Tíminn - 13.11.1993, Side 12
íþróttir
Laugardagur 13. nóvember 1993
12
Bestu menn Marseille ti
LECCE
Lecce rak þjálfara sinn, Nedo
Sonetti, í vikunni og réð í staðinn
Rino Marchesi, sem hefur þjálfað
m.a. Napoli, Inter og Juventus, en
var á síðasta tímabili þjálfari Spal í
2. deild. Liðið fékk fyrir skömmu
til sín Rufo Emiliano Verga, 23
ára fríheija frá AC Milan, og fyrir
síðustu helgi hafði liðið fengið
framherjann Kwame Ayew frá
Metz, sem átti samning hans að
hálfu á móti bróður hans, Abedi
»Pelé' Ayew. Tveir lítið þekktir
leikmenn bættust svo í hópinn í
þessari viku, en það eru þeir
Erba, 22 ára framheiji frá Leffe,
og Andre Gumprecht, 19 ára
þýskur tengiliður sem fenginn var
frá Bayer Leverkusen, en hann
hefur aldrei leikið með liðinu í
Bundesligunni. Hann hefur verið
í unglingalandsliðum Pjóðverja,
en var skráður sem áhugamaður
hjá Leverkusen. Hann lék þrjá
leiki með unglingaliði Lecce fyrir
skömmu og stóð sig það vel að
stjómarmenn liðsins vildu tryggja
sér hann strax. Frá Lecce eru
famir Alessandro Morello til Ac-
ireale og Brasilíumaðurinn Gauc-
ho Toffoli, sem hefur ekki staðið
undir væntingum og var sagt
upp.
AC MILAN
Fabio Capello, þjálfari Milan,
kom nokkuð á óvart þegar hann
ákvað að kaupa franska leik-
manninn Marcel Desailly frá
Marseille strax, en búist var við
að hann kæmi til lisins næsta
sumar. Desailly er 25 ára og
fæddur í Ghana, en er franskur
ríkisborgari og landsliðsmaður.
Hann hóf ferilinn hjá Nantes, en
var keyptur til Marseille sumarið
1992 og var í liðinu sem sigraði
Milan í úrslitaleik Evrópukeppn-
innar síðastliðið vor. Lék vana-
lega sem miðvörður hjá Mar-
seille, en Milan ætlar sér að nota
hann á miðjunni þar sem hann á
að taka við hlutverki Franks
Rijkaard. Milan hefur lánað tvo
leikmenn til loka þessa tímabils;
markvörðinn Francesco Antoni-
oli til Pisa og varnarmanninn
Rufo Emiliano Verga til Lecce. í
síðustu viku Iék liðið fyrri leik
sinn gegn Piacenza í 3. umferð
bikarkeppninnar og gerðu aðeins
1-1 jafntefli á heimavelli. Liðinu
til málsbótar má þó nefna að nær
enginn af fastamönnum liðsins
lék með. Prír unglingar fengu að
spreyta sig í fyrsta sinn, en það
voru þeir Mirko Sadotti, 18 ára
miðvörður, Francesco Cozza, 17
ára tengiliður, og Guerenzo, 18
ára framherji. Sadotti og Cozza
hófu leikinn, en Guerenzo kom
inn á sem varamaður. Þá kom
Gianluigi Lentini einnig inn á
ÍTALSKI BOLTINN
Sævar HreiSarsson
Ekkert er leikið í 1. deild (Serie
A) um helgina vegna landsleiks
ítala gegn Portúgal í næstu viku.
í síðustu viku gekk mikið á, þar
sem markaðurinn fyrir leik-
mannaskipti lokaði á miðviku-
dag. Flest liðin gerðu breytingar á
leikmannahópi sínum og verður
fróðlegt að sjá hvort nýir menn
nái að breyta gengi liðanna.
ATALANTA
Einna mestar breytingar hafa
orðið hjá Atalanta undanfama
viku og má segja að liðið mæti
með nýtt lið til leiks. Fyrir síð-
ustu helgi keypti liðið Andrea
Poggi, vinstri bakvörð, frá Venez-
ia og áður en markaðurinn lok-
aði á miðvikudag hafði liðið fest
kaup á sex leikmönnum í viðbót.
Nicola Boselli er 21 árs vamar-
maður sem keyptur var frá Ra-
venna, Luciano De Paola er 32
ára varnar-tengiliður sem kom
frá Lazio með framherjanum Gi-
anpaolo Saurini, en Lazio fékk þá
báða í sumar frá Brescia. Pietro
Assannato er 21 árs vamarmaður
sem kemur frá Palermo á Sikiley,
og Marco Sgro er 23 ára tengjlið-
ur sem keyptur var frá Fiorenzu-
ola þar sem hann hefur staðið sig
mjög vel undanfarin ár. Hann
hóf ferilinn hjá Genoa, en fékk
aldrei tækifæri með félaginu. Að
lokum endurheimti liðið mark-
vörðinn efnilega Marco Am-
brosio, sem lánaður var til Pisa í
upphafi tímabilsins. Liðið hefur
látið fjóra leikmenn af hendi í
staðinn, en það em þeir Tebaldo
Bigliardi, þrítugur vamarmaður
sem fór til Palermo, Emanuele
Tresoldi, 19 ára vamarmaður
sme fór til Ravenna, Matteo
Capecchi, 19 ára tengiliður, sem
fór til Leffe, og Federico Pisani,
19 ára framheiji sem var lánaður
til Monza til að öðlást reynslu, en
hann er talinn með efnilegustu
leikmönnum ítala í dag.
CAGLIARI
Cagliari breytti liði sínu ekki
mikið, en skipti þó um mann á
miðjunni. Liðið seldi Massimili-
ano Cappioli til Roma, en fékk í
staðinn Dario Marcolin að láni
frá Lazio, en hann er nýorðinn
22 ára og hefur verið fyrirliði 21-
árs landsliðs ítala að undan-
fömu.
CREMONESE
Engar breytingar vom gerðar á
leikmannahóp Cremonese, en
Lazio reyndi ákaft að fá mið-
vörðinn efnilega Francesco Col-
onnese frá félaginu og var tilbúið
að láta Luca Luzardi ganga upp í
kaupin.
FOGGIA
Foggia tók því einnig rólega á
markaðnum og aðeins ein breyt-
ing var gerð á liði þeirra. Vamar-
maðurinn Gianluca Grassadonia
var Ieyft að fara til Salemitana,
en hann hefur lítið fengið að
spreyta sig með byrjunarliðinu.
GENOA
Genoa hefur gengið illa á þessu
tímabili og hugði á miklar breyt-
ingar. Um síðustu helgi lagði lið-
ið Udinese að velli með 4-0 sigri
og má vera að það sé ástæðan
fyrir því að aðeins einn leikmað-
ur var keyptur. Pað var Ungveij-
inn Lajos Detari, sem leikið hef-
ur á Ítalíu undanfarin ár með
Bologna og á síðasta tímabili An-
cona, en snéri aftur til heima-
landsins í sumar og hefur leikið
með Ferencvaros. Genoa seldi
einnig aðeins einn leikmann og
það var Valeriano Fiorin, sem fór
til Palermo.
INTERNAZIONALE
Osvaldo Bagnoli, þjálfari Inter,
gerði miklar breytingar á liði
sínu í sumar og virðist mjög sátt-
ur við þá leikmenn sem hann
hefur. Liðið bætti
því engum leik-
manni í hópinn, en
fyrir skömmu var
varnarmaðurinn Gi-
anluca Festa lánað-
ur til Roma út þetta
tímabil. Inter háði í
vikunni seinni Ieik
sinn gegn Lucchese
í bikarkeppninni, en
Inter sigraði í fyrri
leiknum 2-0 á San
Siro. í síðari leikn-
um var Lucchese
tveimur mörkum
yfir í hálfleik, en
Rússinn Igor Sha-
limov bjargaði lið-
inu með því að
minnka muninn tíu
mínútum fyrir leiks-
lok og Inter kemst
því áfram á marki
skoruðu á útivelli.
Marcel Desailly hefur verið keyptur til AC Milan
frá Marseille. Hann er franskur
landsliösmaður og er ætlað að taka við hlutverki
Franks Rijkaard á miðjunni.
JUVENTUS
Litlar breytingar
voru á liði Juvent-
us, en vamarmann-
inum Marco De
Marchi var leyft að
fara til Bologna.
Giovanni Trapattoni
þjálfari er ánægður
með að fá frí í eina
viku, þar sem liðið á
við mikil meiðsli að
stríða, og vonast
hann til að Angelo
Pemzzi og Gianluca
Vialli verði til í slag-
inn fyrir næsta leik.
LAZIO
Alen Boksic kom til liðs við
Lazio fyrir leikinn gegn Napoli
um síðustu helgi og var ásamt
Giuseppe Signori besti maður
liðsins. Hann tók stöðu Pierluigis
Casiraghi í sókninni og Casiraghi
var ekki ánægður með að detta
út úr hðinu. Spumingin er bara
hvaða útlendingur þarf að víkja
úr liðinu og hallast nú flestir fjöl-
miðlar á Ítalíu að því að Paul
Gascoigne eigi ekki afturkvæmt í
liðið. Þjóðverjinn Thomas Doll
hefur leikið mjög vel í síðustu
tveimur leikjum og Hollending-
urinn Aron Winter virðist vera
búinn að festa sig í sessi í liðinu á
meðan Gascoigne hefur verið
slakur þegar hann hefur getað
leikið með.
dós ög gæöin
koma í Ijós!
hagstœð kjör, langur lánstími, sveigjanlegt lánshlutfall, margir gjaldmiðlar
IÐNÞROUNARSJÓÐUR
Kalkofnsvegi 1 150 Reykjavík sími: (91) 69 99 90 fax: 62 99 92