verkefni og sameiginleg verkefni. Hún hefur víða verið reynd, og hægt er að skoða hana í ljósi þeirrar reynslu. Þar sem flest samstarfsverkefhi em á milli sveitarfélaga, er það stjómkerfi orðið mjög þungt í vöfum og hefur skert vald sveitar- stjóma og samningar í hinum ýmsu stjómum um framkvæmd verkefna taka ómældan tíma sveitarstjómarmanna. Með sama hætti má benda á ágæta sambúð dreifbýlis og þéttbýlis í sama sveitarfélagi. Vopnafjörður er dæmi um slíkt, og einnig má benda á sameiningar á síð- ustu árum af þessu tagi sem tekist hafa ágæt- lega, t.d. samein- ing þriggja hreppa við aust- anverðan Skaga- fjörð með Hofsós sem miðpunkt. Hitt er svo ann- að mál að engin allsherjarregla er varðandi þessi mál, og eins og áður sagði em aðstæður ákaflega misjafnar. Þar skiptir auð- vitað höfuðmáli, ef sameining á sér stað, að menn gangi ekki nauðugir til þess leiks. Ef svo væri, getur framhaldið orðið óbærilegt. Fólkíð þarf að segja álit sitt Ef frumvarp félagsmálaráðherra um kosn- ingar um sameiningu nær fram að ganga á Al- þingi í vor, verður kosið um sameiningarmál- in fyrir áramót. Það er brýnt að ganga úr skugga um afstöðu fólksins um þessi mál. Sé ekki vilji fyrir hendi að taka stór skref nú, verða stjórnvöld að taka því. Þróunin til stækkunar sveitarfélaga tekur þá lengri tíma. Mestu máli skiptir að hún sé friðsamleg og auki ekki á sundmngu og flokkadrætti í þjóð- félaginu. Við þurfum ekki á því að halda nú. Tilflutningur verkefna — tilraunasveitarfélög Niðurstaða sveitarfélaganefndar var sú að gera ekki ákveðnar tillögur um tilflutning verkefna að sinni. Nefndin lagði þó til að Menntamálaráðuneyti, Félagsmálaráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga og samtök kennara ynnu að tillögum um með hverjum hætti laun kennara við gmnnskóla yrðu flutt til sveitarfélaga. Þessi tillaga byggist á því að rekstrarkostnaður grunnskóla er nú á hendi sveitarfélaganna, en framkvæmd hennar og frekari verkefnatilflutningur hlýtur að sjálf- sögðu að byggjast á því hver niðurstaða al- mennra kosninga um sameiningu sveitarfé- laga verður. Hins vegar leggur nefndin til að komið verði á fót svokölluðum tilraunasveitarfélögum, fimm talsins. í slíkum sveitarfélögum mætti reyna verkefnatilfærslu frá ríki. Osk um að gerast tilraunasveitarfélag verður að koma frá heimamönnum. Þau sveitarfélög, sem kjósa að sameinast í þessu skyni, hafa forgang þeg- ar valið verður um þau sveitarfélög sem taka þátt í þessari tilraun. Tilraunasveitarfélög em þekkt á öllum Norð- urlöndunum, þótt þau hafi þar fremur verið til þess að reyna aukna sjálfsstjóm sveitarfé- laga fremur en stækkun þeirra og verkefnatil- flutning. Mismunandi áherslur Eins og áður segir em áherslur sveitarstjórn- armanna í sameiningar- og verkaskiptamál- unum mjög misjafnar. Það stafar af mismun- andi stærð þeirra og ólíkum aðstæðum. Stóru sveitarfélögin kalla eftir fleiri verkefnum, meðan forsvarsmenn þeirra minni óttast að ekki verði jafnræði milli fólks við verkefnatil- flutning, og ríkið hafi gegnt því hlutverki að jafna aðstöðuna. Ég er þeirrar skoðunar að aukin verkefni sveitarfélaga og yfirtaka stórra málaflokka frá ríkinu hljóti að miðast við vemlega stækkun sveitarfélaganna. Það sem mestu máli skiptir í sameiningar- og verkaskiptamálunum em nokkur gmndvallaratriði sem hafa verður í huga. í fyrsta lagi getu sveitarfélaga til þess að veita íbúum sínum sem besta þjónustu. í öðm lagi hvaða stærð sveitarfélaga og verkefni styrkja landsbyggðina og gera hana sem best mótvægi við höfuðborgarsvæðið. í þriðja lagi hvaða stærð sveitarfélaga myndar best um- hverfi fyrir atvinnureksturinn. Ég er þeirrar skoðunar að það sé byggðamál að efla sveitar- stjórnarstigið og það eflist með því að sam- eina kraftana. Hins vegar verður fólkið að ráða því hvað skrefin verða stór. Ég hef líka trú á því að þróunin verði sú að sveitarfélögin taki að sér fleiri verkefni sem ríkið hefur nú með höndum. Það á hins vegar ekki að flana að neinu í því efni. í áfangaskýrslu sveitarfélaganefndar var bent á ýmsar leiðir varðandi sameiningu og verk- efnatilflutning sem vom róttækar. Þær vöktu þarfa umræðu um þessi mál. Niðurstaða nefndarinnar er hins vegar sú að setja málið f ákveðinn farveg þar sem heimamenn ráða ferðinni. Ég tel það farsæla niðurstöðu.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.