Tíminn - 13.11.1993, Page 14
Laugardagur 13. nóvember 1993
4
14
ÞÁ OG NÚ
ÞÓR JÓNSSON
1 litlu þorpi sem heitir Ahja í suð-
austurhluta Eistlands stendur fal-
legt timburhús, þar sem nú er
apótek. Fyrir fimmtíu og tveimur
árum var þetta apótek höfuð-
stöðvar Omakaitse-sveita (sjálfs-
varnarsveita eða Selbstschutzfor-
mationen á þýsku), sem voru
vopnaðir flokkar, skipulagðir af
hernámsliði nasista og því til að-
stoðar að baki víglínunnar, á með-
an þýsku herimir brutust í átt að
Leníngrad.
íbúar þessa héraðs, sem hafa ald-
ur til, muna vel eftir foringja Om-
akaitse-sveitarinnar, Eðvaldi Hin-
rikssyni. Pá hét hann Evald Mik-
son, en býr nú á íslandi, áttatíu og
tveggja ára gamall, landflótta eftir
að rússneski herinn hrakti nasista
á braut og lagði undir sig Eistland.
Hann hefur verið sakaður um að
hafa framið stríðsglæpi í seinni
heimsstyrjöld og ríkissaksóknari
hefur efnt til opinberrar rannsókn-
ar í máli hans.
Leyndarskýrsla
Upp úr miðjum október árið
1941 sendi Frariz Stahlecker
stormsveitarforingi yfirboðurum
sínum í Berlín leyndarskýrslu, sem
fjallar m.a. um samstarf nasista og
eistneskra samverkamanna.
Skýrslan var lögð fram sem sönn-
unargagn í stríðsglæparéttarhöld-
unum í Numberg eftir stríð.
Á blaðsíðu 20 í þeirri skýrslu seg-
ir að sjálfsvamarsveitunum (þ.e.
Omakaitse) hafi verið falið að
framkvæma aftökur.
í Ahja búa enn aðstandendur
þeirra sem félagar í Omakaitse
tóku af lffi í stríðinu. Peir mirmast
þess, að Omakaitse-menn
skemmdu leiðiskransa og þvíum-
líkt jafnóðum og það var lagt á
fjöldagröfina. Vinsæll kennari að
nafni Eduard Piitsepp var skotinn
fyrir að hrópa ,niður með Hitler*
þrisvar sinnum.
í bréfi, sem Eðvald Hinriksson
skrifaði og sendi útlendingaeftirlit-
inu í Svíþjóð, þegar hann hafði
flúið þangað frá Eistlandi í lok
stríðsins, segist hann hafa verið
foringi þessa Omakaitse-flokks í
Ahja.
Judenfrei"
Eistland varð fyrsta landið í her-
námi Hitlers sem var lýst „Ju-
denfrei', laust við gyðinga. Samfé-
lag gyðinga var fámennt í Eistlandi
og obba þess tókst að flýja til Rúss-
lands. Þeir sem voru um kyrrt
vom því sem næst allir myrtir.
í fyrrnefndri leyndarskýrslu
Stahleckers stormsveitarforingja
stendur á blaðsíðu 31, að nánast
allir karlar af gyðingaætt, eldri en
16 ára, hafi verið handteknir og að
.eistnesku sjálfsvarnarsveitirnar*
taki þá af lífi undir eftirliti Þjóð-
veija.
Pólitíska lögreglan
Eðvald Hinriksson hafði verið
lögreglumaður í höfuðborginni
Tallinn fyrir stríð. Þegar nasistar
náðu borginni á sitt vald um
haustið 1941 var Eðvaldi veitt
staða og mannaforráð í Pólitísku
lögreglunni, deild B IV.
Um Pólitísku lögregluna segir
Stahlecker á blaðsíðu 19 í skýrslu
Höfuðstöðvar Miksons
■ J ^
Ahja heimsótt og gluggað í skýrslur
sinni, að húö hafi verið undir SI-
PO, öryggislögreglunni þýsku.
Verkefni hennar hafi verið að leita
uppi og handtaka menn, setja þá í
varðhald og afla sannana gegn
þeim. Þá skyldi hún leggja gögnin
fyrir Þjóðverja með tillögu að
dómi.
Sagnfræðileg rannsókn hefur leitt
í ljós, að tillögu eistnesku lögregl-
unnar að dómi var venjulega
framfylgt án frekari rannsóknar
eða réttarhalda.
Finnska skýrslan
f október árið 1941 sendi Örygg-
islögreglan í Finnlandi mann út af
örkinni til þess að grennslast fyrir
um aðstæður í Eistlandi. Þessi
maður var Olavi Viherluoto, sem
skrifaði fræga skýrslu um ferð sína
og fundi við nasista og eistneska
samverkamenn þeirra. Skýrsla
hans var lögð fram sem sönnunar-
gagn fyrir finnskum dómstólum
eftir stríð, þegar yfirmaður hans,
Arno Anthoni, var ákærður fyrir
stríðsglæpi.
Viherluoto hitti m.a. Eðvald Hin-
i
A. OrgAh4£atorÍ3cho l’Æaferuúuien l'i
ii. Simlljprttrc: und Sichórung doo Ein*
Batatáúi oo 21
<i, Snlonogeah./ebr 39
D. I*erB«mBnUborprvl#ttag U3d Kartel-
weseh < í 40
E. Krintiíu\lp=licolliche /orholt 41
A. Ityjewhrr doj-i EimzuLríWh. der deut-
aátíén sHcnppúni' 47
B. Iage attf don Lobonageöleten bia
15.lo.1941. 61
C. Judiðchér Einfluao auf riia Lébons-
^cbiete itn Ootl.ind 107
. IV. ^olBtánde und VQrachl^/.-a bu ihrer
............................. i34
a
n
Knaz'in i
Die SelhsÍBohut zf ortiat ionen werd cn zur
Durchffihrunfi von Erekuti^jtien feíngeBetsrt. Ihre
waitere Áufgahe iat die Békáopfung der ir. Eat~
'l3nd iooer noch auftauchéndon vereprengten
Rctarmistenruna PeLrJi'áaneoigrhppén. Perner iet
ihnen der Wachdiahet in den heereswichtigen
• Betrioben^sn Brilckeu, Leg'errhúnec und aonetigen
aabotagsgeföhrdeten Stellén tibertreten wcrden.
Pilr Gef&ngsnentranoporte etellt der Selbet-
achutz die Bowachungsmannachaften.
2) Kouaufbau qoe Geffingniaweaene.
Die Gcfaagnie8o in den báltieahen Löndern
wurden entwfeder ybllig leer vorgofunden cder
waren mit den Von den SelbateohutzlcrKften er-
griff enen Juden und Kómnunisten belogt.
Die Bolsch'ow^Dten haben cei ihrem' Rílchsug
iie GéfJLrgniaíuiflasaen ontv/eder eraordot oder
yerschleppt. La3 Gefangniepersonal war melet
ait den P.uasen geflohcna
Dn landeaéigeno Justizrarv.-altur.gcn vorerst
nicht exiátiejrteh und dio deutocher. Gericlxte
erot nach EJnfííhruag der Zivilvorwáltung ein-
geeetzt v/érdtn, wurden zunS.chst e.ll£ Gcfhngntfe-.-
ee ohne EiíckaJ.cht • auf íhre frilhere Zweckbeetir. •
nuag in polizeiliohe Verwaltung genomaer.. Das
Peroonal ftir don Geftthgniediehat otellen dle
Selbatachutzkrafte und Hilfepolizoien.
Soweit die Aufnahinefhhigkeit der Haftrfcuae
nicht auereichte, wordon provioorische Kcnzen-
trationalager errichtet. Die Vorarboiten zur
Errichtung von griJeaeren Eonzentratior.elegom
laufen.
Á5I0. Die ala Anlage5 beigefflgteh Tabellen
zeigen die Jetr.ls?- dcv so,
-21-
098241
Skýrsla Franz Stahleckers stormsveitarforingja greinir fró hlutverki Omakaitse-sveitanna
(Selbstschutzformationen), en þær sóu m.a. um aftökur fanga.
I skógarjaðrinum fjærst og til hægri fóru fram aftökur Omakaitse og þar voru fórnarlömbin grafin.
riksson og greinir frá því í skýrslu
sinni, að Eðvald hafi gefið upplýs-
ingar um að gyðingar væru drepn-
ir í hópum og fangar á valdi lög-
reglunnar pyntaðir á herfilegan
hátt. Viherluoto staðfesti skýrslu
sína í stríðsglæparéttarhöldunum í
Turku. Hann er nú látinn.
Neitar öllu
Eðvald Hinriksson neitar sakar-
giftunum um að hann hafi átt þátt
í stríðsglæpum í Eistlandi. Hann
segist vera ofsóttur af kommúnist-
um, — eða að fyrrverandi sam-
starfsmaður hans í Pólitísku lög-
reglunni, Harry Mannil, sem er
núna milljónamæringur í Venesú-
ela, reyni að koma höggi á sig. Eð-
vald hefur þess vegna sagt að
Mánnil þessi hafi verið á bandi
nasista.
Mánnil segist hinsvegar ekkert
skilja í ásökunum Eðvalds. Þó er
að finna um Mánnii — líkt og Eð-
vald — þykkar möppur í sænsk-
um skjalasöfnum um meinta glæpi
hans í stríðinu.
4