Tíminn - 13.11.1993, Blaðsíða 9
Laugardagur 13. nóvember 1993.
9
Heimilin farin að spara?
Dregið hefur úr lánsfjáreftirspurn heimila. Fyrirtækin auka lántökur
Heimilin í landinu hafa tekið
heldur minna að láni það sem af
er árinu en sömu mánuði í fyrra.
Vöxtur lána til heimila var 10%
á síðustu tólf mánuðum. Vöxt-
urinn var 14% á sama tímabili
árið áður. Fyrirtækin hafa hins
vegar aukið lántökur sínar um
6% síðustu mánuði. Á sama
tíma hefur spamaður aukist.
Fyrstu níu mánuði ársins tóku
fyrirtæki, ríkið, sveitarfélög og
heimilin 735 milljónir að láni. í
sömu mánuðum í fyrra lánuðu
bankamir 671 milljón. Aukning-
in er 9,6% sem er talsvert meiri
aukning en í fyrra. Gengisfell-
ingin skýrir þessa auknu lántöku
að verulegu leyti. Sé tekið tillit
til hennar er lánsfjáreftirspumin
svipuð á þessu ári og undanfarin
tvö ár.
Það er ríkið sem hefur aukið
mest lántökur sínar undanfama
mánuði eða um 30%. Á undan-
fömum ámm hafa heimilin farið
fyrir í lánsfjáreftirspurninni
ásamt ríkinu. Heimilin hafa nú
dregið vemlega úr lántökum sín-
um. Þau juku lántökur sínar um
einungis 8% á fyrstu níu mán-
uðum þessa árs, en aukningin
var 14% allt árið í fyrra. Seðla-
bankinn telur of snemmt að
segja tíl um hvort hér hafi orðið
einhver straumhvörf í lánsfjár-
eftirspum heimilanna eða hvort
hér sé á ferðinni tímabundin
breyting.
í fyrra stóð lánsfjáreftirspurn
fyrirtækja nánast í stað, en á
þessu ári hefur orðið breyting á.
Fyrirtækin hafa aukið lánveit-
ingar sínar um 6% sé horft til
síðustu tólf mánaða og um 13%
sé einungis horft á fyrstu níu
mánuði þessa árs. Gengisbreyt-
ingar skýra þennan vöxt að
hluta til, en þó alls ekki að öllu
leyti. Þeirri spurningu er hins
vegar ósvarað hvort fyrirtækin
eru byrjuð að taka peninga að
láni að nýju tíl þess að fjárfesta
eða hvort þau em að íjármagna
hallarekstur.
Peningalegur spamaður lands-
manna jókst á fyrstu níu mán-
uðum ársins um 8,5% eða um
494 milljónir króna. Þetta er ívið
meiri spamaður en á sömu mán-
uðum í fyrra þegar spamaðurinn
nam 7,4%. -EÓ
Björn
hættur
Bjöm Önundarson tryggingayfir-
læknir hætti störfinn hjá Trygg-
ingastofnun ríkisins í gær.
Skattamál Bjöms hafa verið til
rannsóknar undanfama mánuði
vegna gruns um að hann hafi
vantalið tekjur vegna örorku-
mats. Búist er við að yfirskatta-
nefnd felli fljótlega úrskurð í
máli Bjöms.
Aðstoðartryggingayfirlæknir
sagði starfi sínu lausu fyrr í þess-
ari viku, en áður hafði hann sæst
á dómsátt vegna skattaundan-
dráttar. -EÓ
Bjöm
Onundarson,
fyrrverandi
tryggingar-
yfirlækni
Húsbréf
Innlausnarverð
húsbréfa í
1. flokki 1989
1. flokki 1990
2. flokki 1990
2. flokki 1991
3. flokki 1992
Innlausnardagur 15. nóvember 1993.
1. flokkur 1989: Nafnverð: 500.000 kr. 50.000 kr. 5.000 kr. Innlausnarverð: 777.161 kr. 77.716 kr. 7.772 kr.
1. flokkur 1990: Nafnverð: 500.000 kr. 50.000 kr. 5.000 kr. Innlausnarverð: 686.137 kr. 68.614 kr. 6.861 kr.
2. flokkur 1990: Nafnverð: 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 1.356.818 kr. 135.682 kr. 13.568 kr.
2. flokkur 1991: Nafnverð: 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 1.261.194 kr. 126.119 kr. 12.612 kr.
3. flokkur 1992: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 5.565.677 kr. 1.113.135 kr. 111.314 kr. 11.131 kr.
Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka íslands
Suðurlandsbraut 24.
[£h HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
LJ HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 69 69 00
FÍB undrandi
Furðar sig á verkalýðshreyfingunni
Afmælis- og minningargreinar
Þeim, sem óskabirtingar á afmælis- og/eða minningargreinum
í blaðinu, er bent á, að þær þurfa að berast a.m.k. tveimur
dðgum fyrir birtingardag. Þœr þurfa að vera vélritaðar.
Félag íslenskra bifreiðaeigenda
lýsir furðu sinni á að verkalýðs-
hreyfingin skuli hafa samþykkt
hækkun á bifreiðagjaldi, sem
fyrirhuguð er og er hlutí af sam-
komulagi ríkisstjórnar og aðila
vinnumarkaðarins. Þetta kemur
fram í fréttatilkynningu frá fé-
laginu. Þar segir ennfremur að
hækkunin komi mest niður á
þeim sem kjörin hafa lökust.
Samkvæmt samkomulaginu er
fyrirhuguð 33% hækkun á bif-
reiðagjaldinu. í fréttatilkyxuiing-
unni segir að upphaflegur til-
gangur bifreiðagjaldsins hafi ver-
ið að afla tímabundinna tekna í
ríkissjóð til að stoppa upp í fjár-
lagagat. Árangurinn hafi látið á
sér standa, því bifreiðagjaldið
hækki og fjárlagagatíð stækki.
FfB gagnrýnir að eignaskattur-
inn, sem bifreiðagjaldið er, sé
lagður á, miðað við þyngd bif-
reiða, án tillits til verðmætis eða
vélarstærðar. Þar verði harðast
fyrir barðinu eigendur gamalla,
þungra og verðlítilla bfla „Hvaða
sanngimi er í því að borga sama
eignaskatt af 20 ára gömlum
Land Rover og nýjum fimm
milljóna króná jeppa? Álagning
eignaskatts sem hefur ekkert
með verðmæti að gera gengur
þvert á siðferðisvitund samfé-
lagsins,* segir í fréttatilkynningu
FÓ. -PS
NÓVEMB
Gegnheilt beyki valið
16 mm stafaparket
kr. 2.692,-
og
JATOBA MOSAIK
8 mm kr. 1.716
ViS bjóðum eftirfarandi magnafslótt
ó stafaparketi og korki:
Viö verslum einungis með gagnheilt gæSaparket.
þ.e. tréð er límt beint ó steininn og síSan slípaS.
spartlaS og lakkaS eftir á.
Gegnheil (massiv) gólf eru varanleg gólf!
HefSir miSalda í heiSri haf&ar.
GeriS verSsamanburS!
Opiðkl. 10—18 FAGMENN OKKAR LEGGJA M.A.
, FISKBEINAMYNSTUR
virka aaga. (síldarmynstur) og skrautgólf,
LAKKA EÐA OUUBERA.
4a
57 58
FAX 683975
Suðurlandsbraut
20—40 fm 7%
41 —60 fm 10%
1—100fm 13%
101—150 fm 15%
151—200 fm 18%
yfir 200 fm 20%